15.03.1967
Sameinað þing: 29. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 585 í D-deild Alþingistíðinda. (2752)
118. mál, binding sparifjár innlánsstofnana á Norðurlandi
Fyrirspyrjandi (Björn Jónsson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér ásamt hv. 5. landsk. þm. að flytja svofellda fsp. til hæstv. viðskmrh. um sparifjárbindingu innlánsstofnana á Norðurlandi:
„Hve mikilli upphæð nema bundnar innstæður innlánsstofnana á Norðurlandi í Seðlabankanum, og hver er skipting þeirrar upphæðar á milli einstakra sýslna og kaupstaða í fjórðungnum?“
Þessi spurning þarfnast naumast mikilla skýringa, svo einföld sem hún er. E.t.v. kann það þó að þykja einkennilegt, að spurt er að eins um innlánsbindingu peningastofnana í Norðlendingafjórðungi og skiptingu þeirrar bindingar eftir sýslum og kaupstöðum. Þar er því til að svara, að við fyrirspyrjendur teljum, að Norðlendingafjórðungur hafi nú og hafi haft um nokkurt skeið algera sérstöðu að því er snertir atvinnu og atvinnuþróun í samanburði við aðra landshluta. Hvort tveggja hefur skeð þar, að síldveiðar og þá um leið síldariðnaður hefur brugðizt að verulegu leyti í tvo áratugi eða meira og sum árin svo að til neyðar hefur horft, þegar 40 söltunarstöðvar og 9—10 stórvirkar síldarverksmiðjur hafa verið að miklu eða öllu leyti verkefnalausar, og í annan stað hefur svo fiskgengd á grunnslóðum brugðizt ár frá ári og afkoma smáútgerðarinnar, sem sjávarþorpin byggja á þar af Seiðandi verið mjög erfið og sömuleiðis fiskvinnslustöðvanna, sem á þessari útgerð byggja. Engin endurnýjun hefur því átt sér stað nú um nokkuð mörg ár í skipakosti smáútgerðarinnar og sáralitil í fiskvinnslustöðvunum. Árstíðabundið atvinnuleysi hefur verið og er viðvarandi í þorra sjávarþorpanna, og nemur tala atvinnulauss fólks t.d. nú á þessum vetri hundruðum manna. Ástæður fyrir þessu eru m.a. þær, að það hefur verið almennur fjármagnsskortur atvinnurekenda og lánastofnana, sem hefur hindrað slíkan vöxt eða uppbyggingu nýrra fyrirtækja, að þar skapaðist mótvægi, sem jafnaði metin og tryggði sambærilega afkomu og vaxtarmöguleika atvinnuveganna við ýmsa aðra landshluta. Um spennu eða umframeftirspurn á vinnumarkaði hefur ekki verið að ræða, sem að líkum lætur, og ástandið að því leyti allt annað en t.d. á þéttbýlissvæðunum við Faxaflóa og við Austurland síðustu árin.
Þegar á þessa sérstöðu, sem mér er óhætt að segja, að sé í raun og veru viðurkennd, — þessa sérstöðu Norðurlands er litið og atvinnulega kyrrstöðu, fjármagnsskort og einnig til viðbótar þá almennu tilhneigingu, sem fjármagnið hefur til að flytjast til þéttbýlissvæðanna á Suðvesturlandi eftir ýmsum leiðum, fer varla hjá því, að sú hugsun vakni, hvort réttmætt sé og nauðsynlegt að binda verulegan hluta af sparifé íbúanna í þeim landshlutum, þar sem fjármagn er svo takmarkað, að það veldur engan veginn því verkefni að halda uppi fullri atvinnu og eðlilegri atvinnuuppbyggingu, hvað svo sem líður þeim almennu röksemdum, sem hafðar eru uppi um nauðsyn þess að binda einhvern hluta sparifjár í því almenna spennuástandi, sem ríkt hefur víða í landinu. En þeim deilum, sem uppi eru um þau efni, vil ég ekki blanda í umr. um þessa fsp. Að svo komnu er sá einn tilgangur okkar fyrirspyrjenda að fá fram fullar upplýsingar um það, hve mikið af sparifé Norðlendinga sé nú á bundnum reikningum í Seðlabankanum. Að þeim upplýsingum fengnum og við frekari skilyrði en gefast í spurningatíma gæfist svo e.t.v. síðar tækifæri til að ræða það mál ýtarlegar, hver nauðsyn ber til þessarar bindingar og hve hún er hagstæð byggðajafnvæginu í landinu.