14.02.1967
Neðri deild: 41. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 632 í B-deild Alþingistíðinda. (422)
22. mál, námslán og námsstyrkir
Frsm. (Benedikt Gröndal):
Herra forseti. Út af brtt. þeim, sem hv. síðasti ræðumaður flutti, vil ég skýra frá því, að efni það, sem í þeim felst, var í öllum þrem tilvikum rætt í menntmn. Það komu fram till. frá samtökum stúdenta um það, að lögfest yrði, að takmarki því, sem fram kemur í 2. gr. frv. um að sjá námsmönnum fyrir allri þeirri umframfjárþörf, sem reynist vera hjá þeim, — till. frá þeim kom um að ná þessu marki á ákveðnu árabili. En menntmn, treysti sér ekki til að leggja það til, hreinlega af fjárhagsástæðum. Frv., eins og það liggur fyrir, gerir ráð fyrir stóru skrefi, þar sem heildarfjárveitingar fara t.d. á einu ári úr 20.1 í 29.8 millj., og við sáum ekki fram á, að það mundi vera hægt að ná samkomulagi við þá aðila, sem mundu þurfa að sjá fyrir fjármunum, um það að ganga lengra. Þess vegna treystum við okkur ekki í n. til þess að taka upp till. um að ná þessu marki á ákveðnu árabili.
Í sambandi við það að taka sérstakt tillit til stúdenta, sem eru orðnir fjölskyldumenn á námsárum sínum, lít ég þannig á, að það geti falizt í frv. eins og það er. Í 4. gr. er stjórn sjóðsins falið það m.a. að annast gagnasöfnun varðandi þörf námsmanna á opinberri aðstoð, og samtök stúdentanna lögðu mjög mikið upp úr þessu atriði, vildu raunar hafa sterkara orðalag. En n. taldi, að þetta mundi duga, og lít ég þannig á, að fjölskyldur stúdenta, þar sem þriðjungur þeirra er nú fjölskyldumenn, og sá kostnaður, sem er í sambandi við það, hljóti að ganga inn í útreikninga n. varðandi fjárþörf og að síðan yrði tekið tillit til svo mikilsverðs atriðis í framkvæmd laganna.
Loks er atriðið um það, að ríkið greiði vexti af lánum, sem sjóðurinn tekur, fram yfir það, sem hann getur sjálfur. Þar er sömu sögu að segja og um 2. gr. Það reyndist ekki vera unnt að fá samkomulag við þá, sem bera ábyrgð á því að afla fjár til þessara þarfa eins og annarra, að ganga lengra að sinni, og n. treysti sér því ekki til þess að leggja þetta atriði til.
Hæstv. forsrh. benti á lög um forgangsrétt kandídata til embætta í sambandi við brtt, við 1. og 8. gr. Mér virðist ekki, að það sé óhjákvæmilegt, að það sé samband á milli þessara tveggja laga og það sé ekki hægt að breyta öðrum án þess að breyta hinum. Ef það er nauðsynlegt vegna laga um forgangsrétt kandídata til embætta að taka það fram í 1., að ekki megi styrkja menn til náms erlendis, ef hægt er að ljúka því hér á landi, hefði átt að setja þetta í lög fyrr, því að lögin um forgangsréttinn til embætta eru gömul, en það er núna fyrst, sem lagt er til, að þetta þrönga ákvæði sé sett í lög. Hér er nú raunar ekki um efniságreining að ræða milli n. og hæstv. ráðh., heldur aðeins um áherzlu. Annars vegar hefur ekkert staðið um það í l., að það sé bannað að styrkja fólk til náms erlendis, sem hægt er að stunda hér. Hins vegar hefur í framkvæmdinni verið höfð hliðsjón af því, hvort hægt væri að stunda nám hér, og reynt að tryggja það, að ekki væri gengið þarna út í neinar öfgar. Hins vegar er nú talað um að lögfesta, að ekki megi veita slíka styrki að jafnaði, þannig að segja má, að hvort kerfið sem er er sveigjanlegt, og ég hygg, að aðalatriði málsins sé, að þetta verði framkvæmt á mannlegan og sveigjanlegan hátt, þannig að tekið verði tillit til aðstæðna hverju sinni. Það má taka fram, að áður fyrr var háskólanám og embætti talið vera nátengt hvort öðru og menn, sem luku prófum við háskóla, mundu flestir fara í opinber embætti. En sú tíð er löngu liðin. Mikill hluti af því unga fólki, sem lýkur háskólanámi í ýmsum fögum, fer alls ekki eða hugsar sér alls ekki að fara til starfa hjá hinu opinbera, heldur hjá ýmsum greinum atvinnuvega eða hálfopinberra eða einkastofnana, þannig að þessi ákvæði mundu ekki verða takmarkandi nema á tiltölulega fáa, og er þá þess að gæta, að einmitt þær námsgreinar, sem eðlilegast er að stunda, ef menn ætla sér að komast til opinberra embætta eða alls þorra þeirra, eru þær háskólagreinar, sem við veitum fullkomnasta og víðtækasta kennslu í, og er því ekki veruleg ástæða til að ætla, að þarna þurfi að verða árekstur. Þar að auki má benda á, að undanfarin ár hefur, að ég bezt veit, ekki oft komið til kasta þessara laga. Í stórum greinum, eins og t.d. læknisfræðinni, eru allir þeir útskrifaðir læknar, sem vilja vinna hér á landi, teknir til starfa, og kemur sjaldan til þess, að um forgangsrétt þarf að fjalla. Svo er raunar um mörg svið, t.d. í kennslu, nema þá helzt í einstaka fræðigreinum við háskólann. Annars er sjálfsagt, að n. líti nánar á þetta og ég geri ráð fyrir því, að henni gefist tækifæri til þess á milli 2. og 3. umr. málsins.
Í sambandi við 5. gr. kann það að vera rétt, að ef till. n. er samþ., sé ekki lengur heimild í l. fyrir stjórn lánasjóðsins til þess að krefjast tryggingar. Ég er nú ekki löglærður maður, en er ekki viss um, að það sé nauðsyn til þess, að það sé beinlínis lagaheimild til þess, að aðili, sem hefur vald til þess að veita lán, geti, ef honum sýnist nauðsynlegt, krafizt einhvers konar tryggingar. Hitt var hugur n., að láta koma greinilega fram í nál., hvað hún átti við með þessari breytingu, og mátti heyra á orðum hæstv. ráðh., að hann hafði tekið eftir því. Og er þá bezt að leita álits þeirra, sem sérfróðir eru í slíkum lagahlutum, hvort orðalagið þarf að vera eins og það var eða getur verið eins og n, vill hafa það, því að ekki er að heyra neinn ágreining um efni málsins. Er sjálfsagt, að n. geti litið á þetta einnig á milli 2. og 3. umr.