08.02.1967
Sameinað þing: 22. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 525 í D-deild Alþingistíðinda. (2687)
209. mál, staðgreiðsla skatta
Fjmrh. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Hv. 3. landsk. þm. hefur borið hér fram fsp. varðandi staðgreiðslukerfi skatta, hvað liði undirbúningi þess og hvenær mætti vænta þess, að endanlegar till. yrðu lagðar fram um það mál.
Hugleiðingar um staðgreiðslukerfi skatta hafa lengi verið uppi hér á Íslandi, eins og í mörgum öðrum löndum, og orsakir þess, að þær hafa hér verið uppi, eru einmitt þær, sem hann tilgreindi mjög skýrt í fyrirspurnarræðu sinni hér áðan, að það eru fyrst og fremst hinar miklu sveiflur, sem eru á tekjum manna, og hefur þetta leitt til þess sérstaklega, að verkalýðahreyfingin og þá ekki hvað sízt sjómenn hafa haft mikinn áhuga á því, að hægt verri að mæta þessum sveiflum með þeim hætti, að skattar væru teknir af tekjum samtímis, en ekki árið eftir, þegar oft stendur þannig á, að menn hafa litlar tekjur til að mæta skattgreiðslum fyrra árs.
Eins og hv. fyrirspyrjandi gat um, er alllangt síðan var hafið máls á þessu, og fsp. kom fram um þetta fyrir nokkrum árum hér á Alþingi, og var þá, eins og hann gat um, svarað af þáv. hæstv. fjmrh. á þann veg, að það væri fullkominn áhugi á því að athuga möguleikana á að innleiða slíkt kerfi og gert ráð fyrir, að það yrði um næstliðin áramót, eins og fyrirspyrjandi gerði grein fyrir.
Í yfirlýsingu núv. hæstv. forsrh. á Alþingi 13. okt. 1965 var því lýst yfir, að ríkisstj. mundi beita sér fyrir því, að upp verði tekið staðgreiðslukerfi opinberra gjalda hér á landi, og var þá að því stefnt, að hægt væri að innleiða þetta kerfi um s.l. áramót, þannig að það kæmi til við álagningu skatta á skattárinu 1967. Ég skal fúslega játa, að þetta loforð mun ekki h afa verið þaulhugsað sem skyldi, og er það þá fyrst og fremst mín sök, að ég hafði ekki kynnt mér til hlítar, að undirbúningi verksins var ekki svo langt komið sem hefði þurft að vera, ef þetta hefði átt að verða auðið. Nokkur skýrslusöfnun hafði að vísu farið fram, en litið sem ekkert úr þeim skýrslum unnið. En í framhaldi af þessari yfirlýsingu var hins vegar þegar hafizt handa um kerfisbundnar aðgerðir til framkvæmda í málinu. Var ríkisskattstjóra falinn allur undirbúningur málsins, og jafnframt voru ráðnir honum til aðstoðar tveir menn, sem síðan hafa unnið að hálfu leyti á vegum ríkisskattatjóra að málinu, þeir Helgi Jónsson lögfræðingur og dr. Gísli Blöndal, og tóku þeir til starfa snemma á árinu 1866. Var þá hafinn mjög viðtækur og kerfisbundinn undirbúningur málsins og aflað gagna frá nálægum löndum, þar sem kerfið hafði verið innleitt, því að það var að sjálfsögðu nauðsynlegt til að gera sér grein fyrir viðfangsefnunum og þeim vandamálum, sem þar hafði verið við að glíma.
Þessi undirbúningur var unninn á s.l. ári og var síðan í septembermánuði s.l. skilað grg. til ríkisstj., sem er mjög mikið plagg, sem hefur inni að halda upplýsingar um staðgreiðslukerfi í allmörgum Evrópulöndum, og jafnframt var skilað annarri grg., þar sem gerð var ýtarleg grein fyrir þeim sérstæðu vandamálum, sem við væri að glíma hér á Íslandi, miðað við íslenzkar aðstæður og íslenzka skattalöggjöf, og leiddu þessar skýrslur í ljós, að hér er um að ræða mjög viðamikið mál og vandasamt, sem snertir bæði heildarlöggjöf skattamálanna og framkvæmd þeirra almennt. Málið er miklum mun erfiðara en menn höfðu gert sér grein fyrir í upphafi. Er það bæði, að íslenzk skattalöggjöf er svo flókin, að vart verður auðið að taka upp staðgreiðslukerfi án þess að gera á henni mjög víðtækar breytingar, og á sama hátt er skipan innheimtuhliðar skattamálanna á þann veg, að á henni þurfa að verða miklar breytingar, áður en unnt verður að koma á staðgreiðslukerfi opinberra gjalda. Það er augljóst, að svo víðtækum breytingum verður ekki við komið, svo að viðunandi sé, nema. að undangengnum ýtarlegum undirbúningi, og sá undirbúningur hlaut að taka lengri tíma en gert hafði verið ráð fyrir, eftir að lágu fyrir þessar nauðsynlegu upplýsingar, sem sýndu, að málið var flóknara en menn höfðu hugsað í upphafi.
