09.11.1966
Sameinað þing: 8. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 461 í D-deild Alþingistíðinda. (2598)
14. mál, sjónvarp
Fyrirspyrjandi (Jónas G. Rafnar):
Herra forseti. Ég leyfi mér að þakka hæstv. menntmrh. fyrir upplýsingar, sem hann gaf hér áðan og benda til þess, að ráðizt verði í það þegar á næsta ári að koma upp svonefndri Skálafellsstöð hér í grennd Reykjavíkur, og í framhaldi af því yrði innan skamms tíma ráðizt í að koma upp endurvarpsstöð á Vaðlaheiði og raunar víðar um land. En það er augljóst af upplýsingum hæstv. ráðh., að það hefur kostað allmikið fé að koma sjónvarpinu upp, ef stofnkostnaður hér í Reykjavík er í kringum 72 millj. og öll kurl sennilega ekki komin til grafar enn þá, og áætlaður stofnkostnaður við að koma upp dreifingarkerfinu sé í kringum 180 millj. kr., þannig að lágmarkskostnaður við þessar framkvæmdir verður sennilega ekki undir 250 millj. kr. Þarna er um mikið fé að ræða. En úr því að ráðizt hefur nú einu sinni verið í þessar framkvæmdir, þeim hefur ekki verið slegið á frest, sem þó hefði að mínu áliti getað komið til greina, hlýtur það að vera krafa fólksins úti á landsbyggðinni, að það verði ekki dregið úr hömlu, að það fái notið þessa mikla menningartækis. Í því sambandi vil ég leyfa mér að benda á aðeina eitt atriði, sem gæti komið til greina og gæti e.t.v. nokkuð flýtt fyrir því, að unnt yrði að koma sjónvarpinu út um landsbyggðina. Það liggur ljóst fyrir, að rekstrarkostnaður sjónvarpsins kemur til með að verða mjög mikill. Að sjálfsögðu fer sá kostnaður eftir því, hvað lagt er mikið í dagskrána, en ég mundi telja, að meðan sjónvarpið nær ekki út fyrir endimörk Reykjavikur og næsta nágrennis, sé engin ástæða til þess, að sjónvarpið verði rekið hér á hverjum einasta degi. Með því móti að leitast við að spara — ég vil segja fyrstu mánuðina og jafnvel fyrsta árið og jafnvel annað árið — ætti að vera unnt að leggja meira fé í að koma upp stöðvunum annars staðar. Að sjálfsögðu verða það tekjurnar af sjónvarpstækjunum sjálfum, sem að mestu leyti standa undir uppbyggingunni, en ég vil þó benda á það, að reksturinn hlýtur í þessu sambandi að hafa allverulega þýðingu, og tel því sjálfsagt, að meðan ekki er komið lengra en orðið er, sé full ástæða til þess að viðhafa eins mikinn sparnað og unnt er í rekstri sjónvarpsins.