30.11.1966
Sameinað þing: 12. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 503 í D-deild Alþingistíðinda. (2648)

206. mál, rafmagn fyrir Fornahvamm

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Hv. fyrirspyrjandi taldi, að það væri eðlilegt að tengja Fornahvamm við samveitur, og þess vegna spyr hann um það, hvort nokkuð hafi verið gert til þess, að svo megi verða.

Það eru 7.7 km frá Fornahvammi til næsta bæjar, sem hefur rafmagn frá samveitu. Og það hafa engar ráðstafanir verið gerðar til þess að tengja Fornahvamm við þennan bæ og enginn undirbúningur til þess hafinn: Og ég tel, að það sé ekki mögulegt að verða við því að leggja línu að Fornahvammi í náinni framtíð, nema Alþ. veiti þá sérstaklega fé til þess. Það er nú verið að leggja rafmagn á bæi með vegalengdinni 1—1 1/2 km, en ekki yfir það, og eð því stefnt, að síðar verði farið í vegalengdina 1 1/2—2, en þetta eru 7.7 km.

Hitt er svo annað mál, að Fornihvammur þarf að hafa rafmaga og hefur haft dísilvélar til þess að gá rafmagn til ljósa, hitunar og suðu. Fornihvammur er allgóð bújörð. Þar hefur verið ræktað í seinni tíð, þar hafa verið byggð peningshús, og ábúandinn hefur fengið veðleyfi hjá ríkinu. Þarna er allmikill húsakostur til gistingar og veitingasölu, og ábúandinn í Fornahvammi hefur fengið húsin og jörðina til ábúðar gegn því að halda uppi greiðasölu og gistingu. Það er það, sem hann borgar eftir jörðina, og húsin, en eins og ég sagði, er þarna allgóð aðstaða til gistingar og veitingasölu. Það er rétt, sem hv. fyrirspyrjandi sagði, að það væri ekki ýkjamikill arður af veitingasölu nú á tímum miðað við það, að sá, sem veitingareksturinn annast, þurfi á eigin kostnað að byggja húsnæðið, sem reksturinn fer fram í. En ég hafði haldið, að það værri mögulegt án þess að gera sér tjón að halda uppi veitingasölu og gistingu með því að fá húsnæðið ókeypis til þeirra hluta.

Ég tel það rétt, sem hv. fyrirspyrjandi sagði hér áðan, að það þurfi að vera bóndi í Fornahvammi. Það getur verið nauðsynlegt, að þar sé alltaf fólk. Holtavörðuheiði er oft erfið yfirferðar. Fólk er þreytt, svangt og kannske illa á sig komið af kulda, þegar það kemur af heiðinni, og þá er vissulega gott að komast í hlý hús og geta fengið veitingar. Menn geta komið jafnvel svo seint að Fornahvammi, þótt á norðurleið sé, ef færð er þung, að það þyki betra að gista þar um nóttina og taka daginn snemma að morgni, þegar lagt er á heiðina. Af þessum ástæðum er eðlilegt, að það sé fólk í Fornahvammi, sem geti veitt þessa þjónustu. Nú er það vitanlaga alltaf matsatriði, hvað vegagerðin á að kosta miklu til. Mér er kunnugt um það, að nú eru í Fornahvammi mestu myndar og dugnaðarhjón, sem hafa leyst þetta ágættlega af hendi. Og það er alveg öruggt, að dísilvélarnar, sem hafa verið notaðar, eru orðnar gamlar og dýrar í viðhaldi. Það er því ekkert annað ráð fyrir hendi en að fá nýja dísilvél og fá rafmagn með þeim hætti á þennan stað. Og það má vera, að hv. fyrirspyrjandi vilji þá spyrja um það: Ætlar vegagerðin að útvega þessa vél eða á bóndinn að gera það? Þá er spurningin, hvað er sanngjarnt. Er það sanngjarnt, að ríkið útvegi þessa vél til viðbótar frírri ábúð á jörðinni og fríu húsnæði? Eða er það hugsanlegt, að bóndinn geti með því að nýta jörðina, eins og hann gerir, dugnaðarmaður, og hafa veitingasöluna og gistinguna, er hugsanlegt, að hann geti á eigin kostnað keypt þessa vél? Spurningin fjallar nú ekki um þetta, og ég ætla þess vegna ekki að segja neitt um það nú, hvað kynni að vera sanngjarnt í þessu efni. Mig vantar kunnugleika á því. En þótt ég hafi mínar hugmyndir um það, vil ég ekkert fullyrða um það. En ég gæti bezt trúað því, að þessum hjónum, sem eru dugleg og myndarleg og hafa þarna talsvert bú á jörðinni, kannske má segja stórt bú, — ég gæti bezt trúað því, að þeim þætti eðlilegt, að þau sjálf keyptu vélina.