12.12.1966
Neðri deild: 25. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 502 í B-deild Alþingistíðinda. (318)
74. mál, verðstöðvun
Hannibal Valdimarson:
Herra forseti. Ég skal ekki halda langa ræðu að þessu sinni. Ég hef engar þær umkvartanir að gera, sem hv. 5. þm. Norðurl. v. þurfti að gera hér áðan, út af því, að forsrh. hefði farið hraklegum orðum nm afskipti mín af þessu máli, þó að ég flytti þar síður en svo málstað ríkisstj. En ég hélt því fram áðan, að það væri í raun og veru eðlilegast, að ríkisstj. vildi fá sem öruggastar lagaheimildir til allra aðgerða til stöðvunar verðlags, og ég fengi því ekki annað séð en till. Alþb., sem allar stefna í þá átt að tryggja örugga framkvæmd í verðstöðvunarmálum, ættu að vera kærkomnar ríkisstj. Það er vitanlega ekki stjórnarandstaðan á Alþ., sem á mikið á hættu, ef framkvæmdin mistekst, hæstv. ríkisstj. á allt á hættu, ef hún ber fram frv. og lögfestir þær heimildir, sem hún telur sér nauðsynlegar til framkvæmda í málinu, en svo getur hún ekki framkvæmt málið, það mistekst í höndum hennar. Það er hún, sem á allt í hættu. Og hafi hún hugsað sér málið sér til framdráttar í næstu kosningum, mundi það síður en svo verða, ef verðlagsmálin bruna sinn gang og verðlagið æðir upp og verðbólgualdan stöðvast ekki, — þá væri málið henni síður en svo til framdráttar í kosningum, það er mín sannfæring, allra helzt, ef hún hefði hafnað till., sem hefðu bætt hennar aðstöðu til að ná því marki, sem hún lét í veðri vaka, að fyrir sér vekti. Ég tel það því ekki góðs vita, ef brtt. Alþb. á þskj. 32, sem allar miða að því að gera framkvæmd frv. ríkisstj. öruggari, verða felldar. Ég verð að segja það.
Við höfum, hv. 5. þm. Austf. og ég, minnt á, að ástandið hjá sjávarútveginum og fiskiðnaðinum sé að dómi þeirra aðila, sem þar mega gerst um vita, ekki álitlegt. Ég vitnaði áðan í skoðanir talsmanna sjávarútvegsins, hvernig þeir teldu sig stadda og hvað þeir teldu sig þurfa mikla aðstoð. Ég játa, að það getur verið um ýkta mynd að ræða hjá þeim, en ég hef hérna fyrir framan mig samþykktina, sem gerð var á aðalfundi Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna. Það er ekki heldur glæsileg mynd, sem þeir draga upp. Þeir segja, með leyfi hæstv. forseta:
„Aðalfundur Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, haldinn í Reykjavík 7. og 8. des., leyfir sér að vekja athygli þjóðarinnar á því, að rekstrargrundvöllur fyrir hraðfrystiiðnaðinn er ekki lengur fyrir hendi.“ Það er mikið sagt: „Rekstrargrundvöllur fyrir hraðfrystiiðnaðinn er ekki lengur fyrir hendi. Stórhækkaður innlendur kostnaður, samdráttur í hráefnisöflun og lækkað verð fyrir sjávarafurðir á erlendum mörkuðum hefur leitt til þess alvarlega ástands, sem við óbreyttar aðstæður mun innan tíðar leiða til gjaldþrots fjölda fyrirtækja. Fundurinn telur, að verði ekki gerðar róttækar ráðstafanir af hálfu hins opinbera til leiðréttingar á rekstrargrundvelli hraðfrystihúsanna, geti þau ekki hafið framleiðslu í byrjun næsta árs.“
Þetta er sú mynd, sem þessir aðilar draga upp af ástandinu í hraðfrystiiðnaðinum, og ef hraðfrystiiðnaðurinn hefur engan rekstrargrundvöll og fyrirtækin verða unnvörpum gjaldþrota, sem þarna er um að ræða, og geta ekki hafið rekstur í byrjun næsta árs, ef þetta eru ekki allt saman ýkjur einar, er þarna um alvarlega hluti að ræða, sem ólíklegt er, að kosti ekki hundruð millj. að bæta úr, og ef það þarf að gerast með nýjum sköttum á þegna þjóðarinnar, á sama tíma og haft er á orði, að eigi að stöðva allt verðlag, sé ég ekki, hvernig það tvennt má samrýmast.
Það er dálítið kæruleysislegt af hæstv. forsrh. að segja „Den tid, den sorg“, þ.e.a.s. þá skapast bara ný viðhorf og þá er að taka því. Þetta er eiginlega alvarlegasta hliðin á þessu máli, að svona er komið, og fyrst þegar svona er komið, þá leggur hæstv. ríkisstj. fram frv. um heimildir til verðstöðvunar sem neyðarúrræði. Í ræðu minni í dag sagði ég frá atviki, sem sló mig illa daginn, sem frv. var lagt fram, þ.e.a.s. beinni frásögn manns um það, að hann hefði fengið tvær verðhækkunartilkynningar daginn áður en frv. var lagt fram, aðra um 30% hækkun á húsaleigu, hina um 100% hækkun á lóðarleigu. Ég taldi því, að ákvæði 2. gr., eitt ákveðnasta ákvæði frv., sem sé að verðhækkanir, sem yrðu gerðar, eftir að frv. var lagt fram, skyldu verða ógildar, virtist ekki vera nægilegt. Ég lét þá orð falla um það, að ég teldi ekki óeðlilegt, teldi nauðsynlegt raunar, að verðhækkanir, sem skellt væri á, rétt áður en frv. var lagt fram, þ.e.a.s. greinilega út frá því, að vitneskja hefði síazt út um það, að þetta frv. væri að koma, yrði að banna líka. Þess vegna leyfi ég mér, herra forseti, að leggja fram brtt. við frv., þ.e.a.s. við 2. gr. þess, á þá lund, að við 2. gr. frv. bætist: „Sérhverjar þær verðhækkanir, sem með einhverjum hætti verða raktar til vitneskju um, að verðstöðvunarfrv. væri væntanlegt, og komu til framkvæmda rétt áður en frv. var lagt fram á Alþ., skulu einnig ógildar og verðlagið fært til fyrra horfs.“ Þessa brtt. vil ég leggja fram eða afhenda hæstv. forseta og óska, að hann leiti afbrigða fyrir henni sem skriflegri og of seint fram kominni.
Mér hefur verið bent á, að fleiri teikn séu nú á lofti þess efnis, að ekki ætli allir að beygja sig undir þetta ákvæði um að hækka ekki verð með einhverjum hætti. Dagblaðið Vísir mun segja frá því í dag, að kaupmenn séu nú að taka upp, ekki að hækka verðlag, nei, nei, Gud bevare os, en að setja á nýtt gjald, 10 kr. heimflutningsgjald, ef varan sé pöntuð í búð, en 25 kr. heimsendingargjald, á hverja heimsendingu, ef hún hafi verið pöntuð í síma. Mundi nú hæstv. ríkisstj. líta á þetta sem verðhækkun eða bara eitthvað, sem alveg sé óviðkomandi verðlagi? Þetta virðist mér vera viðleitni til þess að finna strax nú þegar, á meðan frv. er til meðferðar á Alþ., leiðir til þess að mata dálítið sinn krók á kostnað almennings í landinu, án þess að beint sé hægt að segja, að bókstafur laganna sé brotinn. En spurningin: Yrði þetta talin verðhækkun eða yrði bara sagt: Þetta er ekki verðhækkun, verðið er óbreytt hjá öllum þessum kaupmönnum, en þeir bara settu á þetta nýja gjald: — Það er alveg áreiðanlegt, að það verða margar tilraunirnar til þess að komast fram hjá ákvæðum laganna, jafnvel þeim ákveðnustu, eins og hér er um að ræða, ákveðnasta atriðinu í frv., þegar hinar veiku heimildir með öllum undantekningunum eru meginuppistaða frv.
Ég skal ekki þreyta þingheim með langri ræðu að þessu sinni. Ég endurtek það, að sá aðilinn, sem á mest í húfi um, að vel takist til um framkvæmd verðstöðvunar í landinu, er hæstv. ríkisstj. Þegar Alþ. samþ. lög þar um að frumkvæði ríkisstj., að öllu leyti í því formi eins og hún telur sér nauðsynlegt að hafa það, en hún hafnar öllum till., — ef svo verður nú, sem ég trúi ekki fyrr en ég tek á, — sem miða að öruggari framkvæmd, og kynni svo að standa uppi vís og opinber að því á vordögum, að framkvæmd laganna hefði mistekizt, þar á enginn meira á hættu en hæstv. ríkisstjórn sjálf.