21.02.1967
Neðri deild: 44. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 943 í B-deild Alþingistíðinda. (636)
9. mál, Landhelgisgæsla Íslands
Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka n. fyrir meðferð hennar á þessu máli og frsm. hennar fyrir þá grg., sem hann hefur gert fyrir till. Þeir hafa rætt þetta við mig, nm., þær brtt., sem gerðar hafa verið, og ég tel þær allar til bóta og tel, að frv. sé í betra formi með þeim brtt., sem gerðar hafa verið, og þakka n. fyrir hennar tillögur.