Eftir að skýrsla embættismanna, sem ég gat um, hafði borizt ríkisstj. í sept. 1966, var hafizt handa um framhaldsundirbúning, sem vas í því fólginn að taka þessar niðurstöður til athugunar, bera þær saman við gildandi íslenzka skattalöggjöf, gera sér grein fyrir því í fyrsta lagi, hvaða kerfi ætti að velja, vegna þess að staðgreiðslukerfin sjálf eru mjög mismunandi, og eftir að það var gert, að gera sér þá grein fyrir því, hvaða breytingar óumflýjanlegt væri að gera á núgildandi íslenzkri skattalöggjöf og innheimtukerfinu, til þess að þetta væri auðið. Í því skyni að vinna að þessu verki skipaði ríkisstj. í haust sérstaka n., sem í skyldu vera fulltrúar bæði frá ríki og sveitarfélögum, því að það var að sjálfsögðu nauðsynlegt, að sveitarfélögin væru með í málinu, því að ekki hvað sízt eru vandamálin mikil varðandi það tekjuöflunarkerfi, sem gildir fyrir sveitarfélögin. Það er eitt erfiðasta vandamálið í sambandi við staðgreiðslukerfið. Þessi n. var skipuð í októbermánuði, og hún hefur unnið stanzlaust síðan og verið lögð á það áherzla að hraða störfum hennar sem allra mest. Í n. þessari eiga sæti fyrst og fremst menn, sem hafa komið nærri þessum málum og eru þeim gjörkunnugastir. Formaður hennar er Guðlaugur Þorvaldsson ráðuneytisstjóri í fjmrn., en aðrir nm. eru þeir Hjálmar Vilhjálmsson ráðuneytisstjóri, Sigtryggur Klemenzson bankastjóri og Ólafur Björnsson prófessor, Sigurður Ingimundarson alþm., Halldór E. Sigurðsson alþm. og Jón Tómasson skrifstofustjóri.
Starfssvið þessarar n. var að gera till. um það, með hvaða hætti og á hvaða grundvelli eða eftir hvaða kerfi eigi að taka upp staðgreiðslukerfi opinberra gjalda hér á landi, og þá að sjálfsögðu um leið að gera sér grein fyrir því, hvort hér séu einhverjar hindranir í vegi, sem geri þetta illmögulegt. Jafnframt þessu átti n. svo að gera sér grein fyrir því, hver yrði kostnaður við hið nýja kerrti, því að það liggur nokkurn veginn ljóst fyrir, að staðgreiðslukerfið mun í framkvæmd verða mun dýrara en núverandi skattheimtukerfi er. Með þessari n. vinnur ríkiskattstjóri sem ráðunautur hennar og framkvæmdastjóri og auk þess dr. Gísli Blöndal. Að því hefur verið stefnt, að málið gæti komið fyrir Alþ., sem nú situr. Ég hafði vonazt til, að n. hefði lokið störfum sínum nú í byrjun febrúar, og það hefur áreiðanlega verið unnið af fullu kappi í n, með það í huga. En viðfangsefnið reynist það viðamikið, að formaður n. hefur tjáð mér, að það séu mjög litlar og eiginlega engar líkur til, að starfi hennar geti orðið lokið fyrr en í lok þessa mánaðar, febrúarmánaðar.
