16.02.1967
Efri deild: 40. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 883 í B-deild Alþingistíðinda. (558)

127. mál, afnám einkasölu á viðtækjum

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Í gildandi lögum um útvarpsrekstur ríkisins er heimild til ríkisstj. til þess að reka viðtækjaverzlun, sem jafnframt hafi einkasölu á útvarpstækjum. Þessi viðtækjaverzlun gegndi mikilvægu hlutverki á sínum tíma, þegar ríkisútvarpið var stofnað. Þá mátti gera ráð fyrir, að nokkrir erfiðleikar kynnu að vera á því að afla viðtækja til landsins til þeirrar nýju starfsemi, sem hér var þá efnt til. Þótti því rétt, að einkasala væri höfð á viðtækjunum, til þess að heildarinnkaup á viðtækjum til landsins gætu orðið sem skipulegust og gætu orðið ódýrari en þau mundu reynast, ef fjölmargir einkaaðilar hefðu innkaup og dreifingu tækjanna með höndum. Hér var þá engin reynsla fyrir hendi hjá kaupsýslustéttinni varðandi viðskipti með þau nýju tæki, sem auðvitað fylgdu í kjölfar stofnunar ríkisútvarpsins, og þótti þá rétt, að þau innkaup yrðu gerð í sem stærstum stíl og um eitt heildarskipulag á dreifingu þeirra um landið væri að ræða. Jafnframt mátti búast við því þá, að nokkur hagnaður gæti orðið af viðskiptum með viðtæki, og ríkisútvarpið var fjárvana, og þótti því hér vera um eðlilegan tekjustofn fyrir ríkisútvarpið að ræða. Það þótti eðlilegt, að verzlunarhagnaður af verzlun með viðtæki rynni til eflingar ríkisútvarpsins.

Nú um langt skeið undanfarið hafa hins vegar smám saman tekið að tíðkast allt aðrir verzlunarhættir með útvarpsviðtæki en þeir, sem eðlilegir þóttu og réttmætir á fyrstu árum eða jafnvel áratugum starfsemi ríkisútvarpsins. Viðtækjaverzlunin hefur á undanförnum árum fallizt á það, að einkainnflytjendur flyttu inn viðtæki í sívaxandi mæli, og heimilað það með því móti, að einkainnflytjendurnir greiddu gjald, svokallað einkasölugjald, 30% af innflutningsverði viðtækjanna, til Viðtækjaverzlunarinnar. Rekstur hennar hefur því smám saman dregizt mjög saman. Hún hefur að vísu verzlað með viðtæki eins og áður, en síminnkandi hluti heildarviðtækjainnflutningsins hefur farið fram um hendur Viðtækjaverzlunarinnar, og segja má, að meginstarfsemi hennar hafi smám saman í æ ríkari mæli færzt í það horf að vera innheimtuaðili fyrir þetta svokallaða 30% einkasölugjald, sem einkainnflytjendur viðtækja greiddu til verzlunarinnar. Í kjölfar þess, að síminnkandi hluti viðtækjainnflutningsins hefur farið um hendur Viðtækjaverzlunarinnar, hefur svo það komið, að hún sjálf, verzlunarreksturinn sjálfur hefur á undanförnum árum verið hættur að vera tekjulind fyrir ríkissjóð, heldur hefur þvert á móti orðið nokkur halli á rekstri Viðtækjaverzlunarinnar, sem þá hefur orðið að greiðast úr ríkissjóði eða réttara sagt koma til frádráttar einkasölugjaldinu, sem Viðtækjaverzlunin hefur innheimt af einkainnflytjendum.

