08.02.1967
Sameinað þing: 22. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 307 í D-deild Alþingistíðinda. (2363)
39. mál, kaupmáttur tímakaups verkamanna í dagvinnu
Flm. (Þórarinn Þórarinsson):
Herra forseti. Till. sú, sem hér er til umr., er á þá leið, að Alþ. ályktar að skora á ríkisstj. að fela kjararannsóknarnefnd athugun á orsökum þess, að kaupmáttur tímakaups í dagvinnu hefur ekki aukizt, heldur í sumum tilfellum minnkað síðan 1959, þrátt fyrir meiri þjóðartekjur nú en þá. og að kappkostað sé, að þessari athugun sé lokið sem fyrst.
Það er vafalaust öllum þingheimi kunnugt, að svo að segja í öllum löndum er nú stefnt að því að stytta vinnutímann og jafnframt að því að bæta afkomu verkafólks, og það eru ekki aðeins verkamennirnir eða launþegarnir sjálfir, sem hafa áhuga á þessu, heldur líka atvinnurekendur í mörgum tilfellum, vegna þess að þeim er ljóst, að langur vinnutími varður oft og tíðum til þess, að vinnuafköstin verða lakari en ella. Auk þess er vaxandi skilningur atvinnuveitenda á því, að það sé ekki aðeins hagur launþeganna sjálfra, heldur líka atvinnuveganna, að það fólk, sem við þá starfar, njóti sem beztrar afkomu. Öruggasta leiðin til að ná þessu marki, að stytta vinnutímann, en bæta þó jafnframt afkomuna, er að sjálfsögðu sú að auka kaupmátt tímakaupsins í dagvinnu. Með því er það tvennt tryggt í senn, að menn geta stytt vinnutímann, a.m.k. losnað við ýmsa eftirvinnu, sem þeir hafa áður unnið, og eins það, að afkoman getur batnað. Sú hefur líka orðið raunin í langflestum nágrannalöndum okkar, ég held það sé óhætt að segja: í öllum Evrópuríkjum. Á undanförnum árum hefur náðst verulegur árangur í þessum efnum, kaupmáttur tímakaupsins hefur aukizt, vinnutíminn hefur þar af leiðandi viða stytzt og launþegarnir þó búið við batnandi afkomu. Þetta hefur verið hægt að gera, án þess að því fylgdi nokkur sérstök verðbólga, vegna þess að þjóðartekjurnar hafa farið vaxandi í þessum löndum og launþegarnir hafa fengið eðlilega hlutdeild í þeim.
Ísland er hins vegar alger undantekning í þessum efnum. Ég held, að það sé óhætt að fullyrða það, að eina landið í Evrópu, þar sem kaupmáttur tímakaups í dagvinnu hefur ekki aukizt á undanförnum árum, sé Ísland. Það hefur leitt til þess, vegna þess að kröfur um bætt lífskjör hafa aukizt hér eins og annars staðar, að menn hafa reynt að bæta sér þetta upp með því að lengja vinnutímann alltaf meira og meira, og því er hér komið þannig í mörgum tilfellum, að vinnutíminn er orðinn óeðlilega langur, ekki aðeins til tjóns og óhagræðis fyrir þá, sem vinna, heldur líka þá, sem vinnunnar eiga að njóta, því að það liggur í augum uppi, að löngum vinnutíma fylgja í mörgum tilfellum minnkandi afköst, og eru þess áreiðanlega mörg dæmi hér á landi.
