28.10.1966
Efri deild: 8. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 32 í B-deild Alþingistíðinda. (38)
34. mál, almannatryggingar
Alfreð Gíslason:
Herra forseti. Ég vil aðeins leiðrétta misskilning, sem kom fram hjá hæstv. félmrh. Ég var ekki að skora á hann að hlutast til um endurskoðun á l. um almannatryggingar. Ég viðurkenni, að þar hefur margt verið vel gert; og þarf þó að gera betur, eins og hann tók sjálfur fram. Það eru mál, sem þurfa að vera í sífelldri endurskoðun. En ég skoraði á hæstv. félmrh, að kynna sér eða láta athuga fyrir sig ástandið í tryggingamálum, í Reykjavík sérstaklega. Þá á ég við framkvæmd l. í fyllstu merkingu þess orðs. Það væri t.d. fróðlegt fyrir hæstv. ráðh. að fá upplýsingar um það, hve margar þúsundir sjúkrasamlagsmanna í Reykjavík hafa ekki heimilislækni í dag. Það er í sjálfu sér mál, sem er alvarlegt. Þetta nefni ég sem eitt dæmi. Það væri líka fróðlegt fyrir hæstv. ráðh. að kynna sér, hversu heilbrigð er afstaða stjórnar Sjúkrasamlags Reykjavíkur til læknasamtakanna og sérstaklega þá, eins og ég sagði áðan, til þeirra lækna, sem eru í þjónustu samlagsins. Í heild held ég, að ekki væri úr vegi, að það færi þarna fram eins konar læknisskoðun á því, hve langt kölkunin er komin í þessu kerfi? Það er þetta, sem ég átti við.
En hæstv. fjmrh. þarf ég nú í raun og veru ekki að svara neinu. Hann sat við sinn keip, vildi ekki taka neitt af því aftur, sem hann hafði sagt í sinni frægu fjárlagaræðu. Þetta sýnir okkur betur en nokkuð annað, hvernig skilningurinn er á heilbrigðismálunum í landinu og hvernig skilningurinn er gagnvart þeim mönnum, sem starfa í heilbrigðisþjónustunni. Það kom t.d. mjög greinilega fram hjá þessum ráðh. í hans ræðu á dögunum, að hann harmaði, — blátt áfram hann harmaði það, að hæstv. ríkisstj. skyldi ekki koma við þvingunaraðgerðum gagnvart þessum læknahópi í Landsspítalanum. (Gripið fram í.) Já, með leyfi hæstv. forseta, hann segir svo í sinni fjárlagaræðu, hæstv. fjmrh.:
„Vafalaust munu ýmsir liggja ríkisstj. á hálsi fyrir það að hafa ekki tekið á þessu máli með hörku. En ég hygg, að flestir muni þó við nánari athugun sannfærast um það, að hér var ekki með góðu móti auðið að koma fram þvingunaraðgerðum.“
Hvað felst í þessu: Það var ekki auðið með góðu móti að koma fram þvingunaraðgerðum? Þetta er harmað, að það skyldi ekki vera hægt að gera þetta með góðu móti. En hvenær er hægt að koma þvingunaraðgerðum fram með góðu móti? Það er svo aftur annað mál, það hélt ég að væri aldrei hægt. En hæstv. ríkisstj. virðist þó ekki vera í vandræðum með það þessi síðustu árin að beita þvingunaraðgerðum og það með góðu móti. En ég hefði heldur talið, að það væri fjarstæða að tala um þvingunaraðgerðir, gerðar með góðu móti. Það hélt ég, að væri alltaf neyðarúrræði.
Nei, öll framkoma hæstv. ríkisstj., bæði þessara hæstv. ráðh. nú í þessum umr, svo og yfirleitt, sýnir það, hversu mikil þörf er á að taka heilbrigðismál þjóðarinnar upp til gagngerðrar endurskoðunar og þá fyrst og fremst meðferð og yfirstjórn þeirra, því að það er gersamlega ófært kerfi, eins og það nú er. Það er kunnugt og vitað. Hér er nú fyrst og fremst ekkert heilbrigðismálaráðuneyti. Heilbrigðismálin — eða hluti þeirra — eru höfð, að mér er sagt, í einhverju horni í dóms- og kirkjumrn., og þar er unnið að þessum málum með höppum og glöppum, eftir því sem tími vinnst til. Þegar þjónustumenn heilbrigðismálanna fá bréf frá stjórnarráðinu, er alltaf á bréfhausnum „dómsog kirkjumálaráðuneytið“, en ekki heilbrigðismálaráðuneytið. Auk þess eru heilbrigðismálin úti um hvippinn og hvappinn í stjórnarráðinu. Það er t.d. ekki lítill hluti af heilbrigðismálunum, sem heyrir undir félmrn. Allt þetta þyrfti nauðsynlega að taka til gagngerðrar endurskoðunar og endurskipuleggja sérstaklega yfirstjórn heilbrigðismálanna.