Þá er þess og að geta, að frá árinu 1930 til ársins 1951 rann verzlunarhagnaður Viðtækjaverzlunarinnar í framkvæmdasjóð ríkisútvarpsins. En þá var þeim lagaákvæðum breytt og ákveðið, að verzlunarhagnaður Viðtækjaverzlunar skyldi ganga til byggingar þjóðleikhússins og svo síðar, eftir að þeirri byggingu lauk að mestu, til þess að greiða ógreiddar byggingarskuldir hennar. 1958 var svo þessum ákvæðum enn breytt á þann veg, þegar byggingarskuldir þjóðleikhússins voru mjög farnar að minnka, að ákveðnum hluta viðskiptahagnaðar Viðtækjaverzlunarinnar, þ.e.a.s. 2/5 hlutum hagnaðar hennar, skyldi mega verja til þess að standa undir rekstri sinfóníuhljómsveitar hér á Íslandi, sem þá átti í nokkrum erfiðleikum fjárhagslega séð. Á undanförnum árum eða allar götur síðan 1951 hefur því ríkisútvarpið ekki notið neins góðs af tekjum Viðtækjaverzlunarinnar, heldur hafa þær gengið sumpart til þess að greiða byggingarkostnað og síðar byggingarskuldir þjóðleikhússins og sumpart til þess að standa undir rekstrarkostnaði sinfóníuhljómsveitarinnar. Að vísu er það svo, að á allra síðustu árum hafa þeir tekjustofnar, sem bæði þjóðleikhúsið og sinfóníuhljómsveit hafa haft að viðbættum rekstrarhagnaði Viðtækjaverzlunar ríkisins ekki dugað til að greiða kostnað vegna þjóðleikhúss og kostnað vegna sinfóníuhljómsveitar, og hafa þess vegna verið teknar upp í fjárlög beinar fjárveitingar bæði til þjóðleikhúss og sinfóníuhljómsveitar. Má í raun og veru segja, að ástæðulaust sé að hafa sérstök lagaákvæði í gildi um skiptingu hagnaðar Viðtækjaverzlunar ríkisins, sem er í raun og veru ríkisfyrirtæki, milli þessara tveggja fyrirtækja, sem sumpart eru hrein ríkisfyrirtæki eins og þjóðleikhúsið og sumpart ríkisfyrirtæki að nokkrum hluta, þ.e. sinfóníuhljómsveitin, þegar þessir stofnar duga ekki hvort eð er, og úr ríkissjóði þarf að veita fé til þeirra beggja á fjárl. Það má því segja, að sú menningarstarfsemi, sem Viðtækjaverzluninni hefur verið ætlað að styrkja, þ.e. í upphafi ríkisútvarpið og síðar þjóðleikhús og sinfóníuhljómsveit, sé að því er snertir þjóðleikhús og sinfóníuhljómsveit hvort eð er orðin háð ríkissjóði og því sé hér um óþarfar krókaleiðir að ræða.

Þegar svo við þetta hefur bætzt, að á undanförnum árum hefur niðurstaðan af sjálfum rekstri Viðtækjaverzlunarinnar orðið neikvæð, hefur þótt tímabært að athuga allan starfsgrundvöll Viðtækjaverzlunarinnar. Þess vegna var það, að ég skipaði 15. maí 1965 nefnd til þess að endurskoða rekstrargrundvöll Viðtækjaverzlunarinnar. Í n. voru skipaðir Jón H. Bjarnason verkfræðingur samkv. ábendingu Verzlunarráðs Íslands, Sigurður Briem fulltrúi í menntmrn., Sigtryggur Klemenzson ráðuneytisstjóri í fjmrn. og Sveinn Ingvarsson forstjóri Viðtækjaverzlunarinnar. N. lauk störfum nú á sl. vori eða 29. marz 1966, og hún komst einróma að þeirri niðurstöðu, að ekki væri ástæða til þess lengur, að ríkið annaðist rekstur Viðtækjaverzlunarinnar og hún skyldi hafa einkasölu á viðtækjainnflutningi til landsins, enda var sú einkasala raunar úr sögunni þegar fyrir mörgum árum. Það var einróma niðurstaða n., að Viðtækjaverzlunin skyldi lögð niður. Hins vegar er nauðsynlegt að sjá þeim fyrirtækjum, sem notið hafa góðs af einkasölugjaldinu að frádregnu tapi Viðtækjaverzlunarinnar, þ.e. þjóðleikhúsinu og sinfóníuhljómsveitinni, fyrir bótum fyrir þann tekjumissi, sem af niðurlagningu Viðtækjaverzlunarinnar og þar með innheimtu einkasölugjaldsins mundi leiða. Þess vegna varð um það samkomulag í ríkisstj., að verðtollur á innflutningi hljóðvarpstækja og sjónvarpstækja skyldi hækkaður, jafnframt því sem Viðtækjaverzlunin yrði lögð niður og innheimtu einkasölugjaldsins hætt. Hefur ríkisstj. eða hæstv. fjmrh. flutt annað frv. samhliða þessu um breytingu á tollskránni, þar sem gert er ráð fyrir þeirri hækkun á verðtolli á hljóðvarpstækjum og sjónvarpstækjum, sem færa mun ríkissjóði í heild mjög svipaðar tekjur og þjóðleikhús og sinfóníuhljómsveit hafa undanfarið fengið af einkasölugjaldi því, sem Viðtækjaverzlunin hefur innheimt.

