17.12.1966
Efri deild: 32. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 542 í B-deild Alþingistíðinda. (338)
74. mál, verðstöðvun
Frsm. meiri hl. (Ólafur Björnsson):
Herra forseti. Fjhn. hefur haft frv. það, sem hér er til umr., til meðferðar, en eins og nál. þau, sem útbýtt hefur verið, bera með sér, hefur ekki náðst samstaða í n. um afstöðu til þess. Við, sem að nál. meiri hl. stöndum, leggjum til, eins og þskj. 181 ber með sér, að frv. verði samþ. óbreytt.
Að mínu áliti eru það einkum tvær spurningar, sem svara ber, áður en afstaða er tekin til frv., sem hér liggur fyrir. Í fyrsta lagi sú, hvort verðstöðvun sú, sem frv. gerir ráð fyrir, sé æskileg, og í öðru lagi, hvort ráðstafanir þær, sem frv. heimilar, að gerðar verði, séu nauðsynlegar, ef slíkum tilgangi á að ná. Ég sé ekki ástæðu til þess að fjölyrða um það, hvort æskilegt sé að stöðva verðbólguna. Því virðast allir vera sammála, a.m.k. í orði kveðnu, þótt ekki hafi reynzt jafnauðvelt að ná samstöðu um þau úrræði, er í því efni koma til greina. Ég er því í rauninni alveg sammála, sem hv. 3. þm. Norðurl. v. sagði um það efni við 1. umr. þessa máls, að verðbólguþróun sú, sem átt hefur sér stað um langt skeið hér á landi, hefur valdið mikilli röskun eignaskiptingarinnar í þjóðfélaginu, sem ekki er réttlát. Á hennar reikning má og skrifa hinn mjög umtalaða lánsfjárskort, sem bitnað hefur með miklum þunga á öllum þeim, sem eru að byggja upp framtíð sína, hvort heldur er með heimilisstofnun eða stofnun fyrirtækja. En þrátt fyrir verðbólguna hefur þó vöxtur þjóðartekna hér á landi verið örari en nokkru sinni fyrr síðan á árinu 1961 eða síðan áhrif þeirra ráðstafana í efnahagsmálum, sem gerðar voru snemma á árinu 1960 voru að fullu komin fram. Þó að ég telji, að þessar ráðstafanir hafi verið óhjákvæmilegt skilyrði þessarar hagstæðu þróunar, ber auðvitað ekki að vanmeta það, hvern þátt hagstæð verðlagsþróun á erlendum mörkuðum hefur í henni átt, og það er einmitt vegna þessarar hagstæðu þróunar, sem verðbólgan hefur þó ekki valdið þjóðarbúskapnum meira tjóni en raun er á. Vegna hækkandi verðlags á erlendum mörkuðum hafa útflutningsatvinnuvegirnir getað staðið undir þeim kaupgjaldshækkunum, sem orðið hafa á umræddu tímabili, án verulegrar opinberrar aðstoðar.
Nú eru viðhorf hins vegar breytt í þessu efni, eins og hv. þdm. er kunnugt. Ég ætla annars ekki að ræða nánar þróun markaðsmála okkar erlendis síðustu mánuði. Því efni hafa m.a. við umr. um þetta frv. í hv. Nd. verið gerð skil af mönnum, sem því eru kunnugri en ég, og hef ég þar engu við að bæta. Menn geta auðvitað verið mismunandi bjartsýnir um það, hvort verðhækkanir þær, sem orðið hafa á mikilvægum útflutningsvörum okkar síðan snemma á s.l. sumri, verði varanlegar. En það breytir engu um það, að í þessu efni hafa a.m.k. um sinn orðið straumhvörf, og við það verðum við að horfast í augu. Vegna þessa hefur verðbólguvandamálið komizt á alvarlegra stig en áður. Verðbólguþróun sú, sem átt hefur sér stað, hefur vissulega skapað misrétti og margvíslegan vanda, en hún hefur ekki leitt til samdráttar né atvinnuleysis. En vegna þeirrar breytingar í óhag, sem orðið hefur á verðlagi á erlendum mörkuðum, er sú hætta vissulega yfirvofandi, að áframhaldandi verðbólguþróun innanlands leiði til samdráttar í atvinnulífinu og minnkandi vinnu, ef ekki tekst að hamla þar á móti. Það ætti því varla að vera álitamál, að brýna nauðsyn ber nú til þess að stöðva áframhaldandi víxlhækkanir verðlags og framleiðslukostnaðar, því að haldi þær áfram, getur slíkt engum verið í hag, en á hinn bóginn stofnað í voða afkomu fjölda manns, bæði launþega og atvinnurekenda. Ég sé ekki ástæðu til þess að fjölyrða frekar um þessa hlið málsins, en skal þá víkja að hinu, hvort þær ráðstafanir, er frv. heimilar, séu nauðsynlegt og skynsamlegt skref í þessa átt.
Því hefur verið haldið fram af ýmsum hv. stjórnarandstæðingum í umr. um þetta mál hér á hv. Alþ., að hér sé í rauninni um sýndarfrv. að ræða, e.t.v. meinlaust, en í rauninni óþarft, þar sem allar þær heimildir, er frv. felur í sér og máli skipta, séu þegar fyrir hendi í gildandi l. og reglum, og er í því sambandi einkum vitnað til þeirra heimilda, er felast í gildandi l. um verðlagseftirlit. Ég hef aðra skoðun á þessu máli, og byggist hún ekki sízt á þeim kunnugleika, sem ég hef sem verðlagsnefndarmaður á framkvæmd verðlagsákvæða. Það er að vísu rétt, að verðlagsnefnd hefur mjög víðtæka heimild til þess að setja verðlagsákvæði á alla selda vöru og þjónustu á vegum einkaaðila og jafnvel einnig opinberra aðila. En helztu undantekningar frá því eru fiskverð, búvöruverð, húsaleiga og kaupgjald. Það eru atriði, sem verðlagsnefnd hefur ekki heimild til afskipta af, eins og kunnugt er. En í ákvörðunum þeim, sem verðlagsnefndin tekur, er hún þó ávallt bundin af þeim ákvæðum l. um verðlagseftirlit, að verðlagning skuli við það miðuð, að vel rekin fyrirtæki geti borið sig. Eins og kunnugt er, og ég mun að gefnu tilefni ræða nokkuð hér á eftir, hefur verðlagsnefndin þó, einkum frá og með árinu 1964, sleppt ýmsum vöruflokkum og ýmiss konar þjónustu undan verðlagsákvæðum. Það eru að vísu fullkomnar öfgar, eins og ég hef orðið var við í málflutningi ýmissa hv. Alþb.-manna, að svo langt hafi verið gengið í þessu efni, að verðlagseftirlitið hafi verið í raun og veru afnumið, og hygg ég raunar, að flestir þeir, er stunda kaupsýslu og iðnrekstur, telji sig þar hafa nokkuð aðra sögu að segja. En ef taka ætti þá vöru og þjónustu, sem nú er ekki háð verðlagsákvæðum, undir þau að nýju, yrði það samkv. þeim starfsreglum, sem verðlagsnefndin hefur fylgt og ber að fylgja, ekki gert með öðru móti en því, að áður hafi verið framkvæmd rannsókn á rekstrarafkomu fyrirtækjanna, sem lögð yrði þá til grundvallar hinum nýju ákvörðunum. En það gefur auga leið, að slíkt mundi taka sinn tíma, þannig að sú leið yrði til muna ógreiðfærari og alltaf þyngri í vöfum en notkun þeirra heimilda, er í þessu frv. felast.
Þá eru og í þessu frv. ýmsar mikilvægar verðstöðvunarheimildir, sem ekki eru, svo að mér sé a.m.k. kunnugt, fyrir hendi í gildandi l., svo sem til þess að banna hækkun húsaleigu og setja skorður við hækkun álaga bæjar- og sveitarfélaga. Þá tel ég það einnig mikilvægt ákvæði í frv., að allar þær hækkanir, sem hinar einstöku nefndir, sem verðákvarðanir hafa með höndum, samþykkja, skuli eftirleiðis háðar samþykki ríkisstj. Þessar nefndir starfa yfirleitt óháðar hver annarri og a.m.k. yfirleitt að lögum óháðar ríkisstj. Að vísu má segja, að ríkisstj. hafi aðstöðu til þess, að því er flestar þessar nefndir varðar, að hafa áhrif á ákvarðanir þeirra. En þó er það nú mín reynsla að því leyti, sem ég hef verið við þessi mál riðinn, að ríkisstj., hvort sem um er að ræða núv. hæstv. ríkisstj. eða aðra, noti yfirleitt ekki þá aðstöðu, nema um slík stórmál sé að ræða, að ákvörðun sú, er tekin er, geti haft úrslitaáhrif á það, hvort ríkisstj. tekst að framfylgja stefnu sinni í efnahagsmálum, hver sem hún svo er.
