15.11.1966
Neðri deild: 16. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 654 í B-deild Alþingistíðinda. (454)
20. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Fjmrh (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Hv. 1. þm. Norðurl. v. hefur gert hér að umtalsefni tvö atriði í sambandi við tekjustofnamál sveitarfélaga, sem hann telur mjög mikils virði að séu tekin til endurskoðunar og lagfæringar. Ég hef ekkert við þessar skoðanir hans að athuga, en vil aðeins í því sambandi víkja að örfáum staðreyndum þessa máls.
Í fyrsta lagi vil ég minna hv. þdm. á, að það er skammt síðan tókst að koma í nokkurn veginn heillegt kerfi tekjustofnamálum sveitarfélaga, þ.e.a.s. álagningu útsvara. Til skamms tíma var það meginregla, að útsvör til sveitarfélaga voru á lögð eftir efnum og ástæðum, og þá voru útsvarsstigar mjög mismunandi um landið, þannig að það var talið, að þeir væru kannske 50–60 og voru sjaldan sömu stigar notaðir nema í 2–3 sveitarfélögum, heldur var allt tilviljun háð, hvernig að var farið, og útsvarsálagningin miðuð við þá meginstefnu að ná með einhverjum hætti þeim peningum, sem sveitarsjóðurinn þurfti á að halda til sinna framkvæmda. Þetta var að sjálfsögðu mikið öryggisleysi fyrir fólkið, og niðurstaðan varð sú, að eftir mikið þref, ég endurtek það: eftir mikið þref, vegna þess að það mætti mikilli andstöðu frá ýmsum sveitarstjórnarmönnum, komu menn sér niður á það að fækka þessum útsvarsstigum mjög. Í sambandi við síðustu breytingu útsvarsl. var svo horfið að því að fækka þessum stigum enn meira, þannig að nú er útsvarsálagningin yfir allt landið byggð á sömu útsvarsstigum. Meginreglan er því alls staðar hin sama. Það þótti hins vegar óumflýanlegt, og á það var lögð hin ríkasta áherzla af sveitarstjórnarmönnum, að það yrði að vera eitthvert svigrúm til þess, að sveitarfélögin gætu aflað sér tekna eftir sínum þörfum, ef útsvarsstigarnir nægðu ekki til, og þá var á sett þessi regla, sem hv. þm. vitnaði til, að sveitarstjórnum er heimilað annaðhvort að veita afslátt eða þá að hækka álagningu samkv. þeim útsvarsstigum, sem gildandi eru í l. um tekjustofna sveitarfélaga. Þetta vitanlega skapar visst misrétti, þannig að útsvörin eru ekki hin sömu um allt landið, og þarna munar verulega. Hér kemur einnig það til við hin miklu hlunnindi, sem mörg sveitarfélög hafa með tilkomu jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, þar sem úthlutað er til sveitarfélaganna eftir föstum og ákveðnum reglum, að þá verður munurinn enn þá meiri, þannig að þess munu dæmi, að það er veittur jafnvel upp í 60% afsláttur frá hinum löggilta útsvarsstiga. En annars vegar er það svo, eins og hv. þm. sagði, að í einstaka tilfellum hefur orðið að fara upp í 20% álag á útsvarsstigann, en það er það hámark, sem leyft er. Og það er jafnframt rétt, að til þess að geta notið aðstoðar úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga er skylt að nota hámarksálagninguna, ef ekki tekst með öðrum hætti að ná saman endum. Og nú síðustu tvö árin hafa sum sveitarfélög, fyrst og fremst og ég hygg eingöngu á Norðurlandi, neyðzt til þess vegna atvinnuörðugleika, sem þar hafa verið, og lítilla tekna hjá bæði fyrirtækjum og einstaklingum að leita til jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og orðið þá um leið að fylgja þessari reglu um hámark álags á útsvörin. Þetta er auðvitað mjög hættulegt, um það er ég hv. þm. alveg sammála. Ekki sízt er það hættulegt einmitt í sveitarfélögum, sem ár eftir ár búa við atvinnuörðugleika og fyrirtækin þar þess vegna sérstaklega illa sett. Hv. þm. benti í þessu sambandi einkum á aðstöðugjöldin. Það er vitanlega alveg rétt, að ef fyrirtæki búa til langframa við miklu lakari kjör í einu sveitarfélagi en öðru, er hætt við, að þau gefist upp og flytji burt sína starfsemi. Þetta á auðvitað ekki eingöngu við atvinnufyrirtækin, og ég veit ekki, hvort er ástæða til að gera hér meira úr aðstöðugjöldum fyrirtækjanna heldur en álagningu á borgarana sjálfa. Þetta t.d. er mjög hættulegt varðandi ýmsa einstaklinga, sem hafa háar tekjur og eru kannske ekki meira en svo bundnir með það, hvort þeir búa í þessu sveitarfélagi eða öðru, og á ég þar t.d. við sjómenn, einkum síldveiðisjómenn, þar sem þetta hefur orðið sérstaklega áberandi í hinum ýmsu sveitarfélögum, sem hafa orðið að nota þessa aukaálagningu, að það hefur vofað yfir, að þessir menn, sem eru beztu gjaldendurnir, teldu sig knúða til þess að flytja burt til annarra staða, þannig að þetta á auðvitað bæði við fyrirtækin og einstaklingana.
