29.11.1966
Neðri deild: 21. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 425 í B-deild Alþingistíðinda. (303)

74. mál, verðstöðvun

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Mér virðist hæstv. forsrh. draga nokkuð mikið í land viðvíkjandi þeim vonum, sem fólk hefur gert sér um innihald þessa frv. Ég held, að margir hafi hugsað sem svo, þegar ríkisstj. kom fram með þetta frv., sérstaklega þegar þeir sáu þess stóru fyrirsagnir í stjórnarblöðunum, að hér mundi nú fyrst og fremst vera meiningin að reyna að forða almenningi frá dýrtíðinni, hún yrði ekki látin halda áfram af sama krafti og hingað til, það væri það, sem væri höfuðatriðið.

Nú hins vegar segir hæstv. forsrh., að það sé gerður þarna fyrirvari í grg., sem sé í sambandi við kaupgjaldssamninga, og þær forsendur, sem þar sé gengið út frá, séu, að ríkisstj. geti samið eða látið atvinnurekendur semja við verkalýðsfélögin eins og henni þóknist, annars verði þetta ekki framkvæmt, m.ö.o. eigi þetta ekki að vera neitt annað en tæki í höndum ríkisstj. til þess að reyna að halda niðri kaupi verkamanna, svo að þeir geti ekki unnið upp á móti dýrtíðinni eins og hún er og eins og er búið að leiða hana yfir þá. Þá fer að verða nokkuð lítið eftir af dýrð þessarar verðstöðvunar, sem almenningur er að gera sér vonir um, að Alþ. ætli að samþykkja núna lög til að stöðva verðlagið í landinu án tillits til, hvernig allt annað gengur. Það ætti þó að vera skiljanlegt, að allt atvinnulíf í landinu er rekið til þess, að fólkið geti haft betri lífskjör. Og svo framarlega sem það er ekki tilgangurinn með öllum atvinnurekstrinum, hver á hann þá að vera? Svo framarlega sem hægt er að hækka kaup, er það sjálfsagt. Til þess er þó þjóðin að berjast og vinna, að hún geti haft það eitthvað betra á eftir. En það á ríkisstj. að reyna að sjá um, að dýrtíðin blossi ekki áfram eins og hún hefur gert, og reyna að koma í veg fyrir það. Þess vegna þótti mér það allmikið, sem hæstv. forsrh. tók til baka með þessum fyrirvara sínum nú.

Þá minntist hæstv. forsrh. á, að hann hefði trú á því, — og það er mjög leiðinlegt, að hann skuli ekki vera farinn að sjá neitt af staðreyndunum í kringum sig enn þá, — hann hefði trú á raunverulegri samkeppni, hann hefði trú á frjálsræðinu. Já, það væri gaman að leiða hann t.d. hérna til olíufélaganna, láta hann athuga hjá olíufélögunum, hvernig þau koma sér saman um verðlagið í landinu, láta hann koma hérna til okkar aftur og segja, hvort það sé einokun hvað verðið snertir eða hvort það sé frjálsræði. Það væri gaman líka að senda hann t.d. til þess að kaupa inn barnaföt. E.t.v. hefur hann nú lesið þá sögu í einu stjórnarblaðinu, en hann mætti líka fara að athuga, hvernig það sé sem stendur t.d. að kaupa barnaföt, og fá upplýsingarnar um það, að svo framarlega sem kaupmennirnir leggi ekki svona og svona mikið á, fái þeir ekki þessi barnaföt frá viðkomandi heildsala, það sé gert að skilyrði, að þáð sé lagt á mun meira en skikkanlegir kaupmenn álíta vera alveg nóg, og þeim kaupmönnum, sem selja ódýrar í þessum efnum, verði refsað með því í öllu frelsinu og frjálsræðinu og frjálsu samkeppninni, að þeir fái ekki viðkomandi barnaföt lengur frá viðkomandi heildsala. Ég held, að þetta hafi verið í Alþýðublaðinu. Við kunnum ekki við það, að það sé verið að tala um frjálsræði og frjálsa samkeppni hér í Reykjavík í sambandi við þessa hluti, þegar við vitum, að það ganga listar út frá heildsölunum í Reykjavík til þeirra kaupmanna, sem eiga að selja, um, á hvaða verði þeir eigi að selja. Það eru leynileg samtök um meginið af öllu verðlaginu í landinu. Það er ekki til frjáls samkeppni í þessum efnum. Ríkisstj. hefur haft í 7 ár tækifæri til þess að grípa inn í, þar sem einokunin er, en hún hefur aldrei gert það. Og svo kemur hæstv. forsrh. og segir við okkur: Við höfum trú á raunverulegri samkeppni, við álítum, að frjálsræðið tryggi þetta allt saman.