Þá skal ég aðeins víkja að þeirri mótbáru hv. stjórnarandstæðinga gegn þessu frv., að ef samþykkt þess komi yfirleitt að nokkru gagni, sé hér aðeins um bráðabirgðaúrræði að ræða, sem ekki leysi vandamál atvinnulífsins, heldur skjóti lausn þeirra aðeins á frest. Auðvitað er það svo, að aldrei verða gerðar neinar þær ráðstafanir í efnahagsmálum, sem leysi allan vanda í eitt skipti fyrir öll. Það skjóta alltaf upp kollinum ný og meira eða minna óvænt vandamál, sem krefjast nýrra úrræða. Í þeim skilningi er aldrei hægt að tala um annað en bráðabirgðaráðstafanir. Enginn okkar getur gengið í ábyrgð fyrir því, að ekki geti borið að höndum og jafnvel fyrr en varir nauðsyn óþægilegri aðgerða í efnahagsmálum en þeirra, er í þessu frv. felast. Hins vegar get ég ekki fallizt á þá skoðun, sem fram kom í ræðu hv. 3. þm. Norðurl. v., að viðhorfin í dag séu sambærileg við þau, sem voru 1959. Það er út af fyrir sig rétt, að verðstöðvun sú, sem þá var framkvæmd, var bersýnilega aðeins ráðstöfun til bráðabirgða. Á því ári var nær 600 millj. kr. greiðsluhalli í gjaldeyrisviðskiptum við útlönd, þannig að þar sem sáralitlir gjaldeyrisvarasjóðir voru til í byrjun ársins, var landið að komast í alger greiðsluþrot í ársbyrjun 1960. Róttækar ráðstafanir í gjaldeyrismálum til þess að forða frá slíku greiðsluþroti voru því óumflýjanlegar, þótt um hitt megi auðvitað alltaf deila, hvort rétt hefði verið að gera í einstökum atriðum þær ráðstafanir, sem þá var gripið til. Nú er hins vegar gert ráð fyrir, að gjaldeyrisvarasjóður Íslendinga nemi um 1800 millj. kr. um næstu áramót, þannig að króna okkar er ólíkt betur tryggð en þá var. Verðlag er að vísu talsvert hærra hér á landi en í Vestur-Evrópulöndunum a.m.k., en ég tel samt sem áður fráleitt á þessu stigi málsins að gefa upp von um, að unnt verði að komast hjá beinni eða dulbúinni gengislækkun, þar sem ég með því síðarnefnda á við það að taka þyrfti upp allsherjaruppbótakerfi. Í Vestur-Evrópu hefur verðlag undanfarin ár að jafnaði hækkað um 4–5% á ári, þannig að takist okkur að stöðva verðhækkanir um skeið, þyrfti það e.t.v. ekki að taka ýkjalangan tíma að samræma verðlag okkar þannig því, sem þar er. En auðvitað getur enginn gefið loforð um neitt í því efni. Þar hefur framvinda verðlagsmálanna næstu vikur og mánuði, bæði hér innanlands og erlendis, úrslitaáhrif. Og svo mikið tel ég að megi fullyrða, hvernig sem allt veltur, að það verður við meiri vanda að etja, ef ekki verður reynt með tiltækum ráðum að framkvæma verðstöðvun, en láta þær víxlhækkanir vöruverðs og kaupgjalds, sem hafa verið fyrstu 7 mánuði ársins, halda áfram.
Það er auðvitað ljóst, að árangur verðstöðvunarinnar verður öllu öðru fremur kominn undir viðbrögðum almennings og hagsmunasamtakanna í þjóðfélaginu við henni. M.a. með sérstöku tilliti til þess tel ég rétt, áður en ég lýk máli mínu hér, að víkja nokkuð að skoðunum, sem fram komu í ræðu hv. 4. þm. Norðurl. e. við 1. umr. þessa máls og hann sumpart rökstuddi með tölum, er hann las þá upp.
Hv. þm. hélt því fram, að verkamenn hefðu fengið óviðunandi lítið í sinn hlut af aukningu þjóðartekna undanfarin ár, en allt of mikið af henni hefði farið í aukinn milliliðakostnað, eins og hann orðaði það. Nú get ég vissulega tekið undir það með honum, að æskilegt væri, að til væru áreiðanlegri upplýsingar um tekjuskiptinguna í þjóðfélaginu en raun er á. Fátt mundi líklegra til þess að eyða tortryggni milli fjölmennra þjóðfélagsstétta, sem æskilegt er, að unnið geti saman á friðsamlegan hátt að sameiginlegum vandamálum, en einmitt slíkar upplýsingar. En meðan svo er ekki, tel ég mjög varhugavert að byggja svo ákveðnar fullyrðingar um þróun tekjuskiptingarinnar á mjög hraflkenndum upplýsingum, eins og hv. þm, gerði, þó að margt gott megi um ræðu hans og sjónarmið í kjaramálum verkalýðsins segja að öðru leyti.
