28.10.1966
Efri deild: 8. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 24 í B-deild Alþingistíðinda. (35)

34. mál, almannatryggingar

Alfreð Gíslason:

Herra forseti. Ég stend ekki hér til að andmæla þessu frv. efnislega og get lýst því strax yfir, að ég er því fylgjandi.

Ég vil aðeins hafa orð á því og minna á það, að þetta mál var til umr. hér í hv. d. fyrir 4-5 árum. Þá lagði ég það til, bæði við hæstv. þáverandi félmrh. og við hv. þd., að þessi mgr. yrði orðuð á þá leið, sem nú er lagt til. En árið 1962 var ekki tekið í mál að orða gr. á þá, lund, sem nú er gert ráð fyrir. Eins og tekið er fram í athugasemdum frv., er þetta orðalag, sem hér er gert ráð fyrir, miklu hagkvæmara, og af hagkvæmnisástæðum lagði ég til árið 1962, að þetta yrði þannig orðað. Ég hef orð á þessu, minni á þetta aðeins til þess að sýna fram á, hve hæstv. ríkisstj. er oft sein til að áttá sig á, hvað heppilegast er, og það gildir ekki aðeins um þetta litla mál, heldur mörg önnur og stærri mál. Hún virðist furðusein að hugsa, þegar um ,það er að ræða að koma einhverju góðu til leiðar.

Ég skal svo ekki hafa um þetta fleiri orð, aðeins geta þess, að mér þætti koma til greina að orða þetta nú á annan veg en hér er gert ráð fyrir og enn þá frjálsar, t.d. að gert yrði ráð fyrir, að ef um væri að ræða sérstakt sjúklingagjald, skyldi það ákveðið með reglugerð. Mér finnst sem sé koma til greina að afnema sjúklingagjaldið, sem hér er um að ræða, með öllu, en það yrði ekki hægt að gera með þessu orðalagi án nýrrar lagabreytingar.

Annars voru það aðallega tvö smáatriði í grg. frv., sem komu mér til þess að standa hér upp. Ég vil með örfáum orðum gera aths. við þessi tvö atriði.

Hið fyrra er, að í aths. segir svo, með leyfi hæstv. forseta: „Sjúklingagjaldið var á sínum tíma upp tekið að áeggjan læknasamtakanna.“ Þetta er gersamlega rangt. En þetta er ekki ný skröksaga, sem sögð er hér á Alþingi. Þetta var líka sagt árið 1956, þegar verið var að koma á þessu sjúklingagjaldi. Áður höfðu samlagsmenn notið ókeypis læknishjálpar utan sjúkrahúsa. 1956 var þessu breytt og sjúklingum gert að greiða nokkurt gjald fyrir hvert viðtal og hverja vitjun. En það var ekki að áeggjan læknasamtakanna, að þetta var gert, það var að áeggjan sjúkrasamlaganna. Sjúkrasamlögunum hafði þá um tíma blöskrað, hve lyfjakostnaður samlagsins var mikill. og af því tilefni var farið til læknasamtakanna og farið fram á það við þau, að slíkt gjald, aukagjald, yrði upp tekið, eingöngu til þess að reyna að lækka þennan lyfjakostnað, fækka heimsóknum til læknanna, afnema það, sem var kallað óþarfa heimsóknir til lækna. Þetta er sannleikurinn í málinu, og mér finnst rétt, að þetta komi fram við þessa umr., því að þetta mun víst aldrei hafa verið leiðrétt á Alþingi. Það voru ekki læknasamtökin, sem áttu upptökin, heldur sjúkrasamlögin, en það hefur kannske þótt hentara gagnvart almenningi að kenna læknunum um það en sjúkrasamlögunum, og það mun vera ástæðan til þess, að þessi skröksaga, sem hér er endurtekin, var sögð í upphafi.

Hitt atriðið, sem ég vildi lítillega minnast á, eru þessi orð í aths.: „Breyting þessi miðar ekki að tekjuhækkun fyrir læknana.“ Breytingin miðar ekki að tekjuhækkun fyrir læknana. Þetta á víst að vera sagt hv. alþm. til huggunar, það sé svo sem ekki meiningin með þessu að bæta launakjör eða starfskjör læknanna í landinu, enda væri það mjög óvenjulegt, ef hæstv. ríkisstj. tæki upp á slíku að erindi frumkvæði. Ég vil aðeins benda á þetta, en ég verð að segja og játa, að þessi setning undrar mig ekki, úr því að aths. eru runnar undan rifjum hæstv. ríkisstj.

