22.02.1967
Sameinað þing: 24. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 558 í D-deild Alþingistíðinda. (2711)
211. mál, rekstrarvandamál báta
Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Ég verð nú því miður að segja það um ræður hv. stjórnarandstæðinga, að ég tel, að þær geri sjómönnum og útgerðarmönnum, sem eiga í vissum erfiðleikum um þessar mundir, lítinn greiða og leysi lítið þann vanda, sem þar er við að etja. Og það væri hörmulegur endir, ef barlómur og úrtölur þeirra, sem svo grátt hafa leikið íslenzkan landbúnað, ættu nú að halda innreið sína í íslenzkan sjávar útveg líka, því að það mun mál allra þeirra, sem þar þekkja til, að sá sultardropasöngur, sem i kringum þann atvinnuveg hefur ríkt, hafi verið erfiðasta vandamál, sem hann hafi átt við að etja á undanförnum árum. Svo koma hingað menn eins og hv. 1. þm. Austf., sem telja sig hvítþvegna af því að hafa aldrei átt í erfiðleikum í sambandi við atvinnuvegina hér áður fyrr, rétt eins og þeir muni ekki þær stöðvanir, sem þeir sjálfir voru meiri og minni ástæða til, að urðu fyrir þeirra vanstjórn á málum ríkisins þá, og nánast í klökkum tón tala um það nú, að ekki hafi komið þó enn til stöðvunar á íslenzka vélbátaflotanum. Það er nánast, að það sé harmað, að svo er ekki.
Annar hv. flokksbróðir þessa hv. þm., hv. 6. þm. Sunnl., talar hér um, að það sé verið að semja við einhverja aðra menn, nánast óskylda menn, um mál sjávarútvegsins, þ.e.a.s. frystihúsin, rétt eins og þetta séu óskyldir hlutir. Ætli stór hluti af erfiðleikum vélbátaflotans stafi ekki m.a. af erfiðleikum hraðfrystihúsanna í dag? Hvað var það svo, sem gerðist, meðan vélbátaútgerðarnefndin sat að störfum? Það verður stærsta fiskverðshækkun, sem átt hefur sér stað í sögu íslenzku þjóðarinnar, á meðan hún situr að störfum og bíður eftir því, að sú fiskverðsákvörðun sé tekin, um áramótin 1965—66, þegar 17% hækkun varð á fiskverðinu. Þetta eru hlutir, sem mönnum er rétt að hafa í huga, og upplýsa ósköp vel, hver vandi þessara mála er í dag. Það var talið eðlilegt þá, að 17% fiskverðshækkun yrði, með hliðsjón af þeim hækkunum, sem átt höfðu sér stað á íslenzkum sjávarafurðum á erlendum mörkuðum. Vandinn er svo í dag, að þrátt fyrir það að sannað er, að vélbátaflotinn þarf á hækkun að halda, verður stórfelld lækkun á meginhluta allra útfluttra sjávarafurða. Og þegar vélbátaútgerðarnefndin er að gera sínar tillögur um 10% hækkun, á hún við þann rekstrarkostnað, sem hefði þá orðið að öllu óbreyttu eða mundi verða, ef áfram hefðu haldið þær hækkanir, sem þá litu út fyrir að verða. Þetta er rétt, að menn hafi í huga.
Ég sé svo ekki ástæðu til að eltast við einstök atriði í málflutningi hv. stjórnarandstæðinga. Þau atriði, þegar á heildina er litið, miða ekki til jákvæðrar lausnar á þeim vanda, sem við er að etja, og enn þá hefur ekkert í umr. komið fram annað en vítur hv. 1. þm. Austf. á málsmeðferð á því, að ekki skuli sundur skilið milli erfiðleika vélbátaflotans og hraðfrystihúsanna, rétt eins og það séu óskyld mál. Ég spyr nú bara með hliðsjón af fenginni reynslu um forsjá þessara manna í þessum málum: Mundi mikill vandi íslenzkrar vélbátaútgerðar hafa leystst, þó að við hefðum setið hér meginhluta janúarmánaðar? Miðað við þá tillögugerð, sem komið hefur fram í umr. fram að þessu um þessa fsp. hér á þingi í dag, verður það ekki afráðið, því miður. Enda mun það nær sanni, að um vandann sé rætt til þess eins að geta komið höggi á pólitíska andstæðinga, til þess að geta. e.t.v. fiskað í gruggugu vatni á pólitískum atkvæðaveiðum, en ekki til að finna lausn á vandamálunum, því að ég trúi því, að svo miklir drengir séu þessir menn, að þeir mundu hafa komið með einhvern snefil af því, ef þeir ættu eitthvað í fórum sínum.