Skal ég þá fyrst nokkuð ræða það, sem hann sagði um milliliðagróðann og verzlunarálagninguna. Ég vefengi ekki upplýsingar hans um fjölgun þeirra, sem stunda verzlunarstörf á því tímabili, sem hann nefndi. En í því sambandi ber að hafa það hugfast, sem hæstv. forsrh. drap raunar á í ræðu þeirri, er hann flutti í lok 1. umr. frv., að það er alþjóðleg reynsla, að aukin velmegun leiðir til þess, að flutningur vinnuafls á sér stað frá frumframleiðslunni og yfir í ýmiss konar svokölluð þjónustustörf og þá ekki sízt vörudreifinguna, þannig að tala þeirra, sem vinna að þessum þjónustustörfum, fer alltaf hlutfallslega vaxandi með aukinni velmegun. Þessu til frekari staðfestingar vil ég — með leyfi hæstv. forseta — lesa hér upp örfáar tölur úr alþjóðlegri skýrslu um þetta efni frá árinu 1961. En samkv. þeim upplýsingum, sem þar eru gefnar, kemur í ljós, að í hínum vanþróuðustu löndum, eins og t.d. Indlandi, Pakistan og Thailandi þar sem þjóðartekjur á mann eru undir 100 dollurum, þá eru það aðeins 10% af þjóðinni, sem stunda þjónustustörf. Hinn mikilvægasti þáttur þjónustustarfanna er ábyggilega verzlunin og henni nátengdar atvinnugreinar, eins og samgöngur. Fleira heyrir að vísu undir þetta, sem er þýðingarminna, eins og heilbrigðisþjónustan, þannig að ég hugsa, að þetta gefi nokkuð rétta mynd af verzlunarkostnaðinum, Í þessum vanþróuðu löndum eru það samkvæmt þessu aðeins um 10% af þjóðinni, sem lifa af þjónustustörfum.
Í því landi heimsins, þar sem þjóðartekjur á mann hafa verið hæstar á þessu ári, 1961, eða 2500 dollarar á mann, en það eru Bandaríki Norður-Ameríku, er það hvorki meira né minna en helmingur þjóðarinnar, sem vinnur við þjónustustörf. Í hinum auðugustu Evrópulöndum, svo sem í Svíþjóð og Sviss, þar sem þjóðartekjur á mann eru 1500 dollarar, eru það 40% þjóðarinnar, sem lifa af þjónustustörfum, og álíka mikið í Noregi og Danmörku, þar sem þjóðartekjur eru að vísu nokkuð lægri. Þess má geta, að Ísland er með í þessari skýrslu. Þjóðartekjur hafa verið á þessu ári ofurlítið lægri en í Noregi og Danmörku, en hlutfallstala þeirra, sem lifa af þjónustustörfum hér á landi, hefur þá veríð um 33%, svo að það má að vísu telja í fullu samræmi við annað, en tiltölulega hóflegt. Samt sem áður er það vissulega rétt hjá hv. þm., að það er hagsmunamál fyrir þjóðfélagsheildina, að vörudreifingin sé sem ódýrust miðað við þá þjónustu, sem veitt er. En hins vegar vil ég þó leyfa mér að spyrja: Liggur nú ekki beint við að draga þá ályktun einmitt af þeim tölum, sem ég áðan las upp, að það sé í miklu ríkara mæli hagsmunamál hinna efnaðri stétta í þjóðfélaginu en hinna fátækari, þannig að það eigi nokkuð það sama við um þjóðfélagsstéttirnar eins og hinar mismunandi þjóðir, að eftir því sem tekjurnar eru hærri, þeim mun meiri hluti teknanna fer í það að greiða fyrir álagningu og önnur þjónustustörf? Enda hygg ég, þó að ekki sé hægt að rökstyðja þetta með neinum tölum, að flestum hv. þdm. finnist það koma nokkuð heim við sína reynslu — eða mér kæmi annað á óvart, að dreifingarkostnaður nauðsynjavara, sem hinar fátækari stéttir einkum kaupa, er yfirleitt miklu minni, bæði vegna verðlagsákvæða og af öðrum sökum, en dreifingarkostnaður þeirrar vöru, sem er miður þörf, þannig að í rauninni hlýtur þetta að vera meira hagsmunamál fyrir þá efnuðu en hina fátækari. Það er nefnilega svo, að hvað þá efnuðu snertir, þá er e.t.v. nokkur sannleikskjarni í því, sem einhvern tíma var sagt um Borgnesinga, að þar lifði hver á öðrum. En sleppum því nú.
