07.03.1967
Efri deild: 48. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 712 í B-deild Alþingistíðinda. (502)
147. mál, ráðstafanir vegna sjávarútvegsins
Gils Guðmundsson [frh.]:
Herra forseti. Ég tek þar til sem frá var horfið í gær, þegar umr. um þetta mál var frestað. Þar var komið mínu máli, að ég taldi mig hafa sýnt fram á það, að stærsta vandamál frystiiðnaðarins og það vandamálið, sem enn er að mestu leyti óleyst, er skorturinn á hráefni, skortur á fiski til vinnslu. Ég sýndi fram á, að það hefði á undanförnum árum gætt furðulegs og stórháskalegs tómlætis um endurnýjun togara- og bátaflotans. Ég sýndi fram á, að rekstrargrundvöllur fiskibáta væri nú svo bágborinn, að enginn trygging væri fyrir því, að þeir væru gerðir út eða allur þorri þeirra yrði gerður út, ekki einu sinni á hávertíðinni. En það er fleira en þetta, sem veldur hráefnisskorti hraðfrystihúsa. Það er fleira en þessar staðreyndir, sem ég rakti nokkuð ýtarlega í máli mínu í gær, svo alvarlegar sem þær þó eru og svo mikil áhrif sem þær vitanlega hafa. Jafnframt því sem þeim skipum, sem leggja fisk á land til vinnslu, stórfækkar, þá á sér stað eða hefur átt sér stað önnur þróun, sem einnig er mjög uggvænleg fyrir hraðfrystiiðnaðinn. Litlar verkunarstöðvar, ýmsar smáfiskverkunarstöðvar hafa risið upp tugum saman, oft til þess að verka fisk af einum báti eða tveim. Nú er jafnvel svo komið, að finnast munu þeir útgerðarstaðir þar sem fiskverkunarstöðvar, stórar og smáar, allt frá fullkomnum og afkastamiklum hraðfrystihúsum til lítilla og ófullkominna söltunarskúra, — þessar fiskverkunarstöðvar eru sums staðar orðnar jafnmargar eða jafnvel fleiri en bátarnir, sem gerðir eru út til þorskveiða frá þessum stöðum.
Stjórnarvöld og lánastofnanir hafa ekki aðeins horft aðgerðalaus á þessa þróun, sem verið hefur að gerast núna undanfarin ár og missiri, heldur hafa þessir aðilar beinlínis stuðlað að því, að þetta gerðist. Þeir hafa stuðlað að því, bæði beint og óbeint, og það er ekki fyrr en nú seint og um síðir, eftir að allt er komið í öngþveiti í þessu efni, að farið er af hálfu stjórnarvalda að ræða um nauðsynina á því að koma einhverri skipan, koma einhverju sæmilegu skipulagi á þessa hluti. Þetta er óneitanlega mjög seint, sem ráðamenn vakna upp í sambandi við þróun þessara mála, og hömluleysið, afskiptaleysið, skipulagsleysið á þessu sviði hefur þegar kostað þjóðina mikið fé og það hefur valdið hraðfrystiiðnaðinum verulegu tjóni. Nú má segja að vísu, að betra sé seint en aldrei, ef ráðandi aðilar ætla nú í alvöru að fara að gefa þessum málum gaum. En það er ljóst, að þessi mikla fjölgun lítilla fiskvinnslustöðva hefur þegar reynzt hraðfrystiiðnaðinum mjög þung í skauti. Fyrir bragðið standa mörg hinna stóru og vel búnu hraðfrystihúsa nú auð eða því sem næst auð, og þegar svo er komið, má nærri geta, hver útkoman á rekstri þeirra verður.
Tvennt er það, sem ég held að eigi mestan þátt í því, að þróunin hefur orðið á þessa leið, — þessi þróun, sem ég hef nú lýst stuttlega og ég er ekki í neinum vafa um að er mjög óhagkvæm séð frá þjóðhagslegu sjónarmiði, enda þótt hún kunni í bili að vera hagstæð fyrir einstaka útgerðarmenn. En það, sem veldur þessari þróun, er annars vegar hið óeðlilega lága, ég vil segja heimskulega lága verð, sem hér hefur verið undanfarin ár á fiski upp úr sjó. Ráðamenn hafa með fullu atfylgi frystihúsaeigenda verið að rembast við það að halda hráefnisverðinu á fiskinum sem allra lægstu og með þeim afleiðingum, sem áður greinir, að sjómenn hafa borið óeðlilega lítið frá borði, og útgerðarmenn hafa reynt að bæta sér upp þetta óeðlilega lága hráefnisverð með því að koma sér upp með einhverju móti aðstöðu til þess að verka sinn fisk sjálfir. En hér kemur einnig til hið algera skipulagsleysi í fjárfestingarmálum. Hér kemur hið marglofaða frelsi, sem er venjulega kallað því fallega nafni af stjórnarherrunum. Bankar og lánastofnanir virðast ekki hafa látið sig það miklu skipta á undanförnum árum, hvort í því var nokkur vitglóra frá þjóðhagslegu sjónarmiði að lána til aukinnar fjárfestingar, t.d. í sambandi við fiskverkunarstöðvar á þessum staðnum eða hinum. Það er jafnvel enn í dag verið að reisa nýjar fiskverkunarstöðvar rétt svo að segja við hliðina á stórum og ágætlega búnum hraðfrystihúsum, sem hafa hreinlega orðið að loka vegna hráefnaskorts.
