15.11.1966
Neðri deild: 16. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 657 í B-deild Alþingistíðinda. (456)

20. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Fjmrh. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Ég skal nú ekki fara að lengja þessar umr. En það er aðeins eitt, sem ég vil leggja áherzlu á hér, og það er, að ég tel alveg brýna nauðsyn, að um allar breytingar á tekjustofnamálum sveitarfélaga sé höfð samvinna við samtök sveitarfélaganna; og ég hefði a.m.k. viljað fylgja þeirri reglu og mun fylgja henni, á meðan ég hef með þessi mál að gera, og tel það eitt geta þjónað skynsamlegum og heppilegum tilgangi, að það sé gert. Og ég hygg, að hv. þm. viti gerla, að þó að það kunni á pappírnum að sýnast einfalt mál að ákveða, að þeir, sem þurfa að leggja á aukaálögur í sambandi við aðstöðugjöld og hækka útsvarsstiga, það sé ósköp einfalt að afgreiða það mál með því að greiða þeim aukaframlög úr jöfnunarsjóði, þá er það mál ekkert einfalt, vegna þess að frá sveitarfélaganna hálfu hefur það mætt verulegri andstöðu að taka allt of mikið af jöfnunarsjóðnum til óskiptra þarfa, ef svo má segja, á þennan hátt, þannig að það hefur þótt nauðsynlegt að setja á það allstrangar hömlur, að hve miklu leyti sveitarfélög gætu fengið rétt til sérstakrar úthlutunar úr þessum sjóði. Það hefur verið lögð á það mjög rík áherzla, að sveitarfélögin fengju almennt að njóta hans eftir ákveðnum hlutföllum. Það hefur hins vegar komið í ljós, að þau njóta hans mjög misjafnlega að því leyti til, og sum njóta hans í það ríkum mæli og einmitt ýmsir sveitahreppar, að það gefur þeim möguleika til þess að gefa mjög mikinn afslátt frá hinum gildandi útsvarsstiga. Og ég efast mjög um það, eins og sakir standa í dag, að þá séu fleiri skalar gildandi varðandi aðstöðugjöld heldur en varðandi útsvarsálagninguna sjálfa.

Til þess aðeins að gera sér grein fyrir því, hverjar líkur séu til þess, að þetta sé hægt að gera með einföldum hætti, verðum við að gera okkur það ljóst, að sérhver skerðing jöfnunarsjóðsins að þessu leyti, þ.e.a.s. að skerða þann hluta hans, sem kemur til úthlutunar til einstakra sveitarfélaga, hlýtur auðvitað að rýra hluta annarra og neyða þau til þess að nota þá útsvarsskalann í ríkara mæli en gert er til þessa. Ég er ekki að segja, að þetta sé neitt slæmt, en ég hygg, að við munum komast að raun um, að það er ekki einfalt mál að fá um þetta fullkomið samkomulag. Og ég hygg a.m.k., að ef við ætlum að útfæra það að því marki, sem ég áðan gat um og er eina leiðin til þess að tryggja það, að sömu útsvör séu greidd, hvar sem menn búa á landinu, að útsvarsskalinn sé alls staðar gerður sá sami og hafður síðan sameiginlegur sjóður, sem úr verði hlutað til sveitarfélaganna eftir vissum reglum, þá mundi það m.a. leiða til þess, að í þessum sveitahreppum, sem gefa nú svo geysilegan afslátt sem raun ber vitni, yrðu menn að borga útsvör alveg á sama hátt og í kaupstöðunum, sem ekki geta gefið neinn afslátt frá útsvörum.

Ég er ekki viss um, að menn yrðu svo ákaflega hrifnir af að taka upp almennt þessa reglu. En ég tek það fram, ég er ekki með því að segja, að ég sé á móti því. Það getur vel verið, eins og ég áðan sagði, að þetta sé skynsamlegasta úrræðið og þróunin leiði í þá átt, en það, sem ég aðeins vildi leggja áherzlu á í mínu máli, var það, að málið er flókið, það er margþætt og það er þess vegna ekki hægt að hugsa sér, að við getum leyst það með því að fara að taka út úr einstök atriði, sem öll eru þáttur í heilu kerfi, og ætla sér að breyta þeim án þess að taka kerfið sjálft til heildarendurskoðunar.