01.03.1967
Sameinað þing: 27. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 561 í D-deild Alþingistíðinda. (2718)
106. mál, öryggisbúnaður álverksmiðju í Straumsvík
Fyrirspyrjandi (Alfreð Gíslason):
Herra forseti. Eitrunarhættan í sambandi við rekstur alúmínverksmiðja er vandamál, sem hvarvetna er leitazt við að leysa eftir föngum. Ýmiss konar eiturefni, einkum flúor, myndast í þessum verksmiðjum og berast meira eða minna út í umhverfið, þar sem þau síðan skemma gróður og sýkja dýr og jafnvel menn. Á þetta benti ég í umr. um fyrirhugaða verksmiðju í Straumsvík á síðasta þingi. Ég vakti einnig athygli á því, að öryggisútbúnaður ætti alls enginn að vera í þessari verksmiðju, að eiturloftið ætti óheft að fá að berast um nágrennið og það skyldi ráðast af landsháttum og veðurfari, hvort tjón hlytist af eða ekki. Þetta taldi ég vítavert gáleysi, enda gagnstætt því, sem tíðkast erlendis hin síðari ár. Ég varaði við því áformi, sem þegar var tekið, að nota opin bræðsluker í stað lokaðra og byggja verksmiðjuna án reykeyðingartækja. Loks lét ég í ljós undrun mína á að sérfræðingar íslenzku heilbrigðisþjónustunnar skyldu ekki til kvaddir í þessu máli, en við þá var aldrei ráðgazt, meðan á samningum stóð. Sú tegund bræðslukera, sem fyrirhugað var að nota, sleppir um 70% flúoreitursins út í umhverfið. Nýrri gerðir kera hleypa aðeins 40% flúorsins út og þær allra nýjustu ekki nema 28%. Hér er því mikið á mununum, enda síðarnefndu kerin nær eingöngu notuð í verksmiðjum, sem reistar hafa verið á síðari tímum. Það þykir alls staðar sjálfsagt nú, að hafa reykeyðingartæki, hver svo sem tegund keranna er, og mörg fyrirtæki leggja sig mjög fram um að fullkomna þessi tæki sem mest. En þessi útbúnaður er dýr, og sennilega er það þess vegna, sem teflt skal á tæpasta vaðið í Straumsvík. Þar mun ætlunin að bíða átekta, sannreyna tjónið, áður en hafizt er handa. Það tel ég illa ráðstöfun og raunar þarflausa, því að við höfum næga erlenda reynslu að styðjast við.
Í þessu efni tel ég aldrei of varlega farið. Ég minni á Húsnesmálið, sem blöðin sögðu frá á s.l. hausti. Á þeim stað í Noregi, Húsnesi, hafði einmitt auðhringurinn Swiss Aluminium reist alúmínverksmiðju og lýst því yfir, að frá henni stafaði engin hætta. Þar eru hreinsunartæki, em samt eitraðist umhverfið og varð af mikið tjón á gróðri í allt að 10 km fjarlægð frá verksmiðjunni. Þetta virtist koma öllum á óvart þar.
Ég skal svo ekki hafa uni þetta fleiri orð nú. Hæstv. iðnmrh. tók gagnrýni minni á sínum tíma svo sem vera bar. Hann lofaði nánari athugun á efni ræðu minnar, og nú inni ég með fsp. á þskj. 202 eftir árangri.