Svo segir hæstv. forsrh., að það séu einhverjar sérstakar ástæður fyrir hendi núna, allt öðruvísi en þær, sem verið hafa undanfarin 7 ár. Hann talar um, hvað vel rekinn atvinnurekstur geti staðizt, ef verðlagið fellur um þriðjung, held ég, að hann hafi sagt. Hvað var hæstv. viðskmrh. að upplýsa okkur um hérna áðan? Hann var að upplýsa okkur um, að ég held, að þegar í heild er tekið væri verð á allri síld og skelfiski, þorskfiski og öllu mögulegu, sem hann taldi upp, 2% lægra en í fyrra, þegar heildarmeðaltalið er tekið í ár. Ég held, að hæstv. forsrh. og hæstv. viðskmrh. verði að samræma tölurnar dálítið betur, áður en þeir mála þetta svona hrottalega út fyrir okkur. Það er ekki um það að ræða, að það sé verðlagið og verðlagsbreytingin, sem er að drepa okkur núna. Þessi litla verðlagsbreyting kemur sér, þótt hún sé lítil, illa vegna þess, að það er búið í 5–6 ár að vera í sífellu að síga á ógæfuhliðina, þannig að núna er skútan að fara á hliðina, og það er það, sem menn þurfa að gera sér ljóst. Það þarf venjulega ekki nema lítið til, þegar alltaf er verið að sökkva dýpra og dýpra, þangað til skipið fer að fara í kaf. Og það er það, sem við verðum að athuga núna og fá þessa hæstv. ríkisstj. til að reyna að skilja, hvað það er, sem hefur verið að ganga fyrir sig allan þennan tíma og hvernig hennar stefna er að bíða skipbrot. Þessi stefna að treysta á frjálsræðið, sem þýðir að fela einokunarkaupmönnum að ráða verðlaginu í landinu og hækka í sífellu verðlagið, það er það, sem þarna er um að ræða: Sú verðlagsbreyting, sem nú hefur orðið á sjávarútveginum, — ég bara beini spurningunni t.d. til hæstv. viðskmrh. og sjútvmrh., — mundi ekki t.d. sjávarútvegurinn hafa borið alveg auðveldlega þessa hækkun með verðlagi við skulum segja 1962, með innanlandsverðlagi 1962? Við skulum athuga, hvað er það, sem hefur breytzt, og hvað það er, sem gerir sjávarútveginum erfitt að þola meira að segja þessa lækkun, sem núna hefur verið. Það er vegna þess, að það er búið að vera að níðast á honum í undanfarin 5–6 ár. Við skulum athuga þá hluti.

Ég hef áður komið inn á það hérna og ég geri það enn einu sinni, að stefna ríkisstj. í þessum efnum hefur verið verðhækkunarstefna verzlunarauðvaldsins í landinu. Og það, sem verzlunarauðvaldið er að reka sig á í dag, er, að það er búið að rýja sjávarútveginn og verkalýðinn það lengi, að sjávarútvegurinn er að drepast undir þessu. Verzlunarauðvaldið hefur fengið í 5–6 ár að hækka í sífellu allt verðlag innanlands. Sjávarútvegurinn getur ekki hækkað sitt nema að svo miklu leyti sem erlendum kaupendum þóknast að gera það. Ef sjávarútvegurinn hefði búið t.d. við verðlag eins og 1962–63, hefði hann staðið auðveldlega undir þessu öllu saman. Það er verðlagsþróunin innanlands, verðlagsþróun, sem verzlunarauðvaldið í landinu ræður og er framkvæmd á kostnað sjávarútvegsins og verkalýðsins, — það er sú stefna, sem þarna er að bíða skipbrot, að láta þessa verðhækkun verzlunarauðvaldsins halda svona áfram. Verkalýðurinn hrindir þessu af sér. Hann hefur það góð samtök, að hann hrindir af sér þeim verðlagshækkunum, sem orðið hafa, og hann heldur sínu kaupi nokkurn veginn í því sama, sem var, ekki er það mikið meira. Sjávarútvegurinn getur ekki hrundið því af sér. Og það hefur verið siður verzlunarauðvaldsins á Íslandi alla tíð að rýja sjávarútveginn, þangað til að því kom, að sjávarútvegurinn er að drepast. Þá er það, eins og einn góður maður sagði á þingflokksfundi hjá okkur í gær, þá er það eins og þegar valurinn kemur að hjarta rjúpunnar. Verzlunarauðvaldið á Íslandi finnur, að þegar það er að drepa sjávarútveginn, er það að drepa þann aðila, sem gefur því allan gróðann. Þess vegna stanzar verzlunarauðvaldið við, þegar það er að drepa sjávarútveginn, því að án hans fær það engan gjaldeyri til þess að braska með. Og hvað er þá gert? Jú, þá er farið út í gangislækkun. Nú eru hins vegar kosningar, og það á aldrei að framkvæma gengislækkun rétt fyrir kosningar. Það á að gera það árið eftir kosningar, sbr. 1960 og 1961. og þess vegna dugir ekki að framkvæma gengislækkun núna, til þess að sjávarútvegurinn geti lifað áfram. Þess vegna segir verzlunarauðvaldið. Þið verðið að fresta í eitt ár gengislækkuninni, og við skulum bara kalla það verðstöðvun á meðan, a.m.k. ef við getum notað þessa verðstöðvun til þess að halda niðri kaupi hjá verkamönnum.

Við skulum taka hlutina eins og þeir eru og ræða þá alveg hreint eins og þeir koma hér fyrir hjá okkur. Allan þennan tíma, sem ríkisstj. hefur verið að völdum, hefur hún ekki þorað að snerta við álagningunni eða réttara sagt hún hefur gefið álagninguna frjálsa, og hver er svo afleiðingin? Hæstv. viðskmrh. talaði mjög hjartnæmt hérna til okkar áðan, eins og honum er oft lagið, og skoraði á okkur að sameinast um að samþykkja þetta frv. Ég verð að segja það um afstöðu til þessa frv. og taka alveg undir það, sem formaður okkar þingflokks segir: Sannleikurinn er sá um þetta frv., að það er bæði of seint og of lítið, sem kemur fram. Þetta er ómynd, ef það ætti að verða að einhverju leyti til þess að stöðva verðlag, og það er 4 árum of seint. 4 árum of lengi

er verzlunarauðvaldið búið að fá að leika lausum hala hér á landi. Hvað sagði hæstv. viðskmrh. við okkur í Alþýðublaðinu 17. júlí 1965, eftir kaupgjaldssamningana þá? Með leyfi hæstv. forseta, skrifaði hann þessi orð, þegar þá var búið að semja:

„En verðlagseftirliti og öllum öðrum hugsanlegum ráðum verður að beita til þess að koma í veg fyrir verðhækkanir, er eyði áhrifum þeirra kauphækkana, sem um hefur verið samið. Launþegar hafa auðvitað augljósra hagsmuna að gæta í því sambandi, að verðlaginu sé haldið í skefjum. En það væri skammsýn stefna af hálfu atvinnurekenda að leggja nú meiri áherzlu á að fá umsamda kauphækkun bætta með hækkuðu verðlagi, því að afleiðingin gæti ekki orðið önnur en röskun á efnahagsjafnvægi innanlands og erfiðleikar í greiðsluviðskiptum gagnvart útlöndum. Þegar frá liði, mundu þær ráðstafanir, sem ríkisvaldið yrði neytt til þess að grípa til í því skyni að stöðva þá þróun, verða atvinnurekendum í heild þungbærari en hitt nú að gera skipulega og markvissa tilraun til þess að bæta rekstrarhagkvæmni og auka framleiðni í samvinnu við ríkisvald og launþegasamtök, til þess að kauphækkanir þurfi ekki að leiða til hækkandi verðlags.“

Þannig sagði hæstv. viðskmrh. þá. Þetta var 17. júlí 1965. 1 ágúst 1965 mun vísitalan fyrir vörur og þjónustu hafa verið 209, og hvað ætli hún sé í dag? Vísitalan fyrir vörur og þjónustu s.l. ágúst er 250. Þegar hæstv. ráðh. skrifaði þetta, var hún 209. Þá var a-liðurinn fyrir vöru, þjónustu og allt saman, þetta var fyrir matvörurnar 209 og 250, en fyrir allar vörur og þjónustu var hún 196 í ágúst 1965 og er núna 228. Í júlí–ágúst 1965 sá hæstv. viðskmrh., að það þurfti að reyna að stöðva þessa þróun, og hann vissi það ósköp vel, að verkalýðssamböndin voru búin að bjóða að stöðva þessa þróun árið áður, og það er rétt, svona er vísitalan látin hækka, svona er verzlunarauðvaldið í landinu látið halda áfram að taka til sín. Það er nokkuð seint að koma til okkar núna og segja: Við gerðum vitleysu þá. — Og ég vil leyfa mér að spyrja: Hvernig stendur á því, að það var ekki farið í þetta fyrr? Tækifærið hefur verið á hverju einasta ári að stöðva þetta verðlag? 1964, þegar Alþýðusambandið bauð ríkisstj. að vera með því að stöðva verðlagið, þá var vísitalan t.d. í maí 1964 fyrir matvörurnar 205 og fyrir allt, sem greitt er þarna undir a, allar vörur og þjónustu, 187, sú vísitala, sem nú í ágúst er komin upp í 250 og 228. Það hefði verið hægt að gera þetta fyrr. Í maí 1962 var fyrir matvörurnar 130 og fyrir allar a-listavörur og þjónustu voru það 133, eða ef ég á að fara enn þá aftar: í júlí 1961 var vísitalan 112 fyrir matvörurnar og fyrir allan a-listann fyrir vörur og þjónustu 119. Og ég vil spyrja: Hefði nú ekki verið skynsamlegra að reyna á einhverju þessu stigi að stöðva þessa þróun? Af hverju að láta einokunarvaldið í landinu fá algert frjálsræði, svo að ég noti orð hæstv. forsrh., um að hækka eins og þeir vilja. (Gripið fram í.) Þær eru líka þarna í, en hækkunin er ekki síður á hinu. (Gripið fram í.) Hún er mest, en engu að síður er hún á öllu hinu líka. Hann getur rætt um landbúnaðarvörurnar við kollega sinn í ríkisstj., sem situr þarna vinstra megin við hann. Það er búið hérna áðan af hálfu hv. 5. þm. Austf. að lesa upp hækkanirnar, sem orðið hafa utan við landbúnaðarvörurnar, það var ekki eitt einasta af því, sem hann las upp, um hækkaða álagningu og annað slíkt á landbúnaðarvörum, það var allt saman á öðrum sviðum, þar sem kaupmennirnir flytja þetta inn beint; þannig að landbúnaðarvörurnar eru ekki eina vandamálið í þessu, og landbúnaðarvörurnar mundu líka hafa hækkað miklu minna, ef allt annað verðlag hefði ekki hækkað, því að það er reiknuð með inn í kaup bóndans einmitt verðlagshækkunin á öllu hinu. Ef útlendu vörunni hefði verið haldið niðri og kaupmönnunum í Reykjavík og annars staðar og heildsölunum ekki leyfð alveg ótakmörkuð álagning á 80% af innflutningnum, hefðu ekki heldur landbúnaðarvörur hækkað þetta mikið, og þá hefði sjávarútvegurinn líka staðið betur.