Ég held því fram, að heilbrigðismál hafi hér á landi verið olnbogabarn stjórnarvalda frá ómunatíð, og það er engin ástæða til að ásaka hæstv. ríkisstj., er nú situr, fyrir, að hún sé öðrum ríkisstjórnum stórum verri að þessu leyti og þó vil ég segja, að sjaldan mun svartnættið í þessum efnum hafa verið jafnmikið og síðustu árin. Mér finnst skína í gegn í þessum orðum, sem ég las upp, afstaða ríkisstj. Hún vill segja: Það sé fjarri mér að vilja bæta kjör læknanna í landinu. — Hér er um að ræða mál, sem ástæða væri til að ræða á Alþingi og ræða ýtarlega. En því miður, áhugi á heilbrigðismálum hefur ekki verið og er ekki enn í dag mikill. Það er helzt, þegar yfirvöldin þurfa að kvarta yfir einhverju, að slík mál eru rædd. Við minnumst þess, að hæstv. fjmrh, gerði heilbrigðismálin, spítalamálin og læknamálin, að umræðuefni nú fyrir skömmu, — og í hvaða anda gerði hann það? Við munum það allir, ég þarf ekki að endurtaka það, en það var aðallega til þess að skamma vissan hóp lækna, atyrða þá fyrir þeirra gerðir, sem miðuðu að því fyrst og fremst að bæta læknisþjónustuna á helzta spítala landsins, Landsspítalanum. Við skulum ekki halda, að kröfur Landsspítalalæknanna á s.l. sumri hafi fyrst og fremst snúizt um launakjör þeirra, kröfurnar snerust að mestu um bætta starfsaðstöðu á þessum helzta spítala landsins.

Hæstv. fjmrh. minntist á fantatök í sambandi við þessar aðgerðir spítalalæknanna. Hann talaði blátt áfram um fantatök, og hann gaf í skyn, að ef þessi vitra og ábyrga hæstv. ríkisstj. hefði ekki gætt sín, hefði hér getað verið um líf og dauða að tefla. Þvílík firra! Læknar á Íslandi hafa aldrei hótað verkfalli, aldrei hótað því að sinna ekki sjúklingum. Ég veit, að það hefur komið fyrir annars staðar í Evrópu, en aldrei á Íslandi. En ræða þessa hæstv. ráðh., fjmrh., er talandi tákn um afstöðu núverandi stjórnarvalda til heilbrigðismála í landinu, til baráttunnar gegn sjúkdómum og til heilsuverndarstarfsins. Þannig eru ummælin í aths. um, að breyt. þessi miði ekki að tekjuhækkun fyrir lækna, algerlega í stíl við stefnu hæstv. ríkisstj. í heilbrigðismálum og ljós vottur um afstöðu hennar til þeirrar stéttar, sem ber hita og þunga heilbrigðisþjónustunnar í landinu á sínum herðum.

Árið 1961 gerðu læknar í þjónustu Sjúkrasamlags Reykjavíkur kröfu um bætta starfsaðstöðu, bætt starfskjör og einnig um launahækkun. Hvernig var brugðizt við þessum kröfum sjúkrasamlagslæknanna í Reykjavík? Forveri núverandi hæstv. félmrh. dembdi yfir þá þvingunarlögum, bauð þeim í krafti laganna að vinna í þjónustu sjúkrasamlagsins upp á þau býtí, sem hann skammtaði. Ekki var þetta gert til að firra sjúklinga vandræðum, því að læknarnir ætluðu svo sannarlega að halda áfram að vinna fyrir sjúklingana í borginni, en aðeins vildu þeir ekki vinna fyrir Sjúkrasamlag Reykjavíkur. En þessi voru viðbrögðin. Afleiðingin var, að mótstaða læknanna í Reykjavík var brotin á bak aftur þá og síðan, með eftirköstum, sem bitna harðast á hinum tryggðu, almenningi í Reykjavík. Fyrir þessa óbilgirni stjórnvaldanna árið 1961 hrakar með ári hverju læknaþjónustunni í Reykjavík utan sjúkrahúsa. Þetta fullyrði ég og stend persónulega ábyrgur fyrir því. Það er svo komið í sjálfri Reykjavík, þar sem allir vilja vera, að til Sjúkrasamlags Reykjavíkur, í þjónustu þess, vilja ungir læknar ekki ganga. Gamlir hjassar eins og ég vinna þar enn þá. Þeir eru hræddir að standa í stórræðum. En ungir læknar ganga ekki í þjónustu Sjúkrasamlags Reykjavíkur hin síðustu ár og sízt í þeim mæli, sem með þyrfti. Afleiðingin er sú, að Sjúkrasamlag Reykjavíkur skortir heimilislækna. Það eina, sem hefur hjálpað upp á sakirnar, er, að nokkrir miðaldra héraðslæknar utan af landi hafa sagt sínum störfum lausum þar til þess að setjast að á mölinni í höfuðstaðnum. Þetta er ástandið. Þetta eru hlutir, sem ég hygg, að hvorki hæstv. félmrh., sem að vissu leyti er heilbrmrh., né hæstv. fjmrh. né nokkur hæstv. ráðh. geri sér grein fyrir. Þeim er ekki ljóst, hve mikið illt getur hlotizt af óbilgirni stjórnarvaldanna í garð þeirra manna, sem vinna daglega að heilbrigðisþjónustunni í landinu.

