13.03.1967
Neðri deild: 53. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 792 í B-deild Alþingistíðinda. (529)

147. mál, ráðstafanir vegna sjávarútvegsins

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Ég skal, eins og ég sagði, ekki gefa sérstakt tilefni til framhaldsumræðna um málið. Það stendur þannig á, að ýmsir þm. eru vant við látnir, sem þó hefðu jafnvel óskað að vera viðstaddir þessar umr. Ég get þó ekki látið hjá líða að minna á örfá atriði og þá sérstaklega í ræðu hv. 5. þm. Austf. (LJós), sem eðlilegt er að mínu viti að leiðrétt séu, áður en málið fer til nefndar.

Í fyrsta lagi vil ég leiðrétta þann misskilning, sem af orðum hans hefði mátt ráða, að hann taldi með í uppbótaupptalningu sinni hér áðan, sem hann taldi nú vera eitt merki um það, hve afvega ríkisstj. væri komin af sinni upphaflegu stefnu, að inni í þessum uppbótum taldi hann tryggingagjöldin til vélbáta. Ég vil minna á það, sem ég veit að hv. þm. veit líka, eða það a.m.k. mátti skilja það af ræðu hans, að hann teldi þau þarna með. Þetta eru gjöld, sem útvegurinn sjálfur greiðir, og eru því ekki gjöld þess opinbera í þeim skilningi, að það geti talizt uppbætur af hálfu ríkisins.

Þá taldi hann, að ég hefði í framsöguræðu minni hér áðan lagt á það áherzlu, að sá vandi, sem hér er við að etja, lægi allur í því, að orðið hefði verðlækkun á allra síðustu mánuðum ársins, eins og hann orðaði það. Þetta er ekki rétt eftir haft. Ég sagði hins vegar það, sem ég skal lesa hér upp aftur, af því að ég hafði mína framsöguræðu skrifaða, þar segir erðrétt, með leyfi hæstv. forseta: „Hér hefði þó ekki verið um það vandamál að ræða, sem iðnaðinum sjálfum hefði ekki verið viðráðanlegt, ef hið mikla erlenda verðfall hefði ekki komið til sögunnar:“ Síðan lýsti ég því, að önnur atriði kæmu hér til greina, sem væru meðverkandi, og ég tel rétt, að þetta komi nú fram.

Annað atriði, sem hv. þm. minnti á og hv. 4. þm. Reykn. hafði einnig orð á í sinni ræðu, sem voru fullyrðingar frá umr., sem fóru fram í Sþ. hér á dögunum um það, að ekkert hefði verið gert, ekkert hefði verið hugsað fyrir framkvæmdum á neinum af tillögum vélbátaútgerðarnefndar, og því til stuðnings var bent á það sama atriði, sem bent var á í hv. Ed, undir umræðum um þetta mál þar, þar var sérstök áherzla lögð á það, að tillaga vélbátaútgerðarnefndar nr. 3, sem er svo, með leyfi hv. forseta: „Nefndin mælir með því, að fram verði látin fara sérstök athugun á erfiðleikum þeirra útgerðarfyrirtækja, sem sitja uppi með dýran síldveiðiútbúnað, en geta ekki haft not af honum, eins og síldveiðum er nú háttað,“ — réttilega var frá því skýrt, að hér væri fyrst og fremst átt við minni vélbátana hér sunnan- og suðvestanlands. Nefndin leggur sem sagt til, að fram verði látin fara athugun á því, — hvað bætur í þessum efnum þyrftu að vera miklar. Það, sem rn. hefur í þessum efnum gert, er nákvæmlega eftir fyrirsögn nefndarinnar. Hún hefur falið Fiskifélaginu að gera þessar athuganir. Ef þetta er eina ásökunin um slæma framkvæmd á tillögum vélbátaútgerðarnefndar, þá uni ég glaður við það. Ég segi, ég uni glaður við það, ef ásakanir eru ekki aðrar, því að ég hef þá reynslu af Fiskifélaginu og veit, að hv. þm. sem forveri minn í þessu starfi hér veit það einnig, að þeim er vel treystandi til að leysa þetta verkefni, þá athugun, sem nefndin lagði til, vel og drengilega af hendi. En hv. þm. vék einnig að því, og stöðvaðist þá við niðurstöður nefndarinnar um ástandið í fiskverðsmálunum árið 1965, hann valdi það ár sérstaklega og taldi sem rétt er, að nefndin hefði álitið, að fiskverðið þyrfti að vera 18% hærra en það var þá, og samkv. samanburði nefndarinnar taldi hann, að staða þess báts, sem nefndin vitnar til, það er 72 rúml. bátur, hefði verið 13% lakari en hún var 1962. Hins vegar hljóp þm. yfir það, að verulegur ávinningur varð til bóta í þessa átt á næsta ári á eftir, þ.e.a.s. árið 1966. En í byrjun þess árs var með sama hætti reiknað. Sá halli, sem þá á að vera á stöðu bátsins, er um 7.64% og hefur því batnað um nálega helming á þessu tímabili. Þetta vildi ég einnig, að kæmi fram, því að það er að vísu rétt, þarna er dálítið bil óbrúað enn, en hefur verulega unnizt í bataátt með þeirri breytingu, sem þarna hefur á orðið, og þrátt fyrir þær verðlækkanir, sem orðið hafa á erlendum mörkuðum.