En ég vek hins vegar athygli á því, að hér er um mjög veigamikið vandamál að ræða og alls ekki svo einfalt, að það sé hægt fyrir þingnefnd að fara að breyta þessu ákvæði, annars vegar um aðstöðugjöldin og hins vegar um heimildir til að leggja á aukaútsvör. Hér stöndum við andspænis miklu víðtækara vandamáli. Sveitarfélögin verða með einhverjum hætti að fá peninga til þess að standa undir sínum óhjákvæmilegu útgjöldum. Mikill hluti þeirra útgjalda er lögbundinn, og verður ekki komizt undan að greiða þau, og ef við ætlum að lagfæra þennan vanda, verður auðvitað að taka kerfið í heild til athugunar, og það verður aldrei gert með skyndiathugun hér á Alþ. Þetta hefur verið rætt við sveitarstjórnarmenn, og þeir gera sér fulla grein fyrir þessum vanda, en málið er ákaflega flókið. Það getur vel verið, að það finnist einhvern tíma hljómgrunnur fyrir því að taka upp jöfnunarútsvör um allt land og hafa síðan jöfnunarsjóð sveitarfélaga, sem deili þessu niður milli sveitarfélaganna aftur eftir einhverjum ákveðnum reglum. En ég er ákaflega hræddur um, að það eigi nokkurt vatn eftir að renna til sjávar, áður en menn sameinast um þá lausn og áður en þau sveitarfélög, sem þá yrðu verr úti og hafa getað búið betur að sínum gjaldendum en önnur, mundu fallast á slíka skipan mála, þannig að allt þarf þetta mjög vandlega athugun og er ekki til þess fallið, að það sé hægt að gera það með skyndibreytingu og allra sízt í sambandi við það frv., sem hér er um að ræða.
Ég sem sagt persónulega hef ekkert að athuga við þessar skoðanir hv. þm., tel, að þær eigi fullan rétt á sér og þetta sé mál, sem hljóti að koma til athugunar. En ég vara mjög við því að fara að gera á þessu einhverjar breytingar hér í þingi í sambandi við þá breytingu, sem hér er verið að ræða um á tekjustofnamálum sveitarfélaga, þar sem ég hygg, að allir hv. þm. munu komast að raun um, að það er rétt, sem ég hef sagt, að hér er um miklu flóknara vandamál að ræða en það sé hægt að taka þeim tökum. Ég get hins vegar skýrt frá því hér, að þetta mál allt hlýtur að koma til heildarathugunar nú einmitt um þessar mundir. Það er unnið að því að athuga möguleika á að koma hér á staðgreiðslukerfi skatta, og það kemur í ljós í því sambandi, að okkar skattalög, bæði varðandi skattgreiðslu til ríkis og sveitarfélaga, eru ákaflega óhentug og flókin og margbrotin miðað við möguleikana á því að innleiða þetta kerfi, og það þarf áreiðanlega að gera mjög víðtækar breytingar á gildandi skattalögum okkar ná, bæði til sveitarfélaga og ríkis, ef á að vera með góðu móti hægt að innleiða þetta kerfl. Og það er ekki hvað sízt sérstakt vandamál í sambandi við kerfið, hversu misjafnir útsvarsstigar eru gildandi í hinum einstöku sveitarfélögum, þannig að það kann vel að vera, að ef á að beita þessu kerfi við útsvörin, verði óumflýjanlegt að taka upp sama útsvarsstiga um land allt, bæði varðandi tekjuútsvör og aðstöðugjöld, og finna þá einhver þau úrræði að jafna hér á milli sveitarfélaga með öðrum hætti, t.d. á þann hátt, eins og ég áðan sagði, að útsvörin rynnu þá öll í einn sjóð og hér yrðu tekin upp jöfnunarútsvör um land allt. Hvort menn fallast á þá skipan, það skal ég engu um spá. Fulltrúar sveitarfélaganna hafa verið kvaddir til samráðs um einmitt athugun á þessu vandamáli, hvernig eigi við því að snúast, og á næstu vikum og mánuðum má gera ráð fyrir því, að það verði einmitt til sérstakrar meðferðar. Og allavega hlýtur það að koma á dagskrá á nýjan leik, þegar það mál verður lagt fyrir Alþ. á sínum tíma.