24.02.1967
Sameinað þing: 25. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 359 í D-deild Alþingistíðinda. (2432)

52. mál, uppbygging íslensks sjónvarpskerfis

Flm. (Björn Jónsson):

Herra forseti. Við höfum hér fjórir þm. Alþb. leyft okkur að flytja þátill. um, að hraðað verði framkvæmdum við uppbyggingu hins íslenzka sjónvarpskerfis. Gengur till. okkar út á það, að hv. Alþ. lýsi yfir þeim vilja sínum, að framkvæmdir verði svo hraðar, að sjónvarp nái til sem næst allra landsmanna á árinu 1969 eða einu ári fyrr en 5 ára áætlun sjónvarpsnefndar gerði á sínum tíma ráð fyrir og þrem árum fyrr en 7 ára áætlun sömu n. ráðgerði. Við leggjum til, að ný framkvæmdaáætlun verði gerð í samræmi við þetta markmið.

Nú er það svo, að áætlanir þær, sem sjónvarpsnefnd gerði í till. sínum frá því í marz 1964, hafa ekki formlega verið samþykktar af Alþingi eða ríkisstjórn, þó að menn hafi yfirleitt fram til þessa reiknað með því, að framkvæmdahraði yrði ekki minni en þar var ráð fyrir gert. Er því út af fyrir sig full nauðsyn, að réttir aðilar geri í aðalatriðunum a.m.k. upp við sig, hversu rösklega verði að verki gengið í þessum efnum, svo að allur almenningur megi gera sér ljóst, hvers hann má vænta um svo mikilsverða sameign þjóðarinnar sem sjónvarpið er eða hlýtur að verða. Enn brýnni er svo þörfin á því, að Alþingi og ríkisstjórn geri hreint fyrir sínum dyrum í framkvæmdamálum sjónvarpsins, þegar haft er í huga, að mjög hefur örlað á þeirri stefnu í málinu að láta eigin fjármagnsgetu sjónvarpsins á hverjum tíma alfarið eða svo til alfarið ráða ferðinni um framkvæmdir, en sú aðferð er t.d. vel þekkt og að mínu viti ekki að góðu úr sögu útvarpsins eða hljóðvarpsins, eins og það nú heitir, og hafa þrír áratugir ekki dugað til að skapa jafnan rétt landsmanna til þess að njóta þess, sem það hefur að bjóða. Af slíkri fyrirmynd eru menn að vonum ekki mjög hrifnir, a.m.k. ekki þeir, sem ætlað er að bíða. Þessi stefna kom m.a. glögglega fram snemma á þessu þingi í fjárlagaræðu hæstv. fjmrh., en hann sagði þar: „Leggja verður á það ríka áherzlu, að útgjöld sjónvarpsins í framtíðinni verði takmörkuð við tekjur þess af afnotagjöldum og auglýsingum, svo sem verið hefur um hljóðvarpið.“ Hér er að vísu ekki alveg með berum orðum fortekið, að önnur stefna, eigi að gilda um stofnkostnað en rekstrarkostnað, en ákaflega nærri liggur, að álykta svo af þessum tilfærðu ummælum, að þar megi ekki ganga hraðar fram en svo, að aðflutningsgjöldin dugi til hverju sinni, enda lauk hæstv. fjmrh. hugleiðingum sínum um fjármál hljóðvarps og sjónvarps að þessu sinni með því að segja, að dreifbýlisfólk ætti nú eðlilega kröfu til sæmilegs hljóðvarps, eftir að þéttbýlið hefði einnig fengið sjónvarp. Kröfuharðari var þessi hæstv. talsmaður ríkisstj. ekki fyrir hönd dreifbýlismanna að því sinni.

Framkvæmdir í sjónvarpsmálinu hefur alloft borið á góma á yfirstandandi Alþingi, í sambandi við 3 fsp. og í sambandi við breyt. á l. um ríkisútvarpið. Hefur í þeim umr. orðið mjög greinilega vart áhuga landsbyggðarmanna fyrir því, að framkvæmdum verði hraðað, eftir því sem kostur er, en talsmaður ríkisstj. hefur farið undan í flæmingi, vil ég segja, og gefið heldur óljós svör um fyrirhugaðan framkvæmdahraða, þó að það skuli játað, að svör hans hafa verið því jákvæðari sem málið hefur oftar borið á góma. Í fyrstu svörum hæstv. menntmrh. við fsp. um sjónvarp til Norðurlands kom t.d. ekkert fram, sem til þess benti, að ríkisstj. hygðist taka upp stefnu hraðari framkvæmda en þá sem óhjákvæmilega leiddi af þeirri ætlun að taka ekki lán til stofnkostnaðarframkvæmda. Síðar leiddi greinileg óánægja og tillögugerð þm. úr öllum flokkum til þess, að fest var í lög heimild til nokkurrar lántöku, sem að flestra eða allra dómi er þó algerlega ófullnægjandi, og í kjölfarið komu svo nokkru jákvæðari upplýsingar en áður höfðu verið gefnar um byggingu Skálafellsstöðvar, Vaðlaheiðar-, Fjarðarheiðar- og Stykkishólmsstöðvanna, þ.e.a.s. aðaldreifistöðvanna, og því lýst yfir, að ríkisstj. hefði hinn fyllsta hug á að reisa þær svo fljótt sem kostur væri á og tæknilega væri framkvæmanlegt.

Það má víst segja, að veruleg breyting í rétta átt hafi orðið á afstöðu hæstv. ríkisstj. frá því í þingbyrjun og frá því við undirbúning fjárlaga, þegar hún hafði enn ekki heimilað neinn undirbúning að byggingu Skálafellsstöðvarinnar, gagnstætt till. sjónvarpsnefndar, og enn síður hinna aðalstöðvanna. En í fjárlagafrv. var, eins og öllum hv. þm. er kunnugt, ekki gert ráð fyrir neinum af þessum framkvæmdum. En þrátt fyrir þessa breyt. er enn fullljóst, að framkvæmdir verða strax í upphafi verulega seinni en ráð var fyrir gert í 7 ára áætlun sjónvarpsnefndar og það þrátt fyrir miklu betri fjárhagsútkomu en gert var ráð fyrir. Hvorki Skálafells- né Vaðlaheiðarstöð verða komnar upp á árinu 1967, eins og sjónvarpsnefnd gerði ráð fyrir, bæði í 5 ára áætlun sinni og í 7 ára áætlun sinni, og ekkert liggur fyrir um það, að hinar tvær höfuðstöðvarnar, í Stykkishólmi og á Fjarðarheiði, komi í gagnið á næsta ári. Um smærri stöðvarnar ríkir þó enn meiri óvissa.

Sú spurning hlýtur að vakna, hvers vegna ekki hafi þegar á s.l. ári — ég vil segja mjög snemma á s.l. ári — verið gengið frá því, að Skálafells- og Vaðlaheiðarstöðin yrðu reistar og þær boðnar út — tæki til þeirra. svo tímanlega, að að þeim yrðu full not fyrri hluta þess árs, sem nú er byrjað, eins og menn almennt höfðu ástæðu til að vonast eftir skv. till. sjónvarpsnefndarinnar. En það er staðreynd, að það var ekki fyrr en málið hafði verið tekið upp hér á Alþingi og rætt hér margsinnis, að ríkisstj. gaf leyfi til þess, að í þessar framkvæmdir yrði ráðizt, og ber fjárlagafrumv. eða fyrsta gerð þess greini1egt vitni um þetta. Ástæðan til þess arna getur naumast verið önnur en sú, að lántaka í sambandi við framkvæmdir í sjónvarpsmálunum hafi verið bannorð, þangað til þungi almenningsálitsins knúði ríkisstj. til nokkurs undanhalds í þessu máli og hún féllst á það, að smávægileg heimild yrði samþ. til byggingar stöðvanna í Stykkishólmi og á Fjarðarheiði.

Það er því skoðun mín og okkar flm., að þrátt fyrir þeim afstöðubreytingar, sem hafa orðið í málinu, sé nú kominn tími til þess, að Alþingi taki af allan vafa um það, hvort þessi stefna á að vara ráðandi áfram, — þessi stefna, sem óhjákvæmilega leiðir framkvæmdir í sjálfheldu, ef ekkert lán má taka, og leiðir til þess, að mikill hluti landsmanna þarf að bíða árum saman, ég vil segja jafnvel í heilan tug ára, eftir sjónvarpinu það algerlega að ástæðulausu, eða, hvort það er talið einhvers virði, að allir landsmenn, án tillits til þess, hvar þeir eru búsettir, eigi sama rétt til að njóta þeirra — við skulum segja lífsþæginda og menningarauka, se við allir vonumst eftir að sjónvarpið hafi að bjóða, svo fljótt sem tæknilega og fjárhagslega er mögulegt. Eigi síðarnefnda stefnan að ráða, ber að sjálfsögðu að gera ýjar framkvæmdaáætlanir, eins og gert er ráð fyrir í þessari till., svo að í engar grafgötur þurfi að fara um það, hvers vænta megi.

Ég tel ekki vera fjarri lagi að athuga gildi þessara tveggja stefna, í fyrsta lagi frá tæknilegu sjónarmiði, í öðru lagi fjárhagslegu, í þriðja lagi út frá menningarlegu viðhorfi og í fjórða lagi út frá þeirri forsendu, að það sé a.m.k. æskilegt, að landsmenn búi við jafnan rétt í þessu máli sem öðrum að ekki sé aukið á þann menningarlega aðstöðumun, sem þegar er fyrir hendi eftir búsetu í landinu. Um tæknilega hlið málsins er það fljótsagt, eftir því sem ég bezt veit, að engin tæknileg vandkvæði eru á því að byggja upp dreifikerfi í landinu á mjög skömmum tíma. A.m.k. er það fullvíst, að ekkert slíkt kemur fram í hinu ýtarlega áliti sjónvarpsnefndarinnar frá því í marz 1964. Og, það, sem síðar hefur komið fram í þeim efnum af vandkvæðum, hygg ég að sé mjög smávægilegt og muni ekki á nokkurn hátt hindra það, að ef nægilegu fjármagni væri beitt til framkvæmda, sé það ekki fyllilega mögulegt. Það má að vísu vera, að það sé skortur á fagkunnáttumönnum við uppbygginguna. En það eru mörg fyrirtæki í heiminum, sem mundu vera þess albúin að taka að sér svo stórt verkefni sem byggingu dreifikerfis, á Íslandi, svo að ekki ætti að þurfa á því að standa, enda næsta líklegt, að útboð kerfisins í heild skv. fyrirframgerðri áætlun til stórra og viðurkenndra fyrirtækja mundi reynast bæði öruggasta leiðin tæknilega séð og einnig ódýrust í framkvæmd og örugglega fljótvirkust. Fjárhagslega verður ekki betur séð en sú ein leið sé á viti byggð að hraða svo sem verða má uppbyggingu dreifikerfisins, vegna þess að á þeirri uppbyggingu byggist fjárhagsafkoma sjónvarpsins algerlega. Áætlaður stofnkostnaður alls dreifikerfisins var 1964 skv. áætlun sjónvarpsnefndar 150 millj., hún kann að vera orðin nokkru hærri núna, en þessi upphæð, sem upphaflega var gert ráð fyrir, svarar til aðflutningsgjalda af um 20 þús. sjónvarpstækjum. En væri dreifikerfið til staðar, væri meir en líklegt, að aukning tækjafjölda frá því, sem nú er, færi langt upp fyrir þá tölu, sem flytja þyrfti inn af tækjum, til þess að fullnægt væri fjárþörfinni, eins og gert var ráð fyrir henni í till. sjónvarpsnefndarinnar. Afnotagjöld á ári af slíkri sölu tækja, t.d. 20 þús. tækjum, yrðu líklega ekki undir 50 millj. á ári — og ekki undir 37.5 millj., ef miðað væri við 15 þús. tæki. Margra ára bið eftir dreifikerfinu er því að mínu viti hin mesta fásinna út frá rekstrarsjónarmiði sjónvarpsins séð og getur aldrei orðið til annars en stórkostlegs fjárhagslegs tjóns, auk þess sem hún leiðir til þeirrar grátbroslegu sjálfheldu, að uppbyggingin bíði eftir tekjum, sem geta hins vegar ekki skapazt, fyrr en framkvæmdirnar hafa átt sér stað. Það er því, held ég, alveg ómótmælanlegt, að mjög hröð uppbygging dreifikerfisins er óhjákvæmileg forsenda fyrir traustri fjárhagsafkomu sjónvarpsins. Seinagangs- og kotungsaðferð er hér ekki fremur en annars staðar vænleg til hagnaðar. Í þessu tilviki mundi hún auk þess lama hina nýju stofnun strax frá upphafi og gera hana slakara og lélegra menningartæki en vera þyrfti, ef séð væri nokkurn veginn frá upphafi sæmilega fyrir þeim grundvelli, þ.e.a.s. dreifikerfinu, sem hún á að hvíla á fjárhagslega. Með þeim hætti verður hún síðar og síður sjálfbjarga menningarstofnun,

Það er því skoðun okkar flm. þessarar till., að það sé mikil glámskyggni, þótt fjármálahliðin ein sé höfð í huga, að tefja uppbyggingu dreifikerfisins á þeirra forsendu, að eigið fé stofnunarinnar sé ekki fyrir hendi við upphaf framkvæmda. Sé svo, teljum við, að sjálfsagt sé að taka nokkurt framkvæmdalán, þar sem öruggt virðist, að framkvæmdirnar sjálfar muni skapa stofnuninni tekjur, sem standi fyllilega undir þeim lántökum, sem nauðsynlegar eru eða kunna að reynast, og jafnframt stórauka hinar beinu rekstrartekjur, sem standa eiga undir hinni daglegu starfsemi og gera hana öflugri, betri og menningarlegri, þ.e.a.s. tekjur af afnotagjöldum og tekjur af auglýsingum.

