13.03.1967
Neðri deild: 53. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 752 í B-deild Alþingistíðinda. (525)
147. mál, ráðstafanir vegna sjávarútvegsins
Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Frv. þetta er komið frá hv. Ed. og var þar endanlega samþ. með örlitlum breyt., sem nánast eru leiðréttingar. Um málið hafa á undanförnum vikum orðið allmiklar umr. á opinberum vettvangi og því sjálfsagt óþarft að endurtaka margt af því, sem þar hefur verið sagt, ásamt því, sem fram kom í umr. í hv. Ed., og skal ég því eftir föngum reyna að stytta mál mitt hér, sem kostur er. Og til að lengja ekki að óþörfu framsögu fyrir frv. mun ég fyrst og fremst reyna að halda mig við þau atriði í undirstöðu og aðdraganda frv., sem ekki er gerð sérstök grein fyrir í grg. þess og sérstökum aths. ásamt fskj. Bæði grg. og frv. hefur nú verið gerð opinber í dagblöðum og því almenningi ljós, og hafa hv. alþm. haft allgóða aðstöðu til að kynna sér efni frv. og grg. þess, frá því að það var lagt fram.
Síðan á miðju s.l. ári hefur það verið ljóst, að ný og alvarleg viðhorf voru að skapast í sjávarútveginum og þar með í öllu efnahagslífi landsins, þótt í einstökum atriðum hafi ekki fengizt í þeim endanleg niðurstaða, fyrr en verulega leið á árið, svo sem nánar mun gerð grein fyrir síðar. Á undanförnum árum hafði verðlag á útflutningsafurðum landsins farið síhækkandi og varð þessi hækkun sérstaklega mikil á árinu 1965. Áhrifa af nýrri tækni og vaxandi gengd fiskistofna og einkum síldveiða gætti mjög á undanförnum árum eða á sama tímabili. Jafnframt höfðu orðið verulegar tæknilegar framkvæmdir í fiskvinnslu, ekki sízt í hraðfrystiiðnaðinum. Þessi hagstæða þróun lagði raunhæfan grundvöll að miklum og almennum launahækkunum, meiri aukningu almennrar velmegunar en á flestum öðrum þróunarskeiðum íslenzks efnahagslífs. Á sama tíma skapaði hún hins vegar einnig erfiðleika hjá þeim greinum atvinnulífsins, þar sem ekki var um jafnmikilsverðar tæknilegar breytingar að ræða eins og t.d. í þorskveiðum báta og togara. Þegar kom fram á árið 1966, varð hins vegar fljótlega ljóst, að verðlag á útflutningsafurðum landsmanna mundi ekki halda áfram að hækka, og síðari hluta ársins tók við mikið verðfall á mjöli og lýsi og frystum fiski.
Þessi nýju viðhorf í efnahagsmálum gerðu það nauðsynlegt, að komizt væri hjá frekari hækkunum á verðlagi og framleiðslukostnaði innanlands. Beitti ríkisstj. sér fyrir þessu með setningu laga um verðstöðvun í nóvembermánuði s.l. Var að því stefnt með þessum lögum, eins og þá var frá greint, að verðlag héldist um eins árs skeið a.m.k. óbreytt frá því, sem það hafði verið í ágústmánuði s.l. Þegar þessi lög voru sett, var það hins vegar ljóst, að hversu þýðingarmikil sem setning þeirra væri fyrir sjávarútveginn, mundi frekari ráðstafana vera þörf til þess að tryggja eðlilegan rekstur hans á þessu ári. Nauðsyn bar til þess, að tekjur sjómanna á þorskveiðum hækkuðu til jafns við þá hækkun, sem aðrar starfsgreinar í landi höfðu notið vegna hækkunar á kaupgreiðsluvísitölu, frá því að fiskverðið var síðast ákveðið í ársbyrjun 1966. Á hinn bóginn töldu fiskvinnslustöðvarnar sér um megn að taka á sig nokkra frekari hækkun á fiskverði og fyrirsjáanlegt, að þær mundu ekki af eigin rammleik geta staðizt afleiðingar verðfallsins.