Hv. þm. segir, að 1958 hafi verið ágætt ár fyrir togaraútgerðina og hún hafi þá staðið í miklum blóma. Ekki man ég nú nákvæmlega, hvenær það útgerðarfyrirtæki, sem hv. þm. er skyldastur, hætti sinni togaraútgerð og seldi sitt síðasta skip, en ég hygg, að það hafi verið í kringum þetta árabil, sem þarna er nefnt, þannig að jafnmiklir fjármálamenn og þeir eru nú í Neskaupstað, þá veit ég, að þeir hefðu haldið þessari útgerð áfram, ef þeir hefðu talið, að vígstaðan væri eins góð og hv. þm. vildi vera láta hér áðan. En þeir tóku það ráð, sem fleiri tóku síðan á eftir þrátt fyrir þær hagsbætur, sem áttu að felast í tvennum gengislækkunum þarna á eftir, að leggja niður útgerð sína og hætta þeim rekstri og breyta yfir í aðrar starfsgreinar.

Enn eitt atriði, sem hv. þm. talaði hér um og mér fannst vera þyngsta ásökunin í garð hæstv. ríkisstj., en það var sú ásökun hans, að vegna kröfuhörku og frekju ríkisstj. í viðskiptamálum hefði verið glatað einum af mjög dýrmætum mörkuðum okkar, þ.e.a.s. í Tékkóslóvakíu, þ.e.a.s. kröfuhörku um að leggja niður vöruskiptaverzlunina og taka síðan upp gjaldeyrisviðskipti. Eftir þeim upplýsingum, sem ég hef haft, síðan þessi orð voru sögð, er mér tjáð, að hjá þremur af Austur-Evrópuþjóðunum hafi orðið alger stefnubreyting í þessum efnum að þeirra eigin vilja sjálfra, þ.e.a.s. Póllands, Rúmeníu og Tékkóslóvakíu. Og fyrirkomulagsbreyting í þessum efnum varðandi þessi lönd er komin eftir tillögum þessara landa sjálfra, sem íslenzka ríkisstj. hefur að sjálfsögðu fallizt á og íslenzk stjórnvöld eru sammála um, a.m.k. meðan þeirri stefnu er framfylgt, sem nú er í þessa átt. Það er e.t.v. ekki í mínum verkahring sérstaklega að verja álit þeirra sérfræðinganna, Jóhannesar Nordals og Jónasar Haralz, sem hv. þm. gerði að sérstöku umræðuefni hér áðan, fylgiskjal með þessu frv., þar sem hann segir, að helzti ókosturinn á og undirrót þessa vanda sé of mikil framleiðslugeta frystihúsanna. Þetta er vægast sagt hagrætt orðum og þá um leið meiningu. Ég geri ráð fyrir, að það fari ekki á milli mála, að það, sem þessir aðilar eiga við, er fyrst og fremst hin lélega nýting þeirrar framleiðslugetu, sem er fyrir í landinu, og þeim vanda er mögulegt að mæta á fleiri en þann hátt einan, sem hv. þm. lét skína í, að það yrði að leggja frystihúsin niður unnvörpum. Þarna er, eins og ég sagði áðan, vægast sagt verið að snúa út úr.

En það er önnur hlið þessa máls, sem ekki snertir hvað sízt skjólstæðinga hv. þm., og hún er fiskverðið sjálft. Það skyldi nú ekki koma við fiskverðið í landinu á hverjum tíma hin lélega nýting frystihúsanna í landinu? Að minnsta kosti voru um það mjög skýrar og skilmerkilegar yfirlýsingar frá sjómannasamtökunum á s.l. vori, að þau teldu eina af verstu undirrótum of lágs síldarverðs vera hina lélegu nýtingu á síldarbræðslunum í landinu, og sýndu fram á það með rökum, að ef þessar verksmiðjur allar væru í fullum notum, hefði þrátt fyrir óvenjulega mikla síldveiði verið aðeins um rúmlega mánaðarvinnslu að ræða fyrir allar verksmiðjurnar. Þetta töldu þeir koma illa við sig, þegar verið væri að finna út meðalafkomu síldarvinnslustöðvanna í landinu, sem það og gerir. Hið nákvæmlega sama átti sér stað hér, þegar um hraðfrystihúsin er að ræða. Og enginn, a.m.k. veit ég eða tel mig vita það um okkur báða, að hvorugur okkar vildi leggja til, enda margítrekaði þm. það í sinni ræðu, að hann teldi fiskverðið allt og lágt. En er þá ekki rétt að athuga, hvaða ástæður það eru, sem til þess liggja, og ég veit reyndar, að þær eru margar, en ein af meginástæðunum er hin lélega nýting á vinnslustöðvunum, og gildir þá það sama bæði í síldarvinnslunni og hraðfrystiiðnaðinum í landinu.