En hvað sem þessu liður og þó að ég taki undir það, að vissulega er það hagsmunamál og verður kannske þeim mun meira hagsmunamál, eftir því sem þjóðartekjurnar eru meiri, að dreifingarkostnaði sé haldið í skefjum, þá tel ég samt, að vara beri við oftrú á verðlagsákvæðum sem tæki til þess að halda dreifingarkostnaðinum í skefjum. Þau geta gert gagn og jafnvel verið nauðsynleg að vissu marki, en aðrar leiðir eru þó að mínum dómi betur til þess fallnar að tryggja svo sem bezt má verða hóflegan dreifingarkostnað. Á ég þar einkum við það, að ég hef ekki horfið frá þeirri trú, að virk samkeppni sé, þar sem henni verður komið við, bezta verðlagseftirlitið. Annað mál er það, að oft getur verið miklum vandkvæðum bundið að skapa skilyrði fyrir slíkri virkri samkeppni, og ástæðan fyrir því, að ég tel verðlagseftirlit hér á landi, a.m.k. í einhverri mynd, enn þá óhjákvæmilegt, er sú, að enn hefur þetta ekki tekizt. Að vísu hefur frjálsræði í viðskiptum mjög verið aukið í tíð núv. hæstv. ríkisstj., og á það sinn þátt í því, að ekki hefur síðustu 2–3 árin verið talið nauðsynlegt að beita eins ströngum og víðtækum verðlagsákvæðum og áður var. En það eitt, þó að innflutningur hafi að mestu verið gefinn frjáls, nægir ekki til þess að tryggja svo virka samkeppni, að óþörf verði öll opinber íhlutun um verðlagsmál og eftirlit með þeim. Kemur þar margt til, sem dregur úr samkeppninni, svo sem háir tollmúrar, samtök aðila, sem annast framleiðslu- og vörudreifingu, og fleira, sem of langt mundi leiða að rekja hér.
En þá skal vikið að fullyrðingum hv. þm. um hinn óhóflega verzlunargróða. Ég get samkv. áður sögðu tekið undir það bæði með honum og raunar líka hæstv. forsrh., að æskilegt væri, að til væru áreiðanlegri upplýsingar um dreifingarkostnaðinn en nú eru fyrir hendi. En við verðum bara að gera okkur ljóst, að það er ekki neitt auðvelt verk að afla þeirra upplýsinga. Ég ætla nú ekki að fara lengra en 10 ár aftur í tímann til þess að rekja þá sögu, en það skeði á Alþingi veturinn 1955–1956, að 6 þm. Sjálfstfl., sem þá áttu sæti í hv. Nd., tóku sig saman um það að flytja þáltill., sem gekk eins og hún mun hafa verið orðuð í sinni upphaflegu mynd út á það að fela ákveðinni tölu sérfróðra manna, eins og það mun hafa verið orðað, að framkvæma rannsókn á milliliðakostnaði. Af öðrum þingflokkum var þessu vel tekið. En þá voru aðstæður í stjórnmálum þær, eins og kunnugt er, að andstöðuflokkar Sjálfstfl. voru þá farnir að gefa hver öðrum hýrt auga, og það augnatillit endaði svo með því, eins og kunnugt er, að þessir flokkar gengu svo í hjónasæng að loknum kosningum 1956. Já, till. var mjög vel tekið, en þegar hún kom til n., sögðu talsmenn hinna flokkanna í n. sem svo: Auðvitað viljum við framkvæma þessa rannsókn, en við viljum ekki hafa neitt kák þar á, ekki tala um það að fela þetta sérfróðum mönnum, heldur viljum við breyta till, þannig, að þessa rannsókn á að framkvæma í samræmi við 39. gr. stjórnarskrárinnar og setja á fót rannsóknarnefnd með þeim mjög víðtæku heimildum, sem allar slíkar n. hafa til þess að fá upplýsingar um nærri því hvað sem er. Sjálfstæðismenn féllust á þetta í n., og þáltill. mun hafa verið samþykkt í einu hljóði og n. skipuð. Auðvitað urðu sjálfstæðismenn þar í minni hl. og þessi n., sem gera átti þannig úttekt á milliliðagróðanum, tók til starfa vorið eða sumarið 1956, og einhvers staðar sá ég það í blaði, að hún réð sér sérstakan starfsmann, það var Bergur Sigurbjörnsson viðskiptafræðingur, alkunnur dugnaðarmaður, eins og kunnugt er, og þar sem hann hefur tekið talsverðan virkan þátt í stjórnmálum, m.a. átt sæti á þingi, þá mun það einnig kunnugt, að hann er ekki með því hugarfari, að hann hafi haft sérstakar ástæður til þess að hylma yfir það misferli, sem fram kynni að koma hjá milliliðunum við slíka rannsókn. En ég spyr nú: Hefur nokkur hv. þm. séð niðurstöður og álit þessarar n.? Ég kannast ekki við það síðan yfirleitt að hafa nokkuð um hana heyrt. (BJ: Ég get upplýst, hvar þetta er niður komið.) Getur þú? (Bj: Já, það er hæstv. viðskmrh., sem stakk skýrslunni undir stól.) Hver var þá viðskmrh.? (BJ: Formaður n.) Formaður n., hver var það? (BJ: Gylfi Þ. Gíslason.) Nú, jæja, það eru upplýsingar, en ég hef ekki hingað til vitað það, að þessi skýrsla væri til, og mér kemur það mjög einkennilega fyrir sjónir, að starfsmaður n. og aðrir nm, skuli hafa sætt sig við það, að þeim mikilvægu upplýsingum, sem sjálfsagt er að finna í þessari ágætu skýrslu, hafi þannig verið algerlega stungið undir stól. En um það kann kannske að upplýsast síðar. (BJ: Það er upplýst.) Jæja, við sjáum til. En þá er aftur spurningin þessi, sem ég nefndi: Hvernig stendur á því, að nm. hafa sætt sig við slíka meðferð málsins?