Miðað við óbreytt aflabrögð og fiskverð jókst rekstrarkostnaður báta lítið eitt á árinu 1966, þótt kaupgjaldshækkanir yrðu nokkrar. Það kaupgjald er þó tiltölulega lítill liður í rekstrarkostnaði bátanna. Til að styrkja rekstrargrundvöll útgerðarinnar, til þess að jafna þann mismun, sem orðið hafði á kjörum sjómanna á þorskveiðum og annarra starfshópa, tilkynnti ríkisstj. yfirnefnd verðlagsráðsins, áður en til ákvörðunar fiskverðs kom upp úr s.l. áramótum, að hún væri reiðubúin til að beita sér fyrir því, að á árinu 1967 yrði greidd 5% viðbót á verð landaðs afla, annars en síldar og loðnu. Með tilliti til þessarar yfirlýsingar ákvað yfirnefndin, að fiskverð skyldi standa óbreytt frá því, sem verið hafði árið 1966. Með 5. gr. frv. þess, sem hér er nú lagt fram, er þessari yfirlýsingu ríkisstj. fylgt eftir. Sú viðbót, er þannig skal greiða á fiskverð, skiptist á þann hátt, að 5% greiðist mánuðina marz–apríl, en 11% aðra mánuði ársins. Auk þessarar uppbótar á fiskverð hefur verið ákveðið, að eins og á tveimur undanförnum árum verði varið 20 millj. kr. til verðbóta á línu- og handfærafisk. Það er gert ráð fyrir þessum verðbótum í 3. gr. frv.
Eins og Alþ. er kunnugt, hafa einnig ýmsar aðrar ráðstafanir verið gerðar í samráði við till. bátaútgerðarnefndar til að bæta hag þessarar útgerðar, t.d. með lengingu lána, frestun afborgana af lánum o.fl. Í samræmi við þessar till. n. er einnig gert ráð fyrir að greiða viðbótaruppbætur á línufisk á s.l. hausti, og veitir 4. gr. frv. heimild til þeirra greiðslna. Þeim greiðslum fer nú senn að ljúka, og eru líkur til, að 35 aura verðuppbætur komi til viðbótar þeim 25 aurum, sem áður höfðu verið áætlaðir til greiðslu á hvert kg þessa fisks.
Þar sem till. n. og ráðstafanir samkv. þeim hafa ýtarlega verið ræddar hér nú fyrir skömmu á hv. Alþ., er óþarft að endurtaka það, sem þá var sagt hér. Það er rétt að benda sérstaklega á það, að megintilgangur nál., sem afhent var í júlímánuði s.l., var um hækkun fiskverðsins.
Þær ráðstafanir til styrktar fiskveiðum, sem hér hefur verið gerð grein fyrir, hafa mikla beina og óbeina þýðingu fyrir sjálfa fiskvinnsluna einnig. Eigi að síður var það ljóst í byrjun ársins, að verðfallið erlendis var svo mikið, að vinnslustöðvunum hlaut að vera um megn að bera byrðar þess án sérstaks stuðnings. Athuganir, sem Efnahagsstofnunin hefur gert á afkomu frystihúsanna, benda til þess, að hún hafi farið batnandi á árunum 1960–1965 og verið góð, en versnað 1966 vegna minnkaðs hráefnis og hækkandi rekstrarkostnaðar á árinu. Hér hefði þó ekki verið um það vandamál að ræða, sem fiskiðnaðinum sjálfum hefði ekki verið viðráðanlegt, ef hið mikla erlenda verðfall hefði ekki komið til sögunnar. Verðlag á frystum fiski erlendis hefur hækkað jafnt og þétt á undanförnum árum. Á árunum 1961–1964 nam þessi hækkun um 6% á ári til jafnaðar. Á árinu 1965 varð síðan mjög mikil hækkun á verði fiskblokka í Bandaríkjunum. Verðhækkunin hélt áfram fyrri hluta ársins 1966, þ.e.a.s. verðhækkun sú, sem orðið hafði í Bandaríkjunum á árinu 1965, orsakaði hækkun freðfisksverðsins til Sovétríkjanna einnig. Á miðju s.l. ári fór markaðsverð í