22.02.1967
Sameinað þing: 24. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 553 í D-deild Alþingistíðinda. (2708)
211. mál, rekstrarvandamál báta
Sverrir Júlíusson:
Herra forseti. Út af fsp. þeirri, sem hv. 4. þm. Reykn. ber fram á þskj. 202, langar mig að segja nokkur orð.
Það hafa ýmsir látið til sín heyra í sambandi við þetta mál, og ber ekki öllum saman. Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir þær upplýsingar, sem hann gaf um framkvæmd þeirra tillagna, er vélbátanefndin svokallaða samdi um afkomu vélbátaútvegsins, þótt það sé rétt, að þau atriði eru ekki öll komin í höfn. Ég vil byrja á að tala um fiskverðið, sem vissulega er stærsta atriðið, já eitt aðalatriðið í tillögum n. Ég sem forsvarsmaður útvegsins á öðrum vettvangi hef mælt með því ásamt öðrum, að þessar till., sem vélbátanefndin gerði, kæmust til framkvæmda og það sem fyrst. Ég gerði mér fulla grein fyrir því strax í haust, að það mundu verða talsverðir erfiðleikar í þessum efnum vegna þess, hvernig viðhorfið var, varðfall á afurðum, og fiskkaupendur mundu ekki a.m.k. geta gengið til móts við fiskseljendur, eins og þar var gert ráð fyrir. Ég vil segja það hreinskilnislega, að í upphafi viðræðanna um fiskverðið í haust voru mínar glæstu vonir, að það gæti orðið 14 1/2—15% hækkun. Það var áður en umræður byrjuðu um verðstöðvunarlögin, og þá var það byggt einmitt á því, að þessi 10%, sem vélbátanefndin lagði til, kæmu til framkvæmda ásamt þeirri hækkun útgerðarkostnaðar, sem Landssamband ísl. útvegsmanna taldi að hefði orðið á tímabilinu frá því, að till, voru gerðar. En það sýndi sig, að tímarnir voru að breytast, og við stóðum í byrjun ársins fyrir framan það, hvaða möguleikar voru fyrir hendi til hækkunar á fiskverðinu, og þá var það að síðustu 8%, sem hægt var að ná samkomulagi um. Ég vil taka það fram, að það voru einmitt fulltrúar bæði útvegsmanna og sjómanna, sem hv. 5. þm. Austf. mun ábyggilega ekki vantreysta, sem samþykktu þetta. En þetta var gert m.a. vegna þess, að við töldum, að það væri betra að hafa einn fugl í hendi en tvo í skógi, og vegna þess, að stöðvunarlögin gætu orðið í hættu, ef lengra yrði farið. Ég skal skýra frá því, að útvegamenn almennt óskuðu eftir bæði hærra fiskverði og meiri fyrirgreiðslu en hefur fengizt, en menn verða að taka ákvarðanir um það, sem fyrir liggur á hverjum tíma, og þau ár, sem ég hef haft forsvar fyrir útvegsmenn á öðrum vettvangi, veit ég ekki annað en útvegsmenn hafi aldrei fengið það, sem þeir hafa talið sig þurfa að fá, og oft staðið fyrir framan mikinn vanda.
Ég vil lýsa því yfir, að ég hef alla tíð verið á móti stöðvunum, sem þó hefur komið fram ósk um hjá ýmsum útvegsmönnum. Ég man eftir því, að í ársbyrjun 1956, en síðast á árinu 1955 hafði verið mikið unnið að því að ná samkomulagi um rekstrargrundvöll fyrir sjávarútveginn, þá var fjmrh. hv. 1. þm. Austf., og það varð þá úr, að útvegsmenn samþykktu stöðvun. Sú stöðvun stóð í 18 daga. En hvað vannst við þessa stöðvun? Það vannst það eitt, að umfram það, sem stóð til boða hinn 3. jan. 1956, varð aðeins 5 aura hækkun á karfa til togaranna. Ég hef alla tíð verið þannig stemmdur, að ég tel, að það sé bezt að vinna að málunum þannig, að það sé samið um þau og komizt eins langt með skynsamlegum hætti og mögulegt er.
Það er því miður ekki tími til þess að fara lengra út í þessi mál, vegna þess að það er fsp.-tími, en það gefst kannske tækifæri til þess að upplýsa bæði það, sem hæstv. sjútvmrh. gaf tilefni til í sambandi við störf fiskimálasjóðs, og einnig hefði ég haft mikla löngun til þess að skýra frá því, sem er að gerast í sambandi við lánamál bátaflotans, því að útvegsmenn hafa verið í stöðugum viðræðum við ráðherra og bankastjóra. En það bréf, sem hæstv. ráðh. las upp hér áðan, segir ekki alla söguna. Ég a.m.k. ber fullt traust til þeirra aðila, sem eiga að framkvæma þetta, en af hálfu samtaka útvegsins mun verða fylgzt með því, að það fari eins vel úr hendi og möguleikar eru til.
Ég get þó ekki að síðustu stillt mig um að véfengja það, sem var fullyrt hér, að ekkert hafi verið gert til hækkunar á árinu 1966. Það er rangt. Þar eð Björn Pálsson, hv. 5. þm. Norðurl. v., mun tala hér á eftir, er einmitt ágætt að segja frá því, hann getur þá svarað. Í grg. með frv. því, sem hann talaði hér fyrir í gær, er talið, að hagræðingarfé nemi 80 millj. kr., en það voru ekki nema 50 millj. til hagræðingar, en 20 til verðuppbóta á línu- og handfærafisk. Það var raunverulega ekki skylda ríkisstj., þó að samningar tækjust um það, að þær 9.9 millj., sem eftir voru, gengju til hækkunar á fiskverði 1966. Það ber ekki að skilja orð mín þannig, að ég sé ánægður með það, sem fengizt hefur. Nei, en það er nauðsynlegt að leiðrétta rangfærslur, sem hv. þm. koma með.