27.02.1967
Efri deild: 44. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 601 í B-deild Alþingistíðinda. (403)
95. mál, varnir gegn útbreiðslu næmra sauðfjársjúkdóma
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Frv. þetta er komið frá hv. Nd. Það var samið af sauðfjársjúkdómanefnd í samvinnu og samráði við Guðmund Gíslason lækni og Pál A. Pálsson yfirdýralækni, og fylgir frv. grg.
Það er ekki gert ráð fyrir, að þessar breytingar, ef að l. verða, hafi í för með sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð. Grg. sú, sem fylgir frv., segir í rauninni allt um það, hvað í frv. felst. Frv. miðast við það, að mæðiveikin gamla, sem lengi hefur herjað hér, er talin vera útlæg orðin, og breytingar eru þess vegna gerðar um það, að l. nái ekki aðeins til mæðiveikinnar, heldur og til fleiri sauðfjársjúkdóma, ef upp kynnu að koma. Þá eru nokkur ný ákvæði um varnarlínur, viðhald girðinga o. s. frv. Þá er einnig ákvæði um það, að heimilt skuli vera að flytja fé á milli ýmissa héraða, þar sem sjúkdómar hafa ekki herjað áður, en það hefur verið algerlega bannað fram að þessu og hefur m.a. átt þátt í því að hindra kynbætur í ýmsum landshlutum.
Hv. Nd. samþ. frv. með lítils háttar breytingum, sem eru ekki neinar meiningar-, heldur aðeins orðalagsbreytingar.
Ég tel, herra forseti, að þar sem skýringar eru svo nákvæmar með frv. sem sjá má, sé ekki ástæða til þess að hafa þessi orð fleiri, en legg til, að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. landbn. að lokinni þessari umr.