Bandaríkjunum hins vegar að lækka, og á s.l. hausti varð mikið verðfall á fiskblokkum. Verðfalls þessa tók ekki að gæta fyrr en seint á árinu 1966. Þó má gera ráð fyrir, að meðalútflutningsverð ársins 1966 reynist allmiklu hærra en meðalverð ársins 1965. Hefur sú hækkun verið áætluð tæplega 7% eða milli 61/2 og 7%. Verðlækkunin í Bandaríkjunum orsakaði, að í samningunum um sölu til Sovétríkjanna, er gerðir voru á síðustu dögum desembermánaðar s.l., náðist ekki jafnhátt verð og áður. Nam verðhækkunin í þeim samningum um 7% frá því verði, sem í gildi hafði verið í fyrri samningum, og samkv. upplýsingum um verðlag um áramótin 1966–1967 og áætlun um magn seldra afurða, sem útflytjendur hafa lagt fram, má gera ráð fyrir, að verð um áramótin s.l. hafi verið um 11% lægra en meðalverð ársins 1966. Um s.l. áramót var verðfalls á freðfiski í neytendaumbúðum lítið farið að gæta á Bandaríkjamarkaði. Þó gerðu freðfiskframleiðendur ráð fyrir því, að verðfallið mundi breiðast út til þessara afurða, jafnvel svo, að þær lækkuðu um 15–30% frá því, sem var á árinu 1966. Hins vegar gerðu framleiðendur ekki ráð fyrir því, að frekara verðfall yrði á blokkum frá því, sem var um áramótin. Reynslan hefur hins vegar orðið sú, að það verðfall hefur haldið áfram fram að þessu, því miður. Verð á fiski í neytendaumbúðum hefur einnig haldið áfram að lækka, enda þótt sú lækkun enn sem komið er sé a.m.k. minni en framleiðendur gerðu ráð fyrir. Nær verðlækkunin þó einnig til ýsu, en ýsa hafði um langt árabil verið einna verðstöðugasta fisktegundin, sem á þeim markaði var. Ef sú verðþróun, sem framleiðendur gera ráð fyrir í söluáætlun sinni, reynist raunhæf, mundi meðalverðlækkunin á freðfiski á árunum 1966 –1967 reynast um 20%.
Um allmargra ára skeið hefur neyzla í Bandaríkjunum á fiskstautum svonefndum og fiskréttum aukizt mjög ört. Hefur því eftirspurn eftir fiskblokkum til framleiðslu þessarar vöru aukizt jafnt og þétt. Á hinn bóginn fóru þorskveiðar í Norður-Atlantshafi talsvert minnkandi á árunum 1960–1964, og var ekki búizt við, að á því yrði veruleg breyting. Þegar kom fram á árið 1965, fór að gæta skorts á fiskblokkum í Bandaríkjunum. Leiddi það til verðhækkunar, spákaupmennsku vegna ótta við enn frekari hækkanir. Um áramótin 1965–1966, þegar verðið var í hámarki, voru íslenzkir útflytjendur vongóðir um, að hið háa verðlag mundi haldast, þar sem þeir bjuggust ekki við auknu framboði á fiskblokkum á Bandaríkjamarkaði. En hér fór einnig öðruvísi en ætlað var. Hið háa verðlag í Bandaríkjunum virðist hafa leitt til aukins framboðs frá ýmsum löndum á þeim markaði. Komu nú mörg ný lönd til sögunnar. Fjölgaði þeim löndum, er flytja frystar fiskafurðir á Bandaríkjamarkað, úr 6 í 17 á einu ári. Birgðir af frystum fiskafurðum í Bandaríkjunum jukust þegar mikið síðari hluta ársins 1965. Á fyrri hluta ársins 1966 voru þær orðnar miklu meiri en eðlilegt getur talizt. Á hinn bóginn virðist svo, að aukin neyzla fiskstauta og fiskrétta hafi stöðvazt, a.m.k. í bili. Allt þetta gerir það að verkum, að telja verður horfur á Bandaríkjamarkaði mjög óvissar á yfirstandandi ári, svo að ekki sé dýpra í árinni tekið.
