13.12.1966
Neðri deild: 26. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 506 í B-deild Alþingistíðinda. (322)
74. mál, verðstöðvun
Skúli Guðmundsson:
Ég tel, að það þyrfti önnur ákvæði og róttækari að ýmsu leyti til þess að ná þeim árangri, sem mér skilst, að vaki fyrir tillögumanni. Það mun ekki hafa mikla þýðingu að samþykkja það, eins og það er, og greiði ég því ekki atkv.