06.02.1967
Neðri deild: 35. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 598 í B-deild Alþingistíðinda. (396)
95. mál, varnir gegn útbreiðslu næmra sauðfjársjúkdóma
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Eins og sjá má í grg. þessa frv., hefði mátt ætla, að það hefði verið flutt fyrr inn í hv. Alþ. En þannig var nú ástatt, að frv. barst til rn. undir þinglok 1966 og gafst því ekki tími þá til þess að bera það fram. Enda þótt n., sem samdi frv., hefði skilað því af sér 16. febr. 1966, þá féll málið einhvern veginn þannig á milli, að það kom ekki fram í rn. fyrr en undir þinglok. Þetta ætti ekki að koma að sök, ef frv. yrði að lögum á þessu þingi. En frv. þetta er samið að tilhlutan landbrn.
Með bréfi landbrh. 28. jan. 1965 var sauðfjársjúkdómanefnd falið að taka til endurskoðunar lög um sauðfjárveikivarnir og gera till. um breyt. á þeim í samráði við Guðmund Gíslason lækni og Pál A. Pálsson yfirdýralækni, og komið höfðu fram till. frá Guðmundi Gíslasyni, sem voru látnar fylgja bréfinu.
Eins og sjá má í 1. gr. frv. er gert ráð fyrir því, að lögin nái hér eftir til fleiri sjúkdóma en áður, og orðið mæliveiki er fellt niður, vegna þess að mæðiveiki er nú talið að hafi verið útrýmt, og vonandi sækir sá vágestur okkur ekki heim á ný.
Þá er í 2. gr. gert ráð fyrir að fella niður síðustu orðin, þ.e. fjárskiptum innanlands. Er litið svo á, að sú aðferð geti naumast hér eftir verið aðalatriði í hindrun á útbreiðslu og útrýmingu sauðfjársjúkdóma.
Í 3. gr. frv., þ.e. II. kafla, 5. gr., eru lagðar til nokkrar breytingar á verkefni sauðfjársjúkdómanefndar. Eru þær fólgnar í því, að n. stuðli að heilbrigðiseftirliti og auknum rannsóknum á sauðfjársjúkdómum, einnig að hún geri viðeigandi varúðarráðstafanir, ef grunur kemur upp um aukna sýkingarhættu og ef sóttvarnarreglur eru brotnar eða vanræktar.
Þá er lagt til samkv. 4, gr., að kaflinn heiti: „Um sauðfjárvarnarsvæði og varnir“ í stað „Um varnarlínur og varnir“. Er þetta aðeins orðalagsbreyting, sem segja má, að skipti ekki miklu máli, en virðist þó fara betur.
Þá er gert ráð fyrir, að 9. gr. l. verði breytt, þar sem gengið er út frá því, að varnarlínum verði haldið við minnst 9 ár, eftir að fjárskipti hafa farið fram á aðliggjandi svæðum. Í till. er lagt til, að 9 ára tímabilinu sé sleppt, en í staðinn komi, að varnarlínunni sé haldið við, þar til fullvíst þykir, að búfjársjúkdómar geti ekki leynzt öðrum megin línunnar.
Í 7. gr., breyt. við 13. gr. 1., er gert ráð fyrir verulegri efnisbreytingu. Eins og gr. er nú, er algert bann við því að flytja sauðfé til lífs yfir varnarlínur nema vegna fjárskipta. Reynslan hefur sýnt, að þetta ákvæði torveldar mjög kynbætur 5 sauðfé í landinu, og hafa nú síðari árin færzt mjög í aukana kröfur um, að hér verði breyting gerð á. Er því lagt til, að sauðfjársjúkdómanefnd fái heimild til að leyfa flutning á kynbótafé yfir varnarlínur með mjög ströngum skilyrðum. Er gert ráð fyrir, að sett verði sérstök reglugerð um slíka flutninga auk þeirra ákvæða, sem nú eru í lagagr. þessari.
Þá er breyting við 14. gr. l. og bætt við heimild fyrir sauðfjársjúkdómanefnd til að banna fjárflutninga innan sauðfjárvarnarsvæða. Er þá einkum átt við það, að ef varnarlína er lögð niður, sé eins fyrir því hægt að banna t.d. flutning á heilum fjárbúum yfir línuna.
Við 15. gr. l. er sú breyting, að sauðfjársjúkdómanefnd geti fyrirskipað, að slátrun á fullorðnu fé verði sameinuð í lok sláturtíðar eða þegar hentugt þykir, einnig að sláturleyfishafar annist söfnun, merkingu og geymslu líffæra. Þessi ákvæði eru hugsuð til þess að auðvelda nauðsynlegar líffærarannsóknir.
Þá eru nokkrar fleiri smávegis breytingar, sem ekki skipta neinu verulegu máli. En n., sem samdi frv., þeir Guðmundur Gíslason, Páll A. Pálsson, Sæmundur Friðriksson, segja hér sem lokaorð, að allar þær breytingar, sem hér er lagt til að gerðar verði á l., séu í samræmi við reynslu þá, sem fengizt hefur við framkvæmd þeirra þann tæpa áratug, sem liðinn er, síðan þeim var síðast breytt, engan þurfi að undra, þótt þörf sé á að breyta löggjöf eftir svo langan tíma um starfsemi eins og þá, sem hér um ræðir. Þessar breytingar eiga ekki að hafa í för með sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð, heldur er hér aðeins um breytingar á framkvæmd l. að ræða, gera lagaákvæðin skýrari og einfaldari en þau nú eru og byggja á því, sem nú er nauðsynlegt að hafa í gildi miðað við framkvæmdir, en aftur sleppt því, sem sýnist vera orðið úrelt og tilheyrir fortíðinni.
Herra forseti. Ég legg til, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. landbn.