En fyrst hæstv. viðskmrh. fer að minna mig á þessa hluti, er bezt, að ég minni hann á annað. Hvernig var brugðizt við 1961, þegar verkamenn höfðu þá samið um nokkra kauphækkun? Var þá reynd verðstöðvun á eftir? Reyndi ríkisstj. þá að sjá um, að nú færi þessi kauphækkun ekki út í verðlagið? Var komið fram með svona frv. til okkar þá? Nei, það var gert annað. 1. ágúst 1961 voru gefin út brbl. um gengislækkun, sem átti enga efnahagslega stoð né réttlætingu í efnahagsþróuninni þá. Verðlagið var byrjað meira að segja að hækka á ýmsum hlutum erlendis, sem við seljum út úr landinu, en það var bein hefndaraðgerð á móti verkalýðssamtökunum; enda var krónan felld svo að segja um sömu upphæð og talið var af hálfu atvinnurekenda, að kaupið hefði hækkað um, þannig að það voru gerðar beinar hefndarráðstafanir gegn verkalýðssamtökunum og gegn almenningi í landinu til þess að hækka dýrtíðina í staðinn fyrir að reyna verðstöðvun. Þetta hefur verið pólitík ríkisstj., og það er þessi pólítík, sem er að verða gjaldþrota núna, og það er eins gott fyrir hæstv. ríkisstj. að viðurkenna það og horfa sjálf framan í það. Ég veit, að hæstv. viðskmrh. kannast við þetta. Mér var einmitt að renna það í hug áðan, þegar hv. 5. þm. Austf. var að halda sinu skörulegu ræðu hér og rekja m.a. allar verðhækkanirnar, sem orðið höfðu, — ég minntist á ræðu, sem hæstv. viðskmrh. núverandi hélt, þegar hann var í stjórnarandstöðu með okkur, á árinu 1952, held ég, þegar helmingaskiptastjórnin sællar minningar sat hér að völdum og þegar byrjað var að gefa frjálsræðið í verzlun og þegar viðkomandi heildsalar og aðrir slíkir notuðu sér það í ríkum mæli, og hæstv. núverandi viðskmrh. hélt hér skörulega ræðu, sem lengi var minnzt og vel var slegið upp í Alþýðublaðinu, og sýndi fram á, hve gífurlega öll álagning hefði nú hækkað, og hafði þá eins og nú auðsjáanlega næstum reiknihella í sinni þjónustu til þess að reikna út, hvað þetta hefði numið miklu í millj. á einstökum vöruliðum, sem fluttir höfðu verið inn, og annað slíkt. Við skulum ekkert kippa okkur upp við það, í hvert skipti sem menn hafa farið að slaka þannig á og gefa frjálst verðlagið, hefur af alveg eðlilegum ástæðum kaupsýslustéttin í landinu hagnýtt sér slíkt frjálsræði til þess að reyna að græða eins og hún gat. Það er nú einu sinni eðli hennar eins og annarra slíkra yfirstétta, og það eina, sem þjóðfélagið getur gert til að hindra slíkt, er að grípa til sinna ráðstafana, sem eru verðlagstakmarkanir og verðlagsákvarðanir, og það hefur hæstv. viðskmrh. verið okkur sammála um og býst ég við Alþfl., en hann hefur aldrei treyst sér til að koma þessu í gegn. Hann hefur aldrei þorað að slá í borðið við Sjálfstfl. um að hamra þennan hlut í gegn og gengur auðsjánanlega hálferfiðlega líka núna. Ég held þess vegna, að við verðum að gera okkur ljóst, ef við ætlum að reyna að stöðvast nú, þó að of seint sé, að við verðum um leið að gera upp sakirnar við þá stefnu, sem leitt hefur okkur út í þessa ógæfu og þennan ófarnað. Við verðum að gera okkur ljóst, að það er hið of mikla pólitíska vald verzlunarauðvaldsins á Íslandi, sem hefur leitt þjóðina út í þessa vitleysu. Sjávarútvegurinn hefur getað staðið undir þessu, á meðan verðlagið var að hækka erlendis og sérstaklega þegar afköstin voru svona gífurleg, en hann stendur ekki undir því, þegar búið er að meira en tvöfalda verðlagið í landinu frá því 1961.

Ég verð að segja það, að mér finnst ríkisstj. bera sig mjög karlmannlega núna, það er ómögulegt að segja annað. En þegar hún slær um sig með niðurborgunum núna, minnir það mig á bardagaaðferð hjá einum aðila frá Sturlungaöld, sem kastaði út mörsiðranu, þegar þeir voru búnir með allan matarkostinn, og hræddur er ég um, að frá fjmrh. fengju þeir, sem eiga eftir að sitja á næsta þingi eftir kosningar, að heyra, að það væri nú búið að spandera nokkuð miklu í niðurgreiðslurnar.

Hvað hitt snertir, frv. sjálft og hugmyndina á bak við það, svo að ég taki aðra sögulega samlíkingu, það minnir mig á það, sem Lúðvík XV sagði á sínum tíma: „Syndaflóðið kemur eftir okkar dag.“ Það er alveg greinilegt, að það, sem þarna er um að ræða, er að fleyta sér fram yfir kosningar, og á fyrsta þingi eftir kosningar skal svo aftur fara öðruvísi að. Það þykir aldrei praktískt að beita neinum hörðum ráðum á síðasta þingi fyrir kosningar. Við munum strax tilhneigingarnar í nóv. 1963, svo að við þurfum ekki að spyrja að því, hvað bíður á næsta þingi eftir kosningar, ef stórbreytingar verða ekki á.

Hæstv. forsrh. minntist hér áðan, eins og hann hefur raunar gert áður, á það, að þegar hann hefði verið að treysta á það, að frjálsræðið væri svo gífurlega gott hvað verzlunina snertir, hafi hann fyrst og fremst treyst á KRON og aðra slíka. Það gleður mig náttúrlega ákaflega mikið að heyra, að forsrh. treystir alveg sérstaklega á okkar fátæka KBON hér í Reykjavík til þess að standa í ístaðinu gagnvart heildsölunum og slíkum. En ég er nú hræddur um, að ef það ætti að vera hægt að gera því mögulegt að vera eitt saman vörður lækkandi verðlags í landinu, yrði að reyna að búa dálítið betur að því af hálfu bæði ríkisstj. og sérstaklega þó bæjarins í Reykjavík en gert hefur verið. Vissulega vill samvinnuhreyfingin vinna að því að halda verðlaginu niðri, og vissulega mundi hver heilbrigð ríkisstj. og bæjarstjórn reyna að stuðla að því, að samvinnuhreyfingunni væri gert slíkt sem bezt mögulegt. Og ég skal að gefnu tilefni; bæði fyrr og nú, frá hæstv. forsrh., minnast ofurlitið á þá aðstöðu. Hann hefur talað um, að KRON mundi þá líklega hafa haft mjög mikinn gróða, fyrst verzlunin almennt í Reykjavík græddi eins mikið eða fengi eins mikið af fé til sín og ég hef viljað halda fram, KRON er ekki, frekar en samvinnufyrirtæki eiga að vera, fyrst og fremst gróðastofnun. Það er þjónustufyrirtæki við almenning. Það er fyrirtæki, sem er stofnað af verkamönnum og öðrum neytendum til þess að halda niðri verðlagi. Það ættu þó þeir menn að vita, sem hafa einhverja hugmynd um sögu samvinnuhreyfingarinnar, að jafnvel hennar upptök voru þau, að verkamenn, sem biðu ósigur í verkfalli, stofnuðu með sér kaupfélag í Rockdale til þess að reyna þó a.m.k. að losna við arðrán kaupmannanna, fyrst þeir gátu ekki losnað við arðrán atvinnurekendanna. Og KRON hefur fyrst og fremst viljað vinna að því að halda niðri verðlaginu í bænum. Ég skal í því sambandi rétt rifja upp, hvernig hefur verið búið að KRON af hálfu t.d. íhaldsins í Reykjavík, meiri hl. í bæjarstjórn Reykjavíkur, til þess að gera því mögulegt að fullnægja þessari baráttu. KRON hefur aldrei nokkurn tíma fengið lóð hjá Reykjavíkurbæ aldrei nokkurn tíma. Reykjavíkurbær hefur sniðgengið samvinnuhreyfinguna, nema það væri þá kannske einhver sérstakur voldugri partur af henni, þar sem hins vegar höfuðborgir Norðurlanda hafa alveg sérstaklega lagt sig eftir því að sinna samvinnuhreyfingunni og kaupfélögunum þannig, að þau gætu hjálpað til við það þjóðþrifaverk að halda niðri verðlagi í landinu. Það væri kannske eftirtektarvert fyrir hæstv. viðskmrh, að athuga t.d., að núna í des. verður, býst ég við, opnuð fyrsta nýlenduvöruverzlunin, sem KRON byggir upp frá grunni á lóð, sem það hefur komizt yfir, uppi í Bogahlíð. Og hvernig er sú lóð tilkomin, að KRON hefur yfirleitt aðgang að þeirri lóð? Hún er þannig tilkomin, að á tímum helmingaskiptastjórnarinnar gömlu, Framsóknar og Sjálfstfl., skyldi skipta öllu hér til helminga. Þá fengu kaupmannasamtökin sérstaka lóð, þar sem nú er Lídó, og byggðu þar upp verzlun, og þá fékk Samband ísl. samvinnufélaga, sem þá ætlaði sér að fara að taka upp slag við KRON hér í Reykjavík, það var einhver undarleg tilhneiging hjá Framsfl. þá að fara að berjast við þetta litla KRON, — þá fékk það þessa lóð uppi í Bogahlíð, og það virtist bókstaflega vera meiningin, eins og þá var búið að, að reyna að drepa KRON í Reykjavík. Það stóra og volduga samband ætlaði að sýna okkur í tvo heimana. Það var um líkt leyti og ýmislegt var gert í sambandi við Austurstræti 10. Svo breyttist þetta seinna meir. Vinstri stjórnin kom, og SIS breytti til allrar hamingju um stefnu í þessum efnum og KRON yfirtók þessa lóð. Það var um svipað leyti og KRON yfirtók líka kaupfélagið í Kópavogi, sem hafði verið stofnað í einhverjum svipuðum tilgangi á þeim tímum. Þetta sem sé batnaði, og það varð meira bróðerni en var á tímum helmingaskiptastjórnarinnar. Það hefur verið einhver smitun frá verzlunarauðvaldinu í Reykjavík, sem hefur grafið um sig í einhverjum toppum í Framsókn á þeim tíma, og það varð mikið bræðralag úr þessu öllu saman, og nú er KRON að koma þarna upp fyrstu nýlenduvöruverzluninni, sem það byggir sjálft upp af grunni í Reykjavík.

Það mætti kannske athuga fleira í þessu sambandi. En aðeins þetta litla dæmi um, hvernig Reykjavíkurbær hefur búið að samvinnuhreyfingu fólksins hvað þetta snertir, er einkennandi um, hvað lítið er verið að hugsa um þá aðila, sem vilja berjast fyrir því að halda niðri verðlagi í Reykjavík. Það vantar ekki, að það sé hugsað um þá aðila, sem vilja halda uppi verðlagi. Það vantar ekki, að það séu nægar lóðir, sem úthlutað er við Suðurlandsbrautina handa t.d. bílabröskurum, svo að ég tali ekki um allar hornlóðirnar í Reykjavík og hvert þær hafa farið. Sama mætti athuga, ef maður vildi fara út í það, að athuga um lánin og hverjir þau hafi fengið frá hálfu ríkisbankanna. En engu að síður, þó að illa hafi verið að KRON búið frá hálfu samherja hæstv. forsrh. hér í Reykjavík, hefur KRON samt reynt að gegna sínu starfi, og ég skal nefna hérna nokkur dæmi um verðlag hjá KRON nú sem stendur og hjá kaupmannaverzlunum í Reykjavík, t.d. af því, sem er undir verðlagsákvæðum: 200 g af kakaóí kosta hjá KRON 12.55 kr., 250 g af kakaói kosta í kaupmannaverzlununum 22.75. 5 lbs. hveitisekkur kostar hjá KRON 25.55, 5 lbs. hveitisekkur hjá kaupmannaverzlunum kostar 29.50. 1 lbs. af hrísgrjónum kostar hjá KRON 8.65, hjá kaupmönnum 9.80. 750 g af borðsalti kosta hjá KRON 9.00, 680 g, þ.e. minna, kosta í kaupmannaverzlunum 13.40. Haframjöl kostar hjá KRON 1 kg pakki 12.75, í kaupmannaverzlunum 16.00 kr. Þetta er aðeins af þeim vörum, sem eru undir verðlagsákvæðum. Við skulum taka nokkur atriði af þeim, sem eru með frjálsa verðlagningu: Sveskjur 350 g pakki kostar hjá KRON 18.90, 330 g pakki í kaupmannaverzlunum kostar 34.00 kr. Rúsínur 350 g pakki kostar 15.65 hjá KRON, en jafnþungur pakki í kaupmannaverzlunum 18.80. Apríkósur 1/2 dós kostar 20.40 hjá KRON, í kaupmannaverzlunum líka 1/2 dós 28.00. Rauðkál niðursoðið 600 g dós kostar 31.00 kr. hjá KRON, rauðkál 360 g dós, næstum helmingi minni, kostar 31.40 í kaupmannaverzlunum.

Það er ekkert spursmál um það, að KRON reynir af veikum mætti, með allan þann aðbúnað, sem það hefur, raunverulega bæði fjandskap bæjaryfirvalda og ríkis, að berjast eins og það getur. Á sama hátt og verkamannasamtökin berjast fyrir því að hækka sitt kaupgjald, reynir það að berjast við að halda niðri verðlagi. Það hefur engan auð, ekkert stórt fjármagn eða neitt slíkt yfir að ráða. Það hefur ekki fengið milljónatuga lán, eins og margar kaupmannaverzlanir, frá ríkinu til þess að berjast á þennan máta. En það hefur reynt að berjast að sínu leyti, og það, sem það reynir fyrst og fremst í þessum efnum, er að halda verðlaginu niðri.

Sannleikurinn er, að þegar talað er um verzlunarauðvaldið hér í Reykjavík og aðstöðuna almennt, er e.t.v. ekki það ægilegasta sá gróði, sem hefur lent til verzlunarauðvaldsins í Reykjavík. Það ægilegasta er e.t.v., hvernig verzlunarauðvaldið hefur farið með þennan gróða. Jafnóðum og það hefur svikið lánin út úr bönkunum, hefur það farið með þau og fjárfest þau á eins vitlausan hátt og hægt var, eins og Suðurlandsbrautin ber bezt vott um, vegna þess að það treysti alltaf á, að með því að festa fé í húsum, verzlunarhöllunum, tók það 10–15% gróða bara á verðbólgunni. Ég hef lista hér, ef menn vildu fara út í það líka, en ég ætla ekki að gera það nú til að tefja, en ég hef lista hér yfir, hvernig lán hafa skipzt og hvernig lánaaukning hefur skipzt alveg frá 1961, sem ég get lesið upp og sannar, að öll þessi ár er það verzlunarauðvaldið, sem hefur fengíð mest, aukningin hefur alltaf verið mest til þess og raunverulega meiri en bæði til iðnaðar og sjávarútvegs samanlagt, þangað til núna í ár, af því að þeir lágu með nokkuð mikið af birgðum. Af því að birgðirnar eru svo miklar hjá sjávarútveginum, þá lendir allmikil lánaaukning hjá sjávarútveginum, bara út á birgðirnar.

Hæstv. viðskmrh. upplýsti líka sjálfur nýlega, hvernig 40% af öllu vinnuafli fara fyrst og fremst núna til verzlunar og þjónustu. Af hverju gerist þetta? Af því að gróðavonin er þarna mest. En mennirnir, sem við þetta fást, hafa ekki einu sinni vit á því að koma þessum gróða sæmilega fyrir. Það var upplýst hér fyrir nokkru, að t.d. snyrtivöruverzlanir í Reykjavík, tala þeirra hefur sjöfaldazt nú á skömmum tíma. Verðlagið hefur hækkað mjög riflega, eins og hv. 5. þm. Austf. upplýsti, en ég býst við, að gróðinn hefði orðið meiri af því, ef það hefðu verið jafnfáar snyrtivöruverzlanir og áður, þá hefði gróðinn safnazt meir á fáar hendur. Nú sjöfalda þeir sem sé snyrtivöruverzlanirnar, náttúrlega dreifist gróðinn, og getur jafnvel á endanum orðið tap á einhverjum af þeim.

Stjórnleysið í frjálsri samkeppni, þeirri stefnu, sem ríkisstj. hefur beitt sér fyrir, er slíkt, að meira að segja með því að gefa þessum aðilum tækifæri til þess að rýja þjóðina og ganga að sjávarútveginum dauðum, yrði það harðastá, sem sagt yrði um þá frá kapítalísku sjónarmiði, að þá hefðu þeir ekki einu sinni dug í sér til að græða, eins og hæstv. forsrh. virðist halda fram. Ég held nú, að þeir hafi grætt, og ég var að bjóða honum eignakönnun, til þess að við gengjum alveg úr skugga um það, og við skulum framkvæma hana. Ég vona, að það standi ekki á ríkisstj. En sóunin hjá þjóðfélaginu í því að láta fara svona að, og stjórnsemin á þjóðárbúinu hjá þeirri ríkisstjórn, sem lætur sóa svona, — hvað yrði sagt um einn bónda, sem færi að byggja 10 fjós, hvert fyrir tvær kýr t.d. Það þætti víst þokkalegt í landbúnaðinum. Ég veit ekki, hvað hæstv. viðskmrh. segði þá. Bóndanum dytti ekki í hug að hafa 20 kýr í fjósinu, — það væri nú ljóta helvítis vitleysan, — og fara jafnvel að nota rafmagnstæki við þær, nei, eitt fjós, helzt fyrir hverja kú eða a.m.k. tvær og dreifa þeim helzt með sem lengst á milli, svo að það væri sem allra lengst, sem menn þyrftu að taka sér spássertur, þegar þeir færu að mjólka þær. Og náttúrlega borgaði sig ekki að hafa rafmagnsmjólkun við neina þeirra. Ég er sem sé reiðubúinn til þess, en ég veit ekki, hvenær verður framhald á þeim umr., sem við áttum hér hæstv. forsrh. nýlega í sambandi við visst mál í Sþ., — ég er reiðubúinn til að ræða við hæstv. ríkisstj. um þetta vandamál verzlunarauðvaldsins í landinu, en hún kinokar sér sífellt við það, og svo, þegar hún dengir fram frv. eins og þessu, vill hún helzt ekki fá miklar umr. um það.

Ég skal ekki vera að tefja þetta mál. Ég vildi aðeins að gefnu tilefni segja þau orð, sem ég hef sagt. En eitt þætti mér vænt um að heyra hjá hæstv. ríkisstj., áður en þetta mál verður afgreitt hér á þingi. Hæstv. ríkisstj. býr yfir mjög mikilli sérþekkingu hjá sínum vitringum, mönnum, sem öll þessi ár hafa fylgzt mjög vel með í verðlagsþróun á Íslandi og sífellt hafa a.m.k. þótzt vita, hvert þetta leiddi, og allt væri þetta, þangað til nú kannske, á réttri leið, og það er nauðsynlegt, álít ég, að þeir menn gefi upplýsingar, hreinar upplýsingar við þá n., sem þetta mál fer til, fjhn., um þeirra álit í þessum efnum, og ég vildi beina þeirri spurningu til hæstv. viðskmrh. eða forsrh. eða hvers sem væri af þeim: Álíta sérfræðingár ríkisstj. verðlagsstöðvun nú geta verið varanlega og íslenzkum atvinnurekstri haganlega, ef verðlag er stöðvað á því verðlagsstigi, sem nú er? Ég meina, álíta þeir menn, sem bera ábyrgðina á því, hvernig komið er, að við það verðlag, sem nú er t.d. fyrir vörur og þjónustu hvað vísitölu snertir, 228, að það sé nú á því herrans ári 1966 í nóvembermánuði, að það sé einmitt nú, sem þeir eigi að stöðva þetta verðlag, það hafi ekki verið t.d. 1961, þá hefði verið sjálfsagt að setja á gengislækkun, það hafi ekki verið 1962, það hafi ekki verið 1963, það hafi ekki verið 1964, þegar Alþýðusambandið bauð það, það hafi ekki verið 1966, en það sé nú í nóv. 1966, sem verðlag á Íslandi sé einmitt komið á það stig, að nú sé rétt að stöðva það, það hafi ekki verið rétt á undanförnum árum, þeir hafi beðið eftir þessu, vitringarnir áliti, að nú sé augnablikið komið? Og álíta þeir og vilja þeir lýsa því yfir og leggja sinn vísindamanns heiður að veði, að svona geti þetta verið áfram, þetta sé ekki bara fram yfir kosningar, það sé engin þörf á gengislækkun eftir kosningar? Þessir menn eru sérfræðingar. Að þessum mönnum á Alþ. að hafa aðgang, og þessir menn eru skyldir gagnvart n. Alþ. að gefa yfirlýsingar um það, sem þeir álíta satt og rétt. Og ég álít það stórhættulegt fyrir allt þingræði, ef það er litið svo á, að sérfræðingar í þjónustu ríkisins eigi eingöngu að vera til þess að láta ríkisstj. í té visst áróðursefni, en megi stinga undir stól sínum eigin skoðunum um þá þróun, sem sé að gerast í landinu. Ég álít, að sérfræðingar í þjónustu ríkisins séu skyldugir til þess að svara þeim spurningum, sem fyrir þá eru lagðar. Og ég álít, að áður en þessu máli lýkur hér, eigum við að fá svar við því, að íslenzkur sjávarútvegur beri það, að allt sé stöðvað á þessu stigi, það sé álit ríkisstj. og álit sérfræðinganna, þeirra manna, sem vanræktu að stöðva 1961 og settu þá á gengislækkun, vanræktu að stöðva 1962, vanræktu að stöðva 1964 og vanræktu að stöðva, þegar hæstv. viðskmrh. áleit það líka mjög nauðsynlegt, 1965.

Það er vitanlegt, að íslenzkur sjávarútvegur gat leikið sér að því að standa undir þeim smábreytingum, sem nú hafa orðið á verðlagi, — gat leikið sér að því, ef verðlagsþróunin var stöðvuð fyrr, fyrir 1–2–3 árum. Ég hjó eftir því hjá hæstv. forsrh., að hann talaði um, að það hlyti að hafa verið nokkuð mikill gróði hjá sjávarútveginum, ef hann ætti að geta staðið undir þeirri verðlækkun, sem nú hefði orðið, svo framarlega sem t.d. verðlagsþróunin hefði ekki orðið slík sem hún hefur orðið innanlands. Jú, vissulega: Það er auðvitað hverjum einasta manni ljóst, sem hefur einhverja hugmynd um hagfræði, að íslenzkur sjávarútvegur hefði, ef stöðvað hefði verið verðlag t.d. 1963, þá hefði hann stórgrætt á undanförnum árum, og það hefði m.a. þýtt, að hann hefði getað borgað hærra kaup. Ég býst við, að sérfræðingar ríkisstj. meira að segja geti ekki neitað því. En af hverju mátti hann ekki græða? Af hverju varð að gefa verzlunarauðvaldinu í Reykjavík einokunarvald til að hækka verðlagið? Af því að gróðinn mátti ekki fara til sjávarútvegsins og ekki til þeirra, sem unnu við hann. Gróðinn varð, ef hann átti nokkur að vera, að lenda hjá verzlunarauðvaldinu í Reykjavík.

Svona er þetta búið að ganga á Íslandi í öll þessi ár. Hæstv. viðskmrh, hefur vafalaust einhvern tíma lesið „Rauðku“, álit skipulagsnefndar atvinnumála, og man eftir, að hvaða niðurstöðu Alþfl. komst þá, þegar allt kapítal í sjávarútveginum á Íslandi var 22 millj. kr. og allt kapítal í verzluninni 100 millj. og niðurstaðan var: Það verður að rýra þá möguleika, sem verzlunin hefur til að græða, til þess að ýta undir sjávarútveginn. Þetta hefur alltaf verið vandamálið í íslenzkum efnahagsmálum, að pólitískt vald verzlunarauðvaldsins í Reykjavík, Morgunblaðsins og Sjálfstfl., hefur verið svo mikið, að það hefur notað sína aðstöðu til þess að rýja sjávarútveginn og verkalýðinn, þannig að það hefur verið að ganga af honum dauðum, en orðið að stöðvast, áður en það drap hann. Þess vegna held ég, að hæstv. ríkisstj. verði að gera sér það ljóst, að þegar þessi mál koma nú fyrir þingið og þegar fluttar verða brtt. við þau og rætt um þau, verður að gera öll þessi mál upp, og það dugir ekki að reyna að hliðra sér hjá því. Þessi mál eru höfuðpólitísku málin á Íslandi. Verkalýðssamtökin hafa fyrir löngu boðizt til þess að taka höndum saman við sjávarútveginn og íslenzka iðnaðinn, til þess að tryggja afkomu Íslendinga sem heildar, en það fæst ekkert gert í þessum hlutum vegna ofurvalds verzlunarauðvaldsins í landinu, sem heimtar einokunarvald til að ráða verðlaginu og er búið að tvöfalda á fimm árum verðlagið í landinu. Það þýðir ekki að ætla að brjóta þessi mál til mergjar án þess að þora að ræða þau hér í þinginu hjá okkur, og ef hæstv. ríkisstj. vill reyna að sleppa ódýrt með því að ræða ekki meira við þessa umr., skora ég á hana við 2. umr. þessa máls að vera reiðubúinn til þess að ræða þessi mál ofan í kjölinn. Við viljum fá að vita það m.a., hvort það er meiningin, ef ríkisstj. heldur völdum, að koma á gengislækkun eftir eitt ár og þetta hér sé aðeins til að fresta því, og hvort hennar sérfræðingar, begar þeir mega tala eins og vísindamenn, álíti, að gengislækkun sé þá óhjákvæmileg. Það er bezt, að þjóðin fái að vita, að hverju hún er að ganga, að það sé verið að fresta gengislækkun, eins og gert var 1959, fram á árið 1960, en undir niðri sé álitið, að hún sé orðin óhjákvæmileg. Við skulum einu sinni reyna að horfast svolítið heiðarlega í augu við þessi vandamál og þora að ræða þau, og það væri heiðarlegra af ríkisstj., ef hún álítur, að allt sé komið í vanda, að gera sínar ráðstafanir nú í þeim efnum.

Það er búið að marka okkar stefnu Alþb.- manna alveg greinilega í þessu. Við erum og höfum alltaf verið ósmeykir við verðlagsákvarðanir. En það er tími til kominn, að hæstv. forsrh, og Sjálfstfl. fari að gefa upp sína trú, hún er svo greinilega búin að bíða skipbrot.