Í þessu sambandi er vert að hafa það í huga, að það er verðlagsþróunin á Bandaríkjamarkaði, sem ræður úrslitum um útflutningsverð íslenzkra frystiafurða. Freðfiskurinn er nú ekki seldur í teljandi magni til annarra landa en Bandaríkjanna og Sovétríkjanna. En verðið í Sovétríkjunum hefur reynzt á undanförnum árum fylgja verðinu á Bandaríkjamarkaði í stórum dráttum, þótt sveiflur séu á þeim markaði, þ.e. Sovétmarkaðinum, mun minni en á Bandaríkjamarkaði. Sölusamtökin hafa að mestu hætt sölu á brezkum markaði vegna mikilla tollaívilnana, sem nú eru innan landa Fríverzlunarbandalagsins, og hinir háu tollar Efnahagsbandalags Evrópu koma að mestu í veg fyrir freðfisksölu til aðildarríkja þess, a.m.k. svo að nokkru nemi.
Undireins og fiskverð hafði verið ákveðið upp úr áramótunum s.l., tók ríkisstj. upp viðræður við fulltrúa frystihúsaeigenda um aðgerðir til stuðnings frystihúsunum vegna verðfallsins. Tilnefndir voru fulltrúar frá báðum aðilum, er kanna skyldu allar aðstæður í þessu efni. Voru þeir Bjarni V. Magnússon framkvstj. fyrir hraðfrystihús á vegum Sambands ísl. samvinnufélaga, Eyjólfur Ísfeld Eyjólfsson framkvstj. Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, Jóhannes Nordal seðlabankastjóri og Jónas H. Haralz forstjóri fyrir hönd ríkisstj. tilnefndir í þessa n. Taldi ríkisstj. frá upphafi, að leita ætti úrlausnar í vandamálum frystihúsanna annars vegar í bættri uppbyggingu iðnaðarins og fjárhagslegri endurskipulagningu hans, en hins vegar í því að létta byrðinni af verðfallinu. Um þessi tvö atriði hafa viðræður fulltrúa ríkisstj. og frystihúsanna snúizt að undanförnu, og hefur í þeim viðræðum náðst samkomulag um þær aðgerðir, sem þetta frv. felur í sér. Þetta samkomulag hafa Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og hraðfrystihús á vegum Sambands ísl. samvinnufélaga staðfest, þótt þau telji í þeim efnum, að ríkisstj. gangi allt of skammt til móts við óskir þeirra um fjárhagslegan stuðning við þennan iðnað. En samkomulagið er fólgið í eftirfarandi:
Ríkisstj, gefur kost á 55–75% verðtryggingu á árinu 1967, miðað við endanlegt verðlag ársins 1966, á þeim frystum afurðum, sem undanfarandi hagræðingarfjárgreiðslur hafa náð til. Verðtryggingin miðast við flokka fisktegunda og greiðist frystihúsunum jafnóðum og sölusamtökin greiða fiskandvirðið. í öðru lagi: Afurðalán verði óbreytt í krónutölu frá því, sem var á árinu 1966. Í þriðja lagi: 75% hagræðingarfjár verði greitt við veðsetningu afurða, og er það nýmæli. Hagræðingarfé verði óbreytt frá árinu 1966.
Í samræmi við samkomulag þetta er svo ákvæði 6., 7. og 8. gr. frv. Þar er gert ráð fyrir því, að stofnaður verði sérstakur sjóður í því skyni að bæta frystihúsunum verðfallið að hluta. Sjóður þessi fengi 140 millj. kr. af tekjuafgangi ársins 1966 til ráðstöfunar og gæti hann orðið vísir að almennum verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðarins, eins og nánar verður vikið að hér á eftir. Er gert ráð fyrir, að bætur verði greiddar vegna verðfalls á frystum fiskafurðum, öðrum en síldarafurðum. Aftur á móti ná bæturnar ekki til annarra frystra afurða en fiskafurða, þ. á m. ekki til frysts humars og rækju.