Ég fer nokkuð mörgum orðum um þetta, og það er af þeirri ástæðu, að ég vil mjög skora á hæstv. félmrh., sem er tiltölulega nýr í sínu embætti og auk þess gegn og góður drengur, ég vil skora á hann að athuga ástandið í sjúkrasamlagsmálum Reykjavíkur, láta fram fara ranasókn í því efni og raunar öllu tryggingakerfinu í landinu.

Ég er og hef alltaf verið fylgjandi almannatryggingunum og viljað þeirra veg sem mestan. En ég þykist á síðari árum hafa tekið eftir því, að þar er ýmislegt að fara úrskeiðis, og það er með þetta kerfi eins og hvert annað, að það verður að gæta þess, að það staðni ekki, að það kalki ekki, en það er einmitt það sem er að gerast, og langmest hef ég orðið var við það, máske af eðlilegum ástæðum, hjá stjórn Sjúkrasamlags Reykjavíkur. Er það nokkur meining, að stjórn Sjúkrasamlags Reykjavíkur, svo að ég nefni dæmi, líti á sína starfsmenn, læknana, sem einhverja höfuðóvini, sem umfram allt verði að halda niðri, halda í fjötrum? Þetta er óheppilegt, og það er þess vert að benda stjórnarvöldunum á þetta. En því miður er ég hræddur um, að hvað þessa hæstv. ríkisstj. snertir, sé það til lítils. Ég vil samt hafa orð á þessu.

Það væri þarft verk, sem hæstv. félmrh. ynni, ef hann skipaði n. til að rannsaka þessi mál, þó að það væri ekki annað en hvað snerti viðskipti Sjúkrasamlags Reykjavíkur við starfsmenn sína, og þá sérstaklega læknana. Ef við níðum niður læknastéttina, launalega séð og starfskjaralega séð, bitnar það ekki harðast á læknunum. Það bitnar harðast á skjólstæðingum læknanna, sjúklingunum, almenningi í Reykjavík, og það er þess vegna, sem ég hef orif á þessu.

Hæstv. fjmrh. fræddi okkur á því í sinni fjárlagaræðu, að til heilbrigðismála væru ætlaðir 4.7 aurar af hverri krónu, sem úr ríkissjóði færi. Það var ekkert á honum að heyra, hvort honum fyndist þetta mikið eða lítið. En ég vil taka það fram, að mér finnst þetta vera lítið. Við þurfum, ef við ætlum að standa öðrum þjóðum á sporði í heilbrigðismálum, að verja nokkru meira fé en aðrar þjóðir, hlutfallslega. Ef við ætlum að sinna heilbrigðismálunum, svo sem vera ber, þyrfti að tvöfalda þessa upphæð árið 1967 eða þrefalda öllu heldur, ef vel ætti að vera. En þess í stað er það hið eina, sem heyrist frá hæstv. ríkisstj., að telja eftir svo til hvern eyri, sem til heilbrigðismála fer. Það var ekki aðeins verið að fjasa yfir því í ræðunni, sem ég nefndi, það var ekki aðeins verið að fjasa yfir því, að læknarnir gerðu miklar kröfur til launa, það var fjasað yfir miklum, auknum kostnaði í sambandi við stækkun Landsspítalans yfir höfuð og játað að vísu, að hæstv, ríkisstj. hefði ekkert vit á því, hversu mikil þörf væri á því, sem heimtað væri í auknum útgjöldum til Landsspítalans, hún yrði bara að styðjast við sína sérfræðinga. En hvers vegna í ósköpunum kynnir ekki hæstv. ríkisstj. sér þessi mál sjálí til að geta dæmt um þau? Ef um væri að ræða hafnarbætur einhvers staðar eða einhvern annan hégóma, mundu hæstv. ráðh. skammast sín fyrir að segja frá því, að þeir hefðu ekkert vit á málinu, en það er fínt að hafa ekkert vit á heilbrigðismálum. Það er á sama hátt fínt fyrir ráðh. að hafa ekkert vit á heilbrigðismálum, eins og það var talið fínt í mínu ungdæmi og gáfulegt að skilja ekki kvæði Einars Benediktssonar.

En ég skal ljúka þessum orðum mínum og láta í ljós að lokum það traust til hæstv. félmrh., að hann hugleiði þessi mál og kynni sér þau í Reykjavík, sérstaklega ástand tryggingamála og sjúkrasamlagsmála.