21.11.1966
Efri deild: 17. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 373 í B-deild Alþingistíðinda. (271)
58. mál, verðjöfnun á olíu og bensíni
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Síðan 1953 hafa verið í gildi lög um verðjöfnun á olíu og benzíni. Þegar þessi lög voru sett, kvað mun meira að togaraútgerð hér á landi en nú á sér stað, og auk þess voru togarar þá gerðir út frá mörgum stöðum á landinu í öllum landshlutum. Þetta hefur hins vegar breytzt á síðustu árum. Togaraútgerð er nú næstum eingöngu stunduð frá Reykjavík, Hafnarfirði og Akureyri, og auk þess er afkoma togaranna nú orðin mjög bágborin, eins og öllum er kunnugt. Þegar verðjöfnunin var hafin fyrir 13 árum, gat hvort tveggja verið, að togarar nytu góðs af verðjöfnuninni og þyrftu að greiða í verðjöfnunarsjóðinn. Nú er það hins vegar svo, að togarar í Reykjavík og Hafnarfirði greiða nokkrar upphæðir í verðjöfnunarsjóðinn, en aðeins Akureyrartogarar njóta lítils háttar fyrirgreiðslna. Hins vegar hefur enn fremur orðið sú breyting frá því, sem var fyrir 13 árum, að neyzla þeirra olíutegunda, þ.e. gasolíu og fuelolíu, sem togararnir nota, hefur aukizt mjög hjá ýmsum öðrum aðilum, t.d. síldarverksmiðjum, sem hafa betri afkomumöguleika. Má því að vissu leyti segja, að togararnir greiði verðjöfnunargjald á sína olíunotkun í þágu olíunotkunar síldarverksmiðjanna, þ.e. síldarverksmiðjurnar njóti góðs af því gjaldi, sem togaraútgerðin greiðir fyrir olíunotkunina. En gjald á fuelolíu er nú 135 kr. pr. tonn, en á gasolíu 161/2 eyrir á lítra. Þetta er ekki eðlilegt, og er þess vegna í þessu frv. lagt til, að ráðh. sé heimilað að endurgreiða togurum verðjöfnunargjald af því olíumagni, sem togararnir nota. Hér er ekki um stórar fjárhæðir að ræða, og hagur verðjöfnunarsjóðsins er þannig, að hann getur staðið undir þessari endurgreiðslu til togaranna án þess að þurfa að hækka verðjöfnunargjald á nokkrum öðrum vörum, sem gildandi löggjöf tekur til. Þetta vona ég, að nægi til þess að skýra, hver tilgangur frv. er, og leyfi ég mér því, herra forseti, að leggja til, að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjhn.