12.12.1966
Neðri deild: 25. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 467 í B-deild Alþingistíðinda. (311)

74. mál, verðstöðvun

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Allmiklar umr. hafa nú um sinn farið fram á Alþingi um frv. hæstv. ríkisstj. til heimildar til stöðvunar á verðlagi. Ég hef til þessa ekki lagt þar orð í belg, en þykir nú rétt að segja nokkur orð um málið, þegar það er hér til 2. umr., og mun ég þá í fyrsta lagi og aðallega í mínu máli gera grein fyrir viðhorfum verkalýðssamtakanna og Alþýðusambandsins til þessa máls. Um afstöðu Alþb. get ég vísað til framlagðra tillagna hv. 5. þm. Austf., Lúðvíks Jósefssonar, og afstöðu Alþb., eins og hún er mótuð í nál. minni hl.

Þess var getið hér í framsögu málsins, að um þetta mál hefði verið rætt nokkuð við fulltrúa verkalýðssamtakanna. Þar mun aðallega hafa verið átt við fulltrúa frá Verkamannasambandi Íslands og einnig forseta Alþýðusambands Íslands. Þetta er rétt. Viðræður hafa átt sér stað um þessi mál, um kaupgjalds- og kjaramálin almennt, á þessu hausti, þar sem nú eru uppsagðir og lausir samningar, og einnig um úrræði til stöðvunar verðbólgu og dýrtíðar, eins og oft hefur borið á góma á milli hæstv. ríkisstj. og verkalýðssamtakanna á undanförnum árum. En þetta hefur af ýmsum verið lagt út þannig, úr því að vitnað var til þessara samræðna, að hér sé um samkomulagsmál að ræða á milli ríkisstj. og verkalýðssamtakanna. Slík útlegging á orðum hæstv. forsrh. byggist á algerum misskilningi. Hér er um ekkert samkomulagsmál milli ríkisstj. og verkalýðssamtaka að ræða, enda hafði ekki hæstv. forsrh. orð um það, að svo væri. Afstaða verkalýðssamtakanna um alllanga tíð, mörg ár aftur í tímann, hefur verið sú, að verðbólgan væri versti vasaþjófurinn, sem vasi verkamannsins yrði fyrir, þ.e.a.s. verðbólgan væri hinn mesti skaðvaldur launastéttunum í landinu. Og viðhorf verkalýðshreyfingarinnar hefur mótazt af þessari skoðun.

Það er alkunnugt, að þegar samkomulag tókst um uppgjör launamála vorið 1964 með hinu svokallaða júnísamkomulagi, var upphaf að ályktun verkalýðssamtakanna um launamál, sem beint var til ríkisstj., einmitt um viðleitni verkalýðssamtakanna til stöðvunar verðbólgu og dýrtíðar. Með leyfi hæstv. forseta, voru upphafsorð þessa samkomulags eða þessarar kjaramálaályktunar Alþýðusambandsins þá á þessa leið: „Á undanförnum árum hafa verkalýðssamtökin ae ofan í æ bent á hættuna af sívaxandi dýrtíð. Þau hafa skorað á stjórnarvöld landsins að beita sér fyrir stöðvun dýrtíðarinnar, en tryggja jafnframt næga atvinnu og sanngjarna hækkun á kaupmætti launa.“

Verkalýðssamtökin hafa alltaf, þegar þau hafa barizt fyrir bættum kjörum meðlimum sínum til handa, lagt á það áherzlu, að þau vildu meta sem kauphækkun hverja þá ráðstöfun, sem miði að lækkun verðlags eða öðru því, sem raunverulega færði vinnandi fólki kjarabætur. Verkalýðshreyfingin hefur því alltaf verið og er enn á móti verðbólguþróun í efnahagskerfinu og varar sterklega við afleiðingum hennar, bæði fyrir launþega og þjóðfélagið í heild. Ályktuninni lauk hins vegar með þessum orðum, með leyfi hæstv. forseta:

„Alþýðusambandið býður samstarf um lausn á hinum miklu vandamálum, sem við er að glíma í þessum efnum, þ.e.a.s. í dýrtíðar- og verðbólgumálunum. Það samstarf verður að byggjast á réttlátri afstöðu brýnustu hagsmunamála verkalýðsins, sem varða launa- og kjaramál, og að frjáls samningsréttur sé virtur.“

Ég hygg, að það verði varla gert skýrara í stuttu máli að marka afstöðu verkalýðssamtakanna vorið 1964 en gert er með þessum tilvitnunum í upphaf og endi á kjaramálaályktun alþýðusamtakanna 1964. Viðræður hófust svo við ríkisstj. þá á þessum grundvelli, þar sem hæstv. ríkisstj. lýsti strax yfir, að hún væri reiðubúin til að taka upp viðræður við verkalýðssamtökin á þessum grundvelli, og leiddi það til hins svokallaða júnísamkomulags. Ég get fullyrt, að það hefur engin breyting orðið á afstöðu Alþýðusambandsins og verkalýðssamtakanna til verðbólgu- og dýrtíðarmálanna, síðan þetta var tilkynnt hæstv. ríkisstj. Í samningum 1965 var byggt á þessari sömu afstöðu, og að loknum hvorum tveggja samningunum, 1964 og 1965, var því lýst yfir í málgögnum ríkisstj., að samið hefði verið með þeim hætti um kaupgjalds- og kjaramálin, að ástæðulaust ætti að vera að hleypa þeim kauphækkunum inn í verðlagið. Fyrir þessu liggja yfirlýsingar á prenti frá fleiri en einum hæstv. ráðh.

Þróun kaupgjalds- og kjaramála, sem alþýðusamtökin, verkalýðssamtökin hafa farið með, hafa því ekki verið skaðvaldurinn í þróun þessara mála, a.m.k. ekki tvö síðustu ár, því verður varla haldið fram, nema því aðeins að menn komist þá alveg í mótsögn við sjálfa sig að því er þetta snertir.

Því hefur verið haldið fram, að hæstv. ríkisstj. hafi haft allvíðtækar og fullnægjandi heimildir til stöðvunar verðbólgu og dýrtíðar á undanförnum árum í löggjöf og hafi hins vegar notað þær lítt. Ég er þeirrar skoðunar, að ef vilji hefði verið einbeittur í röðum hæstv. ríkisstj. að nota sér allar þær heimildir, sem verið hafa í lögum, til skeleggrar baráttu móti dýrtíð og verðbólgu, hefði mátt betur til takast en niðurstaða hefur orðið um á undanförnum árum. Til gæzlu verðlagsins hefur hæstv. ríkisstj. einnig haft sérstaka n., verðlagsnefndina, og í henni meiri hl., eins og hér hefur verið víkið að, meiri hl. stjórnarsinna, og hefði það tæki átt að vera gagnlegt til þess að framkvæma vilja ríkisstj. í þessum málum. En því miður verður að segja, að meiri hl. ríkisstjórnarliðsins í þessari n. hefur ekki starfað á þann hátt, að ástæða sé til þess að lýsa fögnuði sínum yfir, að þar hafi verið haldið fast á málum með það fyrir augum að draga úr verðbólguþróun og stöðva dýrtíð. Því miður held ég, að þarna hafi miklu fremur verið rýmkað til um fyrir ýmsum þeim aðilum, sem ástunduðu að krækja sér í stundarhagnað, með þá afleiðingu auðsæja, að dýrtíð hlyti að vaxa við hækkaða álagningu á vörum og þjónustu, og einnig að því er snertir ríkisvaldið sjálft með nýrri skattlagningu, hækkun söluskatts hvað eftir annað, hækkun á álagningu opinberra gjalda o.s.frv., o.s.frv. og að loka augunum fyrir hvers konar hækkunum á verðlagi innanlands, svo sem hækkun á raforku, hækkun hjá hitaveitu, hækkun á hvers konar innlendu gjaldi fyrir innlenda, veitta þjónustu. Þetta allt saman hefur verið eins og þræðir í vef til þess að skila dýrtíðarvoðinni sem lengstri og breiðastri, og niðurstaðan hefur líka orðið sú.

Hefur þá hæstv. ríkisstj. ekki átt við öflug félagssamtök að stríða í þessum málum? Ég þykist hafa gert alveg ljósa grein fyrir því, hver afstaða verkalýðssamtakanna hafi verið. En það vill svo til, að ég hef einnig í höndum bréf, sem Alþýðusambandinu hefur verið sent frá öðrum voldugustu samtökum, fjöldasamtökum þjóðarinnar, Sambandi ísl. samvinnufélaga. Hefur Samband ísl. samvinnufélaga þá verið andstæðingur þess, að unnið væri að stöðvun verðbólgu og dýrtíðar? Ekki virðist mér það eftir þessari samþykkt, sem ég hef hér fyrir framan mig núna frá s.l. sumri, frá aðalfundi Sambands ísl. samvinnufélaga að Bifröst í júnímánuði þessa árs, 1966. Ég skal ekki lesa þessa ályktun alla, en upphaf hennar og endi vil ég — með leyfi hæstv. forseta — lesa. Þar segir í upphafi, þetta er ályktun varðandi efnahagsmál:

„Aðalfundur Sambands ísl. samvinnufélaga, haldinn í Bifröst 10. og 11. júní 1966, telur, að sívaxandi verðbólga stefni nú atvinnuvegum landsmanna og afkomumöguleikum almennings í bráðan háska. Framleiðslukostnaður hefur sífellt farið hækkandi á undanförnum árum, og er nú þegar komið svo, að hann er í ýmsum greinum orðinn hærri en það verð, sem fæst fyrir framleiðsluna á mörkuðum erlendis.“

Síðan er vikið að því, að á sviði landbúnaðarins hafi aukinn verðbólgukostnaður þegar leitt til alvarlegrar tekjurýrnunar hjá bændum og með sama hætti megi nú fleiri og fleiri innlendar framleiðsluvörur lúta í lægra haldi á innlendum markaði í samkeppni við vörur, sem framleiddar eru í öðrum löndum, þar sem framleiðslukostnaður sé stöðugri. En niðurlagsorð þessarar ályktunar eru:

„Líklegasta leiðin til að stemma stigu við verðbólgunni telur fundurinn, að séu samstillt átök til þess að mæta vinnuaflsskorti og framkvæmdaspennu með meiri afköstum, aukinni tækni og bættu framleiðsluskipulagi, og ályktar, að brýnni nauðsyn beri nú en nokkru sinni til þess, að öll ábyrg þjóðfélagsöfl sameinist í voldugri sókn gegn verðbólgunni.“

Mér virðist þessi ályktun síðasta aðalfundar Sambands ísl. samvinnufélaga taka af öll tvímæli um það, hver afstaða samvinnuhreyfingarinnar sé. Þar er skorað á öll ábyrg öfl þjóðfélagsins að sameinast í voldugri sókn gegn verðbólgunni, og hefði hæstv. ríkisstj. vel mátt taka þessi orð til sín og þakka fyrir, að þarna væri sterk hönd rétt fram til samstarfs í viðbót við verkalýðshreyfinguna til þess að ráða þessum miklu vandamálum til farsællegra lykta.

Það er áreiðanlegt, að ef hæstv. ríkisstj. hefur átt við einhverja sterka andstæðinga að etja í verðbólgu- og dýrtíðarmálunum, hafa það verið einhver önnur öfl en verkalýðshreyfing og samvinnuhreyfing, því að þær báðar er hægt að taka á þeirra eigin orðum og vitna til þess, að þessi samtök telji verðbólguþróunina einn mesta skaðvald almenningshagsmunanna í landinu og veiki grundvöll aðalatvinnuvega þjóðarinnar.

Þá kemur að því, hvort frv., sem hér liggur fyrir, sýni það og sanni, að nú hafi hæstv. ríkisstj. og sú verðlagsnefnd, sem áfram á að fara með þessi mál, tekið sinnaskiptum og sé nú ákveðin í því að taka upp bardagann við dýrtíðarófreskjuna og verðbólguóvættinn. Ég vil leyfa mér að minna á meginefni frv. og finnst því miður, að þar sé svo veiklega til orða tekið, að ég sé ekki, að þarna verði brotið blað með samþykkt þessa frv. Á það hefur verið bent, og það er rétt, að ríkisstj. fer nálega eingöngu fram á heimildir í þessu frv. Það fer því eftir því, hve vel menn treysta hæstv. ríkisstj. í þessum málum — og hljóta þá að byggja á reynslunni — til þess að nota heimildirnar til hins ýtrasta, svo að þær jafngildi því, að þar væri um fyrirmæli að ræða. En þegar við lítum á frv., sjáum við heimildirnar. Þær eru í flestum tilfellum dregnar í land aftur með orðinu „nema“, með undanþágum. Í 1. gr. segir, með leyfi hæstv. forseta:

Ríkisstj. er heimilt að ákveða, að eigi megi hækka verð á neinum vörum frá því, sem var, er frv. til þessara l. var lagt fyrir Alþ., nema með samþykki hlutaðeigandi yfirvalda.“

Þar er sem sé varnagli sleginn. Hvað mega þá yfirvöldin? Þau mega eigi leyfa neina hækkun á vöruverði. Þá kemur „nema“ í næstu línu, nema þau telji hana óhjákvæmilega, svo sem vegna hækkunar á tollverði innfluttrar vöru. Þarna er nú komið tvisvar sinnum „nema“ í 1. gr. Svo kemur í 3. gr. fjórum sinnum „nema“. Þetta er líklega orðið, sem oftast kemur fyrir í frv. Jú, ríkisstj. er í fyrsta lagi þar heimilað að ákveða, að álagningarstigar útsvara og aðstöðugjalds samkv. lögum og síðari breytingum á þeim megi ekki hækka frá því, sem ákveðið var í hverju sveitarfélagi 1966, nema með samþykki ríkisstj. Spurningin er, hvort það leyfi væri ófáanlegt. Í sömu línu: „Skal hækkun álagningarstiga þá ekki leyfð, nema ríkisstj. telji hana óhjákvæmilega.“ Og svo eru greinarskil, en þar kemur líka í fyrstu linu: „Ríkisstj. er heimilt að ákveða, að öll opinber gjöld, önnur en þau, sem um ræðir í síðari mgr. 1. gr. og í l. nr. 51 frá 1964, megi ekki hækka frá því, sem var á árinu 1966, nema með samþykki ríkisstj.“ Og enn: „Skal hækkun á slíku gjaldi þá ekki leyfð, nema ríkisstj. telji hana óhjákvæmilega vegna fjárhagsafkomu hlutaðeigandi aðila.“ Þarna er í þessum tveimur gr., 1. og 3. gr., komið um heimildir ríkisstj. til sex aðgerða og sex sinnum kemur: „nema“ ríkisstj. eða hlutaðeigandi yfirvöld telji nauðsynlegt að nota ekki heimildina.

Ríkisstj. er heimilt, jú, það þýðir ekkert annað en það, að ríkisstj. má. Ríkisstj. má gera þetta og þetta. Og henni er svo sem ekki skylt að nota heimildina, því að það er sagt 6 sinnum: nema hún sjái ekki ástæðu til þess að nota hana: Ég get ekki hjá því komizt að segja, að mér finnst þetta vera frv. með alls konar varnagla í bak og fyrir, þó að þarna sé eingöngu um heimildir að ræða í meginlesmálinu og alls ekki neitt um það, hvað ríkisstj. skuli skylt að gera í verðlags- og dýrtíðarmálum. Útgöngudyrnar til þess að aðhafast ekkert eru margar og virðast að ýmsu leyti standa upp á gátt.

Þeir aðilar, sem einmitt eins og Alþýðusambandið hafa áhuga á því, að herferðin gegn dýrtíðinni beri árangur, vilja auðvitað ákveðna löggjöf, sem tryggi það nokkurn veginn, tryggi það eins og ein löggjöf getur tryggt það, að framkvæmdin dragist ekki úr hömlu og framkvæmdin bregðist þannig vonum þeirra manna, sem vilja stöðvun dýrtíðar. En þetta frv. er því miður ekki til þess fallið að skapa slíka vissu. Það er miklu fremur til þess fallið að veikja trú manna á, að ætlunin sé að kveða dýrtíðina niður með öllum hugsanlegum ráðum.

Í grg. hæstv. ríkisstj. með frv. er bent á, hvað hún hafi þegar gert til þess að hafa hemil á vísitölunni. Þar segir, með leyfi hæstv. forseta: „Í þessu skyni ákvað ríkisstj. að greiða niður hækkun þá á búvöruverði, sem ella hefði orðið í septembermánuði s.l., og hefur hún síðan gert ráðstafanir til lækkunar á vísitölu framfærslukostnaðar niður í það, sem hún var 1. ágúst s.l.“

Það er rétt, ríkisstj. greip þarna inn í og lét hækkun búvöruverðsins frá 1. sept. ekki koma til framkvæmda og gerði það með aukinni niðurgreiðslu. Annað, sem ríkisstj. tíundar, að hún hafi gert núna á liðnu hausti til þess að stemma stigu við vísitöluhækkun, er þetta:

Að niðurgreiðslur hafi verið auknar í síðasta mánuði og fjölskyldubætur hækkaðar frá og með 1. nóv. s.l. Hvort tveggja er þetta rétt. En hið fyrrnefnda, að auka niðurgreiðslurnar til þess að halda vísitölunni í því, sem hún var 1. ágúst, og fiktið með fjölskyldubæturnar er greinilega gert til að hygla mönnum með auknum fjölskyldubótum, sem nema lægri upphæðum en það mundi kosta ríkissjóð að láta dýrtíðina fara sinn gang og bera þann kostnað, sem af hækkun vísitölunnar leiddi. Það er því miður viðkunnanleg aðgerð, þetta síðarnefnda.

Þetta eru aðgerðirnar. Þær eru í þessu þrennu fólgnar. Það játa ég, að sé þetta einungis gert með tekjuafgangi ríkissjóðs, þannig að ekki komi til nú eða síðar innheimta skatta vegna þessara niðurgreiðslna, er verið að verja skattpeningi, sem ríkið hefur þegar innheimt, til þess að halda vísitölu og dýrtíð við ákveðið mark, stöðva vöxt hennar, og það varðar launþegana í landinu eins og aðra og ekki síður. En ef þetta ætti að standa um lengri tíma og ríkissjóður yrði vegna þessara ráðstafana að innheimta skatta, er þetta ekki orðið nema sýndarráðstöfun. Þá væri komið að skuldadögum, og það væru ekki sízt launþegarnir í landinu, sem kæmu til með að borga brúsann, og þá væri þetta lítils eða einskis virði, einskis virði nema meðan hægt er að borga þetta af tekjuafgangi ríkissjóðs án þess að innheimta ný gjöld af skattborgurunum.

Hér segir einnig í grg., að beiting þeirra heimilda, sem ríkisstj. á að veita samkv. frv., byggist á þeirri forsendu, að eigi verði kauphækkanir, er geri verðstöðvun óframkvæmanlega. Sumir hafa viljað segja, að í þessari síðustu setningu væri lögbinding. Ég tel mig ekki lesa það út úr frv., því að viðbótin segir: „Er geri verðstöðvun óframkvæmanlega.“ Ég lít svo á, að í þessu felist sú yfirlýsing af hendi hæstv. ríkisstj., að kauphækkanir geti átt sér stað, ef þær séu innan þeirra marka, sem ríkisstj. telji að ekki bregði fæti fyrir verðstöðvunarviðleitnina. Og ef það er rangur skilningur, ef þetta á að túlkast sem fastbinding á kaupi, vænti ég þess, að það komi fram í frambaldsumr, um málið. Ég tel þetta ekki vera kaupbindingarfrv. og vil láta í ljós ánægju mína með það, að hæstv. ríkisstj. með því virðist vilja virða samningsrétt verkalýðssamtakanna. Hitt er vafalaust, að mikið svigrúm mundi hæstv. ríkisstj. varla gefa til kauplækkana, ef hún væri í alvöru að framkvæma verðstöðvun. Enda skal ég fúslega játa það, að eigi að framkvæma verðstöðvun í alvöru og kaupgjalds- og launamál séu á ferð og flugi í þjóðfélaginu, þá sér hver maður, að það samrýmist ekki. Hver sá, sem segði það, væri opinber hræsnari og væri að bera fram ósatt mál. Verðstöðvun og algert frjálsræði í verzlun og viðskiptum, kaupgjaldsmál og launamál á ferð og flugi, það rækist hvað á annað og gerði alla framkvæmd óhugsanlega. Þetta get ég alveg eins játað, þó að ég tali hér fyrir munn verkalýðshreyfingarinnar. Ég þættist einmitt sjá, að ríkisstj. meinti hreint ekkert með sínu frv., ef hún héldi því fram, að hún gæti, meðan hún væri að stöðva verðbólgu og dýrtíð, unað því, að kaupgjald væri á hraðri hækkunarleið.

Ég held, að það sé hvort tveggja jafnljóst, að verðstöðvun verður ekki framkvæmd með algeru frjálsræði kaupsýslustéttanna um verðlagningu og álagningu og ekki heldur að því er snertir fullkomið frjálsræði til hækkunar kaupgjalds. Þar verður áreiðanlega, og það gerir hæstv. ríkisstj. sér ljóst, — þar verður annaðhvort að beita ákveðnum fyrirmælum eða leita samkomulags, meðan væri verið að vinna ærlega að framkvæmd þessa máls, og ríkisstj. mætti í raun og veru, að því er samstarfið við verkalýðssamtökin og samvinnuhreyfinguna í þessum málum snertir, vitna til fyrri yfirlýsinga.

Ég tel, að fram á það hafi verið sýnt í þessum umr., að kaupsýslustéttirnar mættu sæmilega við una, þó að það væri gert meira, ef um verðstöðvunarstefnu í framkvæmd væri að ræða, en banna hækkanir frá því, sem nú er. Ég álít, að kaupsýslustéttirnar, ef þær vilja vera þátttakendur í baráttu á móti vaxandi dýrtíð, ættu hiklaust að sætta sig við, að allsherjarendurskoðun færi fram á álagningarmálunum í landinu, og þar sem álagning væri komin umfram nauðsynlega rekstrarþörf í viðskiptunum, ættu þessar stéttir að sætta sig við lækkun. Það er áreiðanlegt, að það verður við ærin vandkvæði að stríða, ef á að framkvæma verðstöðvun í landinu og hækkanir á ýmsum sviðum óhjákvæmilegar, og yrði því að notfæra til ýtrasta þá möguleika, sem kynnu að vera á einstökum sviðum til þess að færa verðlag niður frá því, sem nú er, og þá vitanlega þar með að þrengja að þeim aðilum, sem þar ættu hlut að máli. Það þýðir ekkert að halda áfram frelsisgaspri í þessum málum í allar áttir, ef alvara er á ferðum með það að framkvæma verðstöðvun. Hún gerist ekki af sjálfu sér, og hún hlýtur að koma við einhverja í þjóðfélaginu. Og þar geta hvorki kaupsýslustéttir né launastéttir beðizt undan.

Ég tel það einn af mörgum vanköntum þessa frv. í viðbót við það, sem ég hef þegar gert grein fyrir, að mér finnst það í allri sinni byggingu allt of veikt til þess að tákna það, að hæstv. ríkisstj. hafi snúið frá villu síns vegar í dýrtíðarstefnunni og ætli nú að taka hörðum höndum á því vandamáli. Ég tel, að þar mætti alls ekki vanta ákvæði um húsnæðismálin. Það er rétt, að húsnæðismálin hafa ekki heyrt undir verðlagseftirlit fram að þessu, og þyrftu því að koma fram ný lagafyrirmæli um það að taka hart á óhóflega hárri húsaleigu og taka hart á okri í sambandi við sölu bæði nýbyggðra og eldri húsa. Það er á almæli, að þeir, sem byggja og selja hús, telja það nokkurn veginn réttmætt að taka 100–200 þús. kr. í eigin hlut umfram raunverulegan byggingarkostnað, og slíkur ágóðahluti til þeirra, sem byggingar framkvæma, sé í söluverði íbúða. Þetta tel ég vera óhóflegt. Vitanlega eiga þessir menn að fá hóflegt gjald fyrir sína framkvæmd, sína vinnu í húsnæðisbyggingum, en þarna er um fjárplógsstarfsemi að ræða, sem stappar nærri okri. Og þetta er sá liðurinn, sem sárast kemur við pyngju hins venjulega manns.

Ég tel því, að till, okkar Alþb.- manna, sem hér hefur verið gerð grein fyrir, að húsnæðismálin yrðu að falla inn í verðstöðvunarfrv., ef ærlega væri meint, eigi hinn fyllsta rétt á sér og sé jafnvel stærra atriði en flest annað varðandi verðstöðvun eða lækkunaraðgerðir, þar sem um óhóflegan ágóðahlut sé að ræða.

Í 2. gr. frv. segir, og það virðist vera nokkuð ákveðið orðalag, með leyfi hæstv. forseta: „Nú hefur á tímabilinu, frá því að frv. til þessara 1. var lagt fyrir Alþ. og þar til þau öðluðust gildi, verið ákveðin verðhækkun á vöru eða seldri þjónustu, sem fer í bága við ákvörðun ríkisstj. á grundvelli heimildar samkv. 1. gr., og er þá slík verðhækkun ógild og hlutaðeigandi seljandi er skyldugur til að lækka verðið í það; sem var á þeim tíma, er frv. til þessara l. var lagt fyrir Alþ.“

Ég segi, hér virðist vera allákveðið orðalag og bönnuð sérhver verðhækkun og hana skal færa til rétts vegar aftur fyrir sig, ef einhver hefur hækkað verðlag á vöru, frá því að frv. kom fram. En ég þykist hafa fengið áreiðanlega vitneskju um það, að jafnvel þetta orðalag, sem þarna virðist þó vera allákveðið, nægi ekki. Ég var að ganga hér út úr þinghúsinu daginn sem frv. var lagt fram, þá mætti ég þar manni, sem hafði orð á því að fyrrabragði við mig: Ja, nú á að fara að stöðva allt og er nú tími til kominn. — Jú, ég kvað svo vera, frv. væri komið fram í þingsölunum. Já, gott og blessað, en í gær fékk ég tvö bréf, tvær kveðjur, sagði maðurinn. Fyrra bréfið var tilkynning um 30% hækkun á húsaleigu. Síðara bréfið var um 100% hækkun á lóðaleigu. Og mér duldist ekki, að maðurinn taldi þetta vera verðhækkanir, sem settar væru fram á síðustu stundu, rétt áður en frv. væri lagt fram, af aðila, sem hefði fengið vitneskju um, að frv. væri að koma. Ef slíkt gæti nú gerzt varðandi lóðaleigu og húsaleigu, er mér gjarnt á að ímynda mér, að ýmiss konar verðmiðar hafi verið á hreyfingu í verzlunum dagana áður en frv. kom fram og þar kynni jafnvel að hafa verið hækkað verð í ýmsum tilvikum, og sjá allir, að frv. missir að nokkru leyti marks, ef ekki væri hægt að fyrirbyggja slíkar verðhækkanir, rétt áður en frv. sá dagsins ljós. Mér virðist því, að ein breyting jafnvel á þessu ákveðnasta ákvæði frv. væri tímabær og þyrfti að ná samþykki Alþingis, eitthvað á þessa leið: Sérhverjar þær verðhækkanir, sem með einhverjum hætti má rekja til væntanlegs frv. ríkisstj. um heimild til verðstöðvunar, skulu einnig bannaðar og færðar til fyrra horfs. — Það er vitanlegt, að þeir, sem svona haga sér, hvaða aðilar sem það eru, einstaklingar eða opinberir aðilar, og því verra, ef það eru opinberir aðilar, sem hlaupa svona til til þess að koma í veg fyrir tilætlaðan tilgang lagasetningar á Alþingi og berjast þannig fyrir hækkaðri dýrtíð, þegar þeir eru að ota sínum tota, þeir eiga auðvitað ekki að komast áfram með það. Þeir eiga jafnvel síður að komast áfram með það en þeir, sem bannað er að hækka alla þjónustu og allt verðlag frá þeim degi, að frv. sá dagsins ljós, því að þessir fara með klækjum og eiga ekki að komast áfram með það.

Mér finnst það skipta öllu máli fyrir verkalýðshreyfinguna að hugleiða það, hvort nú sé útlit fyrir, að ríkisstj. ætli að taka verðstöðvunarmálin svo alvarlegum tökum, að því megi treysta, að þar sé ekki bara um orð innantóm að ræða, heldur megi öruggt telja, að framkvæmd fylgi og að ríkisstj. búi sér þannig í haginn með lagasetningu, að sterkar líkur séu fyrir því, að framkvæmd takist. Þetta varðar verkalýðshreyfinguna alveg sérstaklega sökum þess, að ef hún á að vera aðili að framkvæmdinni, þá er til þess ætlazt, að hún geri ráðstafanir til þess að vera ekki á ferð og flugi með kaupgjaldið í trausti þess, að verðlagið hlaupi ekki upp á við. Allt er undir því komið fyrir verkalýðshreyfinguna, að framkvæmdir bresti ekki, og því eðlilegt og rökrétt, að hún telji nauðsynlegt, að allar heimildir til verðstöðvunar séu sem ótvíræðastar og öruggastar og að vel sé um það búið, að öll framkvæmdin sé í höndum þeirra manna, sem örugglega megi treysta, að ætli sér að hamla á móti verðbólguþróun og dýrtíð. Ég held, að ef þessar forsendur væru fyrir hendi, að við í verkalýðshreyfingunni teldum sýnilegt, að nú ætlaði ríkisstj. að láta hart mæta hörðu í verðbólgu- og dýrtíðarmálum og fyrirbyggja verðhækkanir á allri vöru og þjónustu og á öllum sviðum, banna hækkun hjá sveitarfélögum, á útsvörum og auðvitað ekki setja neina nýja skatta á landslýðinn, meðan á verðstöðvuninni stæði, þá mundi verkalýðshreyfingin ekki vilja í mótsögn við allar sínar fyrri yfirlýsingar verða til þess að leggja stein í götu framkvæmdarinnar. En vitanlega, ef henni finnst málið allt vera þannig, að verðlag eigi að hlaupa upp á við hindrunarlítið eins og til þessa, þá vili hún ekki láta hafa sig að þeim leiksoppi að stöðva kaupgjaldið eitt. Slíkt væri fjarstæða, og til þess væri enginn siðferðilegur grundvöllur að gera slíkar kröfur til hennar. Verði hins vegar reyndin sú, að heimildir frv. verði ekki notaðar eða framkvæmdin mistakist, t.d. af því að aðrir aðilar komi í veg fyrir rétta framkvæmd, þá hlyti verkalýðshreyfingin að telja sig lausa allra mála, og kaupgjaldið yrði þá vitanlega eins og hingað til að fara í kjölfar verðhækkana, og það yrði að hafa þær afleiðingar fyrir framleiðsluatvinnuvegina, sem verða vildi. En sannleikurinn er sá, að atvinnuvegirnir og launastéttirnar eiga mest í húfi, að takist að draga úr verðbólgu og dýrtíð.

Það er nú nærri því ofmælt að taka sér það í munn, að það sé innan ramma hins mögulega að stöðva verðbólgu og dýrtíð. Það held .ég í raun og veru sé ekki hægt. Ég held, að við mættum þykjast góðu bættir, þykjast ná góðum árangri, ef við gætum dregið svo úr þróun verðbólgu og dýrtíðar, að við værum nokkurn veginn samstiga okkar aðalviðskiptaþjóðum, og það væri takmarkið, sem við ættum að setja okkur, fremur en að nefna það, sem við vitum að er lítt eða ekki framkvæmanlegt, að stöðva hvort tveggja, verðbólgu og dýrtíð. Og svo mikið er víst, að með þeim aðgerðum, sem ég nefndi áðan og ég viðurkenni að ríkisstj. hafi gert á s.l. hausti til stöðvunar á hækkun vísitölu, þá er þar í engu tilfelli um að ræða aðgerðir, sem hafi tekið fyrir vöxt verðbólgunnar.

Það er í samræmi við það, sem ég nú hef sagt, sem verkalýðshreyfingin leggur á það áherzlu, að heimildir handa hæstv. ríkisstj. í lagaformi séu sem ákveðnastar, til þess að hún geti örugglega staðið við sín fyrirheit í verðstöðvunar- og dýrtíðarmálum. Mér finnst það því skjóta skökku við, að hæstv. ríkisstj. skuli fara fram á hinar veikustu heimildir, sem allar eru þannig lausar í böndum, að það getur vel svo farið, þó að allar séu notaðar, að hæstv. ríkisstj. geti ekki komið stöðvuninni fram. Og þá mætti hún sjálfri sér um kenna, ef hún hafnar því að fá sem öruggasta og bezta aðstöðu í stöðvunarbaráttunni, en vill hafa heimildirnar sem rýrastar og losaralegastar, sem getur orðið til þess að hana skorti heimildir til þeirra átaka, sem þarna verður áreiðanlega þörf á, ef árangur á að nást. Mér finnst það líka í viðbót við það, sem ég hef áður drepið á í þá átt, að frv. sjálft sé ekki sannfærandi um alvarlegar aðgerðir, sem fram undan séu í verðstöðvunarmálum, þá finnst mér það slæmt teikn, að fjárlfrv. hér á hv. Alþingi skuli hækka um eða yfir 20% og að fyrsta fjárhagsáætlun, sem frétzt hefur um, fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar, skuli einnig hækka um 20% eða þar um bil frá því í fyrra. Þetta eru slæm teikn um, að þessir aðilar, Alþingi sjálft undir forustu hæstv. ríkisstj. og Reykjavíkurborg, séu komnir í verðstöðvunarfötin.

Það er að því vikið í grg. frv., að það sé fram borið, þetta frv., vegna erfiðleika sjávarútvegsins, framleiðsluatvinnuveganna, og virðist vera hugsað sem úrbót í því efni. Mér finnst síður en svo of fast að orðið kveðið að því er þetta snertir, bæði í nál. og grg., en orðalagið er á þá leið, að framleiðsluatvinnuvegirnir, útflutningsatvinnuvegirnir séu ekki færir um að taka á sig kostnaðarhækkanir. Það er víst alveg áreiðanlega rétt. Segir þetta bara nóg? Segir þetta sannleikann um stöðu útflutningsatvinnuvegana? Dugir verðstöðvunin til þess, að þeim sé borgið, án þess að til fjárhagsaðstoðar í hundruðum milljóna þurfi að koma? Og þá vaknar spurningin: Ef til þess þyrfti að koma, yrði það ekki að gerast með nýrri skattálagningu á þegnana og mundi það ekki hafa dýrtíðarverkanir í för með sér?

Mér er kunnugt um, að það eru afstaðin þing fleiri samtaka en Alþýðusambandsins, og er myndin í niðurstöðum á slíkum þingum dregin upp þannig, að ef nokkur bátur eigi að fara á flot um n.k. áramót og hefja vertíð, þá verði fiskverð að hækka um a.m.k. 35%, en þar með sé þó ekki öllum vandanum lýst, því að hraðfrystihúsin, sem í flestum tilfellum þurfa að kaupa fiskinn, vanti 20% til að geta greitt núverandi fiskverð, svo að mér virðist, að eftir þessu muni sjávarútveginn eða hraðfrystihúsin vanta um 55% til þess að hafa rekstrargrundvöll. Ef þetta er rétt mynd og ekki ýkt af samtökum útflutningsatvinnuveganna, þá virðist mér, að verðstöðvunarfrv. leysi ekki þeirra vanda og það hilli undir nýja skattlagningu þegnanna, sem vafalaust hlyti að leiða af sér aukna dýrtíð, auknar byrðar á þegnana.

Ég hefði haldið, að forsendan fyrir þessu frv., að það sé flutt út úr neyð, af því að framleiðsluatvinnuvegirnir séu í þeirri þröng sökum verðhækkunar, vegna þess að verðhækkanir séu ekki lengur fyrir hendi á aðalframleiðsluvörum okkar á heimsmarkaðinum og verðlækkanir í einstökum tilfellum, sé byggð á röngum grundvelli. Ég álit, að það eigi ekki að þurfa að neyða, hvorki hæstv. ríkisstj. né aðra, til þess að ganga út í bardaga gegn verðbólgu og dýrtíð. Og ef verðstöðvun hefði t.d. verið gerð fyrir hálfu öðru ári til tveimur árum og útflutningsatvinnuvegirnir fengju að njóta þeirra verðhækkana undir verðstöðvun, sem síðan hafi átt sér stað, þá væri vafalaust nú útlitið þannig, að útflutningsatvinnuvegirnir gætu staðið á eigin fótum. Verðstöðvunarframkvæmdir eru því í ótíma, þegar þær eru orðnar neyðarráðstöfun, en geta verið hin skynsamlegasta aðgerð fyrir atvinnulífið og launastéttirnar, einmitt ef það er gert í tíma, áður en í óefni er komið.

Ég skal þá að lokum míns máls víkja að þeirri kjaramálasamþykkt, sem Alþýðusambandsþingið síðasta gerði. Sú ályktun er langt mál, og skal ég ekki þreyta þingheim eða hæstv. forseta með því að lesa hana. Ég vil hins vegar gera grein fyrir efni hennar með því að lesa bréf, sem að undangengnum umr. í miðstjórn Alþýðusambandsins um dýrtíðarmálin, einmitt eftir að verðstöðvunarfrv. hafði komið fram, var ákveðið að senda hæstv. ríkisstj. til þess að gera eins ljósa og unnt væri afstöðu Alþýðusambandsins til þessa máls. Og það bréf dregur saman efni launamálaályktunar þingsins og undirstrikar viss atriði, þrjú meginatriði í kjaramálaályktun Alþýðusambandsþings. Þetta bréf til hæstv. ríkisstj., sem hún ætti að hafa fengið nú fyrir helgina, er með leyfi hæstv. forseta á þessa leið:

„Miðstjórn Alþýðusambands Íslands sendir hæstv. ríkisstj. hér með ályktun þá um kjaramál, sem 30. þing Alþýðusambandsins samþykkti, Í ályktun þessari er í 7 töluliðum gerð grein fyrir þeim þjóðfélagsaðgerðum, sem gera eigi mögulegar þær kjarabætur, sem verkalýðshreyfingin nú leggur höfuðáherzlu á að ná fram, nefnilega styttingu vinnutímans án skerðingar tekna og aukningu kaupmáttar vinnulauna með það að markmiði, að núverandi heildartekjur náist með dagvinnu einni saman. Þá vekjum vér sérstaklega athygli á, að auknar ráðstöfunartekjur verkafólks nú eru ai5 miklu leyti fengnar með lengdum vinnutíma og greiðslum umfram almenna kjarasamninga, en aðeins að minni hluta með hækkun kaups skv. kjarasamningum stéttarfélaga og launabótum vegna styttingar dagvinnutímans. Nú eru blikur á lofti um, að atvinnulífið kunni að dragast saman í vaxandi mæli, en slíkt mundi skv. framansögðu geta valdið stórfelldri skerðingu á lífskjörum vinnustéttanna. Með tilliti til þess leggur verkalýðshreyfingin þunga áherzlu á, að í komandi samningum verði raungildi heildartekna tryggt, þótt tekjur af yfirvinnu kynnu að skerðast. Síðast, en ekki sízt, er í ályktuninni skýlaus yfirlýsing um stuðning verkalýðssamtakanna við sérhverja raunhæfar aðgerðir, er geti dregið varanlega úr dýrtíð og verðbólgu, styrkt grundvöll höfuðatvinnuveganna og tryggt launþegum réttláta hlutdeild í þjóðartekjum. Er þetta staðfesting á margyfirlýstri stefnu verkalýðssamtakanna í dýrtíðarmálum. En ekkert er fjær sanni en að verkalýðshreyfingin leggí með þessu blessun sína yfir sýndartilburði og yfirbreiðsluaðgerðir, sem ekki grípa á sjálfu verðbólguvandamálinu, heldur miðast við það eitt að halda skráðri vísitölu í skefjum á yfirborði. Við slíkum vinnubrögðum í þessu erfiða þjóðfélagsvandamáli varar verkalýðshreyfingin alvarlega og tekur afstöðu gegn hvers konar haldlausum kákráðstöfunum. Verði reyndin sú um framkvæmd á frv. ríkisstj. til laga um heimild til verðstöðvunar og því fáist ekki breytt í raunhæfara horf með þeirri afleiðingu, að dýrtíðin verði ekki stöðvuð, lýsir verkalýðshreyfingin ábyrgðinni á því á hendur ríkisstj. einni saman.“ Og þar með endaði þetta bréf til ríkisstj.

Ég held, að það sé öllum ljóst, að með þessu bréfi og með ályktun Alþýðusambandsþingsins er af hendi verkalýðshreyfingarinnar farið fram á kjarabætur, aðallega í formi stytts vinnutíma og einnig nauðsynlegra lagfæringa á kaupi til að tryggja núverandi tekjur. Einkanlega er lögð á það áberzla, að tekjuskerðing verði ekki, þó að yfirvinna dragist saman, heldur færist það þá yfir á dagvinnutímann. Ég veit ekki, hvort hæstv. ríkisstj., sem nú hefur haft þetta bréf og ályktunina í heild til athugunar, telur, að þessi stefna ríði í bága við verðstöðvunarviðleitni hennar, en ég hefði haldið, að þessi stefna sé í beinu framhaldi af markaðri stefnu Alþýðusambandsins og verkalýðshreyfingarinnar vorið 1964, þegar samkomulag tókst, og margvíslegt samstarf hefur verið síðan í ýmsum málum milli verkalýðshreyfingarinnar og ríkisstj. Ég held, að þarna sé mörkuð stefna, sem er í beinu áframhaldi af því. Og þó að við engan veginn getum unað: því, að því sé slegið föstu, að laun verði óbreytt, ef verðstöðvunarstefnan yrði framkvæmd, þá teljum við, að launa- og kjarabætur verkafólks yrðu framkvæmdar í samræmi við yfirlýsta stefnu okkar, þrátt fyrir það þótt að verðstöðvun væri stefnt, þ.e.a.s. verðstöðvun á þann veg, að við stigum ekki miklu stærri skref í dýrtíðarmálunum en allar þjóðir í kringum okkur, því að í því liggur ógæfan. Það væri vissulega góðu marki náð, þó að við næðum aðeins því takmarki að draga úr hraða verðbólgu- og dýrtíðarþróunar, þannig að við yrðum nokkurn veginn samstiga okkar viðskiptaþjóðum.

Ég skal svo sem ekki fjölyrða meira um þetta mál nú, en vil að lokum bera fram nokkuð þýðingarmikla fyrirspurn til hæstv. ríkisstj., og hún er á þá leið: Er það skoðun hæstv. ríkisstj., að hún með því að leggja fram þetta frv. til verðstöðvunar, eins og hún kallar það, hafi valið um leiðir og telji, að ef verðstöðvunarleiðin takist, verði ekki um það að ræða; að hæstv. ríkisstj. fari gengislækkunarleið, stjórnin hafi með þessu valið um leiðir, segjandi sem svo, að á gengislækkunum höfum við ekki trú, þó að við höfum áður gripið til þess úrræðis tvisvar, og viljum nú heldur reyna af alefli að fara verðfestingarleiðina? Ég tel, að eðli málsins lægi nokkuð ljósara fyrir þingheimi, áður en við tökum endanlega afstöðu til þessa máls, ef við þessu kæmu skýr svör. Þá er náttúrlega mikið undir því komið, á hvern veg þau væru. En ég legg áherzlu á það, að verðstöðvunarfrv., ef því fengist breytt í það horf, sem við Alþb.-menn leggum til, væri orðið mun líklegra til að vera alvarlega meint, og ég teldi líka miklu meiri líkur til þess, að verðstöðvun kynni að takast, ef því væri breytt í það horf. En í þessu formi, sem það er nú, sýnist mér, að það sé með örfáum undantekningum á þann veg, að ríkisstj. hafi litlu fleiri eða róttækari heimildir í verðstöðvunarmálinu en hún hefur nú þegar, og gæti jafnvel tekið undir orð síðasta hv. þm., sem taldi að væri ef til vill um „kómedíu“ setta á svið með tilliti til kjördagsins í vor að ræða en minni alvöru. Ég vil þó ekki staðhæfa, að þetta sé tilgangurinn með frv. Ég vildi óska þess, að alvara væri á bak við og hæstv. ríkisstj. ætlaði sér að nota allar heimildir og beita öllum ráðum til þess að stöðva verðbólgu og dýrtíð, því að það væri áreiðanlega ein bezta kjarabótin, sem launastéttirnar gætu fengið, ef það mætti takast til fulls. Og þó að of seint sé fyrir útflutningsatvinnuvegina til þess að bjarga þeim, þá hygg ég, að það sé rétt, að þeir þola ekki aukin rekstrarútgjöld. Þeir eru þannig á vegi staddir eftir 7 ára viðreisn, því miður.