Þessi þróun, sem ég hef nú lýst stuttlega, hefur verið að gerast á undanförnum veltiárum, án þess að stjórnarvöld hreyfðu svo að segja hönd né fót. En nú er loks að því komið, að augu ráðamanna virðast vera farin að opnast fyrir því, að hér er vissulega vandi á ferðum. Þess gætir í sambandi við það frv., sem hér liggur fyrir. Þar koma fram ýmsar bollaleggingar um nauðsyn skipulagsbreytingar, nauðsyn skipulagningar í sambandi við fiskiðnaðinn, og ekki skal ég mæla á móti því, að þar er vissulega breyttra vinnubragða þörf. Þar er vissulega þörf skipulagningar, og hefði verið nauðsynlegt, eins og ég tel mig hafa sýnt fram á, að móta þar skynsamlega heildarstefnu, áður en allt var komið í öngþveiti, allt var að komast í þrot.
Nú tala margir um það, og það örlar á því í grg. fyrir þessu frv., að nú verði að fara að fækka frystihúsum, jafnvel stórfækka þeim, en stækka þau, sem eftir verða, og auka hagræðingu í sambandi við rekstur þeirra. Að vissu marki kann að vera réttmætt að stefna að þessu, en ekki nema að vissu marki, og á það vii ég leggja áherzlu, að úr því sem komið er gæti sú villan orðið jafnvel verri hinni fyrri að knýja fram á skömmum tíma mjög róttækar breytingar í þessu efni. Það er engan veginn alls staðar, sem hægt er að koma við stórrekstri í þessari atvinnugrein. Hitt er tvímælalaust brýnasta verkefnið, eins og ég leitaðist við að sýna fram á í gær, að auka hráefnisöflunina, að byggja upp skipaflotann og koma honum á rekstrarhæfan grundvöll. Þetta er frumskilyrði þess, að fiskiðnaður okkar geti orðið sá undirstöðuatvinnuvegur, geti verið það framvegis og orðið það á ný, — sá undirstöðuatvinnuvegur, sem hann hefur vissulega verið og hefur í rauninni öll skilyrði til að verða á komandi tímum, ef rétt er á málunum haldið. Hinu er svo ekki ástæða til að gleyma, þegar rætt er um skipulagsleysið í sambandi við uppbyggingu fiskiðnaðarins, þegar rætt er um óhóflega fjárfestingu, sem þar hefur átt sér stað á sumum sviðum undanfarin ár, að miklu víðar þyrfti að taka til hendi, ef við ætlum nú á annað borð að fara að byggja dálítið meira en verið hefur um sinn á skynsamlegri áætlunargerð, en ekki á skipulagsleysi, sem svo leiðir af sér í flestum tilfellum óþarfa fjársóun og stundum algert bruðl.
Ég skal í sambandi við þessi efni halda mér við sjávarútveginn og þann rekstur, sem hefur bein áhrif á afkomu hans. Ég skal ekki fara út fyrir þann ramma í þetta skipti, þó að freistandi væri að nefna skipulagsleysið í mörgum öðrum atvinnugreinum, og ég ætla að láta nægja að benda á þrjú dæmi af mörgum.
Hér á landi starfar fyrirtæki, sem heitir Kassagerð Reykjavíkur. Þetta er stórt fyrirtæki á íslenzkan mælikvarða. Það er búið ágætum húsa- og vélakosti, það er vel skipulagt, og það er að allra dómi vel rekið fyrirtæki. Afkastageta þess er slík, að það leikur sér að því að framleiða nægar umbúðir undir allan hraðfrystan fisk, sem hér er framleiddur og sennilegt er að verði framleiddur hér á næstu árum. Þetta fyrirtæki hefur verið samkeppnisfært við erlendar kassaverksmiðjur bæði um verð og gæði, það hygg ég, að sé ómótmælanlegt. Þá hættu, sem kynni að stafa af einokunaraðstöðu þess fyrirtækis, sem þannig væri eitt um hituna hér á landi, að því er varðar þessa framleiðslu, þá hættu má hæglega fjarlægja og gera að engu með því að flytja inn umbúðir, ef eða þegar nauðsyn kynni að bera til, þegar fyrirtækið framleiddi ekki samkeppnishæfa vöru bæði um verð og gæði. En nú er það öllum hv. alþm. kunnugt, að fyrirtæki hraðfrystihúsanna, fyrirtæki þessara ágætu húsa, sem segja og segja það vafalaust réttilega, að þar sé tæplega um nokkurn rekstrargrundvöll að ræða eins og er, fyrirtæki þeirra, Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, er nú í óða önn að koma sér hér upp nýrri kassagerð, nýju tugmilljóna fyrirtæki, þó að það sé margsannað og liggi fyrir, að hér er lafhægt að framleiða með þeim véla- og húsakosti, sem fyrir er í landinu, allar þær umbúðir, sem nokkur markaður er fyrir hér á landi. Afleiðingin hlýtur svo að verða tvöföld fjárfesting miðað við það, sem. þörf er á, miðað við það, sem þjóðhagslegt vit er í, auk þess sem allt eins líklegt verður að teljast, að annað tveggja gerist: hér verði þá innan skamms rekin tvö fyrirtæki, sem framleiða hina sömu hluti, og hvorugt fái almennilega þrifizt, ellegar þá hitt, að þessi fyrirtæki bindast samtökum sín á milli, samtökum um nógu háa álagningu, til þess að bæði geti hagnazt og þá verður útkoman vitanlega þessi, tvöföld fjárfesting, hækkað verð á umbúðum, þjóðfélagslegt tap á þessu öllu saman.
En er það ekki einmitt þetta, sem hefur gerzt á öðru sviði, — sviði, sem er sjávarútveginum engan veginn óviðkomandi? Ég á þar við innflutning, dreifingu og sölu á olíum, þrefalt kerfi, þrjú olíufélög, sem keppast við að fjárfesta hóflaust og skipulagslaust, en þegar svo kemur til verðlagningar og til ýmissar — ég vil segja margvíslegrar takmörkunar á þjónustu við þá, sem kaupa olíur, virðist vera sami rassinn undir þessum fyrirtækjum öllum, þá er þetta einn harðvítugur einokunarhringur.
Og loks er það tryggingastarfsemin. Þar er svipaða sögu að segja, og ég held, að það megi furðu gegna, ef ekki er hægt að koma tryggingamálunum betur og haganlegar fyrir en gert er nú í dag til ávinnings fyrir sjávarútveginn og landsmenn alla.
Ég hef nefnt þessi þrjú dæmi. Dæmið um umbúðaframleiðslu, um olíuverzlun og tryggingastarfsemi, rétt til þess að minna á, að svo framarlega sem ætlunin er að fara að hverfa frá þeirri happa- og glappaaðferð skipulagslausrar fjárfestingar, sem ríkt hefur hér á undanförnum árum, er að mörgu að hyggja og nokkuð víða ástæða til að bera niður. Skipulagsleysið í fiskiðnaðinum er eitt af mörgu, sem kippa ætti ögn í lag, en það er hvergi nærri það eina, sem máli skiptir, ekki einu sinni þó að aðeins sé litið til sjávarútvegsins, hvað þá heldur annarra greina.
Þær ráðstafanir, sem ætlunin er að gera með því frv., sem hér er til umr., til að koma í veg fyrir algera stöðvun í sjávarútvegi og fiskiðnaði hrökkva því miður helzt til skammt og koma að takmörkuðum notum. Þar er um að ræða hrein bráðabirgðaúrræði, en enga frambúðarlausn þess vanda, sem okkur er hér vissulega á höndum. Við Alþb.-menn munum að sjálfsögðu taka það til athugunar, hvort þessar ráðstafanir mega teljast óhjákvæmilegar í bili, úr því sem komið er, til að forða útveginum frá algeru hruni. Við munum einnig við frekari meðferð málsins taka afstöðu til þeirra fjáröflunarleiða, sem lagt er til að fara skv. þessu frv. Þar er enn beitt sömu aðferðum og þessi hæstv. ríkisstj. hefur verið nokkuð gjörn á að grípa til, að skera niður verklegar framkvæmdir hjá ríki og bæjum. Ég fæ raunar ekki séð, hvernig það verður réttlætt, á meðan öll fjárfesting einkaaðila er algerlega frjáls, algerlega skefjalaus.
