13.12.1966
Efri deild: 25. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 370 í B-deild Alþingistíðinda. (253)
90. mál, atvinnuleysistryggingar
Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér um ræðir, er ekki mikið að vöxtum, eins og sést á þskj. 143, en efni þessa frv. eru nánast efndir á loforði, sem ríkisstj. gaf við síðustu kjarasamninga verzlunar- og skrifstofufólks um, að það öðlaðist aðild að atvinnuleysistryggingum, sem að þeirra samtaka dómi var talið mjög mikilvægt að lægi fyrir og talið mikilvægt atriði í samningunum, sem þá voru gerðir.
Það kann að koma einhverjum einkennilega fyrir sjónir, hvernig orðalag frv. er, en í l., eins og þau eru í gildi í dag, eru talin upp ákveðin samtök, sem ekki séu aðilar að tryggingunum, og þar á meðal voru samtök skrifstofu- og verzlunarfólks, og er það fellt niður úr lögunum, þ.e.a.s. 3. mgr. 4. gr. 1., þannig að með samþykkt þessa frv. hafa verzlunarmannasamtökin öðlazt löglega aðild að tryggingunum, þar sem þau eru einnig orðin löglegir meðlimir alþýðusamtaka.
Það upplýstist nú fyrir skömmu, að nauðsynlegt er, að frv. þetta nái fram að ganga fyrir n.k. áramót eða áður en þinghlé verður gert, og eru það eindregin tilmæli mín til þeirrar n., sem málið fær til meðferðar, að hún hraði svo störfum sem unnt er, til þess að svo megi verða. Ég hygg, að um málið þurfi ekki að verða deilur, og ætti af þeim ástæðum að vera auðvelt að afgreiða málið, ef vilji er fyrir hendi, sem ég vona að verði.
Ég óska þess svo, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.