En hvað sem þessu líður, vil ég sérstaklega vekja athygli á því, að tölur, sem birtar hafa verið, m.a. í nál. hv. 5. þm. Austf., Lúðvíks Jósefssonar, í Nd. um hækkun hundraðstölu álagningar, ber að taka með mikilli varúð. Það er að vísu rétt, að álagningarákvæðin voru allmikið rýmkuð snemma á árinu 1964, en hjá því varð ekki komizt vegna mjög hækkaðs tilkostnaðar í verzluninni, einkum eftir kjaradóm verzlunarfólks eftir áramótin 1964, er kaup þess hækkaði um allt að 40% eða meira. Það, sem hefur skeð í verzluninni síðan 1961, er það, að grunnur sá, sem álagningin er við miðuð, hefur lítið hækkað, en hins vegar hefur kostnaður sá, sem álagningin verður að bera uppi, jafnvel tvöfaldazt eða meira á þessu tímabili. Það var óhjákvæmilegt að taka tillit til þessa, og þær ráðstafanir, sem voru gerðar snemma á árinu 1964, voru í meginatriðum í því fólgnar, að álagningin, sem hafði verið lækkuð mjög hlutfallslega eftir gengislækkunina 1960, var færð í sama form og ákveðið hafði verið haustið 1958 af fulltrúum vinstri stjórnarinnar í verðlagsnefnd, sem þar réðu öllu, en auk þess voru nokkrir vöruflokkar gefnir frjálsir, einkum miður nauðsynleg vara svo og tízkuvarningur, sem sérstök áhætta þykir auðvitað að verzla með. Því miður get ég ekki gefið upplýsingar um það, enda liggur mér vitanlega ekki fyrir heildarrannsókn um það, hvað stór hluti vörunnar það er, sem er undir verðlagsákvæðum. Ég tel mig þó hafa nokkurn veginn áreiðanlegar upplýsingar um það, að í matvörunni eru það 75% af vörunni eða veltunni, sem háð er verðlagsákvæðum á einn eða annan hátt. Um aðalgreinar verzlunarinnar liggja því miður ekki fyrir slíkar upplýsingar, en vera má, að þessi hlutfallstala sé þar yfirleitt eitthvað lægri, þó að mjög sé það misjafnt í einstökum greinum verzlunarinnar.
Þá vil ég og benda á, að þegar farið er með slíkar tölur um hundraðstölu álagningar skiptir auðvitað það mestu máli, þegar meta á dreifingarkostnaðinn, hvað kaupmaðurinn raunverulega fær fyrir að dreifa vörunni, ekki hundraðshluti álagningarinnar, og vil ég í því sambandi benda á tvennt, sem þar skiptir máli: Í fyrsta lagi það, sem öllum hv. þdm. er kunnugt, að á margvíslegum varningi hafa tollar verið lækkaðir mjög verulega að undanförnu. Það var m.a. gert til þess að koma í veg fyrir smygl og af ýmsum öðrum ástæðum, sem kunnar eru. Þetta þýðir auðvitað það, að að óbreyttri prósentuálagningu fær kaupmaðurinn miklu minna en áður í krónum reiknað fyrir það að dreifa vörunni. Til þessa hefur verið tekið nokkurt tillit, sem að mínu áliti er ekki nema sjálfsagt og sanngjarnt, þegar ný ákvæði hafa verið sett á þessar vörur. Í öðru lagi ber þess að geta, sérstaklega miðað við þær aðstæður, sem nú eru, þegar búið er að gefa innflutninginn frjálsan, að það gefur ekki heldur rétta mynd af því, hvað kaupmaðurinn raunverulega fær fyrir að dreifa vörunni, þó að gerð sé athugun á því, hvað lagt er á svokallaðar kúrantvörur, eins og það er kallað á verzlunarmáli. Það tekst ef til vill að selja einhvern hluta af varningnum á þessu verði, en eins og við vitum öll, er það svo nú, þegar samkeppnin er orðin svo mikil í verzluninni sem raun er á, að svo og svo mikið af þessum varningi verða verzlanirnar síðar meir að setja á útsölur og selja þær þar kannske fyrir neðan innkaupsverð. Allt er þetta mál því miklu flóknara og vandasamara en kann að virðast í fljótu bragði, en ég dvel ekki lengur við þetta.