Það er ömurlegt og í rauninni gegnir það mikilli furðu, að þannig skuli að sjávarútvegi og fiskiðnaði búið í dag eins og raun ber vitni og hér hefur allýtarlega verið rakið. Maður heyrir jafnvel nú þessa dagana Pétur og Pál, menn, sem til að mynda eru að fást við verzlun eða þjónustustörf, tala um sjávarútveginn eða a.m.k. þann hluta hans, sem hér hefur verið til umr., eins og hvern annan annars eða þriðja flokks atvinnuveg, eins og einhvern ómaga á þjóðarbúinu, sem lifi vesældarlífi á ríkisframfæri, og það væri jafnvel í samræmi við þessar raddir, að fram kæmu kröfur um það að leggja þennan vandræðaatvinnuveg að meira eða minna leyti niður. Þannig er sem sagt búið að þjarma að þessum atvinnurekstri, þannig er hann leikinn í okkar íslenzka verðbólgu- og viðreisnarþjóðfélagi. Það ætti þó tæplega að þurfa að segja neinum hugsandi manni, að sjávarútvegur hefur á mörgum undanförnum áratugum verið þróttmesti og gjöfulasti atvinnuvegur okkar. Það er hann, sem hefur að verulegu leyti staðið undir þeim efnahagslegu framförum og þeim bættu lífskjörum, sem hér hafa orðið, og þrátt fyrir öll áföll gegnir sjávarútvegurinn þessu hlutverki enn í dag og mun gera á komandi tímum, ef sæmilega verður á málunum haldið. En bresti þessi burðarás, bresti sjávarútvegurinn, er vá fyrir dyrum. Þá er hætt við, að efnahagskerfi okkar hrynji eins og spilaborg. Víst er það ánægjulegt að geta flutt inn bifreiðar fyrir þús. millj. á einu ári, eins og gert var s.l. ár, og óneitanlega er enginn kotungsbragur á því að kaupa sjónvarpstæki á einu ári fyrir 200–300 millj. Og þannig mætti halda áfram að telja ýmis þau gæði og lífsþægindi, sem margir hafa getað veitt sér nú að undanförnu. Það er út af fyrir sig ágætt. En það er hætt við, að fljótt segi til sín í breyttum og versnandi lífskjörum, ef varanlegur samdráttur verður í sjávarútveginum. Við hljótum að gera okkur það ljóst verðum að gera það, á hverju velmegunin byggist. Við verðum að kosta kapps um að treysta þann atvinnurekstur, sem undir henni stendur. Þetta hefur því miður verið vanrækt. Með skipulegum og samstilltum þjóðfélagslegum aðgerðum ber því að tryggja, að sjávarútvegurinn geti leyst af hendi það mjög svo mikilvæga hlutverk, sem enginn annar íslenzkur atvinnurekstur er fær um að taka að sér í náinni framtíð í neitt svipuðum mæli eins og sjávarútvegur.
Ég vil svo leggja áherzlu á þessi atriði að lokum: Við Alþb -menn lýsum þeirri sök á hendur núverandi stjórnarfl. og stjórnarstefnu, að eftir eitthvert mesta góðæri, sem yfir þjóðina hefur komið, skuli mikilvægar greinar höfuðatvinnuvegar okkar, sjávarútvegsins, vera eins á vegi staddar og þær eru í dag. Við lýsum þeirri sök á hendur stjórnarstefnunni, að um leið og yfirbygging þjóðfélagsins hefur stöðugt verið að hækka og tútna út, skuli undirstöðurnar vera að brotna niður og fúna. Eigi okkur Íslendingum að lánast að forða frá hruni, verður að taka upp gagngera nýja stefnu að því er varðar undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar og þá alveg sérstaklega sjávarútveginn. Við þurfum að hagnýta fjármagn okkar stórum betur en nú er gert í þágu framleiðslunnar, og við megum ekki hika við að skipuleggja hlutina. Með skipulegu átaki verðum við að endurnýja fiskiskipaflotann, við verðum að tryggja honum og fiskiðnaðinum viðhlítandi rekstraraðstöðu, svo að þessar atvinnugreinar geti haldið hér uppi góðum og batnandi lífskjörum. Þetta er hægt, það er vissulega hægt, ef fullur vilji og skilningur er fyrir hendi, skilningur á því, að hér er það undirstaðan, hér er grunnurinn, sem afkoma okkar byggist að mjög verulegu leyti á. Markviss framleiðslustefna verður því að taka við, eftir að hin svokallaða viðreisn, happa- og glappastefnan, hefur gengið sér svo rækilega til húðar sem raun ber vitni.
Þetta frv. markar því miður enga stefnubreytingu. Það er einungis lítil bót á gamalt og slitið fat. Meðan ekki er um það að ræða að losna með öllu við aflóa viðreisnarflíkur, er bótin trúlega skárri en ekki neitt.