13.03.1967
Efri deild: 52. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 602 í B-deild Alþingistíðinda. (405)
95. mál, varnir gegn útbreiðslu næmra sauðfjársjúkdóma
Frsm. (Bjartmar Guðmundsson):
Herra forseti. Lagabálkur þessi um varnir gegn útbreiðslu næmra sauðfjársjúkdóma fjallar einkum um svonefnda þurramæði og garnaveiki í sauðfé, en getur þó einnig náð til fleiri næmra sjúkdóma í búfé. Lög um þetta efni voru sett fyrst, þegar hafizt var handa um útrýmingu mæðiveikinnar eða hinna alræmdu karakúlsjúkdóma, sem bárust hingað til lands um 1934, að ég ætla, og komu fyrst upp í Borgarfirði og Þingeyjarsýslu, Í fyrstu var tilgangur laganna að stöðva útbreiðslu pestanna með miklum varnarlínum, girðingum og fjárskiptum, þ.e.a.s. förgun á sýktu fé og grunuðu, og taka fyrir svæði og svæði og girða þau af og hafa fjárlaus eitt til tvö ár í byrjun, flytja síðan inn nýtt, ósýkt fé. Þetta hefur tekizt þannig, að fjárpestir þessar hafa ekki valdið mjög miklu tjóni nú í seinni tíð, og haldið er, að tekizt hafi að útrýma einni tegund þessara fjárpesta, mæðiveiki. Aftur á móti er svonefnd þurramæði enn að skjóta upp kollinum á stöku stað, og garnaveiki er landlæg í stórum landshlutum og er haldið í skefjum með bólusetningu og ýmiss konar varnarráðstöfunum, varnarlínum, þar sem fé er varnað að fara yfir tilteknar línur, til að forða því frá að ganga innan um hið sýkta fé.
En af langri reynslu hafa þeir menn lært nokkuð, sem við þessi mál hafa fengizt, og telja nú þörf á að breyta ýmsum ákvæðum laga þessara með hliðsjón af reynslunni og breyttum tímum. Guðmundur Gíslason læknir hefur allra manna mest unnið að því að stemma stigu við útbreiðslu þessara sjúkdóma og er aðalhöfundur að þeim breytingum, sem hér er lagt til að gera á eldri lögum, sem munu vera í þeirri mynd, sem þau nú eru, frá 1956. Með honum hafa unnið að samningu þessara breytinga sauðfjársjúkdómanefnd og yfirdýralæknirinn, Páll A. Pálsson, að frumkvæði landbrh. Gerð er nú einhver breyting á 15 greinum l. frá 10. marz 1956, nr. 23, og miða breytingar að því, að fyrirbyggja sem mest, að sjúkt og heilbrigt fé nái að hittast, og auka frá því, sem verið hefur, rannsóknir og leit að sjúkdómum, þar sem þeir kynnu að leynast. Þá er í smærri atriðum breytt nokkrum ákvæðum varðandi varnarlínur og viðhald þeirra. Enn er sú breyting gerð á lögunum, eða er ætlað að gera á lögunum, að nú er ekki gert ráð fyrir fjárskiptum í stórum stíl, sem upphaflega var tilgangur laganna um varnir gegn útbreiðslu næmra sjúkdóma. Af reynslu þykir nú mega ráða, að komast megi hjá svo stórfelldum og kostnaðarsömum aðgerðum, ef allrar varúðar er gætt, sem í frv. er gert ráð fyrir.
Þess ber að geta, að ekki er gert ráð fyrir auknum kostnaði, þó að þetta frv. verði samþykkt, við varnir þessar og ekki heldur að draga úr bótum til bænda, sem verða fyrir stórfelldu tjóni af völdum sauðfjársjúkóma.
Landbn. hefur leitazt við að fara vandlega yfir þetta frv. og leggur til, að það verði samþykkt. Tveir hv. landbúnaðarnefndarmenn gátu ekki mætt á þeim fundi, þar sem málið var afgreitt.