16.11.1966
Sameinað þing: 10. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 259 í D-deild Alþingistíðinda. (2329)
29. mál, þyrlur til strandgæslu, björgunar- og heilbrigðisþjónustu
Flm. (Sigurður Bjarnason):
Herra forseti. Ég hef leyft mér ásamt 5 öðrum hv. þm. af Vestfjörðum, Norðurlandi og Austfjörðum að flytja þáltill. um þyrlur til strandgæzlu, björgunar- og heilbrigðisþjónustu. Efni þessarar till. er, að Alþ. skorar á ríkisstj. að beita sér fyrir því, að landhelgisgæzlan fái hið fyrsta tvær nýjar þyrlur og verði önnur þeirra notuð í þágu strandgæzlu, björgunar- og heilbrigðisþjónustu við Breiðafjörð, á Vestfjörðum og í Húnaflóa, en hin á Norðausturlandi og Austfjörðum. Skal stefnt að því, að þessi tæki verði að jafnaði staðsett í þeim landshlutum, sem þau eiga að þjóna.
Íslenzka landhelgisgæzlan á nú eina litla þyrlu, sem talin er hafa reynzt mjög vel. Þessi þyrla landhelgisgæzlunnar hefur verið staðsett í Reykjavík, en hún getur lent á þilfari tveggja varðskipanna. Enn fremur mun gert ráð fyrir því, að hið nýja varðskip, sem hafizt verður handa um að byggja í byrjun næsta árs, verði einnig þannig útbúið, að þyrla geti lent á þilfari þess.
Það er alkunna, að flugtækni fleygir nú á öllum sviðum mjög fram og þá ekki hvað sízt að því er varðar smíði þyrla eða helikoptera. Þessar flugvélar verða stærri, langfleygari og öruggari og í fjölmörgum löndum meðal margra þjóða fer notkun þeirra mjög í vöxt í margvíslegu skyni. Það er skoðun Péturs Sigurðssonar forstjóra landhelgisgæzlunnar, að þyrlur muni í framtíðinni gegna mjög þýðingarmiklu hlutverki við strandgæzlu og björgunarstörf hér á landi. Enn fremur er auðsætt, að slík tæki geta bætt verulega úr þeim vanda og þeim erfiðleikum, sem læknaskorturinn hefur haft í för með sér víðs vegar hér á landi og þó sérstaklega í strjálbýlustu héruðunum. Gefur auga leið, að það væri ómetanlegt hagræði að þyrlum til sjúkra- og læknaflutninga, ekki sízt eftir að fyrirhugaðar læknamiðstöðvar hafa verið settar á stofn í hinum ýmsu landshlutum, eins og gert er ráð fyrir í nýsettri löggjöf um læknaskipunarmál. Það er alkunna, að öryggisleysi fólksins í strjálbýlinu, sem býr við læknaskortinn, er hið hörmulegasta, og einskis má láta ófreistað til þess að bæta úr þeim vandkvæðum, sem að almenningi steðja af þessum sökum.
Þyrlur er einnig hægt að nota til ýmislegra annarra flutninga. Þær hafa þegar komið að verulegum notum hér á landi, t.d. þegar snjóþyngsli hafa lokað samgönguleiðum. Átti þetta sér t.d. stað á Austfjörðum á s.l. ári, þar sem þyrla var notuð til flutninga á milli fjarða og Héraðs, er snjóalög tepptu samgöngur milli þessara byggðarlaga.
Það er því skoðun okkar flm. þessarar till., að brýna nauðsyn beri til þess að afla slikra tækja og hafa þau að jafnaði staðsett í þeim landshlutum, sem þau eiga að þjóna. Hugsanlegt væri að hætta rekstri minnstu varðbátanna, sem eru mjög dýrir í rekstri, en ná þó ekki tilgangi sínum, hvorki sem varðskip né björgunarskip. Það er ekki víst, að rekstur og kaup þessara nýju tækja þyrftu að hafa í för með sér tilfinnanlegan aukakostnað fyrir landhelgisgæzluna og ríkissjóð. Á það má minna í þessu sambandi, að landhelgisgæzlan hefur fyrir alllöngu tekið flugið í þjónustu sína. Fyrst var keyptur Katalínubátur, sem notaður var við gæzlu- og björgunarstörf, og síðan Skymasterflugvél, sem mikil og góð not hafa af orðið, sérstaklega við landhelgisgæzluna, en einnig við ýmiss konar þjónustu í þágu landsmanna.
Ég tel þess ekki þörf, herra forseti, að hafa fleiri orð til rökstuðnings þessari þátill. Ég hygg, að hér sé um merka nýjung hað ræða, sem óhjákvæmilegt sé að taka í vaxandi .mæli í senn í þjónustu landhelgis- og björgunarstarfa og til almennrar heilbrigðisþjónustu í landinu. Ég tel, að reynsla annarra þjóða hafi sannað það, að af þessum tækjum megi hafa slík not, og það er því von okkar flm. till., að henni verði vel tekið, og ég heyrði það raunar á ræðu hæstv. dómsmrh., sem mælti hér nýlega fyrir frv. til l. um Landhelgisgæzlu Íslands, heildarlöggjöf um það efni, að hann hafði mikinn áhuga á einmitt þessum nýju tækjum, og það hefur verið í undirbúningi af hálfu landhelgisgæzlunnar að hefjast handa um frekari aðgerðir á þessu sviði, en eins og kunnugt er og ég sagði áðan, hefur landhelgisgæzlan þegar eignazt eina litla þyrlu, sem reynzt hefur mjög vel og bent fram í tímann um það, sem koma skal.
Ég leyfi mér, herra forseti, að óska þess, að þessari einu umr. um till. verði frestað og henni síðan vísað til hv. allshn.