Það er þegar orðið ljóst, að landsmenn utan þéttbýlissvæðanna á Suðvesturlandi og Suðurlandi ef til vill munu ekki taka því með þegjandi þögninni, að þeir verði jafnvel árum saman, jafnvel í heilan áratug, eins og manni virðist helzt vera meiningin, afskiptir að því er til sjónvarpsins tekur, og það er raunar sízt að furða, þar sem þeir eru þess albúnir að greiða úr eigin vösum allt það fjármagn, sem til uppbyggingar dreifikerfisins þarf, þ.e.a.s. að kaupa þau tæki, sem eiga að borga stofnkostnaðinn. Og nú þegar hafa heyrzt mjög skorinorðar kröfur í þessum efnum. Ég nefni sem dæmi kröfur bæjarstjórnar Akureyrar og samtaka sveitarfélaga á Austurlandi og fleiri. En þær raddir eiga þó áreiðanlega eftir að verða fleiri og ákveðnari, ef hér á að fara seinagangsleiðina. Í þessu sambandi munu mörgum ekki heldur gleymast þær staðreyndir, að þeir, sem ætlað er að bíða rólegir, eiga í flestum eða öllum menningarlegum efnum miklu færri kosta völ en þeir, sem njóta sjónvarpsins einir. Auðvitað mun sjónvarpið engan veginn jafna þann aðstöðumun, sem þegar er fyrir hendi, en það mundi draga nokkuð úr honum, ef vel er á haldið. Sjónvarpið getur fært ýmsar greinar listar til fólksins í hinum strjálu byggðum landsins og miðlað því nokkru af þeim menningarverðmætum, sem fólkið í þéttbýlinu, í og við höfuðborgina, hefur nú einkarétt á að njóta. Sjónvarpið getur orðið að miklum notum í skólum landsins, og sú aðstoð, sem það getur veitt í kennslumálum, mundi ekki sízt bæta úr brýnum þörfum á dreifbýlissvæðum landsins. Og enn skyldi það munað, að sjónvarpið er á margan hátt til þess fallið að draga úr einangrunarkennd þess fólks, sem býr við ófullkomnar samgöngur og fásinni hvers konar einangrunar, og til þess að veita því skemmtun og í betra fallinu menntun innan veggja heimilanna. Það gæti því orðið öflugt hjálpartæki til þess, að dreifbýlisfólk yndi hag sínum betur en áður, og þannig stutt að byggðajafnvægi, þótt þar þurfi auðvitað margt annað að koma til. A.m.k. er fullvíst, að langvarandi mismunun í þessum efnum hlyti mjög að auka á þá tilfinningu fólksins í dreifbýlinu, að á það væri litið af hálfu stjórnarvalda landsins sem annars flokks borgara í þjóðfélaginu, og slíkri afstöðu stjórnarvalda mun það ekki una til lengdar, enda ástæðulaust með öllu.

Hvort sem um þetta mál er rætt lengur eða skemur, hlýtur niðurstaðan að verða hin sama. Það er fjárhagslega óhagkvæmt að vel ja tregðu- og seinagangsleiðina varðandi uppbyggingu sjónvarpskerfisins. Það er fyllilega framkvæmanlegt tæknilega og fjárhagslega að ljúka uppbyggingu á skemmri tíma en ráð hefur verið gert fyrir til þessa. Það er í alla staði óréttlátt og óskynsamlegt að mismuna landsmönnum um langt árabil eftir búsetu í máli eins og þessu. Þess vegna er eina rétta leiðin nú sú að endurskoða frá grunni allar áætlanir um uppbyggingu sjónvarpskerfisins í þeim tilgangi og með því markmiði, að henni verði lokið á þeim tíma, sem skemmstur getur orðið út frá tæknilegum sjónarmiðum, og séu þau sjónarmið ráðandi, er sú till., sem hér er flutt, sízt of róttæk að dómi okkar flm. Þess ber því að vænta, að þessari till. okkar þm. Alþb. verði vel tekið hér á hv. Alþingi og að hún hljóti greiða og jákvæða afgreiðslu. Geti hæstv. ríkisstj. mót von okkar ekki fallizt á hana, ber henni rík skylda til að leggja fram og það áður en langir tímar líða sína eigin áætlun, svo að ljóst verði, hvern hlut hún ætlar landsbyggðinni í þessu máli, því að um svör við því verða rétt stjórnarvöld krafin alveg skilyrðislaust.

Ég læt ræðu minni lokið að sinni, herra forseti, og legg til, að till. verði vísað til hv. allshn.