16.12.1966
Neðri deild: 32. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 376 í B-deild Alþingistíðinda. (283)
58. mál, verðjöfnun á olíu og bensíni
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Frv. þetta miðar að því að létta nokkrum útgjöldum af togaraútgerðinni, og fyrirhugað er sem sagt að undanþiggja togaraútgerðina frá því að greiða verðjöfnunargjald af olíum í þann verðjöfnunarsjóð, sem framkvæmir jöfnunarverð á olíu um allt land. Eins og hér hefur komið fram hjá frsm. meiri hl. fjhn., voru allir nm. sammála um það út af fyrir sig, að eftir atvikum væri rétt að veita togaraútgerðinni þessa hjálp, sem felst í þessu frv. En menn voru ekki á einu máli um það, hvernig ætti að koma þessari aðstoð við. Eins og frv. er, er aðeins gert ráð fyrir því, að togaraútgerðin verði undanþegin því að greiða gjald í verðjöfnunarsjóð, en eftir sem áður er það tryggt samkv. l., að það verður sama útsöluverð á olíum hvar sem er á landinu til togara, þ.e.a.s. olía, sem seld er til togara norður á Akureyri, á Siglufirði eða á Austurlandshöfnum, sem í mörgum tilfellum hafa verið afgreiðsluhafnir, olía til togara, sem afgreidd er á þessum stöðum, verður þar seld á sama verði og annars staðar. En ef heimild frv. yrði notuð og ekki yrði greitt neitt verðjöfnunargjald af innfluttri togaraolíu, er sýnilegt, að einhver verður að taka að sér þann kostnað, sem eftir stendur við að flytja olíuna út á land, þá olíu, sem togarar taka þar. Og það er í rauninni sú upphæð, sem hér er um að ræða að veita sem stuðning til togaraútgerðarinnar. Sérstök n., sem hefur íhugað þetta mál, hefur talið, að hér gæti verið um að ræða stuðning til hvers togara, sem næmi í kringum 200 þús. kr. á ári. En það mundi þá þýða fyrir togaraflotann í heild um 4–5 millj. kr. Ég hygg nú, að þetta sé of í lagt og hér sé ekki um svona mikinn stuðning að ræða, því að togararnir taka í rauninni ekki svona mikla olíu hér innanlands eins og þarna er reiknað með, og hér sé varla um miklu hærri upphæð að ræða heldur en 2–3 millj. kr. En hvernig yrði þá þessu fyrir komið, ef frv. yrði samþ. óbreytt, hver mundi greiða þennan flutningskostnað á olíunni norður til Akureyrar, Siglufjarðar og annarra afgreiðsluhafna úti á landi á þeirri olíu, sem þangað yrði flutt og togararnir tækju? Eftir stæði það, að verðjöfnunarsjóður yrði að standa undir þessum kostnaði. Það þýðir, að hann hefur ekki aðra möguleika, verðjöfnunarsjóður, en þá að leggja þetta sem aukagjald á alla aðra olíu, sem flutt er til landsins, þ.e.a.s. þessi stuðningur, sem þarna yrði veittur togaraútgerðinni á þennan hátt, yrði að koma sem aukaálag á olíunotkun allra annarra í landinu. Það liggur sem sagt fyrir, að það eru margir aðrir aðilar, sem nota sams konar olíur og togararnir nota, ýmist gasolíu eða fuelolíu, og þeir aðilar yrðu þá að standa undir þessu sérstaka gjaldi, vegna þess að það er gengið út frá því, sem við teljum allir að sé alveg sjálfsagt, að áfram verði tryggt, að það verði sama verð á olíu til togara hvar sem er á landinu, eins og verið hefur.
Af þessum ástæðum er það, að við þrír fjhn.- menn, þ.e.a.s. fulltrúar Framsfl. í fjhn, og ég, teljum, að það ætti að breyta þessu frv. og samþykkja brtt. þá, sem við flytjum á þskj. 176. En þar leggjum við til, að bætt verði við 1. mgr. frv. því, sem hér segir:
„Verði heimildin notuð, skal verðjöfnunarsjóður ekki bera neinn kostnað af að flytja olíu, er togarar kaupa, milli útsölustaða.“
Þetta mundi í reynd þýða það, að ríkissjóður eða einhver annar aðili verður að taka að sér að greiða þennan stuðning, sem þarf að veita togaraútgerðinni, en sú leið verði ekki farin að hækka olíu til húsakyndingar eða aðra olíunotkun hjá öðrum kaupendum í landinu. Við erum á móti því, að sú leið sé farin, þegar þarf að grípa til þess að styðja eina atvinnugrein, eins og í þessu tilfelli togarana, að þá sé fundin út slík skattlagning eins og raunverulega felst í þessu frv., þó að hún sé ekki ýkjastór.
