14.03.1967
Efri deild: 53. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 951 í B-deild Alþingistíðinda. (643)
9. mál, Landhelgisgæsla Íslands
Frsm. (Friðjón Skarphéðinsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, fjallar um Landhelgisgæzlu Íslands, eins og titill þess gefur til kynna, um verksvið landhelgisgæzlunnar, starfsmenn hennar, réttindi þeirra og skyldur, um varðskipin og gæzluflugvélar, búnað þeirra og Landhelgissjóð Íslands. Ákvæðum um þessi efni hefur þannig verið safnað saman í einn stað, en þau eru nú í ýmsum eldri lögum, sem numin verða úr gildi, ef frv. verður að lögum. Auk þess eru ýmis nýmæli í frv., sem rétt hefur þótt, að heima ættu í heildarlöggjöf um þessi efni. Frv. er stjfrv., komið frá Nd. Þar var nokkrum atriðum þess breytt, og er það nú á þskj. 259, eins og það var samþykkt í Nd.
1. gr. frv. fjallar um hlutverk landhelgisgæzlunnar í átta stafliðum, og er þar fyrst talið verkefni hennar löggæzla á hafinu umhverfis Ísland, jafnt innan sem utan landhelgi. Í þessu felst það að sjálfsögðu, enda þótt það sé ekki nánar skilgreint í frv., að landhelgisgæzlan á að annast löggæzlu innan landhelginnar fyrst og fremst og utan hennar, að því leyti sem samræmanlegt er alþjóðalögum og alþjóðasamningum eða milliríkjasamningum, og tekur vitanlega til íslenzkra skipa utan landhelginnar. M.a. má benda á milliríkjasamninga um möskvastærð og aðra hugsanlega samninga fiskveíðiþjóða, sem Ísland er aðili að og landhelgisgæzlan mundi hafa eftirlit með að haldnir væru. Hugsanlegt er líka, að landhelgisgæzlan gæti samkv. samningum fiskveiðiþjóða í Norður-Atlantshafi tekið að sér og hafa með höndum almenna löggæzlu eða takmarkaða löggæzlu á vissum hafsvæðum utan landhelginnar, t.d. friðun svæða í hafinu utan landhelginnar, ef samningar um slík friðuð svæði kæmust á.
Síðan eru talin upp í 1. gr. önnur hlutverk landhelgisgæzlunnar, svo sem björgunarstarfsemi, aðstoð við báta og skip, samgönguaðstoð við afskekkta staði, þegar sérstaklega stendur á, sjómælingar, hafrannsóknir og aðrar rannsóknir, að fjarlægja hættuleg reköld, tundurdufl og aðra hættulega hluti, að aðstoða við almannavarnir, almenna löggæzlu og læknaþjónustu, og tollþjónustu.
Að lokum er ákvæði í h-lið 1. gr. um, að landhelgisgæzlan eigi að fylgjast með öryggis- og björgunarbúnaði skipa, ef ástæða þykir til. Þessu síðastgreinda ákvæði var bætt inn í frv. í Nd., og var það gert án samráðs við skipaskoðunarstjóra. Hins vegar kom í ljós, að skipaskoðunarstjóri hafði sitthvað við ákvæði þetta að athuga. Hann bendir á, að eins og ákvæðið er orðað, sé verið að fela landhelgisgæzlunni eftirlit með öryggis- og björgunarbúnaði skipa sem sjálfstætt verkefni án samráðs við þá stofnun, sem hefur þetta verkefni með höndum samkv. lögum, þ.e. Skipaeftirlit ríkisins, sem skipaskoðunarstjóri veitir forstöðu. Hann hefur ritað allshn. bréf um þetta efni, sem hún hefur fjallað um við meðferð málsins. Hann hefur bent á, að betur færi á að orða þennan staflið á annan veg og í samræmi við lög um eftirlit með skipum, þannig að orðalag um skyldu landhelgisgæzlunnar í þessum efnum hljóði á þessa leið: „h) Að tilkynna tafarlaust Skipaskoðun ríkisins, ef vart verður við, að brotin eru lög um eftirlit með skipum eða brotnar reglugerðir, sem settar eru samkv. þeim, eða telji hún ástæðu til að ætla, að skip sé ekki haffært.“
Allshn. þessarar hv. d. hefur kynnt sér þetta efni eftir föngum og hefur fallizt á skoðun skipaskoðunarstjóra. Hún leggur því til, að staflið h í 1. gr. frv. verði breytt í það horf, sem skipaskoðunarstjóri leggur til, eins og fram kemur í nál. allshn. á þskj. 328.
Um aðrar gr. frv. sé ég ekki ástæðu til þess að fjölyrða, en þær fjalla, eins og ég sagði áðan, um stjórn stofnunarinnar og starfsmenn hennar, réttindi þeirra og skyldur, launakjör, þ. á m. ákvæði um björgunarlaun, sem eru lítils háttar breytt frá því, sem nú er í gildi, á þann veg, að yfirstjórn landhelgisgæzlunnar skuli heimilt að greiða af hluta landhelgissjóðs ákveðna fjárhæð til þeirra, sem mest hafa lagt sig fram við björgun, þ.e.a.s. hluta landhelgissjóðs af björgunarlaunum. Að lokum eru ákvæði um varðskipin sjálf, gæzluflugvélar landhelgisgæzlunnar og búnað þessara farartækja og um Landhelgissjóð Íslands, en gildandi lagaákvæðum um þennan sjóð er í engu breytt með þessu nýja frv. Um öll þessi atriði fjallaði hæstv. dómsmrh. í framsöguræðu við 1. umr. málsins, og hef ég engu við það að bæta, nema tilefni gefist til.
Allshn. þessarar hv. deildar hefur fjallað um frv. á fundum sínum og leggur til að það verði samþykkt með þeirri einu breytingu, sem ég hef áður greint frá og prentuð er í nál. á þskj. 328. Einn nm., hv. 1. þm. Vestf., var ekki viðstaddur lokaafgreiðslu málsins á fundi allshn.