07.12.1966
Sameinað þing: 15. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 505 í D-deild Alþingistíðinda. (2654)
79. mál, sjónvarp til Austurlands
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Svo sem kunnugt er, er fyrirhugað, að dreifikerfi sjónvarpsins um landið grundvallist á 4 aðalstöðvum, það hafi 4 hornsteina, ef svo mætti segja. Aðalsendistöðin verður reist á Skálafelli, en síðan eru ráðgerðar aðalendurvarpsstöðvar fyrir hina landsfjórðungana þrjá gyrir Norðurland á Vaðlaheiði, fyrir Austurland á Fjarðarheiði og fyrir Vesturland í Stykkishólmi.
Ég skýrði frá því fyrir nokkrum dögum hér á hinu háa Alþ., að fjárhagsgeta sjónvarpsins sjálfs, þ.e.a.s. tekjur þess af aðflutningsgjöldum, — en ákveðið hefur verið, að þær skuli ganga einvörðungu til uppbyggingar dreifikerfisins um landið, — fjárhagsgeta sjónvarpsins sjálfs hafi gert kleift að taka nú þegar ákvörðun um að byggja tvær aðalstöðvarnar, á Skálafelli og á Vaðlaheiði, og þar með tryggja, að innan tveggja ára frá þessum tíma næði sjónvarpið til næststærsta þéttbýlissvæðis landsins, þ.e.a.s. Akureyrar og héraðanna þar í kring. Hins vegar gerði fjárhageta sjónvarpsins enn ekki kleift að taka ákvörðun um það, hvenær aðalendurvarpsstöðvarnar fyrir Vesturland og Austurland skyldu byggðar.
Eftir að skýrt var frá þessari ákvörðun, kom í ljós, að alveg sérstakur áhugi er á því, að sem fyrst sé hægt að koma sjónvarpsmyndinni til Austurlands og til Vesturlands. Komið hefur í ljós í fundarsamþykktum, í ályktunum, bréfum og fjöldamörgum viðtölum af hálfu fulltrúa úr þessum landsfjórðungum, að það yrði mjög mikils metið þar, ef hægt væri sem fyrst að taka ákvörðun um byggingu stöðvanna á Fjarðarheiði og í Stykkishólmi. Í tilefni af þessu hefur ríkisstj. fyrir sitt leyti fallizt á, að inn í frv., sem liggur fyrir Ed. til breytinga á útvarpslögunum, um það að taka af öll tvímæli um, að sjónvarp skuli teljast til útvarps, — að inn í það frv. yrði tekin lánsheimild til handa ríkisstj. til þess að koma upp þessum endurvarpsstöðvum báðum, þessum meginendurvarpsstöðvum Austurlands og Vesturlands, Fjarðarheiðarstöðinni og Stykkishólmsstöðinni. Ef till. um þetta nær fram að ganga hár á hinu háa Alþ., mun þegar í stað verða tekin ákvörðun um að byggja þessar stöðvar báðar. Hins vegar gat ég ekki og getur enginn sagt um það með vissu, hvenær þeirra byggingu gæti orðið lokið, og því ráða tækniástæður einar. Sannleikurinn er sá, að ekki hafa verið gerðar allar þær undirbúningsrannsóknir, sem nauðsynlegar eru til að sannprófa, hvort Skálafellsstöðin nær væntanlegri stöð á Vaðlaheiði með nægilega fullkomnum hætti frá tæknilegu sjónarmiði séð. Og áður en sjónvarpið getur komizt til Austurlands, þarf myndin örugglega að hafa komizt norður yfir jökla, þ.e.a.s. til Norðurlandsins, því að þaðan mundi hún halda áfram til Austurlands. Allmiklar mælingar hafa verið um þetta gerðar, en þörf á fleirum, áður en ráðizt er í þessar framkvæmdir. Og ég hygg, að allir tæknimenn telji, að nauðsynlegt sé, að fyrst komist sæmileg reynsla á sendingu sjónvarpsmyndarinnar til Norðurlands, áður en hægt er að segja nákvæmlega til um, með hvaða hætti frekari dreifing eigi að fara fram. Það er aðeins hugsanlegt, það er ekki hægt að útiloka það, að byggja þurfi millistöðvar á milli Suðurlands og Norðurlands. En að öllum rannsóknum í þessu efni verður unnið með þeim hraða, sem tæknin frekast gerir mögulegan.