Um það hefur verið spurt í þessu sambandi, hvernig menn hugsi sér í rauninni að framkvæma þetta, eftir að verðstöðvunarfrv. hefur verið samþ. Ég hygg, að það geti einnig rekizt þar nokkuð á, vegna þess að innan tíðar hlýtur að koma að því, að verðjöfnunarsjóður, sem alltaf er gerður upp á sléttu, verður að fá með einhverjum hætti þessar tekjur, sem eiga að standa undir því að flytja olíur fyrir togara frá innflutningshöfn og út á land. Það er e.t.v. hægt að fela slíka hækkun um stuttan tíma, en að því kemur, að hún verður að koma fram. Finnist aðrar leiðir til þess að standa undir þessum sérstaka kostnaði heldur en ríkið greiði hann, stendur það opið samkv. okkar till., en við teljum, að það sé rangt að fara inn á þá braut að ætla verðjöfnunarsjóði, sem á að hafa það hlutverk eitt að tryggja það, að hægt sé að selja þær olíur, sem eru til sölu, á sama verði um allt land, að bera slíkt aukaálag sem hér er um að ræða.
Í þessu sambandi er sagt, að togararnir hafi með því kerfi, sem verið hefur, verið skattlagðir jafnvel til stuðnings síldarverksmiðjum eða öðrum aðilum úti á landi. Um þetta höfum við ekki getað fengið nákvæmar upplýsingar, en einn af forstjórum olíufélaganna, sem er mjög kunnugur þessum málum, sagði hiklaust, að það yrði að teljast mjög vafasamt, að togararnir hefðu að undanförnu greitt meira í sjóðinn en úr sjóðnum hefði verið greitt fyrir þá. Af þeirri olíutegund, sem togararnir nota mest, þ.e.a.s. af fuelolíu, er greitt í sjóðinn 130 kr. af hverju innfluttu tonni, en þegar þarf t.d. að flytja þessa olíu norður til Akureyrar eða norður á Siglufjörð eða til Austfjarðahafna, þarf að greiða hartnær 300 kr. á tonn með vörugjöldum, sem eru á þessari vöru á þessum höfnum, hátt í 300 kr. á tonn úr sjóðnum, til þess að hægt sé að tryggja sama útsöluverð á þessari olíutegund alls staðar á landinu. Og meira að segja hér í næsta nágrenni er það svo, að á sama tíma sem tekið er af hverju fuelolíutonni, sem flutt er til landsins, sem tekjur í þennan verðjöfnunarsjóð 130 kr., er greitt úr sjóðnum 70 kr. á hvert tonn af olíu, sem notuð er t.d. í Hafnarfirði, á Hafnarfjarðartogurunum, vegna þess að Hafnarfjörður er ekki innflutningshöfn, og þetta er talið vera aukakostnaður, sem þeir hafa af því að ná í olíuna hingað eða koma olíunni til sín. Hér er því ekki um það að ræða, að hægt sé að gera neitt úr því, að það hafi verið hallað sérstaklega á togaraútgerðina í heild. Það mun vera sérlega lítið, því að eins og ég segi, það er ekki aðeins, að um það sé að ræða, að nokkrir togarar séu enn starfandi úti á landi, sem nota þar talsvert mikla olíu, heldur er það einnig svo, að Reykjavíkurtogarar og aðrir togarar verða að taka olíu í ýmsum öðrum afgreiðsluhöfnum í landinu, eftir því sem útgerð þeirra er háttað. Þannig hefur þetta t.d. verið á Austfjarðahöfnum nú hvað eftir annað að undanförnu. Ýmist hafa togararnir þá stundað veiðar fyrir Austurlandi eða verið að kaupa þar síld til útflutnings og annað þess háttar og tekið þá auðvitað olíur í þeim höfnum eitthvað, og þar er þeim sem sagt tryggð olían á sama útsöluverði og á innflutningshöfn eftir því meginskipulagi, sem gildir um verðjöfnun á olíu.
