09.11.1966
Sameinað þing: 8. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 469 í D-deild Alþingistíðinda. (2610)
202. mál, sjónvarp til Vestfjarða
Fyrirspyrjandi (Sigurvin Einarsson):
Herra forseti. Íslenzkt sjónvarp er nú tekið til starfa í landinu og ber að fagna því. Það virðist hafa farið vel af stað, og það hefur þegar áunnið sér vinsældir. Hin tæknilega hlið þess er, með fáum undantekningum, í góðu lagi, að manni sýnist. Um sjálft sjónvarpsefnið er allt of snemmt að fella neina dóma enn þá, enda ekki við því að búast, að öllum kröfum manna til sjónvarpsins verði fullnægt, um leið og það er að stíga fyrstu sporin. Og þó verður að viðurkenna, að nú þegar hafa verið fluttir góðir sjónvarpsþættir, og ég get ekki látið hjá líða að drepa á einn sérstaklega, þátt Tómasar Guðmundssonar skálds, en þar fór saman, að skáldið sjálft, ljóð hans og flutningur, allt var þetta með ágætum.
Ég tel, að vel hafi verið að þessu máli unnið og með meiri hraða en búast mátti við, og ber sannarlega að þakka það. Sjónvarpið er mikilsverð nýjung, sem á sjálfsagt eftir að marka sín spor í þjóðlífið engu síður en útvarpið hefur gert. En hér veltur á miklu, hversu tekst til um sjónvarpsefnið. Verði sá vandi vel af hendi leystur, efast ég ekki um, að sjónvarpið verði til mikils gagns og ánægju meðal þjóðarinnar. Ég trúi því t.d., að það muni skapa meiri kyrrð og meiri festu á heimilum manna, ungir sem gamlir geti fundið þar margt innan sinna eigin veggja, sem þeir annars leita að annars staðar, oft með vafasömum árangri. En mestri breytingu mun þó sjónvarpið valda í sveitum þessa lands og þorpum víðs vegar, þegar það nær þangað, því að þar er ekki jafnmargra kosta völ um fróðleik og skemmtiefni eins og í fjölmennum kaupstöðum. Þörf fólksins í þessum byggðarlögum fyrir sjónvarp er því miklu meiri en annarra. Ég lít því á íslenzkt sjónvarp, sem flytur vandað efni, sem eina af þeim mörgu ráðstöfunum til jafnvægis í byggð landsins, sem þarf að koma í framkvæmd hið allra fyrsta, og þess vegna verði að vinna að því af öllu kappi, að sjónvarpið nái til landsins alls og það sem fyrst.
Það hefur komið fram í umr. hér áðan, að hér er um miklu auðveldara mál að ræða en margur hefur ætlað. Fjárhagsgrundvöllurinn undir stofnun sjónvarpsins virðist vera mjög góður og það er sýnilegt, að það þarf ekki að taka mörg ár, hvað fjáröflun snertir, til þess að koma sjónvarpinu á um allt land, ef menn aðeins vilja það. Það hefur annað eins verið gert áður og að taka bráðabirgðalán, það þarf ekki nema til örfárra ára, til þess að koma þessu af á örskömmum tíma. Þannig virðist fjárhagsgrundvöllurinn vera eftir upplýsingum hæstv. ráðh. að dæma. Og um það, sem hér kom fram hjá einnum ræðumanni áðan, að honum fyndist, að það væri hægt að binda sig við 5 ára áætlun í staðinn fyrir 7 ára, þá tel ég enga þörf á að binda sig við þær áætlanir. Það er auðvelt að koma þessu á á 1—2 árum, ef fullur vilji er fyrir hendi.
Ég hef leyft mér að leggja hér fram fsp. til hæstv. menntmrh. um sjónvarp til Vestfjarða, svo hljóðandi:
„1. Hvenær má búast við, að Vestfirðingar geti notið sjónvarps? 2. Eru einhverjir erfiðleikar á því, að sjónvarpa, til einstakra byggðarlaga á Vestfjörðum, og ef svo er, hvaða byggðarlög eru það?“
Það komu ekki fram í umr. áðan nein tímatakmörk um, hvenær sjónvarp kæmist á, annars staðar en hér á Suður- og Suðvesturlandi, en vonir stæðu til, að hægt væri að koma fljótlega í framkvæmd einhverju í þeim efnum fyrir Norðurland. En það vantar alveg svör við því, hvað verður t.d. um Vestfirði. En eftir ræðu hæstv. ráðh. sé ég, að það er auðvelt að koma sjónvarpi á, hvað fjárhagshliðina snertir, á mjög skömmum tíma. Hinu bíð ég eftir, að hæstv. ráðh. svari.