22.02.1967
Sameinað þing: 24. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 536 í D-deild Alþingistíðinda. (2699)
211. mál, rekstrarvandamál báta
Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Ég vil, áður en ég kem að sjálfri fsp., svara því, sem ég hef reyndar svarað áður varðandi meðferð þess nál., sem hv. fyrirspyrjandi er hér að spyrja um framkvæmd á. Hann getur þess réttlega nú og í sinni fsp., að nál. hafi verið afgreitt til ríkisstj. í júnímánuði 1966. Þarna er örlítið sniðgenginn raunveruleikinn, því að hv. fyrirspyrjandi afhenti sjálfur þetta nál. í rn. tæplega hálfum öðrum mánuði eftir að n. sjálf undirritaði það og gerði þá sjálfur grein fyrir því, í hverju sá dráttur lægi. Hann lá í því, að fyrirstaða var á að fá nál. fjölritað. Þetta skiptir ekki máli og er ekkert atriði í málinu, en það er eðlilegt og sjálfsagt, að það rétta komi fram nú þegar, þó að áður hafi verið grein fyrir því gerð.
Hv. fyrirspyrjandi leggur fram fsp., sem hann hefur gert grein fyrir og er svo hljóðandi: „Hvað líður framkvæmd till. þingnefndar, sem rannsakaði rekstrarvandamál báta undir 120 smál. og skilaði áliti til sjútvmrh. í júní 1966?“ Þetta er mjög kærkomið tækifæri til þess að gera ýtarlega grein fyrir því, hvernig að einstökum till. n. hefur verið staðið, frá því að þeim var skilað, og verð ég að biðja forláts á því, þó að örlítill tími fari í þessa grg. En það er ekki sízt þörf á henni, ef það er satt, sem hv. fyrirspyrjandi lét í ljós, að ýmsar sögusagnir gengju um tafir í þessu efni og kannske af misjafnlega velviljuðum toga upprunnar.
Eftir mikið starf og af flestum talið gott skilaði vélbátaútgerðarnefnd, sem svo hefur verið nefnd, áliti sínu á s.l. sumri eða nánar til tekið í lok júlímánaðar, og var álitið undirritað af öllum nm. Skýrsla n. var birt hér á hv. Alþ. í októbermánuði s.l., og í skýrslunni bendir n. á mörg og margvísleg úrræði, er hún telur til bóta horfa fyrir útgerð minni vélbáta. Hafa till. verið til athugunar síðan í rn. og hjá ýmsum .fleiri aðilum, sem fengið hafa einstök atriði till. til meðferðar eða úrlausnar. Verður nú vikið að þessum till. n. og þeim ráðstöfunum, sem gerðar hafa verið vegna þeirra.
Í áliti sínu leggur n. fyrst og fremst til, að gerðar verði ráðstafanir til þess, að fiskverð verði hækkað. Segir svo í nál.:
„Gerðar verði ráðstafanir til þess, að fiskverð verði hækkað um a.m.k. 10% frá því, sem það er nú, þannig að rekstrargrundvöllur bátaútgerðarinnar verði eigi lakari en hann var árið 1962 samkv. þeim samanburði milli ára, sem gerður hefur verið hér að framan.“
Rétt er og skylt að geta þess, að í skýrslu n. er gerður samanburður á rekstrargrundvelli bátaútgerðarinnar milli þessara ára, þ.e. áranna 1962—1966. Ljóst var við verðákvörðun á bolfiski fyrir árið 1987 samkv. þeim athugunum, sem gerðar höfðu verið á vegum yfirnefndar verðlagsráðs sjávarútvegsins, að vegna verðfalls á erlendum mörkuðum gátu fiskvinnslustöðvar ekki greitt hærra fiskverð á þessu ári en þær gerðu á s.l. ári eða árið á undan. Ríkisstj. taldi á hinn bóginn nauðsyn bera til, að ráðstafanir væru gerðar til hækkunar fiskverðs, svo að rekstrargrundvöllur útgerðarinnar yrði styrkari. Hefur ríkisstj. tjáð sig reiðubúna til þess að beita sér fyrir því, að greidd verði á árinu 1967 8% viðbót við verð bolfisksafla. Ætlunin er að þessi viðbótargreiðsla skiptist þannig, svo sem áður hefur verið upplýst, að 5% viðbót verði greidd mánuðina marz og apríl, en 11% aðra mánuði ársins. Lagt mun verða fram hér á hv. Alþ. innan skamms tíma frv., þar sem farið er fram á heimild Alþ. til að inna þessar greiðslur af hendi. Enn fremur verður leitað eftir heimild Alþ. til greiðslu jafnhárra verðuppbóta á lágmarksverð á flatfiski, sem ákveðið verður síðar á árinu.
