22.02.1967
Sameinað þing: 24. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 533 í D-deild Alþingistíðinda. (2693)
212. mál, varðveisla skjala og gagna þingkjörinna og stjórnskipaðra nefnda
Forsrh. (Bjarni Bensdiktsson):
Herra forseti. Eins og fram kemur í sjálfri fsp., er hún greind í tvennt, og má raunar segja, að þar sé líka hvar liður um sig greindur í tvennt, annars vegar viðhorfið gagnvart ríkisstj. og hins vegar gagnvart Alþ. Varðandi fyrri meginliðina hefur ráðuneytisstjóri í forsrn. tekið saman svo hljóðandi grg.:
„Ráðuneytisstjórar rn. hafa að beiðni forsrn. veitt upplýsingar um fyrri lið fsp., og eru svör þeirra allra á þann veg, að skýrslur og önnur gögn, sem umræddar n. skila, séu varðveitt í skjalasöfnum rn. Í þessu sambandi má geta þess, að öll bréf og önnur skjalagögn, sem berast rn., eru skrásett, þegar þau berast. Þegar lokið er afgreiðslu þeirra, eru skjölin geymd í skjalasöfnunum, fyrst í rn. og síðar í þjóðskjalasafninu. Á þetta jafnt við um nál. og önnur gögn.“
Frá skrifstofu Alþ. hefur borizt svo hljóðandi grg.:
„Sem svar við fsp. rn. í dag um skil og varðveizlu skýrslna og gagna, sem n., þingkjörnar eða stjórnskipaðar til athugunar á einstökum málum og tillögugerða, hafa, unnið eða aflað, skal það tekið fram, að þau skjöl, sem skrifstofunni hafa borizt í þessu efni, eru varðveitt í skjalssafni þingsins.“
Það er rétt að bæta, hér við, að þau skjöl, sem aldrei berast, hvorki rn. nk. skrifstofu Alþ., eru auðvitað ekki á ábyrgð þeirra aðila. Það má hins vegar segja, að sá aðili, sem skipar n., hvort heldur er rn. eða Alþ., eigi að gera gangskör að því, að þessar n. skili álitum, og ef ekki, þá þeim gögnum, sem saman hafa verið dregin, og þá verði farið með þau eins og segir í þessum grg. frá ráðuneytisstjóranum og skrifstofustjóranum. Og það má vel vera, að það sé of lítið eftirlit haft með því, að n. ljúki störfum. En það er nokkuð annað atriði en hér er spurt um.
Varðandi hins vegar síðari meginlið fsp., um það, hvort alþm. hafi aðgang að þessum gögnum, fer það eftir forráðamanni hvers rn. um sig og forsetum Alþ. hverju sinni, hvaða gögn það eru, sem mönnum er frjáls aðgangur að, og hver skuli varðveitt sérstaklega, ef til vill með einhverri leynd. Ég tel víst, að alþm. mundu fá heimilaðan aðgang að meginhluta þessara gagna og það þurfi að vera alveg sérstakar ástæður til þess, að þeim sé það ekki veitt. En það hlýtum að vera komið undir ákvörðun og vera á ábyrgð, eins og ég segi, ráðh. hverju sinni og forseta Alþ. Ef alþm. fá svo ekki þá heimild, sem þeir telja eðlilega, geta þeir hvort heldur með tillögugerð á Alþ. eða fsp. a.m.k. knúið fram skýrslu og grg. um það, af hverju gögnum sé fyrir þeim haldið, sem ég hygg annars, að sé mjög sjaldgæft. En stjórnskipulega mundi málið horfa þannig við.