10.11.1966
Efri deild: 13. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 41 í B-deild Alþingistíðinda. (59)

2. mál, síldarflutningaskip

Frsm. (Jón Þorsteinsson):

Herra forseti. Lagafrv. þetta um heimild fyrir ríkisstj. til að ábyrgjast lán til kaupa á síldarflutningaskipi o.fl. er flutt til staðfestingar á brbl., er út voru gefin 14. maí s.l. Með brbl. þessum var ríkisstj. heimilað að takast á hendur sjálfskuldarábyrgð á láni að upphæð allt að 52 millj. kr., eða jafnvirði þess í erlendri mynt, sem Síldarverksmiðjur ríkisins höfðu í huga að taka til kaupa á síldarflutningaskipi og til endurbóta á löndunartækjum o.fl.

Þessu frv. var að lokinni 1. umr. vísað til fjhn. N. kvaddi á sinn fund Svein Benediktsson formann stjórnar Síldarverksmiðja ríkísins, og veitti hann n. ýmsar upplýsingar um mál þetta.

Ríkisábyrgðarheimild brbl. var notuð og lán tekið í Englandi, að fjárhæð 45 millj. kr., og flutningaskip keypt á s.l. sumri. Skipið var 8 ára gamalt, nýkomið úr klössun, burðarmagn þess 3200 smálestir eða um 22 þús. mál síldar. Hlaut skipið nafnið „Haförninn“. Er það stærsta síldarflutningaskip í eigu Íslendinga. Kostnaðarverð skipsins að öllum breytingum og búnaði meðtöldum varð um 52 millj. kr. Rekstrarkostnaður skipsins á dag er áætlaður um 70 þús. kr., og er þá fyrning reiknuð þar með.

Skip þetta er aðallega ætlað til síldarflutninga, en á þeim árstíma, sem flutninga á síld er eigi þörf, má nota skipið til lýsisflutninga. Haförninn kom til landsins 4. ágúst s.l. og hóf skömmu síðar síldarflutninga af austanmiðum til Síldarverksmiðja ríkisins á Siglufirði. Hefur skipið alls flutt þangað 110 þús. mál í 6 ferðum. Þetta magn hefði að sjálfsögðu orðið allmiklu meira, ef skipið hefði verið tilbúið í upphafi síldarvertíðar. Siglufjörður er eina síldarverksmiðjuhöfnin norðanlands, þar sem skipið getur lagzt hlaðið að bryggju. Segja má, að Siglfirðingum veiti ekki af að sitja að þessu skipi, á meðan síldin heldur sig fyrir austan, þegar litið er til hinnar geysimiklu afkastagetu síldarverksmiðja ríkisins á Siglufirði. Á hitt ber svo að líta, að aðrir staðir, þar sem hráefnasnauðar síldarverksmiðjur eru fyrir hendi, geta einnig með miklum rétti krafizt þess, að þeim sé liðsinnt.

Í sambandi við kaupin á þessu skipi mun hafa verið gefið fyrirheit um síldarflutninga til Skagastrandar á liðnu sumri. Áttu flutningarnir að framkvæmast frá umhleðslustöð á Seyðisfirði með tveim litlum leiguskipum, sem Síldarverksmiðjur ríkisins höfðu undir höndum. Efndir þessa fyrirheits voru heldur slakar, þar eð einungis voru fluttir tveir síldarfarmar til Skagastrandar, þegar langt var liðið á haust, enda voru leiguskipin mikinn hluta sumarsins í mjölflutningum til Englands. Þetta hefur valdið miklum vonbrigðum á Skagaströnd.

Að hinu leytinu verður það æ ljósara, að á komandi árum verður ekki stuðlað að lausn atvinnuvandamála Skagstrendinga með síldarflutningum, nema með því móti að útvega til flutninganna skip, sem getur flutt síldina beint af miðunum.

Það er mín skoðun, að síldarflutningar hafi ótvírætt sannað gildi sitt á undanförnum árum, þó að eflaust megi enn auka gildi þeirra til muna með tæknilegum endurbótum og betra skipulagi. Síldarflutningarnir hafa ekki einungis mikla þýðingu fyrir þá staði, þar sem skortur er á síld til vinnslu, heldur einnig fyrir síldarútveginn í heild. Með síldarflutningum beint af miðunum má spara veiðiskipunum þann tíma, sem fer í siglingu til lands og aftur út á miðin, svo og löndunarbið, og á þann hátt auka veiðiafköstin. Einkum á þetta við annars vegar, þegar síldin veiðist á fjarlægum miðum, og hins vegar, þegar mikil síldargengd er nálægt landi, en nærliggjandi síldarverksmiðjur hafa ekki undan að taka á móti. Með síldarflutningum getum við einnig að vissu marki sparað okkur nýjar verksmiðjubyggingar.

Ég vil að lokum vitna til skýrslu Efnahagsstofnunarinnar til hagráðs, sem birt var í ágústmánuði s.l., en þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Tilflutningur síldveiðanna hefur spillt stórlega afkomu síldarverksmiðjanna á Norðurlandi og teflt rekstri þeirra í algera tvísýnu. Hefur rekstur þeirra í vaxandi mæli byggzt á síldarflutningum, og er nú svo komið, að reikna má með, að meginhluti vinnslumagnsins sé fluttur langt að. Síldarverksmiðjur ríkisins, sem eiga verksmiðjur bæði á Norður- og Austurlandi, hafa mest bolmagn til að tryggja áframhaldandi rekstur verksmiðja á Norðurlandi. Verksmiðjur einkafyrirtækja og bæjarfélaga hafa á hinn bóginn ekki slíka aðstöðu. Áframhald á rekstri síldarverksmiðja og ef verða má á síldarsöltun og annarri vinnslu síldar á Norðurlandi er þýðingarmikið skilyrði fyrir viðhald og þróun byggðar í þeim landshluta.“

Herra forseti. Fjhn. hefur haft frv. þetta til athugunar, og leggur n. einróma til, að frv. verði samþ., svo sem nál. á þskj. 59 ber með sér, en þó hefur einn nm., hv. 4. þm. Norðurl e., ritað undir nál. með fyrirvara.