06.03.1967
Efri deild: 47. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 690 í B-deild Alþingistíðinda. (498)
147. mál, ráðstafanir vegna sjávarútvegsins
Fjmrh. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Þar sem mál þetta er að sjálfsögðu tvíþætt, eins og hæstv. sjútvmrh. hefur þegar gert ráð fyrir, annars vegar sú mikilvæga aðstoð og kostnaðarsama, sem gert er ráð fyrir að veita útgerðinni og frystihúsum, og hins vegar ráðstafanir til þess að afla þess fjár, sem öll þessi aðstoð kostar, þykir mér rétt að segja þegar nokkur orð af minni hálfu varðandi þá hlið málsins, er snertir tekjuöflunina. Það þótti eðlilegt, að það færi saman í þessu sama frv., og hæstv. sjútvmrh. hefur í stórum dráttum gert grein fyrir því, hvaða ráðstafanir eru fyrirhugaðar til þess að afla þessa fjár, en mér þykir rétt af minni hálfu að láta koma fram nokkrar frekari skýringar á því, vegna hvers þessar leiðir eru valdar og hvaða áhrif þær hafa hver um sig.
Þegar fjárlög ársins 1967 voru hér til meðferðar, var að því vikið af ýmsum, að það mundi vera ófullnægjandi fjárveiting, sem þar væri ætluð til aðstoðar sjávarútveginum, en í fjárl. voru ákveðnar 80 millj. kr. í þessu skyni, og var þá við það miðað, að sams konar aðstoð yrði veitt útveginum eins og var á árinu 1966. Enda þótt athuganir lægju ekki þá fyrir um hag útgerðarinnar, þótti augljóst, að ekki yrði hjá því komizt að veita sambærilega aðstoð og veitt var á því ári. Hins vegar voru þeir útreikningar eða viðræður um fiskverð annars vegar og hins vegar aðstoð, sem þyrfti að veita annaðhvort útgerðinni eða frystihúsum í sambandi við þá ákvörðun, ekki komin það langt, að það var útilokað að tilgreina nokkra ákveðna upphæð í fjárl. í þessu skyni. Það liggur því fyrir við meðferð þessa máls hér, að aðeins eru til 80 millj. kr. til að mæta þeim ráðstöfunum, sem lagt er hér til að gera til aðstoðar útgerð og frystihúsum. Viðbótarfjárins, samtals 230 millj. kr., verður að afla með nýjum aðgerðum.
Hv. þdm. munu vafalaust gera sér grein fyrir því, að ráðstafanir þessar eru tvíþættar. Annars vegar er aðstoðin við útgerðina, sem er fólgin í hækkun á bótum til hennar, þar eð frystihúsin hafa ekki getað tekið á sig hærra fiskverð. Þessar bætur eru með sambærilegum hætti og sú aðstoð, sem veitt hefur verið útgerðinni nú síðustu árin, og er aðeins breyting að því er varðar upphæð, 180 millj. í stað 80 millj. á s.l. ári. Þetta eru því raunverulega venjuleg rekstrarútgjöld, sem verður að afla fjár til með sambærilegum hætti og til annarra útgjalda ríkissjóðs á ári hverju, og hér er um endanlegar greiðslur að ræða, sem undir öllum kringumstæðum eða flestum kringumstæðum a.m.k. koma til útborgunar að fullu. Ég tel því alveg óumflýjanlegt, að til að standa straum af þessari aðstoð við útgerðina séu gerðar sérstakar ráðstafanir, annaðhvort með öflun nýs fjár í sköttum eða með þeim aðgerðum að draga úr útgjöldum ríkissjóðs. Síðari leiðin var valin af þeirri ástæðu, að nýir skattar mundu tvímælalaust hafa verkað í öfuga átt við verðstöðvunarstefnu ríkisstj. og því leitt til jafnvel aukinna útgjalda fyrir ríkissjóð til þess að halda niðri vöruverði. Það er því gripið til þeirra aðgerða, sem gerð er grein fyrir í frv.: annars vegar að skera niður um 10% framlög til verklegra framkvæmda ríkisins og hins vegar að skera niður um 10% framlög til jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, sem er nokkuð sambærileg ráðstöfun hvað varðar sveitarfélögin. Þriðji liðurinn er svo sparnaðarliður, sem ég mun koma að síðar.
Ég hef séð því haldið fram, sem auðvitað mátti alltaf gera ráð fyrir, í blöðum, að hér sé um að ræða óhæfilegan niðurskurð verklegra framkvæmda, og því er jafnvel haldið fram, að það sé samtals um að ræða allt að 30% niðurskurð, þar sem á s.l. tveimur árum hafi verkleg framlög verið skorin niður um 20% hvort árið og nú komi 10% hér í ofanálag. Hér er um mikinn misskilning að ræða. Við getum látið liggja á milli hluta árin 1965 og 1966, því að enda þótt það sé staðreynd, að samtals varð niðurskurður verklegra framkvæmda þá allmjög fjarri því að verða 20%, einkum árið 1966, en ef við skoðum árið 1967, sem skiptir meginmáli í þessu sambandi, verður ljóst, að þar er ekki um að ræða nokkra minnstu lækkun verklegra framkvæmda frá árinu 1966, vegna þess að fjárveitingar til verklegra framkvæmda voru í fjárl. yfirstandandi árs hækkaðar um 65–70 millj. kr. frá fjárl. ársins 1966. Það eina, sem hér gerist því og má auðvitað segja, að sé ekki gott, er, að þessi fjárhæð er tekin til baka, sem í rauninni er eðlilegt að gera, því að það er tvímælalaust, að hefði það legið fyrir við ákvörðun fjárl., að þessi hækkun þyrfti að vera á framlögum til sjávarútvegsins, hefði ekki verið gripið til þeirrar hækkunar á framlögum til verklegra framkvæmda, sem gerð var, heldur hefðu átt að standa óbreytt frá árinu áður. Þegar svo þess er jafnframt gætt, að hér er ekki aðeins um það að ræða, að krónulega er ekki skert að neinu leyti sú fjárveiting til verklegra framkvæmda, sem veitt var í fjárl. ársins 1966, heldur einnig tekið tillit til verðstöðvunarinnar og áhrifa hennar, verður ljóst, að í rauninni mun verða notadrýgra það fé í ár, einmitt vegna verðstöðvunarinnar; sem varið er til verklegra framkvæmda, en var á s.l. ári, þar eð ekki koma nú til þær verðhækkanir, kostnaðarhækkanir, sem urðu við opinberar framkvæmdir á s.l. ári, þær koma ekki til með að rýra á sama hátt þessi framlög ársins í ár, þannig að það má fullyrða tvímælalaust, að það verður a.m.k. ekki um að ræða neina skerðingu á heildarframlögum ríkisins til verklegra framkvæmda á árinu 1967 miðað við árið 1966.
Því hefur verið haldið fram af ýmsum okkar efnahagssérfræðingum og vafalaust með réttu, að miðað við það ástand, sem hefur verið í þjóðfélaginu síðustu árin, og þá þenslu, sem oft er talað um, hafi verið rétt ekki aðeins að draga úr verklegum framkvæmdum ríkissjóðs, heldur einnig sveitarfélaga, og verklegar framkvæmdir þeirra síðustu árin hafi í rauninni verið of miklar og ekki átt sér stað þar neinn samdráttur miðað við það, sem þó hefur verið smávægilegur á vegum ríkisins. Það er nú engu að síður svo, að það er erfiðara að draga úr verklegum framkvæmdum sveitarfélaganna en ríkissjóðs af ýmsum ástæðum, sem ég skal hér ekki út í fara, en öllum hv. þdm. mun vera kunnugt um, og þess vegna hefur ekki þótt fært að framkvæma neina heildarskerðingu að þessu leyti umfram það, sem hefur leitt af því, að sveitarfélög hafa orðið að halda sínum útgjöldum innan eðlilegra marka vegna tekjuöflunar sinnar, og nú í ár verður það að gerast með hliðsjón af því, að sveitarfélögunum er í lögum um verðstöðvun settur sá hemill, að þau mega ekki auka álögur sínar á borgarana frá því, sem var á s.l. ári.
