09.11.1966
Sameinað þing: 8. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 468 í D-deild Alþingistíðinda. (2605)

14. mál, sjónvarp

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason) :

Herra forseti. Hv. 5. þm. Reykv. beindi til mín nokkrum fsp., sem ég skal svara með örfáum orðum.

Hann nefndi það, að ágreiningur væri um launamál tæknimanna. Það er mér að sjálfsögðu kunnugt, og er unnið að því að fá lausn á því máli. Það er í höndum réttra aðila, sem um slík mál fjalla, og vona ég, að lausn finnist á þeim vanda.

Varðandi ósk ríkisútvarpsins um fjölgun starfsmanna sjónvarpsins er það að segja, að þau mái eru líka til athugunar hjá þeim aðilum, sem um þau fjalla í stjórnarráðinu.

Um afnotagjaldið er það að segja, að afnotagjald fyrir bæði útvarp og sjónvarp mun verða ákveðið alveg á næstunni, eða að ég vona nokkru eftir miðbik þessa mánaðar.

Varðandi fsp. þá, sem hann bar fram um væntanlegan starfstíma íslenzka sjónvarpsins, er það að segja, að allar áætlanir hafa verið við það miðaðar, að þegar sjónvarpið er tekið til fullra starfa, verði sjónvarpað að meðaltali 4 klukkustundir á dag sex daga vikunnar.

Hv. 3. þm. Norðurl. v., Ólafur Jóhannesson, spurði, hvort gert væri ráð fyrir því, að endurvarpsstöðin á Vaðlaheiði dygði einnig fyrir Skagafjörð. Henni er fyrst og fremst ætlað að þjóna, auk Eyjafjarðar, Þingeyjarsýslum og auk þess ná til Austurlandsins. Skagafjörður verður í nánari tengslum við Vestfjarðakerfið, þ.e.a.s. Vestfjarðakerfinu er ætlað að ná áfram til Skagafjarðar um endurvarpsstöð á Blönduósi. Mun aðeins nánar vikið að þessu í sambandi við svar við fsp. um Vestfjarðasjónvarpið.

Þá spurði hv. 3. þm. Norðurl. v., hvort til stæði að flytja frv. um breyt. á l. um ríkisútvarp til þess að treysta lagagrundvöll undir starfsemi íslenzks sjónvarps, þar með innheimtu afnotagjalda. fyrir íslenzka sjónvarpið. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstj., sem forsrh. flutti í upphafi þessa þings, var frá því skýrt, að eitt af þeim frv., sem stjórnin mundi leggja fyrir þingið, væri einmitt frv. til breytinga á l. um útvarpsrekstur ríkisins til þess að taka upp í þau lög ótvíræð ákvæði um starfsemi íslenzks sjónvarps. Mun frv. um þetta efni verða lagt fyrir hv. Ed. einhvern allra næstu daga, e.t.v. á morgun.