Ég skal taka það fram, að ég tel, að hér sé í rauninni ekki um neitt stórt fjárhagsatriði að ræða að þessu sinni. En það er um talsvert stórt „prinsip“-atriði að ræða, hvort á að fara út á þá braut, þegar hallast hjá einum aðila, sem t.d. á aðild að þessum verðjöfnunarsjóði, hvort sem það eru nú togarar eða það er tiltekin grein bátaútvegsins eða einhverjir aðrir aðilar, og það þarf að veita þeim stuðning, hvort á að fara inn á þá braut að undanþiggja þá aðila greiðsluskyldu til sjóðsins og velta síðan þeim þunga, sem af því leiðir, yfir á aðra notendur olíu í landinu. Við þrír, sem stöndum að brtt. á þskj. 176, erum á móti því, að það sé farið inn á þessa braut, en tökum hins vegar undir það, að það sé rétt að veita togurunum þann stuðning, sem ætlað er að veita samkv. þessu frv., en teljum, að það eigi að gerast eftir öðrum leiðum en þeim að láta verðjöfnunarsjóðinn standa undir þessu.
Í þessu sambandi vil ég minna á, að það hefur verið farið inn á nokkuð svipaða braut í öðrum tilfellum, þegar rétt hefur þótt að styðja togaraútgerðina. Ég hef fyrir mitt leyti fundið að því, tel, að það hafi verið ranglega að farið. Nú er t.d. búið að koma því þannig fyrir, að togararnir í landinu fá árlega miklu hærri fjárhæð greidda úr aflatryggingasjóði, sem lengst af var bara aflatryggingasjóður bátaflotans, — miklu hærri upphæð greidda úr aflatryggingasjóði á hverju ári heldur en þeir greiða í sjóðinn. Og þetta gerist með þeim hætti, að bátaútvegurinn verður á sama hátt að borga meira í sjóðinn en hann fær úr sjóðnum. Þetta liggur alveg tölulega fyrir og er í rauninni ekki hægt að þrátta um. Sama sagan hefur endurtekið sig í hinu almenna vátryggingakerfi, sem látið er gilda fyrir fiskiskipaflotann. Þar liggur það líka skýrt fyrir, að togararnir fá úr því kerfi greidda miklu hærri fjárhæð á hverju ári en þeir greiða til kerfisins. Og þetta verður á kostnað annarra. Svona aðstoð við atvinnugrein, sem þarf á aðstoð að halda, er að mínu viti röng, og það á ekki að halda lengra áfram á þessari braut.
Ég vænti, að það sé í rauninni enginn ágreiningur um, að það þurfi að greiða fyrir togaraútgerðinni í landinu meira en gert er, eins og þar háttar nú til, og það sé út af fyrir sig sjálfsagt að reyna að gera henni þessi olíukaup nokkuð hagstæðari en þau hafa verið, en það eigi aðeins að finna aðra leið til þess heldur en hér er lögð til. Því má svo einnig bæta við, að það væri kannske ekki minni ástæða til þess að gera ráðstafanir í þá átt að færa niður verðið á fuelolíunni eða aðalolíutegundinni, sem togararnir nota, eftir öðrum leiðum en í sambandi við verðjöfnunargjaldið, vegna þess að samanburður á verði á þessari olíutegund hér á landi og í nágrannalöndunum er þannig, að olíuverðið er hér miklum mun hærra en t.d. í Þýzkalandi og í Bretlandi, svo að þar nemur miklum mun meiri fjárhæð en sem nemur því gjaldi, sem er verið að tala um að fella niður nú, 130 kr. á tonn. Það er því enginn vafi á því, að útsöluverðið á fuelolíu til togara og annarra er allt of hátt hér á landi nú, og það væri full ástæða til þess að vinna að því, að það væri lækkað.
Ég skal svo ekki orðlengja þetta frekar. Ég þykist hafa gert grein fyrir skoðunum okkar, sem stöndum að till. á þskj. 176, en þannig viljum við afgreiða frv., að sú till. verði samþ.