13.12.1966
Neðri deild: 28. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 507 í B-deild Alþingistíðinda. (326)
74. mál, verðstöðvun
Frsm. 2. minni hl. (Lúðvík Jósefsson):
Herra forseti. Ég tel, að brtt. sú, sem hér hefur nú verið gerð grein fyrir og er að finna á þskj. 156, sé nokkuð til bóta á frv., því að hún miðar að því, að verðhækkanir, sem gerðar hafa verið nokkrum dögum áður en frv. var lagt fram, verði óheimilar eða komið verði í veg fyrir þær. Þetta tel ég fremur til bóta, og að því leyti til get ég verið með þessari brtt., sem er að finna á þskj. 156. En það breytir hins vegar ekki neinu um afstöðu mína og okkar Alþb: manna til frv. Þær brtt., sem við fluttum við frv., hafa nú allar verið felldar, og sú afgreiðsla ber vitni um það, að ríkisstj. vill ekki láta setja skýr ákvæði í lög um verðstöðvunarmálin og vill hafa þann vafa á um alla framkvæmd, sem einkennir frv., og okkur þykir alveg sýnt, að ríkisstj. vill ekki taka föstum tökum á verðlagsvandamélinu. Okkur sýnist því alveg augljóst, að þar fylgi ekki hugur máli hjá hæstv. ríkisstj. í baráttunni gegn verðbólguvandamálinu. Við getum því ekki, Alþb: menn hér, greitt frv. atkv., eins og það liggur fyrir, en munum hins vegar láta það afskiptalaust við endanlega afgreiðslu þess.