27.02.1967
Efri deild: 44. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 913 í B-deild Alþingistíðinda. (586)

137. mál, Búreikningastofa landbúnaðarins

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Frv. þetta er samið af n., og var Ólafur Björnsson prófessor formaður n. Búreikningaskrifstofa hefur starfað um 30 ára skeið, en árangur af starfsemi hennar hefur ekki orðið eins mikill og æskilegt hefði verið, bæði vegna þess, að fé hefur ávallt verið af skornum skammti til að standa undir rekstri hennar, og eins það, að löggjöfin og skipulag hefur ekki verið í því formi, sem æskilegt hefði verið og reynslan hefur sýnt, að hefði verið betra en þetta. Það þykir því henta að breyta löggjöfinni í það form, sem samrýmist nútímanum meira en það gamla form. Það er ákveðið, að fé til skrifstofunnar verði ávallt eftir því, sem veitt er á fjárl., og hefur það verið aukið nokkuð síðustu árin, sérstaklega nú tvö seinni árin, og eru nú 800 þús. kr. á fjárl. til þess að standa undir rekstri stofnunarinnar.

Í 3. gr. frv. er kveðið á, hvert hlutverk búreikningaskrifstofu sé. Það er í fyrsta lagi að leiðbeina bændum um færslu búreikninga og stuðla að því, eftir því sem við verður komið, að bændur færi sem flesta reikninga um búrekstur sinn. Annað er að safna búreikningum víðs vegar að af landinu, bæði frá einstökum bændum og félagsbúum, með það fyrir augum að fá sem réttasta mynd af búrekstri bænda í heild og jafnframt af einstökum greinum landbúnaðarins. Í þriðja lagi að gera upp búreikninga, er stofnuninni berast og færðir eru í samræmi við reglur, sem hún setur, hlutaðeigendum að kostnaðarlausu, og vinna úr þeim tölulegar upplýsingar um allar greinar landbúnaðarins, eftir því sem efni standa til. Senda skal viðkomandi bónda búreikning hans upp gerðan í samráði við búnaðarhagfræðiráðunaut, eins fljótt og við verður komið, og auk þess birta yfirlitsskýrslu um niðurstöður búreikninganna fyrir hvert ár fyrir sig. — Gefa skal út aðgengileg eyðublöð fyrir búreikninga með glöggum skýringum. Þá skal einnig gangast fyrir búreikninganámskeiðum til leiðbeiningar bændum, er búreikninga vilja halda. Einnig skal vinna að því með útgáfustarfsemi, námskeiðum og á annan hátt í samráði við búnaðarhagfræðiráðunauta Búnaðarfélagsins og aðra starfsmenn þess, að útbreiða meðal bænda hagkvæma þekkingu á niðurstöðum búreikningaskrifstofunnar. Loks á skrifstofan að vera ríkisstj. og þeim aðilum, er hverju sinni fara með verðlags- og framleiðslumál landbúnaðarins, til aðstoðar við útreikninga eða gagnasöfnun, að því leyti sem slíkt fellur innan starfssviðs stofnunarinnar, eins og það er ákveðið með lögum þessum.

Þetta eru meginverkefni búreikningaskrifstofunnar, og má segja, að það sé ekki harla lítið, en það mætti segja, að það væri tvíþætt í aðalatriðum: Annars vegar að gefa bændum með þeim niðurstöðum, sem búreikningarnir sýna, á glöggan hátt rétta mynd af því, hvað borgar sig, hvaða búgrein borgar sig og hvernig rekstrinum skuli hagað til þess að fá sem beztan og eðlilegastan árangur. Og það er það, sem reynslan hefur sýnt, eftir að menn fóru að veita því verulega athygli, að það er ákaflega misjöfn niðurstaða og misjafn árangur hjá ýmsum bændum með búreksturinn og hve miklar tekjur þeir fá af hverju kúgildi fyrir sig. Það er eftir því, hvernig er farið með búpeninginn yfirleitt og hvernig að búrekstrinum er staðið. Í öðru lagi er það vitanlega mikið atriði að hafa við höndina, þegar verðlagning búvara fer fram, sem flesta búreikninga, sem sýna rétta mynd af búskapnum og afkomu bændastéttarinnar. Það hefur vantað að undanförnu nægilega glögga og nægilega marga reikninga, þegar verðlagningin hefur farið fram, til þess að það væri í verulegum atriðum hægt að styðjast við þá. En þetta ætti allt að standa til bóta með nýrri löggjöf og auknu fjárframlagi á fjárl. til þess að standa undir rekstri stofnunarinnar.

Í sambandi við samningu þessa frv. hefur verið stuðzt við þær reglur, sem notaðar eru í öðrum löndum, t.d. hjá Bretum og Hollendingum. Það hefur og verið byggt nokkuð á reynslu síðustu ára af búskaparháttum íslenzkra bænda. Það hefur einnig verið haft í huga, að bókhaldsþekking bænda er takmörkuð af eðlilegum ástæðum, og þarf þess vegna að haga skýrsluforminu í samræmi við það.

Ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta frv. að svo stöddu. Ég vil leggja til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. landbn.