Á árinu 1966 var um að ræða stórfellda tekjuaukningu hjá ríkissjóði, og það er þessi tekjuaukning, sem hefur valdið því, að unnt var að grípa til verðstöðvunarinnar og stuðla að því að spyrna fótum við dýrtíðarþróuninni þrátt fyrir þær ráðstafanir, sem nú þarf að gera í auknum framlögum til aðstoðar atvinnuvegunum. Engu að síður hefur tekizt að koma þessu öllu fram án nýrra skattahækkana. Það verður að teljast með hliðsjón af þeim mikilvægu hagsmunum, sem sveitarfélögin hafa af því, að þessi verðstöðvun takist, að það sé á engan hátt óeðlilegt, að verulegan hluta af þeim aukatekjum, sem sveitarfélögin fengu í sinn hlut á árinu 1966, af sömu ástæðu og ríkistekjurnar fóru svo langt fram úr áætlun sem ég get um og öllum hv. þdm. er kunnugt, leggi sveitarfélögin af mörkum til verðstöðvunarinnar eða þeirra aðgerða, sem ríkið þarf að standa straum af með nýjum útgjöldum til þess að tryggja það, að hún verði að veruleika. Af þessum sökum þótti ekki ósanngjarnt að taka 20 millj. eða sem svarar 10% af þeim tekjum, sem jöfnunarsjóði sveitarfélaga eru áætlaðar á þessu ári, af þeim umframtekjum, sem renna til jöfnunarsjóðsins vegna hækkunar á þeim tekjustofnum ríkissjóðs, verðtolli og söluskatti, sem renna að hluta í jöfnunarsjóð, á s.l. ári. Þetta eru 20 millj. kr., sem er áætlað, að muni nema um 1% af heildartekjum sveitarfélaganna miðað við árið í ár, þannig að menn sjá, að hér er nú ekki um stóra fjárhæð að ræða. Þetta eru tekjur, sem sveitarfélögin hafa ekki gert ráð fyrir eða gátu ekki gert ráð fyrir í fjárhagsáætlunum sínum fyrir árið 1966, og þykir af ýmsum ástæðum eðlilegra að taka það af þeim lið, þessum umframtekjum, en láta það heita skerðingu á framlaginu í ár, m.a. til þess að leggja áherzlu á það, að hér er um að ræða sérstakar aðstæður í sambandi við þær ráðstafanir, sem nú er verið að gera og má með engu móti líta á sem fordæmi um það, að megi vega í þann knérunn að takmarka eða skerða þennan hlut sveitarfélaganna almennt í framtíðinni. Þetta legg ég ríka áherzlu á, og þess vegna er einmitt þessi aðferð valin, að taka þetta af umframtekjunum á s.l. ári, en ekki að skerða tekjur þær, sem áætlað er, að renni í hlut sveitarfélaganna eða jöfnunarsjóðsins á þessu ári. Þetta legg ég áherzlu á, því að það er mín skoðun, að það megi ekki almennt séð skerða tekjur sveitarfélaganna af þessum tekjustofni, nema þá heildarbreyting verði gerð á skipulagi tekjuöflunarmála ríkis og sveitarfélaga, en það er stærra mál og víðtækara og er ekki verkefni þessara umr. að ræða það.
Enda þótt á það megi auðvitað fallast, að það sé ekkert æskilegt að grípa til þessara ráðstafana, hvorki 10% niðurskurðar á framlögum ríkissjóðs í ár til verklegra framkvæmda né þessarar skerðingar á tekjum sveitarfélaganna, álít ég engu að síður, að miðað við allar aðstæður sé þetta sú leið, sem hafi verið eðlilegust og sársaukaminnst að fara, þar sem ég geri naumast ráð fyrir, að neinn hv. þdm. sé þeirrar skoðunar, að heldur hefði átt að stefna að því að taka þessar auknu tekjur með nýjum sköttum.
Á s.l. ári batnaði enn hagur ríkisábyrgðasjóðs, því að eftir að ný lög um ríkisábyrgðir tóku gildi, hefur hagur ríkisábyrgðasjóðs batnað ár frá ári vegna þess, hve heilbrigð áhrif þessi nýja löggjöf hefur haft, og útkoman á s.l. ári varð sú, að 15 millj. af áætluðu framlagi til ríkisábyrgðasjóðs á árinu 1966 þurfti ríkisábyrgðasjóður ekki að nota til þess að geta staðið undir sínum skuldbindingum.
Þessar 15 millj. voru engu að síður greiddar sjóðnum af tekjum ársins 1966, og þess vegna þykir vera raunhæft að gera ráð fyrir því, að ríkisábyrgðasjóður muni ekki þurfa á að halda sem svarar þessari fjárhæð af áætluðu framlagi til sjóðsins á árinu 1967, en það er jafnhátt því framlagi, sem veitt var á árinu 1966.
