15.11.1966
Neðri deild: 16. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 659 í B-deild Alþingistíðinda. (457)

20. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Skúli Guðmundsson:

Ég er sammála hæstv. ráðh, um, að það sé sjálfsagt að hafa samráð um þetta við Samband ísl. sveitarfélaga og leita álits þess sambands um þær breytingar, sem þarf að gera. Það er alveg sjálfsagt. Um það er enginn ágreiningur við hann. En hins vegar er það náttúrlega Alþingi, sem á að ráða þessu, þegar til kemur. Ég hef ekki heldur haldið því fram, að það væri neitt óeðlilegt, að einstök sveitarfélög hefðu heimild til þess að gefa afslátt á útsvörum, eins og nú er gert, meðan sú þjónusta, sem sveitarfélögin veita íbúunum, er svo ákaflega mismunandi sem hún nú er. En ég hef hins vegar fundið að því, að það er veitt heimild til þess að leggja of mikil aukaálög á útsvörin í þeim kaupstöðum einkum, þar sem um fjárhagsvandræði er að ræða og þeir þurfa því á þessu að halda. Ég hef haldið því fram, að það væri of langt gengið í að íþyngja gjaldendum í einstökum sveitarfélögum.