21.03.1967
Neðri deild: 57. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 977 í B-deild Alþingistíðinda. (683)

148. mál, Lífeyrissjóður barnakennara

Fjmrh. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Ég vildi leyfa mér að mega samtímis tala fyrir þessu frv. og næsta máli á dagskrá, með leyfi hæstv. forseta, þar sem hér er um frv. að ræða, sem eru sama eðlis, en þau fjalla í stuttu máli um það að veita aukin réttindi þeim ríkisstarfsmönnum, sem hafa hætt störfum hjá ríkinu, áður en þeir náðu fullu aldurshámarki, ef þeir hafa samfellt gegnt störfum hjá ríki eða ríkisstofnunum í 15 ár. Ástæðan til þess, að frv. er flutt, er sú, að eins og hv. þdm. er kunnugt, er verðtrygging á lífeyri úr þessum lífeyrissjóði á þann hátt, að lífeyririnn er hverju sinni miðaður við þau laun, sem greidd eru í sambærilegu starfi. Þeir, sem hafa hætt störfum hjá ríkinu, njóta hins vegar ekki þessara réttinda, heldur eru þeirra laun miðuð við þau laun, sem starfið bar, þegar þeir hættu, og er hér að sjálfsögðu um mikla mismunun að ræða. Aftur á móti þykir það sjálfsagt og eðlilegt, að ekki sé gerður jafn hlutur þeirra manna, sem allt til loka starfsaldurs gegna störfum í þjónustu ríkisins, og hinna, sem af einhverjum ástæðum hafa hætt, og því eru hér sett nokkru þrengri mörk en almennt gilda um lífeyrissjóðsréttindi lífeyrisþega úr þessum sjóðum, þegar um það er að ræða, sem hér greinir, að þeir hafi hætt störfum áður. Bæði er það, að takmörkin varðandi þá menn, sem njóta þessara réttinda, eru þrengri, því að í Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins geta verið ýmsir aðrir aðilar en þeir, sem hér um ræðir, en það þykir ástæða til að hafa mörkin þrengri vegna þess, að verðtryggingin er algerlega borguð úr ríkissjóði, en ekki úr lífeyrissjóði. Það þykir því sanngjarnt og eðlilegt með hliðsjón af því, að hér séu mörkin sett þannig, að þetta sé takmarkað við starfsmenn ríkisins og hjá tilteknum ríkisstofnunum. Í annan stað er rétturinn miðaður við 15 ára starfsaldur en ekki 10 ár, sem er hin almenna regla. Frv. þessi eru útbúin af stjórn lífeyrissjóðsins og vænti ég þess, að hv. þdm. þyki þau ganga til móts við þær óskir, sem stundum hafa komið hér fram á Alþ. um breyt. í þessu efni og þyki jafnframt ekki óeðlilegt, að mörkin séu nokkuð strangari en ella. Þá er á l. um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins gerð sú breyt., að starfsmönnum BSRB er veittur aðgangur að lífeyrissjóði, en hingað til hafa þeir ekki haft það, og hafa ekki aðstöðu til að vera í neinum lífeyrissjóði. Hér getur ekki orðið um nema sárafáa menn að ræða, en þar sem hér er um samtök starfsmanna ríkisins að ræða, sýnist ekki óeðlilegt að veita þeim þennan rétt.

Ég vænti þess, að hv. þd. geti fallizt á frv. þessi, eins og þau liggja fyrir, þau hafa þegar fengið afgr. í hv. Ed., og ég vil leyfa mér að leggja til, að þeim verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn.