08.02.1967
Sameinað þing: 22. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 524 í D-deild Alþingistíðinda. (2686)
209. mál, staðgreiðsla skatta
Fyrirspyrjandi (Eðvarð Sigurðsson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að beina svo hljóðandi fsp. til hæstv. fjmrh.:
„Hvað líður athugun á., að tekin verði upp staðgreiðsla á sköttum, þ.e. að þeir verði greiddir um leið og tekjur falla til? Er þess að vænta, að breytingar í þessa átt komi til framkvæmda bráðlega, og ef svo er ekki, hvað er þá helzt talið því til fyrirstöðu?“
Æðimörg ár eru liðin síðan í alvöru var farið að hugleiða breytingar á því fyrirkomulagi sem í gildi er um álagningu og greiðslu á tekjuskatti og útsvari. Ég á við þá breytingu, að í stað þess að miða skattana við tekjur fyrra árs og greiða þá ári síðar en teknanna er aflað verði tekin upp svonefnd staðgreiðsla skattanna, þ.e. að þeir verði greiddir um leið og tekjur falla til. Verkalýðshreyfingin hefur í vaxandi mæli lagt áherzlu á, að þessi háttur verði upp tekinn.
Ljóst er, hvers vegna launþegar telja sér hagkvæmt, að staðgreiðslu skatta verði komið á, og vil ég hér nefna nokkur dæmi. Eins og þessum málum er nú háttað, má næstum segja, að menn fái í hendur fé með kaupgreiðslum, sem þeir í raun og veru eiga ekki, vegna, þess að skattar fyrra árs eru ekki greiddir. Nokkuð hafa, þó fyrirframgreiðslur dregið úr þessu. Tekjur manna hér geta verið mjög breytilegar frá ári til árs vegna atvinnuhátta, og blasir þá vandinn við, þegar menn þurfa að greiða skatta af háum tekjum af mun lægri tekjum næsta árs. Allir þekkja, hve mjög vinnutími hefur lengzt hér á síðari árum. Ástæðan er ekki einvörðungu ásókn manna í hærri tekjur, heldur engu síður þarfir atvinnuveganna. En þeir menn, sem lagt hafa á slag langan vinnutíma, eru nú fjötraðir í vítahring skattalaga. Til þess að greiða skatta hvers árs þarf sífellt auknar tekjur. og þannig stuðlar núgildandi fyrirkomulag að því að viðhalda löngum vinnutíma og jafnvel lengja hann, ef atvinnuástandið leyfir. Það, sem hér hefur verið sagt, á ekki síður við um aldrað fólk, sem vill og þarf að hætta störfum að nokkru eða öllu leyti. Það er fast í þessum sama vítahring skattalaganna.
Þá ber ekki síður að benda á, hvaða vandi yrði á höndum, ef almennt drægi úr atvinnu og tekjur manna minnkuðu af þeim sökum, eins og nú ber verulega á, því miður.
Eitt af því, sem gerist með staðgreiðsluaðferðinni, er, að samsköttun hjóna er úr sögunni. Með núverandi fyrirkomulagi á gift kona, sem vinnur úti, mjög óhægt um vik að hætta störfum, hversu mjög sem heimilisástæður kalla á, að hún verði heima.
Að lokum vil ég svo benda á, hvaða vandi er á höndum, þegar veikindi eða slys ber að garði og menn missa tekjur vegna þess. Að vísu veit ég, að margar sveitarstjórnir reyna að sýna lipurð, þegar þannig er ástatt. En það kostar, að menn þurfa að fara bónarveginn að yfirvöldunum.
Ég læt þessi dæmi nægja, af þeim rökum, sem verkalýðahreyfingin hefur fært fram fyrir þeirri kröfu, að staðgreiðslu skatta verði komið á. Eins og ég sagði áðan, mun nú æðilangur tími liðinn, síðan farið var að hugleiða breytingar í þessa átt, og ýmsir menn hafa að því starfað, en enn bólar ekkert á framkvæmdum. Fyrir 4 árum, í marz 1963, bar hæstv. núv. félmrh. fram fsp. hér á þessum stað um, hvað liði undirbúningi á framkvæmd þessa máls. Þáv. fjmrh. svaraði því til m.a., að staðgreiðsla skatta ætti að geta komið til framkvæmda um áramótin 1965—66. Í allvíðtækum viðræðum, sem fulltrúar verkalýðsfélaganna áttu við sama fjmrh. um skattamál haustið 1964, var því lýst yfir, að þessi breyting á skattalögunum gæti komið til framkvæmda um áramótin 1966—67, þ.e.a.s. um þau áramót, sem nú eru nýliðin. En sú spá hefur ekki rætzt. Í flestum þjóðfélögum nálægum okkur er nú sá háttur upp tekinn, að skattar eru greiddir um leið og tekjur falla til. Annars staðar er fast ýtt á, að það komi til framkvæmda, og er þar skemmst að minnast, að einmitt þetta mál var höfuðmál dönsku þingkosninganna í nóv. s.l., „kildeskatten“, eins og Danir nefna það.
Til þess að fá vitneskju um, á hvaða stigi undirbúningur þessa máls er nú hjá hæstv. ríkisstj., er þessi fsp. fram borin.