Almenna reglan er sú, að sjóðurinn greiði 55% af verðfalli því, er verða kann á árinu 1966 og 1967. Sé verðfallið meira en 5%, hækka verðbæturnar um 2% fyrir hvert 1%, sem verðið lækkar umfram 5%. Þannig greiðast 65% við 10% verðfall og 75% við 15% verðfall. Ekki er gert ráð fyrir, að frekari hækkun verðbóta eigi sér stað, þannig að 75% greiðist, hversu mikið sem verðið annars fellur umfram 15%. Verðbæturnar skulu reiknast eftir meginflokkum fisktegunda hverrar fyrir sig. Í 8. gr. frv. er gert ráð fyrir hagræðingarfé, 50 millj. kr., á sama hátt og greitt var á s.l. ári, og er Seðlabanka Íslands í samráði við Landsbanka og Útvegsbanka Íslands falin úthlutun þessa fjár.
Eins og sjá má af því, sem hér hefur verið rakið, hafa sveiflur á verðlagi erlendis á undanförnum árum valdið fiskiðnaðinum og þjóðarbúinu í heild ýmsum erfiðleikum, sem Íslendingar hafa oft áður orðið að horfast í augu við. Miklar og öruggar verðhækkanir hafa ýtt undir hækkanir á kaupgjaldi og hráefnisverði, en reynslan sannar, að þessir liðir lækka ekki aftur nema að litlu leyti, þótt verðlækkanir eigi sér stað á erlendum mörkuðum. Jöfnun þessara verðsveiflna er því mikið hagsmunamál fyrir fiskiðnaðinn. Jafnframt er nú mikil nauðsyn á endurskipulagningu á allri uppbyggingu frystiiðnaðarins. Með þessu frv. er ekki lagt til, að endanleg ákvörðun verði tekin um stofnun jöfnunarsjóðs. Hins vegar er gert ráð fyrir, að sá sjóður, sem settur verði á laggirnar vegna verðfalls á frystum afurðum, geti orðið vísir að slíkum sjóði og undirstaða hans, ef ákveðið verður að stofna hann að undangenginni nákvæmri athugun, og persónulega sýnist mér, að öll þróun bendi til, að brýn nauðsyn sé á stofnun slíks sjóðs. Það ætti þessi síðasta reynsla okkar að sanna okkur. Meginmarkmið slíks verðjöfnunarsjóðs yrði að jafna þær sveiflur, sem verða á verðlagi afurðaflokka milli framleiðsluára. Við mat á verðbreytingum yrði að miða við meðaltalsverð sömu afurða á árunum næst á undan, sé verð á ákveðnum tíma hærra en það meðallag, skal greitt í sjóðinn, en úr honum sé það lægra. Slík verðjöfnun yrði aðeins hluti verð sveiflnanna, e.t.v. ekki nema helmingur þeirra. Fyrir fiskiðnaðinn yrðu verðlagsbreytingarnar þar með mun minni. Slíkur verðjöfnunarsjóður gæti, ef vel reyndist, einnig náð til annarra framleiðslugreina sjávarútvegsins. Er það og hagsmunamál allra greina sjávarútvegsins, að dregið sé svo sem kostur er úr hinum miklu verðsveiflum. Er augljóst, að skipulag og starfsreglur slíks verðjöfnunarsjóðs verða ekki ákveðnar nema eftir rækilega athugun og rannsókn, svo sem lagt er til í fskj. með frv. Yrði þar að kanna eðli þess vandamáls, sem þar er við að etja, og þá reynslu, er fengizt hefur af sams konar starfsemi annars staðar í heiminum. Þar sem svo greinilega hefur verið gerð grein fyrir þessum hugmyndum í fskj. með frv., sem ber fyrirsögnina: „Aðgerðir til endurskipulagningar hraðfrystiiðnaðarins“, tel ég ekki þörf á því að lengja framsöguræðu mína nú með tilvitnunum í það, sem öllum hv. alþm, hefur gefizt kostur á að kynna sér. Skal hér áréttað, að æskilegt væri þó, að þessari athugun væri lokið fyrir haustið, þannig að á næsta Alþ. mætti leggja fram frv. til l. um verðjöfnunarsjóð, ef sú athugun, sem fyrirhugað er nú að gera í þessum efnum, leiddi það í ljós, eins og ég áðan sagði, að nauðsyn væri á stofnun slíks sjóðs.