Með hliðsjón af því, að hinir minni bátar þykja ekki lengur hentugir til síldveiða og stunda því bol- og saltfisksveiðar mun lengri tíma ársins en hinir stærri bátar, og þar sem gert er ráð fyrir, að ferskfiskverðið hækki um 11% 10 af 12 mánuðum ársins, verður að telja, að ríkisstj. hafi gengið mjög langt til móts við till. n. um hækkun fiskverðs, sem ætti að geta örvað aflamagn til þeirra fiskvinnslustöðva, sem erfiðast hafa átt um hráefnisöflun utan aðalvertíðarinnar.
Vert er að víkja að því, að vélbátaútgerðarnefnd lagði til, að sérstakt sumar- og haustverð á 1. flokks fiski yrði ákveðið. Var það till. n., að þegar yrðu gerður ráðstafanir til að hækka aukagreiðslur til línu- og handfærafisks, en þó eingöngu 1. flokks fisks, um 50 aura á kg og greiðist sú uppbót á slíkan fisk til næstu áramóta, þ.e. 1966—1967. Mælti n. með því, að fiskkaupendur tækju á sig helming hækkunarinnar, en ríkissjóður hinn helminginn. Út af þessu óskaði rn. bréflega eftir því við stjórn Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, að hve miklu leyti fiskkaupendur gætu tekið á sig slíka hækkun fiskverðs. Með bréfi, dags. 14. okt. s.l., lýsti stjórn Sölumiðstöðvarinnar því yfir, að vegna verðfalls á erlendum mörkuðum, minnkandi fiskhráefnis og hækkunar á innlendum rekstrarkostnaði væri útilokað, að hraðfrystihúsin gætu tekið á sig helming þeirrar hækkunar, er í till. vélbátaútgerðasnefndar greinir, og staðfestu þeir þetta í viðtölum við rn. síðar. Ríkisstj. ákvað þá þegar að greiða fiskseljendum viðbótaruppbætur á línufisk veiddan frá 1. okt. til 31. des. 1966. Skyldu þessar verðuppbætur nema þeirri upphæð, er afgangs yrði af þeirri heildarfjárhæð, er upphaflega var áætlað, að gengi til greiðslu 25 aura verðuppbótar á hvert kg línu- og handfærafisks samkv. 1. gr. l. nr. 16 frá 1966, þannig að heildaruppbætur á línu- og handfærafisk árið 1966 næmu 20 millj. kr., en það var sú ýtrasta heimild, sem til var í lögum. Viðbótarbætur þessar yrðu reiknaðaðar út og jafnað niður á hvert kg línu
fisks, er aflamagn línu- og handfærafisks á þessu tímabili lægi fyrir endanlega. Gert var þá ráð fyrir því, að viðbótaruppbætur þessar á línufisk nemi sem næst 35 aurum á hvert kg línufisks, og hefur nú komið í ljós, að svo muni verða, en allar þessar upphæðir verður að áætla fyrir fram. Verður því að telja, að ríkisstj. hafi gert ráðstafanir í samræmi við till. vélbátaútgerðarnefndar í þessu efni, þótt ekki væri fyllilega um þá heildarupphæð að ræða, sem n. lagði til. Hlutur ríkissjóðs er þó hærri en n. ætlaði honum í upphaflegum till. sínum, en þar var gert ráð fyrir því, að hækkunin skiptist að jöfnu milli ríkissjóðs og fiskkaupenda
Vélbátaútgerðarnefnd lagði til, að rn. fæli sérstakri n. að athuga fjárhag þeirra útgerðarfyrirtækja, sem eiga verðmætan síldveiðiútbúnað, en geta ekki haft hans not, eins og síldveiðum er nú háttað. Rn. hefur óskað eftir því, að Fiskifélag Íslands athugi og geri skýrslu um þetta mál, og að fengnum þeim upplýsingum mun rn. athuga, hvaða leiðir eru helzt til úrbóta, í þessum efnum.
Þá er að geta þess, að vélbátaútgerðarnefnd gerði mjög ýtarlegar og ákveðnar till. um lengingu lánstíma, frestun afborgana og lækkun dráttarvaxta af stofnlánum hjá fiskveiðasjóði. Lagði n. til, að greiðslutími hinna styttri lána yrði lengdur, enn fremur, að stofnlán til skipakaupa yrðu veitt til 20 ára í stað 15 ára nú og að þeim aðilum, sem gjaldfrest fengu af afborgunum á tímabilinu 1963—1965, yrði gefinn kostur á lengingu lánstímans sem gjaldfrestinum næmi. Enn fremur var það till. n., að eigendum allt að 120 rúml. skipa yrði gefinn kostur á eins árs gjaldfresti vegna afborgana 1965 og lánstíminn lengdur til viðbótar sem því næmi. Þá lagði n. einnig til, að dráttarvextir hjá fiskveiðasjóði yrðu lækkaðir í 3/4% á mánuði.
Rn. átti þegar viðræður við þáv. stjórn og framkvæmdastjóra fiskveiðasjóðs, svo og stofnlánadeild sjávarútvegsins, um þessar till., enda voru þær taldar einna mikilvægustu till. n. Voru gerðar ýtarlegar athuganir á því, hverja fyrirgreiðslu sjóðurinn gæti í þessum efnum veitt. Eins og alþm. er kunnugt, var hinn eldri fiskveiðasjóður og stofnlánadeild sameinuð í einn sjóð frá og með s.l. áramótum, Fiskveiðasjóð Íslands, og var talið, að miklum erfiðleikum væri bundið að finna endanlega úrlausn í þessu máli fyrr en hin nýja stjórn fiskveiðasjóðs tæki við. Eftir ýtarlegar viðræður og bréfaskipti við hina nýju sjóðsstjórn hefur hún fallizt á eftirfarandi:
1) Að lánstími svonefndra tækjalána, sem verið hefur 3 ár, verði lengdur í 5 ár og verði öll slík núverandi lán framlengd þannig, að náð verði þeim lánstíma frá lánveitingardegi að telja.
2) Að eigendum fiskiskipa undir 120 rúml. brúttó, verði gefinn kostur á að sækja um samninga um skil á afborgunum og vöxtum af lánum, sem á skipum þessum hvíla og í vanskilum voru 31. des. 1966, enda verði fullnægt skilyrðum fiskveiðssjóðs hverju sinni. Kemur þá einnig til greina eftirgjöf dráttarvaxta að einhverju eða öllu leyti.
Stjórn fiskveiðasjóðs tekur fram, að heildarlækkun dráttarvaxta og útlána fiskveiðasjóðs mundi valda ósamræmi í vaxtakerfi í landinu og sé þess vegna þörf nánari athugunar á því máli. Rn. telur nú eftir viðræður, sem átt hafa sér stað, síðan framangreint svar berst, að hér sé um lágmarksviðmiðanir að ræða, að nú verði gerðar þær ráðstafanir af hálfu fiskveiðasjóðs, sem nauðsynlegar eru til að koma á hreint vanskilaskuldum útgerðarmanna, er gera út vélbáta í fyrragreindum stærðarflokkum. Innan skamms tíma mun fiskveiðasjóður láta frá sér fara tilkynningu um, hvernig hað framkvæmdum í þessu skyni verður staðið, og verður að vænta þess, að útgerðarmenn bregðist vel við og veiti sjóðnum allar nauðsynlegar upplýsingar, sem um verður beðið.
Næst er að geta þess, að vélbátaútgerðarnefnd mælti með því í till. sínum, að endur skoðaðar yrðu gildandi reglur um 1% ábyrgðargjald, sem bankarnir taka af erlendum lánum vegna kaupa á fiskiskipum, og verði gjaldið lækkað, eftir að þaktrygging fiskveiðasjóðs kæmi til. Út af þessu sneri rn. sér til viðskmrn. og óskaði eftir því, að rn. kannaði það hjá bönkunum, hvort lækkun gjaldsins væri kleif. Hertur þetta atriði till. verið í athugun síðan, en endanleg svör ekki borizt. Í þessu sambandi er þó rétt að geta þess, að um langan tíma, hefur ekki verið fluttur inn bátur erlendis frá undir 120 rúml. að stærð, og munu því mjög fá erlend lán hvíla á bátum af þessari stærð, eins og sakir standa nú.
Þá mælir n. með því, að samið verði frv. til l. um breyt. á sjómannalögum á þá leið. að greiðslur til áhafna á fiskiskipum í veikinda- og slysaforföllum skipverja samkv. lögunum miðist ekki við aflahlut, heldur verði í meginatriðum og eftir því sem við getur átt miðað við kauptryggingu háseta og það launalhlutfall, sem er á milli yfir- og undirmanna á fiskiskipum samkv. kjarasamningum. Um þessa till. n. skal það sagt, að málið er vægast sagt mjög torleyst og vandasamt, þar sem reynslan er sú, að fáir vilja gefa eftir af lagalegri tryggingu, sem einu sinni er fengin, jafnvel þó að hæpnar forsendur hafi til hennar legið. Hefur rn. leitað eftir lausn á þessu máli og mun halda því áfram, og er erfitt á þessu stigi málsins að gefa nokkur endanleg svör um framkvæmd þessa atriðis eða loforð um lausn á því.
Þá leggur n. til, að lögum um aflatryggingasjóð og lagaárkvæðum um tryggingu fiskiskipa verði breytt þannig, að tryggt sé, að bátaútgerðin verði ekki látin standa undir beinum eða óbeinum stuðningi við togaraútgerðina, og er þá að sjálfsögðu fyrst og fremst átt við þann hluta bátaflotans, sem er undir 120 rúml. Það verður að telja sennilega niðurstöðu, er n. kemst að, að í gegnum þessi kerfi renni nú fjármagn frá bátaflotan um í heild til togaranna. Á hinn bóginn er rétt að upplýsa, að samkv. fyrirliggjandi upplýsingum bendir allt til þess, að bátar undir 120 rúml. að stærð fái meiri greiðslur úr sjóðnum en þeir leggja til hans. Staðreyndin er sú, að bæði togarar og bátar allt að 120 rúml. taka sér meira fé en þeir leggja, til á kostnað báta, sem eru yfir 120 rúml. að stærð, og kemur þetta fyrst og fremst til af því góðæri, sem ríkt hefur á síldveiðum undanfarandi ára, en þar eru aflabeztu skipin langt yfir þeirri stærð, sem hér um ræðir. Stafar þetta fyrst og fremst af því, að kerfi þessi miða yfirleitt til jöfnunar milli skipaflokka, svo og hinn hái vátryggingarkostnaður á minni bátum, sem aftur stafar af því, að meginhluti þeirra er eldri og byggður úr tré, en ekki stáli. T.d. námu iðgjaldagreiðslur úr tryggingasjóði vegna bráðafúa á árinu 1965 um 33 millj. kr. vegna báta undir 120 rúml., en ekki nema um 2 millj. kr. vegna báta yfir 120 rúml. Þegar er ljóst, að greiðslur þessar verða allverulega hærri vegna ársins 1966. Þá er þess að geta, að mikill hluti tekna aflatryggingasjóðs er frá ríkissjóði og fiskveiðasjóður fær miklar tekjur af útflutningsgjaldi, sem einnig greiðist af afla, sem frá togurunum kemur, en lítið mun hafa verið veitt til þeirra úr þeim sjóði. Það er því ljóst, að mjög vafasamt er og verulegum vandkvæðum bundið að fylgja till. n. fram undir því yfirskini fyrst og fremst, að tryggja eigi bátum undir 120 rúml. betri kjör, eins og á stendur nú um fiskveiðihlutfall hinna mismunandi stærða fiskveiðiflotans.
Þá leggur n. til, að sjútvmrn. hafi forustu um, að tilraun verði gerð með beitingarstöðvar í tveim verstöðvum á næstu vertíð til þess að fá úr því skorið, hvort ekki sé hægt að lækka útgerðarkostnaðinn við línuútgerðina frá því, sem nú er, og spara mannafla við þessa veiðiaðferð. Rn. fól Fiskifélaginu að kann, að hve miklu leyti tilraunir þessar væru framkvæmanlegar, og þá jafnframt, á hvern hátt hagkvæmast yrði að þeim staðið. Fiskifélagið tók það ráð, þar sem um tækilegt atriði er að ræða, að biðja þrjá menn, er vel þekkja til, að rannsaka tækni- og fjárhagshliðar þessa máls. Fyrir valinu urðu Ásgrímur Pálsson útgerðarmaður, Keflavík, Eyjólfur Kristinsson skipstjóri, Keflavík, og Loftur Loftsson verkfræðingur, Reykjavík. Þessi hópur manna er um það bil að Ijúka störfum. Er álits að vænta innan skamms tíma.
Þá hefur rn. einnig ritað stjórn fiskimálasjóðs um þetta mál, einkum með tilliti til styrks frá sjóðnum vegna tilraunanna. Í bréfi fiskimálasjóðs til rn., dags. 18. nóv. s.l., segir svo um þessi mál:
„Stjórn sjóðsins er hlynnt þessum tilraunum og mun, þegar skýrslur Fiskifélagsins liggja fyrir, veita málinu skjóta og góða afgreiðslu.“
Þá bendir n. í niðurlagsorðum sínum á, að aðkallandi sé að taka ákvarðanir um breytt skipulag á Samábyrgð Íslands á fiskiskipum og bátaábyrgðarfélögunum, sem hafa með höndum tryggingar á allt að 100 rúml. fiskiskipum. Vegna þessarar till. n. tel ég rétt að minna alþm. á, að nauðsyn ber til að afgr. þau tvö frv., er fyrir Alþ. liggja, nú, þótt með breytingum yrði, um Samábyrgð Íslands á fiskiskipum og bátaútgerðarfélög, til þess að mál þessi komist úr því óvissuástandi, sem þau hafa of lengi verið í.