Í sambandi við aðstoðina við frystihúsin er gert ráð fyrir, að ríkissjóður leggi fram stofnframlag til verðtryggingasjóðs. Það er að vísu ekki nein ákvörðun um það tekin enn, hvort sá sjóður verður stofnaður til frambúðar, enda þótt það sé skoðun ríkisstj., og ég hygg nú við nánari athugun, að það hljóti að vera skoðun allra, að það væri mjög æskilegt og nauðsynlegt, að til slíkrar frambúðarsjóðsmyndunar komi, sem taki af óeðlilegar sveiflur í verðlagi sjávarafurða. En þrátt fyrir það, þó að um það hafi ekki endanleg ákvörðun verið tekin, er hér um að ræða framlag, sem er annars eðlis en rekstrarstyrksframlag, ef svo má segja, til útgerðarinnar, sem ég hef þegar rætt um. Af þessum sökum þykir ekki óeðlilegt né brjóta í bága við neinar eðlilegar grundvallarreglur, að þessar 130 millj. verði lagðar fram af greiðsluafgangi ríkissjóðs árið 1966. Þetta framlag mun, ef úr sjóðsstofnuninni verður, verða stofnframlag ríkissjóðs til þessa sjóðs. Að vísu verður það eign sjóðsins, en eins og sakir standa er þarna fyrst og fremst um að ræða tryggingu gegn verðfalli, þannig að verði ekki um það verðfall að ræða, sem menn þykjast nú sjá fram á, að séu horfur á á þessu ári, mundi ekki koma til greiðslu bessa fjár, nema því aðeins að umræddur verðjöfnunarsjóður yrði stofnaður. Hagur ríkissjóðs á árinu 1966 mun gera kleift að leggja þetta fé fram.
Ég er ekki reiðubúinn á þessari stundu hér til þess að gera endanlega grein fyrir afkomu ríkissjóðs á árinu 1966, en þinginu mun verða gerð grein fyrir þeim niðurstöðum nú innan mjög skamms tíma. Það skiptir í rauninni ekki heldur máli varðandi þetta mál, vegna þess að það kemur vitanlega ekki til álita, jafnvel þó að bað hefði verið auðið, sem raunar ekki er auðið, — að taka þær fjárhæðir aðrar, þær 100 millj., sem eiga að fara til útgerðarinnar, af greiðsluafgangi. Slíkt væri brot á öllum eðlilegum fjármálalögmálum og hlyti að leiða til mjög óeðlilegrar og óheppilegrar þróunar. enda, eins og ég sagði, er þegar búið að ráðstafa það miklu af greiðsluafgangi nú þegar og hefur að sumu leyti verið gerð grein fyrir því, m.a. með ráðstöfun á 30 millj. til hagræðingarsjóðs landbúnaðarins, og fleiri ráðstafanir, sem mun þurfa að grípa til í sambandi við greiðsluafganginn, auk þess sem að sjálfsögðu verður að greiða þær yfirdráttarskuldir, sem eru við Seðlabankann og myndazt hafa vegna hallarekstrar á undanförnum árum, að ekki er neitt slíkt fé upp á að hlaupa, þó að mönnum kynni að detta í hug, að grípa mætti til jafnóeðlilegrar aðferðar varðandi aðstoðina við sjávarútveginn.
Því verður vafalaust haldið fram, eins og þegar hefur sézt víða, að það hefði þurft að gera miklu meira fyrir útgerðina, og án efa veitir henni ekkert af því að fá meira fé í sinn hlut, og það er vafalaust eins naumt skorið og unnt er varðandi þá aðstoð, sem frystihúsunum er veitt, enda þótt hér sé um veigamikla aðstoð að ræða, og ég tel ekki síður mikilvæga þá aðstoð, sem boðuð er varðandi skipulag frystiiðnaðarins í heild. En menn verða að gera sér grein fyrir því, að varðandi alla slíka kröfugerð, hlýtur hún að kosta fé og hún verður að greiðast af almenningi að verulegu leyti, og það hlýtur því að verða skylda ríkisstj. og Alþingis hverju sinni, jafnhliða því, sem reynt er að tryggja það, að atvinnuvegir geti gengið með eðlilegum hætti, að ganga þó ekki lengra til aðstoðar við þá með beinum fjárframlögum frá ríkissjóði en óumflýjanlegt er, því að sé lengra gengið, hlýtur það, eins og ég sagði, að leiða til þess, að fara verður lengra ofan í vasa borgaranna, með þeim afleiðingum, sem það hefur í för með sér. Það kann vel að vera, að í ýmsum tilfellum sé hægt að benda á, að það sé efnahagslega og fjármálalega séð æskilegt að taka meira af borgurunum, en ég hygg samt, að menn séu sammála um það, að eðlilegt og sjálfsagt sé að hafa þar eins mikið hóf á og frekast er auðið, og ég tel, að með þeim ráðstöfunum, sem hér eru gerðar, sé annars vegar stuðlað að því á viðhlítandi hátt að standa við bakið á þessum grundvallaratvinnuvegi landsmanna, sjávarútveginum, bæði bátaútvegi og frystihúsum, og hins vegar reynt að gera þetta án þess að tefla verðstöðvunarstefnu ríkisstj. í beina hættu og án þess að leggja nokkrar þær óeðlilegu kvaðir á borgarana, sem hægt sé að finna að.