Athuganir Efnahagsstofnunar benda til, að afkoma saltfisks- og skreiðarverkunar á árunum 1964 og 1965 hafi verið tiltölulega góð, þar sem verðlag á þessum afurðum hefur enn hækkað á árinu 1966 og ekki er vitað um verðlækkanir nú á þessum afurðum. Má gera ráð fyrir, að afkoman breytist lítið á árinu 1966, og a.m.k. nú verður ekki séð, að um alvarlegar horfur sé í þeim efnum að ræða. Í l. um ráðstafanir vegna sjávarútvegsins, er samþ. voru á síðasta Alþ. og reyndar árið þar áður einnig, var heimilað að greiða 10 millj. kr. til verðuppbóta á útflutta skreiðarframleiðslu. Vegna hins hagstæða verðlags á skreið að undanförnu þykir ekki ástæða til þess nú að ráðstafa fyrir fram þessari fjárhæð til uppbóta á skreiðarframleiðslunni. Á hinn bóginn má gera ráð fyrir, að sérstök vandamál muni skapast vegna útflutnings annarra afurða, og er þá mikilvægt, að fé sé fyrir hendi til lausnar slíkum vanda. Það er fyrir því séð í 9, gr. þessa frv., og gert er ráð fyrir, að þessari fjárhæð og þeim 80 millj. kr., sem ætlaðar eru til aðstoðar við sjávarútveginn samkv. 16. gr. B. 15, — áætlað er, að sú fjárhæð verði notuð til ótiltekinna verðuppbóta á útfluttar sjávarafurðir af öðrum fiski en síld og loðnu eftir reglum, sem sjútvmrh. setur.
Sennilega munu þær ráðstafanir, sem hér um ræðir og gerð hefur verið grein fyrir, hafa í för með sér allt að 310–320 millj. kr. útgjöld fyrir ríkissjóð. Það eru 100 millj. kr. vegna 8% viðbótar við fiskverðið, 140 millj. kr. vegna framlags til verðjöfnunar frystra fiskafurða og 80 millj. kr. vegna annarra ráðstafana. Í 16. gr. B. 15 í fjárl. fyrir árið 1967 er gert ráð fyrir 80 millj. kr. til aðstoðar við sjávarútveginn. Vegna þess, að væntanlega yrði stofnaður varanlegur sjóður, þ.e. verðjöfnunarsjóður, telur ríkisstj. nú rétt, að framlagið til verðjöfnunar verði greitt af tekjuafgangi ársins 1966. Í fjárl. ársins 1967 er ekki gert ráð fyrir fjárframlagi til þeirra 8% verðuppbóta á fiskverð, sem frv. heimilar, ef samþ. verður, enda þá ekki séð, þegar fjárlög voru afgr., um þá nauðsynlegu hækkun fiskverðs, sem raun varð á, eftir að fjárlög höfðu verið samþ., og ekki varð heldur séð fyrir um niðurstöður á verðlagi útflutnings, endanlegar niðurstöður þess á mikilvægum mörkuðum eins og í Sovétríkjunum, en samningurinn við Sovétríkin var gerður allra síðustu dagana í desembermánuði s.l.
