13.03.1967
Neðri deild: 53. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 760 í B-deild Alþingistíðinda. (526)

147. mál, ráðstafanir vegna sjávarútvegsins

Fjmrh. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Mér þykir rétt að gera í stuttu máli grein fyrir þeim rökum, sem eru að baki ákvörðunum varðandi fjárhagshlið þessa máls. Hæstv. sjútvmrh. hefur gert ýtarlega grein fyrir efni málsins að öðru leyti og orsökum þess, að það hefur þótt óumflýjanlegt að grípa til umræddrar aðstoðar við sjávarútveginn, bæði útgerðina sjálfa og hraðfrystihúsin, og hef ég engu þar við að bæta. Hann hefur einnig í stórum dráttum gert grein fyrir því, hvernig hugsað er að afla þess fjár, er til þarf. Ég mun því í þessum orðum, sem ég hér segi, einkum gera grein fyrir orsökum þess, að hinar mismunandi leiðir eru valdar í sambandi við fjáröflunina. En þegar fjárlög voru hér til afgreiðslu í desembermánuði, þótti ýmsum hv. þm. þar á skorta, að ekki væri gert ráð fyrir aukinni fjáröflun eða fjárráðstöfunum til aðstoðar sjávarútveginum, og töldu, að það lægi í augum uppi, að þar þyrfti meira til að koma. Ég svaraði því þá til, að ekkert lægi fyrir um það á því stigi, hverrar aðstoðar væri þörf. Hins vegar lægi það nokkurn veginn ljóst fyrir, að ekki mundi auðið að skerða þá aðstoð, sem veitt var á s.l. ári, miðað við verðfall og aðra erfiðleika, sem þá voru sjáanlegir, þannig að í fjárl. sjálfum er gert ráð fyrir 80 millj. kr., sem var ósundurliðað og gert ráð fyrir að yrði ráðstafað með sérstökum l., eins og gert hefur verið undanfarin ár. Í þessu frv. eru ákvæði, þar sem lagt er til að ráðstafa þeim peningum með sama hætti og gert var á s.l. ári, og þarf ekki meira um það að segja. Við verðlagsákvörðun um áramótin kom hins vegar í ljós, að það mundi með engu móti vera hægt að ná saman endum varðandi fiskverðið eða samkomulagi um það með nokkrum hætti, nema ríkissjóður tæki á sig viðbótarskuldbindingar, sem næmu þeirri verðhækkun, sem ákveðin var á fiskverðið, þar eð ljóst væri, að hraðfrystihúsin gátu enga hækkun á sig tekið.

Með þessu frv. er lagt til, að sú upphæð, sem nemur um 100 millj. kr., verði greidd úr ríkissjóði á þessu ári og verði þeim útgjöldum mætt með þrennum hætti. Í fyrsta lagi með því að lækka um 10% framlög til verklegra framkvæmda á vegum ríkisins. Í öðru lagi með því að skerða um 20 millj. kr. þann hluta af verðtolli og söluskatti, sem ganga á til sveitarfélaganna af þessum tekjustofnum á s.l. ári. Og í þriðja lagi þykir athugun leiða í ljós, þótt að vísu megi segja, að það sé nokkuð djarft að ætla svo miðað við ýmsar aðstæður, að ríkisábyrgðasjóður muni ekki þurfa á að halda um 15 millj. kr. af því, sem fyrirhugað er að greiða til hans á þessu ári, og megi því gera ráð fyrir, að sú fjárhæð sparist. Varðandi þennan síðasta lið er orsökin sú, að á s.l. ári var afkoma ríkisábyrgðasjóðs það góð, að hann þurfti ekki á að halda öllu því fé, sem ráðstafað var til hans á því ári, og mun það hafa numið um 20 millj. kr., sem ríkisábyrgðasjóður hafði ekki ráðstafað af því framlagi, en hins vegar var talið rétt að greiða allt framlagið til hans, sem ákveðið var á fjárl. þess árs. Með hliðsjón af þessu þykir því mega gera ráð fyrir, að hann geti staðizt útgjöld og áföll ársins í ár með svipaðri fjárhæð og í fyrra og ekki muni því þurfa að koma til, að greiða þurfi þessar 15 millj. kr. Svo sem hv. þm. er kunnugt, hefur hagur ríkisábyrgðasjóðs farið batnandi, og sú nýja skipan, sem tekin var upp með l. um ríkisábyrgðasjóð og nýjum reglum um ríkisábyrgðir, hefur skilað það góðri raun, að framlag ríkissjóðs til sjóðsins hefur farið lækkandi undanfarin ár.

Í fjárl. ársins 1967 var í það ráðizt að hækka framlög til verklegra framkvæmda um 65–70 millj. kr. frá fjárl. ársins 1966. Hefði legið fyrir, þegar fjárl. voru afgreidd, að það mundi þurfa að grípa til þeirra viðbótarútgjalda, sem hér er um að ræða, lá það í augum uppi, að grípa hefði orðið til þess að skerða þær fjárveitingar, sem voru ólögbundnar, og þá hefði naumast til þess komið, að hefði verið auðið að framkvæma þessa hækkun á framlögum til verklegra framkvæmda. Það, sem lagt er til að gera hér í þessu frv., er því að taka aftur, ef svo má segja, þessa hækkun. En það er ástæða til að leggja áherzlu á það, að hér er ekki um neina skerðingu að ræða frá því, sem raunverulega var varið til verklegra framkvæmda árið 1966, síður en svo, heldur má gera ráð fyrir því, að framkvæmdaféð nýtist betur einmitt vegna verðstöðvunarinnar, því að undanfarin ár hefur að sjálfsögðu verðbólguaukningin höggvið allveruleg skörð í framkvæmdaféð. Þá er í annan stað gert ráð fyrir því, að 20 millj. kr. umframtekjur jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á s.l. ári verði teknar til að mæta þessum aðgerðum. Það er vert að leggja í því sambandi áherzlu á, að það er ekki gert ráð fyrir að skerða að neinu leyti framlagið til jöfnunarsjóðsins á árinu 1967, og kemur jöfnunarsjóðnum þar til góða sú mikla tekjuhækkun, sem áætluð er á því ári, bæði á verðtolli og söluskatti, miðað við árið 1966. Meginhluti af tekjuauka ríkissjóðs á milli áranna 1966 og 1967 hefur runnið til þess að mæta auknum útgjöldum vegna verðstöðvunarinnar. Og með hliðsjón af því, að það er tvímælalaust hin mesta nauðsyn fyrir sveitarfélögin, að verðstöðvunin komist á, og kemur í veg fyrir það, sem hefur gerzt undanfarin ár, að á miðju ári hafi æ ofan í æ þurft að gera sérstakar ráðstafanir til nýrrar tekjuöflunar fyrir sveitarsjóðina vegna verðhækkana, sem orðið hafa á fjárhagsárinu, sem nú er komið í veg fyrir með verðstöðvuninni, að þau þurfi að standa andspænis, þykir sanngjarnt og eðlilegt, að þau leggi einnig af mörkum þann hluta af þeim umframtekjum, sem þau höfðu á árinu 1966 og þau gátu ekki gert ráð fyrir í sínum fjárhagsáætlunum, þannig að hér kemur ekki til neinnar skerðingar á þeirra gerðu fjárhagsáætlun. Þetta er ástæða til að leggja áherzlu á, vegna þess að því hefur stundum verið haldið fram, að þessi ráðstöfun með töku þessa fjár merkti það, að sveitarfélögin þyrftu að taka upp aftur fjárhagsáætlanir sínar fyrir árið 1967. Það er misskilningur, vegna þess að það er ekki gert ráð fyrir að skerða það fé, sem fjárlög áætla þeim á þessu ári. Hins vegar tel ég ástæðu til að leggja áherzlu á það, að hér má ekki skoða þessa ákvörðun sem fordæmi um skerðingu á jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Það, sem við stöndum andspænis hér, eru sérstakar aðgerðir í sambandi við verðstöðvunina, og þar verður að taka á síg ýmsar kvaðir í því sambandi, og þó að sem sagt þessi úrræði hafi orðið að velja í þetta skipti, er einmitt með því að taka ekki ákveðinn hluta af framlaginu 1967, heldur af afganginum frá 1966, lögð áherzla á, að það sé ekki ætlunin að skerða þessa greiðslu í grundvallaratriðum, þar sem hér er um að ræða greiðslur, sem eru algerlega hliðstæðar rekstrarútgjöldum ríkissjóðs, og hefði auðvitað ekki komið til, hefði verið um það vitað, þegar fjárlög voru afgreidd, að því yrði mætt með öðrum hætti en sérstakri tekjuöflun eða lækkun útgjalda. Tel ég, að það komi ekki til neinna mála, að þessu sé mætt með því að ráðstafa til þess tekjum með öðrum hætti en þeim að afla annaðhvort nýrra tekna til ríkissjóðs til að mæta þeim eða skerða útgjöld ríkissjóðs, takmarka þau, eins og hér er gert. Ég álit, að enda þótt til hefði verið greiðsluafgangur hjá ríkissjóði til að mæta þessum gjöldum, hefði ekki verið réttlætanlegt að nota þann greiðsluafgang í því skyni. Þar til kemur svo, að um slíkan greiðsluafgang er ekki að ræða, sem ég skal síðan víkja að fáum orðum.