Hver endanleg niðurstaða í málinu verður, skal ég ekkert um segja. Því var að vísu lýst yfir í yfirlýsingu ríkisstj., að hún mundi beita sér fyrir því, að tekið yrði upp staðgreiðslukerfi skatta. Ég þori ekki á þessu stigi, miðað við það, sem þegar liggur fyrir, að gefa ákveðna yfirlýsingu um, hvort það verður eða ekki. Hitt er annað mál, að málið verður tvímælalaust lagt fyrir Alþ., fyrst og fremst skýrsla sú, sem n. semur um þetta mál, þar sem verður gerð annars vegar grein fyrir þessum kerfum í nálægum löndum, hins vegar hinum sérstæðu íslenzku vandamálum, hvaða kerfi aðlagist bezt íslenzkum aðstæðum og hvaða breytingar verði óumflýjanlega að gers, til þess að innleiða kerfið hér á landi. Hvort n. verður sammála um það að mæla með því, að kerfið verði innleitt eða ekki, eða hvort ríkisstj. að þessum málum öllum athuguðum og að athuguðum þeim grg., sem n. skilar, .telur sér fært að mæla með því við Alþ., að kerfið verði innleitt eða ekki, þori ég heldur ekkert um að segja, fyrr en ég sé þessar niðurstöður. En undir öllum kringumstæðum verður málið lagt fyrir Alþ., annaðhvort sem skýrsla eða þá í þál.-formi, því að það er ljóst, að enda þótt menn kynnu að verða sammála um það að innleiða þetta kerfi, þarf það mikinn aðdraganda, og miðað við þær víðtæku breytingar, sem þarf að gera á íslenzkum skattalögum, er alverg ljóst, að það a.m.k. verður ekki innleitt í framkvæmd á þessu ári. Í flestum eða öllum þeim löndum, þar sem þetta kerfi hefur verið innleitt, hefur undirbúningur þess tekið mörg ár, og a.m.k. í sumum þessum löndum var sá háttur á hafður, að allmörgum árum áður en kerfið tók gildi var ákveðið með lögum, að það skyldi taka gildi, en talið nauðsynlegt að hafa svo ag svo mörg ár til undirbúnings, bæði til kynningar á kerfinu og til ýmissa ráðstafana, þannig að það gæti verkað með eðlilegum hætti, þegar það væri innleitt.
Það er rétt, sem hér hefur verið bent á, að enn þá hefur engin þjóð vikið frá þessu kerfi, þannig að það má segja, að það á vissan hátt sýni, að kerfið sé jákvætt. En sannleikurinn er sá, sem einnig hefur komið í ljós hjá þeim mönnum, sem hafa athugað þetta, að það er ekki alls staðar vegna þess, að menn séu sárlega hrifnir af því, heldur vegna hins, að það er mjög erfitt að breyta frá þessu kerfi aftur, ef það er einu sinni upp tekið. Og hvort menn eru reiðubúnir til þess að gera þær víðtæku breytingar á íslenzkri skattalöggjöf, ekki hvað sízt skattamálum og eiginlega heildarfjármálastefnu sveitarfélaganna, sem hætt er við að verði að gera, er þetta kerfi er innleitt, það skal ég ekkert fullyrða um. En það er að sjálfsögðu eðlilegt, að Alþ. taki afstöðu til þess.
Á þessu stigi get ég því ekki annað sagt en það, að það hefur verið unnið að málinu með öllum þeim hraða, sem auðið hefur verið að koma við, allt s.l. ár og til þessa dags. Málið reynist miklu viðtækara og vandasamara en gert hafði verið ráð fyrir, og skal ég játa mína sök í því efni að hafa átt hlut að því að gefa um það yfirlýsingu í stefnuyfirlýsingu ríkisstj., sem fær ekki staðizt, og ber alltaf að harma það, er slíkt gerist. En ég hygg, að þegar málið kemur fyrir Alþ., og eins og ég áðan, sagði, mun það verða lagt fyrir yfirstandandi Alþ. í einhverju formi, muni menn gera sér grein fyrir því, að hér er um miklu viðameira og vandasamara og flóknara mál að ræða en menn hafa, almennt álitið. Það haggar hins vegar ekki því, sem hv. fyrirspyrjandi sagði, að við þetta kerfi hafa verið bundnar þær vonir, að hægt væri að leysa þá annmarka, sem eru á núverandi innheimtu- og skattálagningaraðferðum, og ber því vissulega að skoða það í fullri alvöru, hvort hugsanlegt kerfi væri finnanlegt, sem gæti leyst þann vanda.