Vegna verðstöðvunarstefnu ríkisstj. kemur skattahækkun ekki hér til greina. Verður því að lækka útgjöld sem þessum greiðslum svarar. Í 2. gr. frv. er leitað eftir heimild Alþ. til þess að lækka um 10% greiðslur á fjárl. 1967 til verklegra framkvæmda og framlög til verklegra framkvæmda annarra aðila. Þá er óskað eftir heimild til að lækka greiðslu til jöfnunarsjóðs sveitarfélaga fyrir árið 1966 um 20 millj. kr. frá því, sem er ákveðið í l. nú. Vegna áðurnefndra lækkana á greiðslu á framlögum til verklegra framkvæmda er áætlað, að útgjöld ríkissjóðs lækki um 65 millj. kr. nú. Í fjárl. ársins 1966 var ætlað, að greiðslur til jöfnunarsjóðs sveitarfélaganna á árinu 1967 mundu nema 162.8 millj. kr., en vegna aukins vöruinnflutnings og viðskipta er nú gert ráð fyrir, að þessi upphæð verði því sem næst 186 millj. kr. 20 millj. kr. af þeim 23 millj., sem tekjur jöfnunarsjóðs reyndust hærri en áætlað var, munu því ganga til greiðslu uppbótar á fiskverðið. Áætlað er, að framlag til ríkisábyrgðasjóðs á árinu 1967 reynist 15 millj. kr. lægra en gert var ráð fyrir í 20. gr. fjárl. Samtals lækka því útgjöld ríkissjóðs um 100 millj. kr. vegna þessara aðgerða.
Það er þegar ljóst af þeim ályktunum, sem hlutaðeigandi samtök, annars vegar útgerðarmenn og sjómenn og hins vegar samtök hraðfrystiiðnaðarins, sölusamtök hraðfrystihúsanna og Samband ísl. samvinnufélaga, hafa gert, að með framangreindum ráðstöfunum er verið að rétta hönd, að því er ætlað verður, í tímabundnum erfiðleikum, að þau telja, en þessar ráðstafanir gangi mun skemmra til aðstoðar en nauðsynlegt er að þeirra dómi talið að gera nú. Af hálfu þessara aðila verður ríkisstj. því vart sökuð um að hafa um of lausa fjármuni hins opinbera þessum grundvallaratvinnuvegi til stuðnings. Aðilar í þjóðfélaginu, sem telja, að lengra hefði átt að ganga í þessum efnum, hljóta því óhjákvæmilega að taka á sig þær skyldur að benda á aðrar leiðir til tekjuöflunar, sem meira fé hefðu gefið án nýrrar skattaálagningar á almenning.
Ríkisstj. hefur heitið því undir umr. um fjárlög og frv. til verðstöðvunar á s.l. hausti, að forðazt yrði að grípa til almennra skattahækkana, og við það hefur verið staðið þrátt fyrir þá erfiðleika, sem útflutningsatvinnuvegirnir eiga nú við að etja og innlend stjórnvöld verða vart með rökum sökuð um. Ef okkur greinir ekki á um það atriði, að ríkisstj. hafi ekki reynzt of eftirgefanleg, eins og stundum hefur verið sagt, er að vísu eftir hin hlið málsins, þ.e. eftir hvaða leiðum fjárins er aflað. Þeir, sem kynnu að hafa þar aðrar skoðanir, munu væntanlega benda á þær leiðir, og koma þær þá að sjálfsögðu til umr. og athugunar.
Frv. þetta er till. ríkisstj. til lausnar aðsteðjandi vanda í grundvallaratvinnuvegi landsmanna nú að vel yfirveguðu máli, eftir að skipzt hefur verið á skoðunum við hlutaðeigandi aðila og mikil vinna hefur af mörkum verið lögð af færustu fulltrúum beggja aðila til að finna lausn vandans. Ég lít svo á, að þetta frv. sé staðfesting á því samkomulagi, sem þar náðist.
Ég vil svo í lok máls míns nú flytja öllum þeim, sem lagt hafa fram ómetanleg störf í ýtarlegum rannsóknum og viðræðum, þakkir fyrir störf þeirra að þeirri tillögugerð, er í frv. þessu felst.
Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að orðlengja frekar en þegar hefur verið gert um frv. að svo komnu máli og legg til, að því verði vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.