Það er rétt að geta þess, að það hefur að vísu nokkuð verið deilt um það, hvort kaupmáttur tímakaups verkamanna í dagvinnu hafi aukizt eða rýrnað á þessum tíma eða ekki, og hafa verið birtir um það allmargir útreikningar, og m.a. hafa verið birtir nokkrir útreikningar frá Efnahagsstofnuninni, útreikningar, sem eru mjög villandi. Nú vill svo til, að fyrir atbeina Alþ., má ég segja, þá var á sínum tíma sett hér á laggirnar sérstök kjararannsóknarnefnd, þar sem bæði fulltrúar launþega og atvinnurekenda eiga fulltrúa, og þessi nefnd hefur tekið sér fyrir hendur að finna út, hver hafi verið kaupmáttur tímakaups verkamanna í dagvinnu á undanförnum árum, og í þessari nefnd hefur náðst algert samkomulag um það á milli fulltrúa verkalýðssamtakanna og fulltrúa atvinnurekenda, hvernig eigi að reikna kaupmáttinn út, og niðurstaðan á þessu samkomulagi og þessum útreikningum var birt nú um áramótin. Og þessi útreikningur, sem er að finna í fréttabréfi kjararannsóknarnefndar, sem hefur verið gefið út í des. 1966, er í stuttu máli á þann veg, að sé reiknað með því, að kaupmáttur í almennri vinnu hjá Dagsbrúnarmönnum hér í bæ hafi verið 100, eða vísitalan 100 á árinu 1959, hafi hann í síðustu árslok ekki verið nema 97,7%, svo að þar er um rúmlega 2% rýrnun að ræða, sem kaupmáttur tímakaupsins í almennri verkamannavinnu er nú minni en hann var á árinu 1959. Það kemur hins vegar í ljós, að hjá þeim verkamönnum, sem hafa færzt verulega til um flokka, eins og hafnarverkamenn, er útkoman nokkuð önnur. Hjá þeim, sem vinna í fiskvinnu og hafa færzt til um nokkra flokka, er niðurstaðan sú, að kaupmáttur tímakaupsins í dagvinnu hjá þeim er nokkurn veginn hinn sami nú og hann var á árinu 1959.
Ég held, að það hljóti öllum að vera ljóst, að hér sé um mikla öfugþróun að ræða, miðað við það, sem hefur átt sér stað í öðrum löndum, því að þjóðartekjurnar hafa sízt vaxið minna hér á landi en þar. Ég held, að það sé þvert á móti óhætt að fullyrða, að aukning þjóðartekna hafi verið tiltölulega meiri hér á landi á þessu tímabili en í flestum löndum öðrum, vegna hagstæðra aflabragða og hagstæðs verðlags á útflutningsvöru, og þetta hefði átt að leiða af sér, að hægt hefði verið að auka kaupmátt tímakaupsins verulega frá því, sem var á árinu 1959, en samt hefur niðurstaðan orðið á þennan veg.
Mér finnst ekki úr vegi í þessu sambandi að minnast hér nokkuð á hið svokallaða júnísamkomulag, sem gert var á vegum ríkisstj., verkalýðssamtakanna og atvinnurekenda 1964, sérstaklega vegna þess, að í umr., sem áður hafa farið fram hér í þinginu, ekki í sambandi við þessa till., heldur í sambandi við skyld mál, hefur stundum verið vikið að mér þeim ásökunum, að ég hafi verið óþarflega gagnrýninn á þetta samkomulag á sínum tíma, og því hefur verið haldið fram af ýmsum aðilum, bæði af hálfu ríkisstj. ag fleiri aðila, að þetta samkomulag hafi verið sérstaklega hagstætt og þess vegna hafi verið óeðlilegt, að það hafi verið gagnrýnt á sínum tíma. Þess vegna er ekki ófróðlegt að athuga það, hvað þessi skýrsla kjararannsóknarnefndar hefur um þetta samkomulag að segja. Ég hef alltaf viðurkennt það, að í sambandi við júnísamkomulagið 1964 náðist verulegur ávinningur að því leyti, að aftur voru teknar upp vísitölubætur á kaupgjald. En ég tel, að þar hafi þó ekki verið um neina nýjung að ræða, síður en svo, því að hér var um rétt að ræða, sem launþegar voru búnir að njóta um 20 ára skeið, en hafði verið tekinn af þeim af núv. ríkisstj., en svo látinn aftur af hendi í sambandi við þessa samninga, þannig að hér gerðist ekki annað en það, að launþegar voru aftur að vinna rétt, sem núv. ríkisstj. hafði rang1ega af þeim tekið, en eigi að síður er það ávinningur, sem rétt er að viðurkenna. Það náðist svo einnig fram í sambandi við þetta samkomulag, að ríkisstj. lofaði að gera vissar umbætur í húsnæðismálum, en lét þó hins vegar þann böggul fylgja skammrifi, að lánin yrðu vísitölutryggð, eins og það er kallað, með þeim afleiðingum, að þau hafa farið sífellt hækkandi og eru þeim, sem þau fá, orðin af þeim ástæðum sérstaklega óhagstæð, enda er nú svo komið, að það er viðurkennt af forsvarsmönnum verkalýðssamtakanna, að í þessum efnum hafi þeir samið af sér.
