07.03.1967
Efri deild: 48. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 720 í B-deild Alþingistíðinda. (504)
147. mál, ráðstafanir vegna sjávarútvegsins
Helgi Bergs:
Herra forseti. Hæstv. sjútvmrh. lofaði því í upphafi ræðu sinnar að haga orðum sínum þannig að gefa ekki tilefni til þess að lengja þessar umr. mjög mikið, og hann stóð við það á þann hátt, að ég hefði ekki séð ástæðu til þess að kveðja mér hljóðs að nýju, ef ekki hefði það komið til, að hæstv. ráðh. fór rangt með eitt veigamikið atriði úr ræðu minni í gær, sem ég sé mig knúinn til að leiðrétta.
Hæstv. sjútvmrh. taldi, að ég hefði sagt það í gær, að þær hugmyndir, sem uppi væru í þessu frv. um það að gera veigamiklar skipulagsbreytingar á hraðfrystiiðnaðinum, væru varhugaverðar. Þetta orð mun ég ekki hafa notað um það, heldur þvert á móti mun ég hafa harmað það, að hæstv. sjútvmrh. og hæstv. ríkisstj. skyldu ekki fyrr beita sér fyrir skipulagi í þessum efnum, meðan á uppbyggingu stóð, heldur en að grípa nú til skipulags um að loka og rífa niður. Hitt er svo annað mál, að ég benti á, að margvíslegir erfiðleikar hljóta að verða á framkvæmd þessarar hugmyndar, og ég gerði það ekki sízt til þess að vekja athygli á því grundvallaratriði þessa máls, sem ég tel vera, sem er hráefnisöflunin, erfiðleikarnir í sambandi við hráefnisöflunina, hve tímabundin hún er, hve staðbundin hún er. Það er á því sviði, sem lagfæringar er fyrst og fremst þörf til þess að bæta úr hráefnisskorti þessa iðnaðar. En úr því að ég er hér kominn í ræðustólinn til þess að gera þessa leiðréttingu, sem ég nú hef gert, þykir mér rétt að drepa á örfá atriði til áréttingar því, sem áður hefur komið fram.
Þegar hæstv. sjútvmrh. ræddi um lágt fiskverð, þá taldi hann, að hin slæma nýting frystihúsanna væri einmitt ein ástæðan, veigamesta ástæðan til þess, hvað fiskverðið þarf að vera lágt. Hér er auðvitað snúið við orsök og afleiðingum. Ef fiskverðið í landinu væri eðlilegt, þá væri hráefnisöflunin eðlilegri, uppbygging bátanna, viðhald og endurnýjun togaraflotans með eðlilegri hætti en verið hefur. Það er þýðingarmikið að gera sér grein fyrir, hvað eru orsakir og hvað eru afleiðingar í þessum efnum. Og taldi ég, að ég hefði vikið að því í ræðu minni hér í gær, og raunar gerði hv. 5. þm. Reykn. það mjög rækilega hér áðan, ef það skyldi hafa farið fram hjá mönnum, að ég hafi einnig gert það í gær.
Ég gerði í ræðu minni í gær grein fyrir margvíslegum till., sem ég taldi að þyrfti að framkvæma til úrbóta fyrir sjávarútveginn, og rakti þær í mörgum töluliðum. Aðeins eitt atriði af því gerði hæstv. sjútvmrh. hér að umtalsefni og það var, að ég hefði lagt til, að útflutningsgjöld yrðu lækkuð, og þóttist hann strax sýna fram á óheilindi í þeirri till. með því að vekja athygli á, að það færi allt til útgerðarinnar aftur. Ég vil í því sambandi vekja athygli á tvennu: Annars vegar því, að tryggingar útgerðarinnar verður að gera hagkvæmari en þær hafa verið um skeið. Og það var raunar ein af þeim till., sem ég gerði í ræðu minni hér í gær. Enn fremur álít ég, að það sé óeðlileg leið til þess að afla atvinnuvegum lánsfjár, og hef oft gert grein fyrir því í ýmsu sambandi, að skattleggja þá sjálfa. Ég tel því enga mótsögn vera í því að leggja til að lækka útflutningsgjöldin, vegna þess að þau renna að verulegu leyti til hluta, sem þarf ekki að leggja svo mikið fé í með þeim hætti, sem þar er gert.
Mig langar aðeins að nefna eitt atriði enn, vegna þess að mér þótti það ákaflega leitt í ræðu minni í gær, þá greip hæstv. sjútvmrh. fram í fyrir mér og sagði mig fara með rangt mál, þegar ég hafði sagt, að ekkert raunhæft hefði verið gert í sambandi við till. til stuðnings minni bátum, sem hefðu aflað sér dýrs síldveiðiútbúnaðar, sem þeir gætu ekki notað. Ráðh. greip fram í, sagði, að það væri rangt, og ég hlýt að harma það, ef það hendir að hafa hæstv. ráðh. fyrir rangri sök. Hans hlutur er ekki of stór í þessum málum, eins og sakir standa. Þegar svo hæstv. ráðh. kemur í ræðustólinn og fer að gera grein fyrir því, hvað hann hefur gert í þessu máli, þá kemur í ljós að hann hefur beðið Fiskifélag Íslands og L.Í.Ú. um tillögur, en þær tillögur eru ekki komnar. Þegar þannig stendur á, tel ég, að það sé ekki hægt að segja, að það sé rangt, sem ég hélt fram, að ekkert raunhæft hefði verið gert í þessum málum.