23.11.1966
Sameinað þing: 11. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 490 í D-deild Alþingistíðinda. (2635)

61. mál, lóðaúthlutun Þingvallanefndar

Utanrrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Mig langar til að fara aðeins nokkrum orðum um þessar fsp., sem hér hafa verið bornar fram, vegna þess að raunverulega er það ekki hæstv. forsrh., sem á að sækja til saka um það, sem gert hefur verið, því að sá háttur hefur tíðkazt, allt frá 1928, að Þingvallanefnd tók fyrst til starfa, að hún hefur afgreitt málin sjálf, án þess að þau væru undir neinn ráðh. borin. Og þess vegna verður það, sem gert hefur verið síðan til góðs eða ills, að skrifast á reikning Þingvallanefndar á hverjum tíma.

Í lögum um friðun Þingvalla segir, eins og raunar hefur komið hér fram, að hið friðlýsta land skuli vera undir vernd Alþingis og ævinleg eign íslenzku þjóðarinnar, það má aldrei selja eða veðsetja, og Þingvallanefnd, skipuð þrem alþm., hefur fyrir hönd Alþingis yfirstjórn þess griðlýsta lands og annarra jarða í ríkiseign, sem til eru greindar í 2. gr. Málsmeðferðin hefur alla tíð frá upphafi verið þessi, að Þingvallanefnd hefur haft með framkvæmd málsins að gera og ekki leitað til þess samþykkis. Það kann að vera, að það sé kannske ekki rétt af n. að hafa starfað þannig, en þó held ég, að það orki nokkuð tvímælis, hvort framkvæmdavaldið, forsrh. eða annar ráðh., eigi um þetta mál að hafa endanlegan ákvörðunarrétt, þar sem málið er einvörðungu í höndum Alþingis. Ég vildi aðeins láta þetta koma fram.

Það má náttúrlega alltaf deila um, hvað skuli gera og hvað skuli ógert látið. En það vil ég taka fram þó, að í upphafi tel ég, að þarna hafi verið gerðir hlutir, sem hefði ekki átt að gera, þar sem veitt hafa verið sumarbústaðalönd innan hins friðlýsta svæðis. En það voru aðeins hinar fyrstu eða fyrsta Þingvallanefnd, sem það gerði, og skal ég ekki fara út í að gagnrýna það. Það, sem síðan hefur gerzt, og m.a. það, sem núverandi Þingvallanefnd hefur gert í þau 9 ár, sem hún hefur farið með þessi mál, er, að því er tekur til sumrarbústaðanna, að veita lönd utan þjóðgarðsins, utan hins friðlýsta svæðis.

Það má náttúrlega deila um það, hvort þetta hefur verið rétt. En taka vil ég þó fram, að á báðum þessum stöðum, sem nefndir hafa verið, bæði í Kárastaðanesi og eins í Gjábakkalandi, var farið að veita sumarbústaðalönd, áður en umráð yfir þessum löndum komust í hendur Þingvallanefndar. Það var þess vegna eitt hið fyrsta, sem Þingvallanefnd gerði, að afla sér umráða yfir þessum löndum og tryggja það að ekki væru byggðir þar sumarbústaðir öðruvísi en að nákvæmlega athuguðu ráði og eftir ströngum reglum. Það er því miður tilfellið, að við Þingvallavatn og meðfram strandlengjunni, kannske alveg sérstaklega að austan, hefur sumarbústaðabyggingin orðið mjög óskipuleg og ég vil segja leiðinleg. Um það hefur Þingvallanefnd ekkert að segja og ræður ekki neinu þar um. En það, sem fyrir henni vakti um þessar næstu spildur við Þingvelli, er að sem gert væri, væri gert á þann veg, að ekki væri til skaða fyrir hið friðlýsta svæði sjálft. Kárastaðsnesið er nú mikið til í hvarfi á hinu friðlýsta svæði og sést varla og ekki þaðan. Gjábakkalandið blasir að vísu meira við, en sá hluti þess, sem tekinn hefur verið til úthlutunar og skipulagður, er þannig í sveit settur, að hann á ekki að sjást verulega frá hinu friðlýsta svæði sjálfu.

Þegar talað er um Þingvallasvæðið, eins og gert er í fsp., er það náttúrlega spurning, hvað í því felst, og ekki ákveðið hugtak, hvað í því felst. Það er örugglega, að mér virðist, meira en hið friðlýsta svæði sjálft. En hvað ar það þá stórt? Er það; eins og hæstv. forsrh. nefndi, er það öll strandlengjan í kringum vatnið, eða er það öll Þingvallasveitin eða kannske meira? Ég held, að það hafi aldrei staðið til og aldrei verið hugsað þannig af þeim, sem báru fram frv. um friðun Þingvalla, að stór landssvæði utan hins friðlýsta svæðis yrðu algerlega friðuð. Þess vegna hafði það verið regla, að það yrðu ekki veitt sumarbústaðalönd í næsta nágrenni, nema því aðeins að vel væri gengið frá og tryggt skipulag á svæðinu. Ég hef að vísu ekki víða komið í þjóðgarða erlendis, en ég hef þó komið í einn, og þar er hann og það friðlýsta svæði þjóðgarðsins algerlega friðlýst, og þar er ekkert gert, en í næsta nágrenni og alveg upp að hlið þjóðgarðsins hafa verið reistar byggingar, sem kannske eftir þessari reglu, sem hér er ekki lögð til, en hugsað um að taka upp, gætu verið mjög vafasamar. Ég held þess vegna, að Þingvallanefnd hafi gert það, sem í hennar valdi stendur, til þess að tryggja í fyrsta lagi, að það yrði engin sumarbústaðarlóð veitt á hinu friðtaka svæði, í öðru lagi að tryggja, að það, sem veitt væri utan hins friðlýsta svæðis, yrði þannig frá gengið, að það yrði ekki til vansa eða óprýði fyrir þá, sem um hið friðlýsta svæði færu. Í þriðja dagi vildi ég út að úthlutunarreglununum, sem hér var spurt um, segja, eins og raunar kemur fram í svari n., sem hæstv. forsrh. las upp, að það hefur aldrei verið auglýst eftir umsóknum, en það hefur verið reynt að verða við þeim óskum, sem borizt hafa. Þær hafa verið fáar, og á þessu ári var tekið fyrir að verða við öllum þeim óskum, sem borizt höfðu, og það var gert. Þess vegna komu til úthlutunar í sumar miklu fleiri lóðir en áður, og þó er tala lóðanna öll þessi 9 ár, sem ég nefndi, tiltölulega mjög lág, vildi ég segja.

Ég veit, og okkur er það öllum ljóst, Þingvallanefndarmönnum, að hér er um vandmeðfarið mál að ræða, og vissulega mun n. kappkosta að veita ekki nein leyfi, sem gætu orðið til þess, að spjöll yrðu unnin á ekki einasta hinu friðlýsta svæði, heldur einnig á næsta nágrenni þess.