En hvert var svo innihald júnísamkomulagsins að öðru leyti? Það getum við séð á þessari skýrslu kjararannsóknarnefndar, sem hér liggur fyrir. Hún skýrir frá því, að á árinu 1964, þegar júnísamkomulagið er í gildi, hafi kaupmáttur tímakaups í almennri verkamannavinnu verið 86.7% af kaupmætti ársins 1959. Það, sem var m.ö.o. samið um, var það, að verkamenn vildu sætta sig við 13—14% minni kaupmátt tímakaupsins á árinu 1964 en þeir höfðu haft á árinu 1959. Mér fannst þetta á sínum tíma ekki vera þannig, að það væri sérstök ástæða til að fagna yfir því, og ég gagnrýndi það, og fyrir það man ég, að í umr. hér á Alþingi hlaut ég bæði aðkast frá hæstv. forsrh. og fleiri aðilum, og það var talað um, að með því að gagnrýna þetta væri ég með óþarfleg yfirboð og ábyrgðarleysi og þar fram eftir götunum. En það hefur samt farið svo, að á þetta ábyrgðarlausa tal hefur verið hlustað og eftir þessum yfirboðum, sem svo voru kölluð, hefur verið tekið, því að frá þessum tíma hefur þó sá árangur náðst, að kaupið hefur nú hækkað svo, að kaupmáttur dagvinnutaxtanna er nokkurn veginn orðinn hinn sami í mörgum tilfellum og var 1959. Ég held, að þetta sýni það, að þessi gagnrýni, sam ég var áfelldur fyrir á júnísamkomulaginu 1964, hafi ekki verið ástæðulaus. Og það er meira að segja svo komið, að þegar forsrh. er að telja það fram, sem hann álítur, að sinni stjórn sé einna mest til gildis, er það, að núna tvö seinustu árin hefur orðið nokkur hækkun á kaupmætti tímakaupsins, sem sagt, að það hefur verið fallizt á þessi yfirboð, sem hann og fleiri voru að gagnrýna mig fyrir hér á Alþingi haustið 1964. En ég verð að segja það, án þess að ég ætli að deila á einn eða annan, að mér finnst það að sumu leyti leiðinleg útkoma fyrir þá, sem á sínum tíma urðu þess valdandi, að vinstri stjórnin féll, og töldu þá ekki viðunandi að sætta sig við það, að kaupmáttur launa væri nokkuð svipaður og hann var á árinu 1959, og hafa svo orðið að semja við aðra ríkisstjórn sex árum seinna um kaupmátt launa, sem var 13—14% lægri en hann var á þeim tíma, þegar vinstri stjórnin fór frá völdum.
Það má segja, að þetta sé útúrdúr í sambandi við þessa till. En vegna þess að hér er oft verið að gagnrýna mig fyrir það eða áfellast mig fyrir það, að ég hef gagnrýnt júnísamkomulagið 1964, hefur mér þátt rétt að láta þetta koma fram.
