22.02.1967
Sameinað þing: 24. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 556 í D-deild Alþingistíðinda. (2710)
211. mál, rekstrarvandamál báta
Björn Pálsson:
Herra forseti. Það var í tilefni af því, sem fram kom hjá hæstv. sjútvmrh., að ég stóð hér upp. Hæstv. ráðh. sagði, að bankavaldið þarna í Seðlabankanum hefði sagt, að það væri í ósamræmi við aðra dráttarvexti að vera að lækka úr 12% hjá fiskveiðasjóði. Ég vil leyfa mér að benda á í því sambandi, að lán í .fiskveiðasjóði eru 6%. Víxillán eru um 10%, skulum við segja, nálægt því, það fer raunar dálítið eftir því, hvort það eru 3 mánaða víxlar eða 6, en það eru sömu dráttarvextir, og það er búið að lækka vexti af víxlum, sem voru 12% 1960, ofan í 9% eða eitthvað svoleiðis, en það hefur ekkert verið lækkað í fiskveiðasjóði, og það eru sömu dráttarvextir núna af föstum lánum í fiskveiðasjóði og eru á vanskilavíxlum. Í ofanálag á það erum við látnir borga árlega til fiskveiðsjóðs sem nemur 2%, gróft reiknað, sem framlag til fiskveiðasjóðs, sem ríkissjóður á, svo að það mætti segja, að vextir fiskveiðasjóðs væru 2% hærri en þeir eru skráðir óbeint. Er þetta réttlátt? Og nú vil ég spyrja: Er það ríkisstj. eða Seðlabankinn, sem hefur annað eins vald í þessum peningamálum, og lítur ríkisstj. svo á, að það sé hæfilegt að hafa sömu dráttarvexti af 6 1/2% föstum lánum og af óreiðuvíxlum og hafa muninn á vöxtunum, dráttarvöxtum og víxlavöxtum, um það bil 2% núna á lausaskuldunum, en það munar nærri helming á fiskveiðasjóðnum? Er það ósamræmi að breyta þessu eitthvað? Og lítur ríkisstj. svo á, að dráttarvextirnir hjá þessum mönnum, sem erfiðast eiga og afla gjaldeyris þjóðarinnar, eigi að vera 12%? Og ef hún lítur svo á, að þeir eigi ekki að vara 12%, eru ráðh. þá ekki menn til að stjórna þessum herrum Seðlabankans?
Alþingi hefur ekki í raun og veru verið sýnt meira vantraust en þegar var tekið af því valdið til að ákveða skráningu gjaldeyrisins og ákveða vexti í lánastofnunum þjóðarinnar, sem ríkið á, og farið með það upp í Seðlabanka. Þinginu hefur aldrei á þessum árum, sam ég hef verið a.m.k., verið sýnt meira vantraust. Ég skal játa, að stjórnarandstaðan var stundum, — það er nú raunar annar andi nú í þinginu, — þreytandi í umr. og talaði of lengi, e.t.v. stundum að tilefnislausu. En þá var miklu nær að breyta eitthvað þingsköpunum heldur en taka þetta aðalvald algerlega af þinginu, fá það í hendur hagfræðingum og lögfræðingum, sem varla þekkja þorsk frá ýsu og aldrei hafa komið lambi á spena, hafa ekkert vit á atvinnumálum þjóðarinnar. Og þarna sjáum við, hve mikið vit þeir hafa á þessu, þegar þeir segja, að það megi alls ekki lækka dráttarvexti í fiskveiðasjóði, vegna þess að þeir þurfi að vera jafnháir og af óreiðuvíxlum hjá bröskurum, sem ekkert gagn gera með peningum, sem þeir fá. Annars nægði þeim ekki þetta, þessum herrum, heldur ætla þeir að leggja undir sig fiskveiðasjóðinn í algerri óþökk þeirra, sem stjórna fiskveiðasjóðnum, og Útvegsbankans. Ofan á þetta bætist það, að við Landsbankann og Seðlabankann er bezt að skipta ekki neitt, og ég hef aldrei orðið öðru fegnari heldur en að þurfa ekkert til þeirra að sækja. Í viðbót við þetta allt saman er hlaðið á útveginn stimpilgjöldum og alls konar óþarfa snúningum og fyrirhöfn, sem skapar mikinn kostnað á hvert einasta smálán, allt veðsett.
En hvernig starfa svo þessir herrar við Seðlabankann, líta eftir gjaldeyrinum? Væri þeim ekki nær að hugsa betur um það? Á hverju getur það byggzt t.d., að það er flutt inn fyrir tugi millj., sem kölluð eru dönsk húsgögn og ótal vörur, sagt, að það sé skráð á miklu lægra verði en það raunverulega er? Hvaðan fá þeir þennan gjaldeyri, hvernig er gjaldeyriseftirlitið? Væri þessum herrum ekki nær að hugsa um þetta? Á hverju byggist það, að þessi Jörgensen, sem er mikið talað um núna, sem var nú úti í Japan, þegar þeir þurftu að tala við hann um gjaldeyrismálin — á hverju byggist það, að þar eru tugir millj. sennilega bara algerlega í óreiðu, gjaldeyrinum ekki skilað á réttum tíma? Á hverju byggist svona eftirlit? Væri þessum herrum ekki nær að hugsa um það, sem þeir eiga að gera, heldur en grípa inn í það, sem þeim kemur akkert við og þjóðin er búin í raun og veru að fela okkur?
Magnús Noregskonungur sendi Loðin hér upp á Ísland. Loðinn sagði, að bændur ættu umyrðalaust að samþykkja það, sem hann kæmi með frá kónginum, en svo mættu þeir auðmjúklegast biðja um breytingar. En það er nú orðið þannig hér í þessu hv. Alþ., að það má, ekki einu sinni koma með þáltill. með ósk um breytingar, því að í fyrra kom ég með þáltill. út af þessum dráttarvöxtum. Þeim var ekki leyft að koma með hana aftur, n. var ekki leyft að skila henni. Það er nefnilega raunverulega orðið verra en hjá Manga kóngi og Loðni hjá okkur Íslendingum.