Hv. þm. sagði, að millifærsla og hugmyndir þeirra, sem mestu réðu, eins og hann sagði, um væntanlegan verðjöfnunarsjóð, mundu kála íslenzkum sjávarútvegi endanlega á skömmum tíma og hans skoðun væri sú, að ef ætti að hugsa um þessa leið að einhverju leyti, þyrftu þessir sjóðir að vera margir undir sjálfstæðri stjórn. Um þessi efni hefur engu verið slegið föstu. Það hefur aðeins verið farið fram á það, að hlutaðeigandi aðilar fengjust til viðræðna um slíkan verðjöfnunarsjóð. Og ég heyrði sem betur fer hv. þm. ekki andmæla því, að þeir gætu átt rétt á sér. Sú hugmynd, sem að baki þessu liggur, er fyrst og fremst til tryggingar þeim aðilum, sem þarna hafa átt í erfiðleikum, og verður a.m.k. á þessu stigi málsins ekki sagt, að nein undirmál séu í þeim hugmyndum.

Þá taldi þm., að komið hefði fram í umr. um þessi mál, — ég vitna nú ekki til neins sérstaklega eins í því, — að aðalrót þessara erfiðleika, sem hér væri við að etja í landinu í dag, að mér skildist, hefði verið á undanförnum árum of hátt fiskverð eða of hátt verð á afurðum okkar erlendis, það framkallaði aftur verðbólgu og launakapphlaup í landinu. Ég hef engan heyrt fullyrða það, og þvert ofan í þessa fullyrðingu sagði ég í minni framsöguræðu, að þetta væri ein meginundirstaðan undir því, að við teldumst vera með launahæstu löndum og beztu afkomu almennings samkv. skýrslum alþjóðasamtakanna. Það er tvímælalaust undirstaðan undir því, að efnahagur okkar er með þeim blóma, sem hann hefur verið hjá almenningi, hve vel hefur gengið að selja þessar afurðir okkar á erlendum markaði, en einmitt vegna þess verður áfallið, þegar fer að vindast ofan af þessu aftur, enn þá erfiðara. Almenningur óskar eðlilega eftir, að þessi þróun geti haldið áfram, og það er svolítið erfitt að verða að sætta sig við það að þurfa að stöðvast í bili, en ég talaði um það áðan í minni framsöguræðu, sem hv. 4. þm. Reykn. taldi, að ég hefði þó ekki leitazt við að sanna, að ég vonaði, að hér væri um tímabundna erfiðleika að ræða í íslenzkum sjávarútvegi, og styðst ég þar bara við reynslu sögunnar. Við höfum áður orðið að horfast í augu við það, að verðlækkun yrði á íslenzkum sjávarafurðum erlendis, og við höfum yfirstigið þessi vandamál af eigin rammleik á undanförnum árum og áratugum, og ég efast ekki um, að íslenzka þjóðin er reiðubúin til að gera það einnig nú. Þrátt fyrir og ekki sízt vegna þess góðæris, sem ríkt hefur á undanförnum árum, er almenningur betur undir það búinn að mæta tímabundnum erfiðleikum en hann var oft hér á árunum áður, þegar atvinnuleysi herjaði stóran hluta ársins.

Eitt, og það skulu vera mín lokaorð að þessu sinni, eitt fannst mér skorta á þessar ræður hv. stjórnarandstæðinga beggja. Þeir gerðu mjög ljóslega grein fyrir frá sínum sjónarhóli séð, hvað þessum till. væri áfátt, og ef til vill gæti það bjargað einhverju í bili, ef til vill stöðvaðist ekki flotinn og ef til vill mundu fiskvinnslustöðvarnar baslast fram yfir kosningar, eins og það var orðað áðan, og við fengum mjög skilmerkilega að vita, hvað þeim fannst að þessum hlutum. Hinu stendur á enn, og væntanlega kemur það fram, þegar hv. n. hefur fengið aðstöðu til að athuga einstaka liði þessa frv. betur, en það væri ástæða til þess, og hv. þm., sem báðir eiga sæti í þeirri n., sem málið fer til, fá ástæðu til að kanna einstaka liði þess betur en mér hefur kannske tekizt að útskýra hér og kanna það til hlýtar, að þeir komi þá fram með, hvaða aðrar leiðir átti að fara, hvaða aðrar leiðir komu minna við almenning en þetta frv. gerir ráð fyrir og hverjar aðrar leiðir hefðu verið þeim aðilum, sem hér er verið að rétta hönd, heillavænlegri en sú úrlausn, sem í frv. þessu felst.