Það kunna ýmsir að segja og það ekki að ástæðulausu, að það sýni, að verkalýðshreyfingin sé ekki nógu sterk, að á þessum góðærisárum, sem hér hafa að undanförnu verið, hefur henni ekki tekizt meira en rétt að tryggja nú að lokum nokkurn veginn sama kaupmátt launa og árið 1959, á sama tíma sem kaupmáttur dag- og tímakaupsins hefur farið stórvaxandi í löndunum kringum okkur. En ég álit, að þegar betur sé að gætt, sé ekki rétt að áfellast verkalýðshreyfinguna fyrir þetta, heldur sýni þetta það, að í þessum málum sé vald verkalýðshreyfingarinnar takmarkað, því að það er ekki nægilegt að knýja alltaf fram meiri og meiri kauphækkanir, þegar að völdum situr ríkisstj., sem gerir þessar kauphækkanir jafnóðum að engu með því að magna verðbólguna. Þetta m.ö.o. sýnir það, að eigi að komast stjórn á þessi mál, sem verkalýðurinn eða launþegarnir geta sætt sig við, sé ekki aðeins nægilegt að hafa góð tök á verkalýðshreyfingunni, þá sé það þó enn þá mikilvægara að hafa sæmileg tök á Alþingi og ríkisstj., því að það er á þeim stöðum, sem þessi mál eru endanlega til lykta leidd, og það ætti að vera mönnum áminning í sambandi við þá reynslu, sem hér hefur hlotizt. Það, sem m.ö.o. skiptir langsamlega mestu máll fyrir launþegana, er að styðjast við vinveittan þingmeirihluta og að styðjast við vinveitta ríkisstjórn. Vegna þess að launþegarnir hafa ekki gert það á undanförnum árum, hefur útkoman orðið hér á allt annan veg en í öllum öðrum löndum í kringum okkur, þannig að kaupmáttur tímakaupsins hefur farið minnkandi og stendur nú rétt aðeins í stað hjá sumum, en öðrum ekki, á sama tíma sem hann hefur stóraukizt í öllum nágrannalöndum okkar. Svona dýrt er það fyrir launþegana að búa við óvinveitta ríkisstj. En það er líka segin saga og það mættu atvinnurekendur festa sér vel í minni, að sú ríkisstj., sem er óvinveitt launþegunum, er líka oftast óvinveitt atvinnuvegunum, vegna þess að stjórn, sem vili vinna fyrir hagsmuni launþeganna, gerir sér ljóst, að til þess að geta tryggt þessa hagsmuni skiptir ekkert meira máli en það, að atvinnuvegirnir í landinu dafni og séu vagandi og búi við sem bezta aðstöðu. Þennan skilning hefur núv. ríkisstj. alveg skort, eins og sést á hennar framkomu í lánamálum, vaxtamálum og mörgu fleiru, og þess vegna er nú komið atvinnulífinu í landinu eins og raun ber vitni um og oft hefur verið rakið hér og ég sé ekki ástæðu til að rekja öllu nánar að sinni.
Það, sem er megintilgangur þeirrar till., sem hér liggur fyrir, er að fá úr því skorið með ýtarlegri rannsókn, hvað valdi því, að á undanförnum góðærisárum skuli þróunin hafa orðið önnur hjá okkur en hjá öðrum þjóðum í þessum efnum, þ.e. að kaupmátturinn skuli hafa staðið í stað eða jafnvel dregizt saman, gagnstætt því, að hann hefur farið vaxandi hjá öðrum þjóðum. Slík athugun gæti einnig orðið til að leiða í ljós, að það væri ef til vill hægt með einhverjum öðrum ráðum en beinum kauphækkunum að knýja fram aukinn kaupmátt launa. En það, sem að sjálfsögðu skiptir launþegana mestu máli, er, að kaupmátturinn verði aukinn, en ekki, með hvaða aðferðum það verði gert, hvort það verður gert með beinum kauphækkunum eða einhverjum öðrum ráðstöfunum. Aðaltakmarkið þarf að vera það, að við þokumst í þá átt til samræmis við aðrar þjóðir, að hér fari kaupmáttur tímakaupsins í dagvinnu vaxandi, að við getum losað okkur við þá miklu og óeðillegu eftirvinnu, sem nú á sér stað og áreiðanlega í mörgum tilfellum er jafnóhagstæð atvinnurekendum og verkamönnum sjálfum. Að þessu eigum við markvisst að stefna, og með þeirri athugun, sem hér er rætt um, ættu að skapast nokkru betri möguleikar til þess að glöggva sig á því, hvernig þetta verði gert.
Ég ætla svo ekki að hafa þessi orð fleiri að sinni, en leyfi mér að leggja til, að þessari umr. verði frestað og málinu vísað til allsherjarnefndar.