Þá undirstrikar n. einnig sérstaklega nauðsyn þess, að gerðar verði tilraunir með nýjar og fjölbreyttari veiðiaðferðir og fullkomnari útbúnað vélbátanna. Segir n., að athuga þurfi nánar, á hvern hátt fiskimálasjóður geti aukið starfsemi sína á þessu sviði. Rn. óskaði eftir því fyrir nokkru, að fiskimálasjóður athugaði gaumgæfilega, hvernig hann gæti með sem beztum hætti örvað nýjungar í veiðitækni, og hefur stjórn fiskimálasjóðs það erindi rn. til athugunar. Samkv. l. um fiskimálssjóð er það m.a. hlutverk sjóðsins að veita styrki í þessu skyni, og hefur mikið af styrkjum úr sjóðnum verið veitt til tilrauna sem þessara. Fiskimálasjóður hefur í þessum efnum reynzt mjög notadrjúgur til örvunar og eflingar ýmissa nýjunga til veiði og vinnslu sjávarafla. Störf hans í því efni tel ég ekki nauðsynlegt að rekja nú á tilefni þessarar fsp., en upplýsandi væri það eigi að síður fyrir hv. Alþ. að fá um það sérstaka skýrslu. Svo sem áður er getið hefur rn með bréfi áréttað og talið brýna nauðsyn til, að kannaðar verði til hlítar leiðir í þessum efnum, enda telur rn., að stjórn fiskimálasjóðs hafi sérstaka aðstöðu til að gera raunhæfar till. í þessu efni samkv. reynslu sinni og reynslu þeirri, sem fyrir liggur um starf sjóðsins á undanförnum árum, enda í beinu samræmi við starfssvið sjóðsins.
N. leggur að lokum til, að samið verði frv. til l. um breyt. á l. nr. 40 frá 9. júní 1960, um takmarkað leyfi til dragnótaveiða í fiskveiðilandhelgi Íslands undir vísindalegu eftirliti, er feli það í sér, að ráðh. sé heimilt að veita veiðileyfi fyrir allt að 65 brúttórúml. skip. Jafnframt verði athugað, hvort tiltækilegt sé að verða við fram komnum óskum um lengingu veiðitímans, en ítrekaðar óskir um það hafa borizt víða að.
Eins og hv. alþm. er kunnugt, hefur krafan um auknar togveiðiheimildir í landhelgi innan núv. fiskveiðitakmarka mikið verið á dagakrá undanfarið. Verður að segja, að till. vélbátaútgerðarnefndar um auknar heimildir til dragnótaveiða sé mjög samofin því máli og það svo, að varla verði þar aðskilið, svo nátengdar sem þessar veiðiaðferðir eru í raun, og munu þeir þó fleiri, sem telja, að jafnvel dragnótaveiði geti falið í sér meiri hættur um veiði á ókynþroska fiski heldur en jafnvel togveiðar. Ekki eru líkur til, eins og málum er nú háttað, að krafan um heimild til aukinna togveiða innan núverandi fiskveiðitakmarka nái fram að ganga. Hefur staðan
í því máli arðið mun ljósari nú á allra síðustu vikum. Með því að þessi mál hafa verið til umr. á Alþ. undanfarið og hæstv. utanrrh. hefur ýtarlega gert grein fyrir þeim, er óþarft að ræða þau hér frekar nú í tilefni þessarar fsp.
Umfram það, sem að framan er greint úr till. vélbátaútgerðarnefndar, höfum við hæstv. bankamálaráðh. eftir ósk stjórnar Landssambands ísl. útvegsmanna átt viðræður við bankastjóra Útvegabanka Íslands og Landsbanka Íslands um rekstrarfjárerfiðleika þá, sem útgerðarmenn umræddra vélbáta undir 120 rúml. telja, sig eiga við að stríða af ýmsum ástæðum. Of snemmt er á þessu stigi að segja til um árangur eða endanlega niðurstöðu þessara viðræðna.
Ég vona, að þessar framangreindu upplýsingar telji hv. fyrirspyrjandi fullnægjandi sam svör við fsp. sinni.