Þá kem ég að tölum þeim, sem hv. þm. las upp um þróun kaupmáttar launa. Þó að e.t.v. séu ekki sömu örðugleikar á því að rannsaka kaupmátt launa og álagningu, verður þó einnig í því efni um mörg álitamál að ræða, sem mjög verða mati háð. Ég get því miður ekki tímans vegna rætt þetta nema mjög stuttlega, en þar bætir það úr, að hálfbræður hv. þm. í anda, hv. framsóknarmenn, hafa nú lagt fram þáltill. um sérstaka rannsókn á þróun kaupmáttar launa og gefst þá tækifæri til að ræða þetta mál nánar, þótt það verði héðan af ekki fyrr en eftir þinghlé. En ég vil þó leyfa mér að benda á eftirfarandi atriði að gefnu tilefni vegna talna þeirra, sem hv. þm. fór með og ég vefengi út af fyrir sig ekki, svo langt sem þær ná.
Það er villandi að miða við árið 1959 í þessu sambandi, því að eins og ég áðan sagði, þegar ég minntist á hinn mikla gjaldeyrishalla á því ári, bar hann því vitni, að það ástand, sem þá var, gat ekki haldizt. Til langframa er aldrei hægt að halda uppi kaupmætti launa með stórfelldum lántökum erlendis, sem að verulegu leyti eru neyzlulán, og sízt af öllu miðað við þær kringumstæður, sem þá voru fyrir hendi, þegar engir gjaldeyrisvarasjóðir voru til.
Í öðru lagi vil ég leyfa mér að benda á, að vísitala framfærslukostnaðar er miklu réttari mælikvarði á þróun kjaranna en vísitala neyzluvöruverðs, en tölur þær, er hv. þm. fór með, munu byggjast á vísitölu neyzluvöruverðs, þó að mér skiljist, að eitthvert tillit sé að vísu tekið til nefskatta, því að ég hygg, að hv. 4. þm. Norðurl. v. hljóti að vera mér sammála um það, að ef kaup hækkaði t.d. um 10% og gæti hækkað svo mikið, án þess að verðlagið breyttist, en helmingur þeirrar kauphækkunar færi í útsvar og tekjuskatt, mundi það vera alveg rangt, sem samanburður við vísitölu neyzluvöruverðs mundi þá sýna, að kjörin hefðu batnað um 10%. Auðvitað hafa þau aðeins batnað um 5%, ef helmingur af þessum auknu tekjum er tekinn í útsvar og tekjuskatt. En í þeirri vísitölu framfærslukostnaðar, sem nú er notuð, er einnig tekið tillit til beinu skattanna, svo að auðvitað gefur hún réttari mynd af þróun kjaranna í heild.
Þá vil ég í þriðja og síðasta lagi varðandi þetta leyfa mér að benda á, að það er ekki rétt að bera saman aukningu kaupmáttar tímakaups og aukningu þjóðartekna. Þjóðartekjurnar hafa aukizt vegna yfirvinnunnar m.a., og því hafa þær aukizt meira en kaupmáttur tímakaups. Ef meta á því, hvort launþegar hafi bætt kjör sín í hlutfalli við þjóðartekjur, er því auðvitað eðlilegra að miða við atvinnutekjur eða ráðstöfunartekjur, og sé það gert, kemur í ljós, að kaupmáttur atvinnutekna eða ráðstöfunartekna, hvort heldur er miðað við, á tímabilinu 1960–1965 hefur aukizt meira en þjóðartekjurnar. Skv. tölum Efnahagsstofnunarinnar hafa raunverulegar þjóðartekjur á þessu tímabili aukizt um 32.2% á mann, en atvinnutekjur verkamanna í Reykjavík hafa á sama tímabili aukizt um 46.2%, reiknað á föstu verðlagi, en ráðstöfunartekjur um 36%, en hvor tveggja er hærri hlutfallstala en raunverulegar þjóðartekjur hafa aukizt. Hitt er svo auðvitað rétt, að lífskjörin hafa ekki batnað sem þessu nemur, ef vinnutími hefur lengzt, þótt hitt sé annað mál, að það er erfitt að meta frádrátt vegna þess tölulega.