Sú breyting, sem mundi fylgja samþykkt þessara tveggja frv., er því sú, að í stað þess, að Viðtækjaverzlunin innheimti 30% einkasölugjald af innflutningi þeim, sem einkainnflytjendur annast af hljóðvarpstækjum og sjónvarpstækjum, innheimti ríkissjóður beint samsvarandi hækkun á verðtolli á þessum sömu tækjum. Er hér um mun ódýrari og sjálfsagðari innheimtuaðferð að ræða heldur en þá, sem tíðkazt hefur nú nokkur undanfarin ár. Það verður sparnaður í innheimtu opinberra tekna, en jafnframt hættir ríkissjóður að þurfa að greiða hallann beint eða óbeint, sem orðið hefur af sjálfum viðskiptarekstri Viðtækjaverzlunar ríkisins.

Þegar starfsemi Viðtækjaverzlunarinnar endanlega lýkur, mun væntanlega koma í ljós, að hún mun eiga nokkra nettóeign. Talið hefur verið sjálfsagt, að sú nettóeign gengi til þess að greiða ógreidd framlög Viðtækjaverzlunarinnar vegna Sinfóníuhljómsveitar Íslands og jafnframt til þess að ljúka þeim byggingarframkvæmdum, sem ólokið er við þjóðleikhúsið, en talið er, að kosta muni um 1 millj. kr. Hvort tveggja þetta er í fullu samræmi við ákvæði gildandi laga um ráðstöfun á rekstrarhagnaði Viðtækjaverzlunarinnar. Að svo miklu leyti sem verða kann afgangur, verða kann um að ræða hreina eign Viðtækjaverzlunarinnar, þegar hún hefur lokið greiðslu allra sinna skuldbindinga gagnvart skuldheimtumönnunum og ríkissjóði og öðrum þeim, sem kunna að eiga kröfur á hendur henni, gerir frv. ráð fyrir því, að nettóeign Viðtækjaverzlunarinnar gangi þá í framkvæmdasjóð ríkisútvarpsins, og er það í samræmi við upphafleg ákvæði laga um Viðtækjaverzlunina, þar sem gert var ráð fyrir því, að framkvæmdasjóður ríkisútvarpsins nyti góðs af þeim hagnaði, sem hlytist af rekstri Viðtækjaverzlunarinnar. Sú nettóeign, sem verður, þegar hún hefur endanlega verið gerð upp, rennur því til ríkisútvarpsins, eins og ákveðið var í upphafi að rekstrarhagnaði hennar skyldi ráðstafað.

Með þessu móti vona ég, að ég hafi skýrt efni þessa máls, og leyfi mér, herra forseti, að leggja til, að þessu frv. verði að lokinni þessari 1. umr. vísað til 2. umr. og hv. menntmn.