13.12.1966
Efri deild: 24. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 347 í B-deild Alþingistíðinda. (230)

66. mál, útvarpsrekstur ríkisins

Páll Þorsteinsson:

Herra forseti. Við 2. umr. þessa máls hér í d. lá fyrir brtt. á þskj. 115, sem flutt er af mér og tveim öðrum hv. þm. Við þá umr, gerði ég grein fyrir efni málsins, en tók till. aftur til 3, umr. Nú hefur sú breyting á orðið, að meiri hl. menntmn. flytur till. á þskj. 134 þess efnis, að till., sem fyrir lá við 2. umr. á þskj. 114 frá hv. 4. þm. Vestf., verði umorðuð. Þetta veldur því, að okkur, sem stóðum að till. á þskj. 115, þykir eðlilegra að breyta forminu á okkar till. Till. á þskj. 115 er því tekin aftur endanlega, en í þess stað flytjum við tvær till., sem ég vænti, að komi til atkv. nú að lokinni þessari umr. Önnur þeirra er á þskj. 140 og er brtt. við till. á þskj. 134. Efni hennar er það, að í stað 25 millj. kr. lánsheimildar komi 50 millj. kr. lánsheimild. Hin till., sem við berum nú fram, er á þskj. 139 og felur í sér ákvæði til bráðabirgða, sem nú er orðað með tilliti til þess, sem þegar er fram komið og ég hef gert grein fyrir í sambandi við þá lánsheimild, sem fella á inn í frv.

Ég tel ekki þörf á að hafa um þetta fleiri orð. Eins og ég tók fram, gerði ég grein fyrir efni málsins við 2. umr. og endurtek það ekki, nema sérstakt tilefni gefist til, en vildi með þessum orðum gera grein fyrir þeirri formbreytingu, sem við höfum gert á okkar tillögu.