En úr því að ég hef gert ræðu hv. 4, þm. Norðurl. e. og þær tölulegu upplýsingar, sem fram komu í henni, svo mjög að umtalsefni, vil ég ekki ljúka svo máli mínu að minnast ekki þeirra jákvæðu viðhorfa, sem í henni komu fram, og þeirra ummæla hans, sem ég tel ástæðu til að fagna, því að þrátt fyrir allt kom hjá honum fram skilningur á því, að ef verkalýðurinn á að geta vænzt árangurs í kjarabaráttu sinni, má ekki hjakka sífellt í sama farinu, nota alltaf sömu vígorðin og baráttuaðferðirnar, heldur laga sig að breyttum þjóðfélagsaðstæðum og grípa þau tækifæri, sem hverju sinni bjóðast. En það er einmitt vöntun á slíkum skilningi frá íslenzkum verkalýðsforingjum, sem öðru fremur hefur valdið því, að árangurinn í kjarabaráttunni hefur löngum verið svo magur sem raun hefur verið á, og á það ekki sízt við tvo síðustu áratugina. Hvað það snertir að knýja fram hærra kaup í krónutölu, hafa íslenzkir verkamenn að vísu met, samanborið við önnur Vestur-Evrópulönd, en það sama á því miður ekki við, ef meta á kauphækkanirnar til raunhæfra kjarabóta. Í því efni má vitna til útreikninga, sem hv. 3. þm. Reykv., Einar Olgeirsson, hefur á undanförnum þingum látið útbýta með frv., er hann hefur flutt, og bera þeir útreikningar einmitt þessu ömurlegt vitni. Tveir áfangar í baráttunni gnæfa þó þar upp úr, samkomulagið, sem núverandi forseti ASÍ, hv. 5. þm. Vestf., beitti sér fyrir til lausnar jólaverkfallinu 1952 og sætti þá miklu aðkasti fyrir af hinum svokölluðu róttæku öflum verkalýðshreyfingarinnar, og svo aftur júnísamkomulagið 1964. Það var að vísu samið þá um minni beinar kauphækkanir en oftast endranær, og í fyrra tilvikinu raunar ekki um neinar, en þær kjarabætur, sem um var samið, héldust hins vegar óskertar. Berum nú þetta saman við árangurinn af því, þegar að vísu hefur í bili tekizt að knýja fram 10–15% almennar kauphækkanir eftir langa og dýra verkfallsbaráttu, en svo hefur allt runnið út í sandinn í hækkuðu verðlagi, þannig að árangurinn í bættum kjörum hefur verið orðinn enginn, löngu áður en búið hefur verið að vinna upp herkostnaðinn við verkfallið.
Það hefur verið íslenzkri verkalýðshreyfingu mikill fjötur um fót, að til þessa dags hafa þeir, sem þar hafa lengst af ráðið ferðinni, lifað og hrærzt í hinum steinrunnu kennisetningum Marxismans, sem telja sífellda verkfallsbaráttu fyrir hærra kaupi það eina, sem verkalýðnum dugi. Þessar kenningar gátu haft sitt sannleiksgildi fyrir 100 árum, þegar þær komu fyrst fram, miðað við þá þjóðfélagsháttu, sem þá voru, þegar t.d. atvinnurekendur fengust yfirleitt ekki til þess að virða verkamenn og samtök þeirra viðtals. En jafnóraunhæfar og beinlínis skaðlegar eru þessar kennisetningar sem tæki til lausnar þeim vandamálum, sem við blasa í dag.
Ég vil ljúka máli mínu með því að segja, að ekki einungis árangur þeirra efnahagsráðstafana, sem í þessu frv. felast, heldur einnig flestra annarra slíkra ráðstafana er undir því kominn, að hagsmunasamtökin og þá ekki sízt launþegasamtökin taki afstöðu til þeirra á þeim grundvelli að meta á raunsæjan hátt eigin hagsmuni. Hér ber að þeim brunni, sem raunar er nú ekki orðið neitt nýtt sjónarmið, að ríkisvaldið og stéttasamtökin verða að setja sér leikreglur um sambúð sína, sem hindra það, að til átaka komi, sem báðum verða óumflýjanlega til tjóns. Slíkt samstarf, ef því nafni á að kalla, þarf ekki að byggjast á pólitískum ástum milli þessara aðila. Í lýðræðisþjóðfélagi verður aldrei tryggt, að forusta mikilvægra stéttasamtaka hafi sama pólitíska lit og ríkisstj., og vafasamt, hvort æskilegt er að gera ráðstafanir til að tryggja það út af fyrir sig, heldur verður það að byggjast á raunsæi eða því, að báðir aðilar geri sér ljóst, að án þess að taka a.m.k. að vissu marki tillit til hins aðilans getur hvorugur komið áformum sínum fram.