20.02.1967
Neðri deild: 43. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 639 í B-deild Alþingistíðinda. (431)
22. mál, námslán og námsstyrkir
Einar Ágústsson:
Herra forseti. Ég vil þakka 5. þm. Vesturl. fyrir þau svör, sem hann gaf við því máli, sem ég hreyfði hér áðan. Með því að þetta frv. hefur verið nokkuð lengi til meðferðar og er nú komið á lokastig hér í hv. d., mun ég ekki bera fram brtt. við 1. gr. af tilefni þeirra aths., sem ég hafði fram við þetta að færa áðan, en ég tel, að þær upp lýsingar, sem hv. formaður n. gaf hér áðan, gefi vísbendingu um það, að löggjafinn ætlist til þess, að þeir nemar, sem nema tækninám við innlendan skóla, geti einnig komið til greina við námslaun og námsstyrki, og sá skilningur fullnægir mér. Ef síðar kynni að verða vafamál um þetta í meðferð Alþ., er sá möguleiki, að hv. n. í Ed. taki þetta til athugunar, og þess vegna mun ég ekki að svo stöddu gera neina till. í málinu.