Hinn þáttur málsins er framlagið til hraðfrystihúsanna, en þar er gert ráð fyrir, að settur verði á laggirnar sérstakur sjóður og ríkissjóður leggi fram stofnfé þessa sjóðs og taki á sig vissa ábyrgð varðandi greiðslur, ef tiltekið verðfall verður á útflutningsframleiðslunni á árinu. Hér er því um áætlunarfjárhæð að ræða, sem enn er ekki vitað, að hve miklu leyti þurfi að koma til útborgunar. Við skulum vona, að það þurfi ekki nema að takmörkuðu leyti og að verðfallið verði ekki það varanlegt, en alla vega er hér um nokkuð annars eðlis útgjöld að ræða, útgjöld, sem gert er ráð fyrir að verði í eitt skipti fyrir öll sem stofnfé þessa sjóðs, og af þeim sökum er fremur verjanlegt að taka fé af greiðsluafgangi til þess að mæta þess konar útgjöldum. Það er því lagt til, að af greiðsluafgangi verði varið 140 millj. kr. sem áætlunarfjárhæð til þess að mæta útgjöldum í sambandi við myndun þessa sjóðs. Ég skal játa það fúslega, að hér er um næsta hæpna ráðstöfun að ræða engu að síður, þó að það megi verja hana, eins og ég áður sagði, að nota greiðsluafganginn í þessu sambandi, en það hefur þó þótt óhjákvæmilegt að gera þetta, til þess að auðið verði að forðast nýjar skattaálögur.

Nú munu hv. þdm. vafalaust spyrja sem svo í þessu sambandi, úr því að farið er að tala hér um ráðstöfun á greiðsluafgangi ríkissjóðs, hver sé raunverulegur greiðsluafgangur ríkissjóðs á árinu 1966. Ég er ekki reiðubúinn að nefna þá tölu nákvæmlega hér, en þinginu mun verða gerð grein fyrir afkomu ríkissjóðs nú innan skamms. Það mun hins vegar þá koma glögglega í ljós, að það er ekki auðið að ráðstafa meira fé af greiðsluafgangi en umræddum 130–140 millj. kr. í þessu skyni. Það hefur þegar verið ráðstafað með aðgerðum Alþ. 30 millj. kr. af greiðsluafgangi vegna hagræðingar eða framleiðnisjóðs landbúnaðarins, og þegar það er haft í huga, að vanskilaskuldir ríkissjóðs vegna greiðsluhalla áranna 1964 og 1965 nema um 350 millj. kr., eða nettó um 250 millj., þegar frá eru dregnar þær 100 millj., sem lagðar voru til hliðar af greiðsluafgangi ársins 1963, til þess einmitt að mæta slíkum áföllum, þá er það ljóst, þegar við stöndum andspænis þessum skuldum, sem eru með algerlega óeðlilegum hætti og hljóta að verða að jafnast, þegar efnahagur ríkissjóðs leyfir það, þá er ekki um að ræða frekari greiðsluafgang til þess að mæta þeim ráðstöfunum, sem hér er gert ráð fyrir. Þótt menn kynnu að vilja ganga svo langt, sem ég tel af fjárhagslegum og efnahagslegum ástæðum að væri fráleitt, að mæta öllum útgjöldum í sambandi við þetta frv. með því að nota greiðsluafganginn í því sambandi, þá er ekki um slíkar upphæðir að ræða.

Ég tel eftir atvikum, að það megi teljast vel viðunandi, sem hér hefur tekizt að setja saman till. um og eftir atvikum að fá menn til að una við. Það er vitanlegt, að útgerðin er ekki ánægð með sinn hlut, en það liggur líka í augum uppi, að það verður að fara eins hóflega í slík útgjöld og styrki og auðið er, því að það verður ekki gert með öðrum hætti en leggja það á borgarana og skerða þá kjör þeirra að einhverju leyti til þess að mæta slíkum útgjöldum. Ég tel, að þegar í senn hafi tekizt að ná viðhlítandi samkomulagi og menn uni eftir atvikum við þær ráðstafanir, sem hér eru gerðar, annars vegar og hins vegar að leggja fram hátt á 3. hundrað millj. kr., án þess að til komi nokkrir nýir skattar, að menn geti bærilega við unað. Og það hefur, að ég hygg, ekki áður tekizt að gera slíkar ráðstafanir, án þess að það leiddi af sér stórfelldar nýjar álögur, sem þá aftur hafa skapað nýja og aukna erfiðleika. En samhliða því, að þetta er hér gert og að menn gera sér vonir um, að hægt verði að ná allverulegum árangri með verðstöðvunaraðgerðum og að þessi verðlækkun útflutningsframleiðslunnar verði ekki svo varanleg, að það fari ekki innan tíðar að segja til sín, að til einhverrar verðhækkunar komi, þá ætti, þó að ekki sé hægt að fullyrða neitt um það efni, að vera þó viss ástæða til þess að gleðjast yfir því, að tekizt hefur þó að ná þessari lausn, sem hér er gert ráð fyrir.